Vísir - 10.09.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 10.09.1971, Blaðsíða 9
VlSIR. Föstudagur 10. september 1971. 9 „ ... .og jafnframt sæti á- kærði þriggja mánaöa fangelsi". les dómarinn upp og hvarflar augunum til gæzlufangans til þess að sjá, hvernig honum verð ur við. — Engin svipbreyting. Ekki þá, en um kvöldið nckkr um klukkustundum síðar, þegar dómarinn skotrar grem'ulega augum til sessunauts síns á kvöldsýningu í bíó, vegna þess að skrjáfið í sælgætisbréfinu ergir hann, mætir honum háös- legt giott þjófsins, sem hann hafði dæmt til fangelsisvistar fyrr um daginn. Spurði einhver, hvar slíkt gerð ist? — nú, bara hér í Reykja- vík. Á lögreglustöðinni horfir varö stjórinn þungur á brún á gleið- gosalogan unglinginn, sem hlær háðs’.ega framan í hann „Já, já, ég er búinn aö segja, að ég gerði það. Er þetta þá ekki búið? — Hvaða predikun er þetta eiginlega? Til hvers eruð þið annars að þessu? Þið vitið vel, að ég er ekki nógu gamall ti! þess að þið megið loka mig inni— nema ef það væri vegna þess, að það þarf að rannsaka málið. En það þarf ekkert að rannsaka neitt. Ég er búinn að eefa skýrsluna og búinn að játa allt. Þið hafið ekkert leyfi til þess að halda mér. Ég veit að ég má fara.“ segir gæinn og getur illa leynt fyrirlitningu sinnj á béssu yfirvaldi, sem svo auð- v er að leika á, — bað er jafn vel einfaldara en að taka brjóst svkur frá krakka Varðstjórinn r á hann orðlaus, því að iiann veit, að hvert orð er satt. Hann lætur leiða pi’tinn burt og forla . að mæta ásakan'ti ’ujnr'11 manna sinna, sem höfðu staðiö piltinn að innbroti og grioið honn glóð volgan. — Þeir höfðu komið til hans fvrir nokkrum dogum. þee- ar þeir einmitt höfðu handsam- að bennan sama pilt. staðið ’ ann að b’ófnaði og farið með hrnn á stöðina, en mætt honum síðan nokkrum klukkustundum siöar á götunni. Auðvitað héldu þeir, að hann hefði strckið, og fóru með hann aftur. — En nei, ‘hann hafði ekki strokið, og um leið og strákur fékk að fara út aftur rak hann framan í þá tunguna. Já einmitt — það gerist líka hér í Reykjavík. Heima við morgunverðarborð- ið situr borgarinn yfir kaffibolla sínum og rennir augum yfir fyrir sagnir fréttablaðanna. „Brotizt var inn á 10 stöðum í Reykja- vík um síðustu helgi. — Varð- stjóri handsamar pilt, sem farið hafði inn í niu íbúöir og stolið samtals milli þrettán og fimmtán þúsund krónum. — Tíu piltar á aldrinum 12—16 ára upp vísir að fiörutíu innbrotum, sem þeir höfðu framið á undanförn- um mánuðum. — Lögreglan hef ur hendur í hári þjófaflokks. — Læddist um fimm íbúðir á einni nóttu og stal, meðan heimilis- fólkið svaf. — Skartfri’num fyr ir tug; þúsunda stolið úr sýn- ingarglugga." Á fimm ára - starfsferli lög- reglufréttaritara Vísis hefur aldrei liðið svo vika aö ekki væri hægt að sep’a frá að minnsta korti 3 eða 4 innbrotum. Fnginn hccur tíma til þess að dnnda við að kasta ttMu á þessi afbrot, þeir einir sem hafa með ,iau að gera dags daglega, geta borið um, að þeir hafi það á til- finningunni, að þessu fari fjölg- andi. Síhækkandi staflar af skýrslum á borðum þeirra eru hið eina áþreifanlega, sem segir þeim þetta. Sagöi einhver; Léleg löggæzla? — Um fjörutíu eða fimmtíu lögregluþiónar ganga hér að störfum í Reykjavík um hádag inn: Nær þrjátíu um nætur. Aft ur og aftur eru þeir að hand- taka söniu afbrotamennina og svo nýja og nýja, sem bætast i hóþirin. Á stundum finnst þeim sjáifúm að starf þeirra minni á söguna um sjúklinga geðspítal- ans, sem voru látnir eyða tíman um með þvi að moka sand í poka niðri i kjallara, bera upp stiga unp á loft og hella þar niður um trekt niður í kjallara aftur — og byrja svo á nýjan leik á öllu saman. Við framhaldsrannsókn þess- ara mála taka um 20 rannsóknar lögreglumenn. Frá morgni til kvölds vinna þeir við yfirheyrsl ur og skýrslugerðir, gagnasöfn- un og endurheimt stolins góss — eöa önnur lögreglustörf. Við dómsrannsóknir, dóms- uppkvaðningar og önnur dóms- störf i sakamálum vinna 6 sakadómarar í Reykjavík og 5 fulltrúar Keim til aðstoðar. Þeir taka viö öllum málum, sem rann sóknarlögreglumenn hafa lokið undirbúnimrsvinnu viö. Hjá saksóknara ríkisins starf- ar enn einn hópur manna við meðferð þessara sakamála. Og slíkt er annríkiö. að sumir þessara manna taka sér ekki sumarfrí um árabil. Kannski bara á þriggja ára fresti. jifh árangur starfsins er svpna ámóta og bóndans, sem smalar saaðfénaði sínum að hausti inn i rétt, en verður síöan aö hleypa því öllu út úr réttinni aftur út í hagana — án bess að eiga nokkurt hús til þess að setja aiöröina í. í fangelsinu að Litla-Hrauni rúmast 20 fangar. Éf dæmdir eru á öllu landinu 5 afbrota- menn í hverri viku til fangelsis vistar, þá fyllist þetta eina fang elsi á einum mánuði. — Ef þeir | hafa hver um sig fengið 3 mán 1 aöa refsingu. sem er ekkert sér | lega strangur dómur bá kpmart 1 ekki aðrir þar fvrir næstu þrjá ’ mánuði. \ meðan safnast c-rir 60 afbrotamenn, sem bíða þess að afplána sína dóma. Þegar fyrsti hópurinn hefur afplánaö sína refsingu geta næstu 20 kom ist að, og eftir bíða 40. Og á meðan hópur nr. tvö afplánar sína refsingu safnast fyrir aðrir 60, svo að hundrað eru komnir á biðlista eftir 6 mánuði. Þetta er nánast eins og dæmið um fjölgun rottunnar, ef mönn- um finnst þaö ekki alltof óvið fe'ldin samlíking. Og ef hinir dæmdu, sem biða þess að röðin komi að þeim. halda áfram iðju sinni á meðan. þá er ekkert undarlegt við það, þótt innbrotum og þjöfnuöum og öðrum afbrotum fari fjölgahdi. Né er heldur neitt ótrúlegt viö það, að dómarinn hafi að sessu naut í kvikmyndahúsinu ótínd- an þjóf, sem hann dæmdi fvrr um daginn til fangelsisvistar. — Eða að lögreglumaðurinn hand- ’aki í miólkurbúð um kvöldið innbrotsþjóf sem hann greip f fiskverzlnninni í birtingu um j morguninn. Þess vegna finna menn ekki j meira fyrir því, þegar refsivönd j ur laganna er reiddur tii höggs heldur en þegar fluga sezt á handarbak þeirra. —GP j VfsmSFYB: — Hvað vildir M láta gera við innbiotsþjóf- ana? Helga Þorkelsdóttir, húsmóðir. Sandprýði í Vestmannaeyjum: „Reyna að leiða þeim fyrir sjón ir hve rangt þetta athæfi þeirra er. Leiöa þá þannig á rétta braut en nota hins vegar ekkj mjög stranga hegningu". Egill Gestsson, tryggingamiðl- ari: „Tja svei mér, að ég sjái neitt sem hrífa mundi. — Nema það sem Kristján Albertsson stakk eitt sinn upp á; Að setja þá i búr á Lækjartorgi og vita hvort þeir sjái ekki að sér eftir að hafa dúsað þar“. Kristján Þórðarson. tækninemi: „Þaö væri nú undir ýmsu komið — aldri og hve forhertir þeir væru. — Vægilega á þeim yngri, en þó ákveðiö — Og ef það dug ar ekki, þá bara rassskella þá á Lækjartorgi." Bragi Eggertsson, húsgagnasmið ur: ,Hegna þeim stranglega fyr- ir — jafnvel taka enn haröar á þeim en nú er gert — Lengra fangelsi og tryggari gæzlu á þeim Þeir sæju sig þá kannski um hönd“ „Ég vil helzt láta þá vinna fyrir b\ö tjóni, sem þeir hafa bakaö fólki. Það hygH ée. að hrifi — Þeir sleppa nefnilega yfirfeií:- án þess að bæta mönnum skað ann, og reyndar mikið ti! án þess að taka út nokkra hegningu fyrir afbrotið".

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.