Vísir - 21.09.1971, Side 5
V í S IR Þriðjudagur 21. september 1971.
SKORADIBHNT URHORN-
SPYRNUILOKIIIKSINS
— þab rrægði Sheff. Utd. gegn Leicester
og libib hefur enn forustu i 7. deild
Lífiö er ekki dans á rós-
um raú fyrir ensku meist
aram Arsenal eins og í
vor, þegar liðið var nær
ósigrandi og vann bæði
deild og bikar. Og á laug
ardaginn tapaði Arsenal
sínum fjórða leik í haust
— en á öllu síðasta
keppnistímabili tapaði
liðið aðeins sex leikjum.
Munurinn er því mikill
og ekki bætti úr skák í
leiknum gegn Everton
á Goodison Park í Liv-
erpool á laugardaginn,
að fyrirliði liðsins og
knattspyrnumaður árs-
ins Fransk MeLintoek,
varð að yfirgefa leik-
vanginn eftir aðeins 15
mmútur slasaður. Eddie
Kelly tók stöðu hans í
liðinu.
Everton hafði þá reyndar náö
forustu í leiknum, því hinn tví
tugi miðherji liðsins David
Johnson hafði skorað fyrsta
markið mínútu áður Joe Royle
jók í 2 — 0 fyrir Everton áður
en John Hurst varð fyrir því
óláni, að senda knöttinn í eigið
mark. Staðan í háifleik var 2—1
fyrir Everton og það urðu einnig
lokatölur leiksins — og Arsenal
hefur ekki ugnið leik í deildinni
á Goodison,*Park1 í þrettán ár.
Sigur Everton var verðskuldað-
ur
Tottenham stillti upp sama
liði á Iaugardag og lék gegn
Keflavík sl. miðvikudag og þrátt
fyrir taisveröa yfirburði gegn
Crystal Palace frá Suður-London
tókst leikmönnum Tottenham
ekk; að skora mark i fyrri hálf
leik, En í síðari hálfleiknum var
mikili munur og þá voru áhorf-
endur á White Hart Lane á-
nægðir. Martin Peters skoraði
fyrsta markið í leiknum úr víta
spyrnu og rúmum tuttugu mín.
síðar var staðan orðin 3 — 0. —
Martin Chivers og Alan
Muilery skoruðu og var mark
Muilery eitt hið fallegasta, sem
skorað hefur verið á hinum
fræga' velli, þar sem Keflavik
leikur annan miðvikudag fyrst
íslenzkra Iiða.
En nú skulum við líta nánar
á úrslitin siðastliðinn laugardag:
1. deild.
Manch. Utd. — West Ham 4—2
Newcastle — Wolves 2—0
Nottm. For. — Manch. City 2—2
Southampton — Coventry 3—1
Stoke — Huddersfield 1 — 0
Tottenham — C Palace 3—0
W.B.A. - Ipswidh 1-2
2. deild.
Birmingham — Bristol C. 1—0
Burnley - Q.P.R. 1—0
Hull — Portsmouth 1—3
Middlesbro — Cardiff 1—0
Millvall — Luton 2—2
Norwich — Oxford 3 — 2
Orient — Carlisle 2—1
Preston /— Charlton 2 — 1
Sheff. Wed. — Sunderland 3—0
Swindon — Fulham 4—0
Watford — Blackpool 1—0
beint Á síðustu mínútunni mun
aðj litlu, að Leicester jafnaði,
en fyrirliði og miðvörður United
Edmond ColquhouB, bjargað; þá
á marklínu.
Chelsea, sem seldi Suður-
Afríku-manninn Derek Smet-
hurst til annars Lundúnaliðs í
vikunnj — Millvall fyrir 40 þús
und sterlingspund — náði jafn-
Chelsea — Derby 1—1
Everton — Arsenal 2-1
Leicester — Sheff. Utd. 0-1
Leeds — Liverpool 1—0
West Ham fór til Old Trafford
í Manchester án þess að hafa
tapað í fimm síðustu leikjum s'in
um og Clyde Best þeirra frá
Bermuda va'r með í förinni —
Leikurinn var aúglýstur sem ein
vígi milli hans og annars Best,
sem vist allir þekkja, sem með
knattspyrnu fylgjast — írska
snillings George Best. Og Berm-
udasvertinginn, stór og sterkur,
var góður — en komst þó ekki
'i hálfkvist við litla, irska strák-
inn, sem lék allar sínar beztu
listir eins og Georgie einn get-
ur á góðum degi. Þrisvar sendi
hann knöttinn í mark West Ham
—- tvívegis eftir hornspyrnur
Bobby Charlton — og i þriðja
skiptið — síðasta mark leiksins
— beinlínis gekk hann með
knöttinn inn 'i vítateig West
Ham án þess, að varnarmennirn
ir komu við nokkrum vörum og
svo a'llt 'i einu úr ,,dauðri“ stöðu
varð eins og sprenging — knött-
urinn söng í netinu eftir þrumu
skot. Þeim Clyde Best og Trevör
Brooking tókst að jafna tvö
fyrstu mörk þeirra Best og
Charltons — en eftir að Den-
is Law hafði komizt rnn í send
ingu Harry Redknapp og sent
knöttinn yfir Bobby, sem skor
aði eitt af sínum frægu mörk-
um, var sem eitt lið væri á vell-
inum og mörk United hefðu get
að orðið fleiri.
Sheff. Utd. heldur enn áfram
sigurgöngu sinni, en var nú
heppið — eða öllu heldur
Leicester óheppið — að bæði
stigin féllu liðinu í skant. —
Leicester, sem sigraði í 2. deild
■i vor komst upp eins og Sheff.
Utd., hafði sýnt jafn góðan leik
á öllum sviðum. Þó varð Peter
Shilton á þessum 22 ára afmæl-
isdeg; sínum, að sýna sitt bezta
í marki tvívegis til að koma í
veg fyrir mörk. Og það getur
þessi arftaki Gordon Banks í
Leicester-markinu (Banks var
seldur til Stoke til þess Pétur
kæmist í markið) og sennilega
einnig Englands betur en flestir
aðrir. En svo urðu honum á
mistök fimm m’in. fvrir leikslok.
Sheff. Utd. fékk þá tvær horn-
spyrnur i röðjog úr þeirri síð-
ari skoraði Alan Woodward
tefli gegn Derby á leikvelh sín-
um, Stamford Brigde. Roy Mc-
Farland skoraöi fyrir Derby eftir
hálftíma, en Tommy Baldwin,
sem aftur hefur náð stöðu sinni
frá 100 þúsund punda manninum
frá Bristol City Chris Garland,
jafnaði á 65. mín. Leeds sigraði
lliverpool með eina markinu, er
skorað var í þessum fyrsta leik
/
liösins á heimavelli í haust, og
var Lorimer þar að verki á 56.
mínútu, Leeds leikur á morgun
gegn Barcelona — fyrsta sigur
vegaranum í Borgakeppni Evr-
ópu — um bikar keppninnar og
á nú að stríða við verstu meiðsli
í sögu félagsins. Sjö aöalmenn
eru meiddir, Cooper, Giles,
Clarke Gray, Jones Yorath og
Bates. ,,Öðru eins hef ég aldrei
lent í“ sagði framkvæmdastjóri
Iiðsins, Don Revie, \ gær.
Um aðra leikj í fyrstu deild
er það að segja aö Ron Davies
lék nú sinn fyrsta leik með
Southampton í haust og þessi
bezti „skalli“ sem sézt hefur
á Laugardalsvellinum (með Nor-
wich) hafði góð áhrif á samherja
sína, sem léku vel gegn Coven-
try. Hugh Fisher, einj Gyðingur
inn í 1. deild. skoraði strax í
byrjun fyrir Dýrlingana, Ernie
Hunt jafnaði fyrir Coventry, en
Terry Paine og Mike Channon
tryggðu sigurinn. írski landsliös
maðurinn Gerry Conroy skoraði
eina mark leiksins í Stoke og
þeir Terry Hibbitt — með mesta
þrumuskotj sem sézt hefur í
áratugi f Newcastle — og John
Tudor skoruðu mörkin gegn
Úlfunum.
Staðan í 1. deild er nú þannig:
Sheff. Utd. 9 7 0 2 17-6 16
Manch. Utd. 9 6 2 1 20-11 14
Derby 9 4 5 0 17-7 13
Leeds 9 5 2 2 12-7 12
Man. City 9 4 3 2 16-8 11
Tottenham 8 3 4 1 14-10 10
South’pton 9 4 2 3 14-12 10
Liverpool 9 5 0 4 13-12 10
Wolves 9 3 4 2 10-10 10
Stoke 9 4 2 3 10-11 10
Arsenal 8 4 0 '4^ 9-7 8
West Ham 9 3 2 4' .Jl-H 8
Ipswich 9 2 4 3 6-7 8
Everton 9 3 2 4 6-8 8
Ohelsea 9 2 3 4 12-17 7
Newcastle 9 2 3 4 9-14 7
Coventry 9 1 5 3 11-18 7
Nottm. For. 9 1 4 4 11-15 6
W. B. A 9 2 2 5 6-9 6
Leicester 9 2 2 5 9-14 6
Huddersfield 9 2 2 5 8-15 6
C. Palace 9Í 1 1 7' 5-18 3
Ron Davies er mesti „þrumuskalli“, sem leikið hefur hér á
Laugardalsvellinum. Hann lék sinn fyrsta leik með South-
ampton í haust og „Dýrlingamir“ unnu góðan sigur.
Þerr Francis Lee og Colin
Bell meiddust í terknum í Nott-
ingham og geta' ekki leikið með
enska deildaliðinu á morgun
gegn írsku deildinni. Einnig A'l-
an BaiL í þeirra stað valdi Sir
Alf Ramsey Ray Kennedy, A^s-
enal, Alan Woodward, Sheff.
Utd. og DaVid Nish, Leicester.
Kennedy var að tilkynna fonföil
vegna meiðsla eftir teikinn við
Everton. — hsím.
Leikmenn Arsenal hafa haft litla ástæðu til að skála í kampavíni í'haust. Þeir töpuðu fjórða
leiknum gegn Everton á laugardag og þá meiddist fyrirliðinn, Frank McLintock (til vinstri).
Myndin hér að ofan var tekin eftir „the double“ í vor og Frank og annar Skoti, George Gra-
ham, sjást hér ásamt eiginkonum sinum.
I