Vísir - 02.10.1971, Qupperneq 8
V1SIR. Laugardagur 2. október 1971.
Útgefandi: Reykjapreut hf.
'ramkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Símar 15610, 11660
Afgreiðsla: Bröttugötu 3b. Sími 11660
Ritstjórn : Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 195 á mánuöi innanlands
í lausasölu kr. 12.00 eintakið.
Prentsmiðja Vísis — Edda fú".
Gegn vilja meirihlutans
| málefnasamningi ríkisstjórnarinnar segir að varn-
arsamningurinn við Bandaríkin skuli „tekinn til end-
urskoðunar eða uppsagnar í því skyni, að varnarliðið
hverfi frá íslandi í áföngum. Skal að því stefnt að
brottför liðsins eigi sér stað á kjörtímabilinu.“
Enginn efi er á því, að þarna hafa kommúnistar
sagt fyrir verkum í samningsgerðinni. Hitt verður að
draga í efa að meirihluti þeirra kjósenda, sem greiddu
stjórnarflokkunum atkvæði í kosningunum, hefði
samþykkt þetta ákvæði, ef kosið hefði verið um það
sérstaklega. Mikil ástæða er til að ætla að það hefði
verið fellt. Það er vitað, að meirihluti Framsóknar og
vafalítið eitthvað af því fólki, sem kaus hina flokk-
ana, er á móti því að reka varnarliðið úr landi. Það
er og vitað og yfirlýst, að allir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar, 28 að tölu, og sennilega svo til allir kjós-
endur þeirra, eru þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar
andvígir líka. Þar með hefur hún gengið í berhögg
við vilja mikils meirihluta þjóðarinnar, eins og að var
vikið í leiðara Vísis í fyrradag.
Ekkert er við það að athuga, þótt stjórnin vilji end-
urskoða vamarsamninginn. Til þess geta legið gildar
ástæður. En hitt, að „stefna að því“, að gera landið
vamarlaust innan fjögurra ára er ákvörðun, sem
hlýtur að vekja ugg í brjósti margra, sem í alvöru
hugsa um framtíðaröryggi og frelsi þjóðarinnar.
Kommúnistar hefðu vitaskuld helzt viljað fá inn
í málefnasamninginn, að ísland gengi úr Atlantshafs-
bandalaginu, en svo langt hefur Framsókn ekki séð
sér fært að láta þá teygja sig. En öll undanlátssemi
við kommúnista er hættuleg, og um það höfum við
ótal dæmi frá öðrum löndum. Hér er heldur ekki ein-
göngu um hagsmuni og öryggi íslands að ræða. Okk-
ur er skylt að hafa líka í huga öryggi nágranna okk-
ar og frændþjóða, sem með okkur em í varnarsam-
tökum lýðræðisríkja en af því leiðir að við verðum að
leggja fram okkar skerf til þess að efla þau samtök
og varnarmátt þeirra. Það er vilji yfirgnæfandi meiri-
hluta íslenzku þjóðarinnar. Þess vegna hljóta allir
þjóðhollir menn að vona í lengstu lög að núverandi
afstaða ríkisstjómarinnar í þessu máli breytist, og
ekkert verði úr þessu áformaða fmmblaupi fremur
en hjá vinstri stjóminni fyrri. .
Oft er vitnað í það, að upphaflega hafi ekki verið
talið nauðsynlegt, eða jafnvel ekki gert ráð fyrir, að
her væri hér á friðartímum. Þeir, sem svo mæla, segja,
að nú séu friðartímar og hafi verið lengi. Samkvæmt
þeim skilningi eru alltaf friðartímar, ef ekki er verið
að berjast í Evrópu, þótt allt logi í ófriði víða annars
staðar og við borð liggi að stórveldunum lendi saman
út &f þeim átökum, eins og t.d. við botn Miðjarðar-
hafs. Em ekki Rússar nýbúnir að fara með her inn í
Tékköslóvakíu? Og hvað væm þeir komnir langt vest-
ur, hefði Atlantshafsbandalagið ekki verið stofnað?
E. Fjærli ofursti segis, að íslendingar og Norðmenn hafi áður
snúið bökum saman. £
Norskur her
tíl íslands?
— norskur ofursti mælir með því — tekst
Olafi Noregskonungi jbað, sem forfeðrum hans mistókst?
„Ríkisstjórn íslands hef-
ur lýst því yfir, að hún
vilji segja upp varnar-
samningnum við Banda-
ríkin en ætlast þó til, að
væntanlegur brottflutn-
ingur bandaríska hers-
ins eigi sér stað á fjög-
urra ára tímabili, það
er að segja fyrir næstu
alþingiskosningar.
Ríkisstjórnin vill samt,
að ísland sé áfram í Atl
antshafsbandalaginu. —
Allt þetta hefur á svip-
stundu skapað vanda-
mál í varnarmálum og
öryggismálum. Það á
ekki sízt við í Noregi. —
Áhrif brottflutnings
bandaríska hersins á ör-
yggi okkar verða tví-
mælalaust mikil.
Rússar reyna að hindra
starfsemi Polaris-kaf-
báta
Baksvið þessa er þaö, hversu
greinilega Sovétríkin stefna að
því að ná undirtökunum á
Norður-Atlantshafi. Til þess
hafa hingað til verið tvær or-
sakir:
í fyrsta lagi vamarsjðnarmið.
Sovétríkin reyna að hindra
starfsemi bandart'sku Polaris-
kafbátanna í Norður-Atlants-
hafi. Þetta er mjög mikilvægt á
núverandi tímabili. Sovétrfkin
hafa náð forskoti í gerð lang-
drægra kjarnorkueldflauga, og
Bandaríkin verða að byggja
miklu meira en áður á eldflaug-
um á kafbátum, en þær geta
enn aðeins dregið takmarkaða
vegalengd.
Aðalbækistöðin í
Murmansk
1 öðra lagi árásarsjónarmiðin.
Sovétríkin hafa byggt upp feiki-
legan kafbátaflota. Hann hefur
mörgum verkefnum aö sinna, i
vörnum eins og í árás. En sá
hluti flotans, sem fer á haf út og
stefnt er gegn skipum NATO á
Atlantshafi, hefur nær allur
bækistöðvar á Murmansk-svæð-
inu. Það sama á við um nær alla
rússnesku kafbátana, sem búnir
iiiiiinmi
(Jmsjön: Haukur Helgason
eru eldflaugum með kjarnaodd-
um. Þetta er eðlilegt. Það er að-
eins stöðin við Murmansk, sem
veitir beinan aðgang tij heims-
Ijafanna. En sú leiö liggur ein-
mitt gegnum Norður-fshafiö.
Rússnesk; herstyrkurinn á
Murmansksvæðinu er nú geysi-
mikili. Hann ræður yfir 24
tundurspillum, 70—80 freigátum
og korvettum og 206 kafbátum.
Milli 10 og 15 nýir kafbátar eru
smfðaðir ár hvert fyrir þetta lið,
og þeir era einmitt af þeirri
gerð. sem fer út í höfin og er
búin eldflaugum. . Fjölmargir
hafa bent á þetta einmitt allra
síðustu árin, og sumir hafa
bent á þetta miklu lengur.
Tóku sér stöðu nær
íslandi en áður.
Floti Sovétríkjanna hefur
þann mikla veikleika, að hann
skortir flugmóðurskip og enn
er ekki bolmagn til staöar til að
smíða þau í nokkur ár. Þv'i
verða Rússar að treysta á flug-
vélar frá landi.
Þegar heræfingin „Sever“ stóð
yfir sigldi rússnesk flotadeild
meðfram allri strönd Noregs og
hún var þannig búin að unnt
var að setja á land litla sveit
sjóliða.
1 æfingunum „0cean“ tóku
Rússar sér stöðu á línu milli ís-
lands og Færeyja, lengra vestur
en áður.
Tillögur koma fram um að Ieysa vandamálið, sem brott-
vfsun bandaríska herliðsins á Keflavíkurflugvelli muni
skapa, með því að norskur her komi í staðinn. Gæti
því svo farlð að Ólafur Noregskonungur næði því
markmiði forfeðra sinna að koma norskum her á land
á íslandi.
Við birtum hér grein, sem norskur ofursti skrifaði um
þetta mál eftir stjórnarskiptin á íslandi og birtist í
norsku blaði.
Gætu tekið Keflavíkur-
stöðina með skyndi-
áhlaupi.
í þessu sambandi er rétt að
koma að einni afleiðingu þess,
að herstöðin á Keflavíkurflug-
vell; verði lögð niður. Þá væri
Rússum kleift að taka áður-
nefnda stöðu og halda hennl.
En þetta hefðj gildi fyrir
Rússa í öðru. Þeir gætu sjálfir
tekiö stöðina á hættutímum
meö skyndiáhlaupi. Það mundi
veita þeim mjög mikinn hern-
aöarlegan ávinning og veikja
Atlantshafsbandalagið að sama
skapi. Fyrir Noregi yrðj þetta
mjög hættulegt.
„íslendingar gætu sætt
sig við norskan her“
Ef tslendingar vilja vera áfram
J Atlantshafsbandalaginu, verð-
ur að tryggja varnir Keflavikur
gegn skyndiárás Rússa. Ef ts-
lendingar vilja ekki, að Banda-
ríkjamenn geri það og vilji þeir
ekki stofna eigin her, verða her-
sveitir frá öðrum löndum At-
lantshafsbandalagsins að taka
varnirnar að sér.
Það er ástæöa til að ætla, að
íslendingar gætu bezt sætt sig
við norskan her.
Norskur her undir
stjórn íslenzku ríkis-
stjómarinnar
Norskur her gæti verið undir
stjórn íslenzku ríkisstjómarinn-
ar með nokkrum undantekning-
um
íslendingar og Norðmenn hafa
áður snúiö bökum saman.
Áðurnefndur rússneskur floti.
sem sigldj meðfram Noregs-
ströndum í heræfingunum „Sev-
er“. hefði getað hertekið marga
flugvelli Atlantshafsbandalags-
ins, sem eru við ströndina. Þá
hefðu Rússar náð í nokkrar af
þeim stöðvum. sem þeir þarfn-
ast til að t>°Hast við bandari'sk
flugmóðurskip.
Með töku Keflavíkur-
flugvallar hefðu Rússar
unnið „orrustuna um
Noregshöf.“
Ef þeir hefðu líka náð Kefla-
víkurflugvelli. þá hefðu þeir
með bví væntanlega unnið
„orrustuna um Noregshöf“. Eru
flugvellir okkar nægilega varðir
og íryggðir? Það eru þtílr
asi.
Varnarkerf,- okkar byggist á
öðrum hugsunarhætti. sem er
líklega oröinn eitthvað á eftir
tímanum“