Vísir - 23.10.1971, Side 13
V1 S IR . Laugardagur 23. október 1971.
13
Plasthúð og flúor saman-
iagf geta,ef til vill komið
í veg fyrir tannskemmdir
— plasthúðun notuð / hóptilraun, sem
fer fram núna / New York fylki — visinda-
menn vonast eftir 700°Jo tannvernd
piasthúðun á tönnum þykir
geta orðið veigamikill þátt
ur í tannvernd framtíðarinnar.
Nú hefur Heilsuverndarstöð
New York fylkis hafið umfangs
miklar rannsóknir á því hvern
ig plasthúðunin revnist jafn-
framt og beitt er öðrum vemd-
unaraðgerðum fyrir tennur eins
og meðhöndlun þeirra með flú-
or. Það er talið að þessar tvær
.'.ðferðjr kunni ef til vill að geta
komið í veg .fyrir tannskemmdir
í framtíðinni.
Fram að þessu hefur tann-
vernd að mestu verið miðuð við
góða tannhirðu og notkun flúor
efna.
1 bandariska tímaritinu News
week er talað um að dr. Michael
Buonocore hafi þróað nýju að-
ferðina þar sem plasthúðun er
notuð. Þessi aðferð felist i því,
að tennurnar séu húðaðar plast
efni, tærum sirópslegum vökva
sem heiti methyl methacrylate.
Þegar aðgerðin er framkvæmd
er byrjað á þvi að heilsufræðing
ur hreinsar tennur siúklingsins
vel og vandlega, síðan eru bitflet
irnir húðaðir með vökvanutn
með pensli. Þess sé gætt sér-
stakiega að húða holur og ójöfn
ur á fleti tannanna þar sem
aðalmiðstöðvarnar séu fyrir.
skemmdir. í lokin er tæki eitt
notað til húðunarinnar og lík-
ist það byssu, en últrafjólubláir
geisiar þess festa plasthúðina,
sem harðnar og myndar ósýni-
lega húð yfir tönninni.
Rannsóknir hafa sýnt, að
plasthúðin endist í tvö ár oftast
nær og veitir nær álgera vörn
gegn tannskemmdum. í rann-
sókn sem hefur farið fram kom
það í ijós að 2% tanna, sem hafa
verið plasthúöaðar skemmdust
á tveim árum meðan 54%
tanna, sem ekki höfðu verið
húðaðar skemmdust. Til þess að
tryggja það, að réttmætar niöur
Hér sést þegar geislum er hleypt á tönnina, se m hefur veriö
húðuð en þeir herða plasthúðina.
stöður fengjust þá fóru tilraun
irnar fram á þann veg að í
manneskjunum, sem nýja efnið
var revnt á var því aðeins húðað
á tennur í öðrum kjálkanum,
en tennurnar í hinum kjálkan-
um ekki húðaöar.
Tækni sú, sem felst í plast-
húðuninni og rannsóku á herini
hefur lítið verið nötii'ð fram að
þessu nema hjá tannlæknum
siálfum, sem hafa notað hana
við sjúklinga sína.
Rannsóknin í New York fylki
mun því reyna plasthúðina með
það fyrir augum að komast að
því hversu gagnleg hún sé fvrir
allan almenning. Aðferðin verður
notuð á 4 þúsund skólanemend
um í borg nokkurri í fylkinu,
og hafa allir notið góðs áf flúor
vatni borgarinnar. Tannlæknar
munu hreinsa og húða a.m.k.
eina tönn i hverju barni. Næstu
fjogur ár munú fcennur bam-
ánná vérða rannsgjcaðar reglu-
lega til 'að sjá hversu iengi
vf SIB i VI KUL OKIN
HANDC0K HÚSk !■■■■■■ 1ÆDR 'ANNA
VÍSIR í VIKULOKIN
er orðin 400 síðna litprentuð bók í failegri möppu,
sem mniheldui allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
Kostnaöarveroi.
VÍSIR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrrt áskrifendu.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)
húðin endist og hversu vel hún
verndar gegn tannskemmdum.
Forsvarsmenn rannsóknarinn-
ar eru vongóðir um árangurinn
og vonast jafnvej eftir 100%
tannvernd. Þeir hafa einnig kom
ið með þá athugasemd að vegna
þess, að heilsufræðingar geti
sett á plasthúðina þá ætti aðgerö
in að geta orðið tiltölulega ódýr
Talað er um 2200 krónur fvrir
aðgerðina núna sums staðar.
Vísindamennimir eru svo ör-
uggir í sinni trú á að aðferðin
muni reynast vel, að þeir vinna
þegar að því að fága til aðferð-
ina t.d. hvernig megi húða efn-
inu yf-ir alla tönnina í einu og
um leið hið erfiða svæði milli
tannanna og einnig vinna þeirað
því að aðgæta hvort ekki sé hægt
að láta flúor í plastefnið þannig
að flúor muni smámsaman
smjúga inn í húðaða tönnina og
þannig veita tvöfaldar vamir
gegn tannskemrhdum. — SB
'I