Vísir - 04.03.1972, Blaðsíða 6
6
Visir. Laugardagur 4. marz 1972.
vísm
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
y Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 15610 11660
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 11660
Ritstjóm: Siöumúla 14. Sirhi 11660 ir» línuri
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi inranlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakiö.
Blaöaprent hf
Dýralíf heims í hættu
Stöðugt eru að berast fregnir viðsvegar að úr
heiminum um áhyggjur mann af þvi, að æ fleiri
dýrategundir séu i stórri hættu og sumar nálega út-
dauðar vegna gegndarlauss drápsæðis mannkyns-
ins. Viða er svo komið, að mjög strangar friðunar-
ráðstafanir hafa verið gerðar og leikur þó vafi á, að
þær nægi allar til bjargar eins og komið er. En þrátt
fyrir þessa staðreynd eru þó til i flestum eða öllum
löndum margir svo skammsýnir og eigingjarnir
menn, að þeir vilja halda drápinu áfram, ef þeir
geta hagnazt á þvi sjálfir.
Þá eru þeir og til, sem telja það skipta litlu máli,
þótt einhver dýrategund deyi út og jafnvel að það
borgi sig ekki að eyða fé og fyrirhöfn til þess að
halda henni við. Það sé a.m.k. fásinna að láta slik
náttúruverndarsjónarmið koma i veg fyrir tækni-
legar framkvæmdir og framfarir, sem þó gjarnan
er sagt að þjóðarheill krefjist. Við höfum kynnzt
þessum kenningum töluvert hér á íslandi siðustu
árin. Þeir eru t.d. til, sem telja, að fórna beri heim-
kynnum gæsarinnar i Þjórsárverum undir uppi-
stöðulón.
Við íslendingar erum enn svo lánsamir að eiga
marga fagra staði, sem eru óbreyttir allt frá þvi er
menn stigu hér fyrst á land. Auk þess að vera okkur
sjálfum til augnayndis, geta þeir lika orðið okkur
drjúg tekjulind eftir þvi sem árin liða, ef við friðum
þá fyrir umróti tækninnar.
Meðal slikra fjársjóða fegurðar og efnislegra
verðmæta eru laxveiðiárnar. Leiga á þeim er að
sönnu að verða svo ofboðslega há, að fáir lands-
menn geta veitt sér þann munað að skreppa i lax-
veiði nokkra daga á sumri. Þróunin stefnir ört i þá
átt, að fyrir okkur fari eins og frændum okkar,
Norðmönnum, að rikir útlendingar kroppi bezta
veiðitimann, en við verðum að sætta okkur við af-
ganginn eða hætta þessu skemmtilega sporti. Þó
skyldu menn varlega treysta þvi, að til langframa
verði hægt að byggja á þessari leigu til rikra útlend-
inga, en ekki er timi til að rökstyðja það nánar hér
að þessu sinni.
Ein af þeim lifverum jarðarinnar, sem um hrið
hefur að margra dómi verið i mikilli hættu vegna
ofveiði, er laxinn. Allir hafa heyrt og lesið um lax-
drápið mikla i hafinu við Grænland og raunar Noreg
lika. Nú hafa borizt fregnir um, að Bandarikin og
Danmörk hafi gert með sér samning um þessar
veiðar við Grænland og „almenn ánægja” sé i
Grænlandi með þetta samkomulag. Það á sem sé að
halda áfram að veiða laxinn i sjónum þarna,að visu
með einhverjum takmörkunum frá þvi sem var.
Hvernig þeim reglum verður svo framfylgt, á fram-
tiðin eftir að leiða i ljós, og eins hvort stofninn þolir
þetta til lengdar. Hér er vissulega mál, sem varðað
getur okkur íslendinga miklu, og við mættum
gjarnan láta meira i okkur heyra um það á alþjóða-
vettvangi en við hingað til höfum gert.
„Hallelúja
guðspjall
byltingar svertingja”
Svörtu hlébarðarnir \ mannúðarstarfi - „Striðið er búið”
Margir islendingar sáu i
sjónvarpi kvikmynd um
starf svörtu hlébarðanna i'
Bandarikjunum í fyrra, til
dæmis skóla hreyfingar-
innar, þar sem börn voru
þjálfuð i hatri á hvítum
mönnum og þá sérstaklega
á „svínunum", lög-
reglunni. Börnin fóru með
þulur um að „drepa ætti
svinin" og þar fram eftir
götunum.
Svörtu hlébarðarnir, samtök
róttækustu svertingja i Bandarlkj
unum, voru löngum mjög svo
skelfilegir i augum hvitra manna
og reyndar ekki siður margra
hinna hógværari i röðum kyn-
bræðra þeirra. Þvi hefur ekki
verið haldið á lofti eins mikiö og
réttmætt er, að svörtu hlébarð-
arnir hafa breytt stefnu i mikil-
vægum atriðum. „Striöið er
búiö”, segir foringi þeirra, Huey
Newton.
Huey Newton stýrir byltingar
baráttu svertingja ekki úr helli
eða hreysi. Hann býr i 25 hæöa
lúxusbyggingu i Oakland,
tviburaborg San Francisko,
meöal hvitra milljónamæringa.
Newton er kallaður „hermála-
ráðherra” hreyfingarinnar, og á
heröum hans á að hvila skipulag
byltingarinnar. „Ráðherrann”
tók i þessu skyni á leigu Ibúö,
sem kostar hann um 50 þúsund
islenzkar krónur á mánuði.
Skáldið Eldridge Cleaver (t.v.) vill berjast, en hann dvelst I útlegö I
Alsir og er þar i vandræðum með annan bandariskan útlaga,LSD-neyt-
andann Timothy Leary (t.h.), sem er þyrnir I augum stjórnvalda I
Alsir.
og margir aðrir. Út úr prisund-
inni kom hann fullur vilja til að
bæta kjör svartra meðbræðra
sinna meö raunhæfum aðgeröum.
Honum hafði skilizt sá boð-
skapur, sem margir hógværari
svertingjar, einkum úr verka-
lýðshreyfingunni fluttu um það,
hve vonlaust væri fyrir svertingja
i Bandarikjunum aö ætla að sigra
hina hvitu á vigvelli.
Svertingjar eru aðeins um ti-
undi hluti landsmanna. Ekki
Kviðdómur klofnaði
i morðmáli Newtons.
Newton hefur mest völd i hreyf-
ingunni, eftir að hún klofnaði og
„upplýsingamálaráðherra”
hennar, skáldið Eldridge
Cleaver.hraktisti útlegð til Alsir.
Cleaver vill byrja byltinguna
strax og hefja algera styrjöld á
hendur „kerfinu” og „svín-
unum”. Hlébarðarnir ættu sam-
kvæmt kenningum hans að gerast
raunverulegir skæruliðar og
drepa gndstæðinga sina, hvar
sem til þeirra næst. Cleaver er
landflótta, þvi að yfir honum
hvilir dómur. Huey Newton var
dæmdur árið 1968 fyrir morö á
lögregluþjóni, en sannanir i þvi
máli hafa verið óljósar, reyndar
svo mjög, að dómnum var koll-
varpað tveimur árum siðar, og
Newton varð frjáls ferða sinna. 1
fyrra tókst kviðdómendum ekki
að verða sammála um sekt hans
eða sakleysi, og málið var fellt
niður.
Skilur vonlausa aðstöðu
svertingja í „striði".
Ógnvaldarnir miklu, hlébarð-
arnir, hafa breytt um stefnu eftir
fráhvarf Cleavers. „Cleaver og
hans lið flutti flokkinn frá megin-
stefnu sinni”, segir Newton,
„meðan ég var i fangelsi”.
Hinn bliðmálgi Newton hefur
ekki harðnað af fangelsisvist eins
aðeins yrðu hlutföllin þau i átök-
um, heldur hefur „kerfið” og
hvitu mennirnir allt, sem til þarf,
hin fullkomnustu vopn og iðnað og
auðmagn á bak við sig.
Eldrigde Cleaver tók þessi rök
ekki til greina.
f heimaborg sinni, Oakland,
beitir Newton sér til dæmis fyrir
golfpokagerð til að afla tekna til
að klæöa fátæklinga. t mörgum
sviðiim beita hlébarðar nú þess-
ari aðferð. Þeir hafa löngum haft
matstofur, þar sem fátæklingar
Fangelsis vistin gerði Huey
Newton ekki grimmari.
úr röðum svertingja geta etið
ókeypis.
Þeir gangast fyrir gjöfum til
hinna verst stöddu, peningar og
föt.
Svört millistétt kemur til
samstarfs.
1 þessu skyni ástundar Newton-
hreyfingin að hafa gott samstarf
við þá svertingja, sem eru komnir
i nokkrar álnir.
Fyrst og fremst er lagt að
svertingjum, sem eiga undir sér
fyrirtæki, og millistétt yfirleitt að
láta fé af hendi rakna til starfs-
ins. Svört millistétt var
löngum litt hrifin af róttækustu
kynbræðrum sinum, og þó fyrst
og fremst hrædd við þá.
Illlllllllll
Umsjón: Haukur Helgason
Newton hefur hins vegar
heppnazt að fá millistéttina til
samstarfs um stuðning við fá-
tæklinga, stuðning, sem ekki
fékkst til kaupa vopna og skot-
færa hinnar „gömlu” hreyfingar.
Ekki lengur sagt
„helvítis biblían".
Þá hefur Newton boðið kirkj-
unni frið. Aður hötuðust hlébarð-
ar við kirkjuna, sem þeir töldu
sitja á svikráðum við sig og vinna
meö „kerfinu”. Svertingjar i
Bandarikjunum eru hins vegar
upp til hópa manna trúræknastir i
heimi hér. Stefna hlébarðanna
gekk gegn vilja yfirgnæfandi
meirihluta kynbræðra þeirra,
einkum auðvitað þeirra, sem
vaxnir voru úr grasi.
„Helvitis biblian”. Svo sögðu
foringjar hlébarða i gamla daga,
einkum Eldridge Cleaver.
Nú segir Newton, að Martin
Luther King, prestur og svert-
ingjaleiðtogi, hafi verið merk-
astur spámanna og vinna verði I
fullri eindrægni með trúarleiðtog-
um og trúræknum svertingjum.
Og prestar stiga i stól, og sung-
ið er „Hallelúja, guðspjall bylt-
ingarinnar”.
Newton talar enn um byltingu,
en hann segir, að i fyrstu lotu beri
að stefna að umbótum, svo sem
þær eru á Norðurlöndum. Veröi
hann reittur til reiði, er hann
samt enn til alls vis.