Vísir - 17.03.1972, Blaðsíða 3
3
Yisir. Föstudagur 17. marz 1972.
„Útsýnið hvarf
ekki alveg"
Reyna „Biskupsföður"
nœstu níu mónuðina
„Okkur þykir leitt, aö
byggingar okkar skuli byrgja út-
sýniö fagra fyrir Bergsteini
Gizurarsyni og nágrönnum hans i
Kleppsholtinu. En við viljum ekki
taka undir þau ummæli hans, að
útsýnið fari með öllu til spillis,”
segir Þorsteinn Baldursson hjá
Gisla Jónssyni og Co.
Og hann bendir á að i
byggingunum nýju verði til húsa
20 heildsölufyrirtæki, þar sem tvö
til þrjú hundruð manns muni
vinna margvisleg störf. „Og þetta
fólk hefur áreiðanlega yndi af
fögru útsýni eins og þvi, sem er
yfir Kollafjörðinn, Viðey, Akra-
fjall, Skarðsheiði og Esju,” segir
Þorsteinn.
En hvers vegna voru
byggingarnar ekki reistar dálitið
neðar? Þannig hefði bæði skrif
stofufólkið og ibúarnir i Klepps-
holtinu mátt njóta útsýnisins?
„Það er skipulagsyfirvaldanna
að svara til um það. Þau hljóta að
hafa eitthvað fyrir sér i þvi, eins
og tillit til umferðar og annars
þar fram eftir götunum,” svarar
Þorsteinn.
En nú verða Bergsteinn og ná-
grannar hans að láta sér lynda að
Þyrlan kostar
40-50 milljónir
Heildarkostnaður við hina nýju
þyrlu Landhelgisgæzlunnar er á-
ætlaður milli 40 og 50 milljónir
króna, með varahlutum. Mun
kostnaður vegna varahluta vera
stór liður i þeirri upphæð.
Heimildarákvæði um 45 milljóna
króna lán liggur nú fyrir þingi.
Nýja þyrlan, sem Landhelgis-
gæzlan fær, er tólf manna þyrla,
en venjulega munu tveir menn
verða á henni.
Nú leitar Landhelgisgæzlan
fyrirsérum kaup á minni þyrlu i
staðinn fyrir Eir, einnig er i at-
hugun að kaupa Fokkef-vél.
— og kaupa skipið ef vel gengur
horfa inn i steinsteypugafl bygg-
inganna?
„Ekki steingráan vegg, nei.
Sigurjón listamaður i Laugarnes-
inu hefur verið fenginn til að
skreyta gaflinn. Nú þegar hefur
verið komið upp einu, ef ekki
tveim verka hans, og hin koma
hvert á fætur öðru. Nú, og svo
megið þið skila þvi til Bersteins
og hinna i Kleppsholtinu, að þeim
standi allar dyr opnar hjá okkur
til að virða fyrir sér útsýnið sem
hvarf....,” sagöi Þorsteinn að
lokum. -ÞJM-
Kísilgúrinn frá Mývatni
mun i framtíðinni verða
fluttur utan með skipum
Hafskips h.f. Hefur m.a. af
þeim orsökum þótt nauð-
synlegt að auka skipastól-
inn enn.
Danska skipið Asser Rig mun
þó mjög liklega verða eitt skipa
félaganna eftir 9 mán. reynslu
tima hjá félaginu. Sveinn
Valdimarsson skipstjóri mun nú
sigla með skip'inu og kynnast þvi,
og liklega verður þetta skip Laxá,
en Laxá, minnsta og fyrsta skip
félagsins, var selt fyrir nokkru til
Vestmannaeyja, en er enn i þjón-
ustu Hafskips.
Asser Rig er 2441 tonn að stærð
sem lokað hlifðarþilfarsskip.
Lestarrými er mikið, 118.820
rúmfet. Skipið hefur einkum
verið notað til siglinga á Miðjarð-
arhafi til þessa. Skipstjórinn
Niels E. Lökkebö, á langan og
happdrjúgan feril að baki, en
hann stýrði áður fyrr einu af fá-
um seglskipum Dana, sem sigldu
um heimshöfin með frakt. Sigldi
hann þá m.a. fyrir Gróðrarvonar-
höfða.
Hafskip hefur að undanförnu
unnið að endurskipulagningu á
ýmsum þáttum starfseminnar,
m.a. endurnýjun tækja við vöru-
móttöku og afgreiöslu, þannig að
tekizt hefur að stytta verulega af-
greiöslutima skipanna. JBP-
Asser Rig var faðir Absalons biskups, þess er stofnsetti Kaupinannahafnarborg fyrir rúmum 800 árum. Ilcr kemur Asser Rig
út úr höfninni i Vestmannaeyjum, en sú höfn var fyrsta höfnin sem skipiö heimsótti i fyrstu ferðinni liingað. Skipiö mun verða
skrásett i Eyjum, — cf 9 mánaða reynslutíminn fer eins og von azt er eftir.
Portúgalar stœrstu kaupendur
að Nígeríusaltfiskinum
Eftir að skreiðarmarkaðurinn i
Nfgeriu lokaðist árið 1968 hefur
Sölusamband islenzkra fiskfram-
leiðenda unnið upp stóra markaöi
fyrir verkaðan og óverkaðan salt-
fisk i öðrum löndum. Nigeriu-
fiskurinn fer nú einkum til Portú-
gals og S-Ameriku. Einkum hefur
útflutningurinn til Portúgals
vaxið hröðum skrefum, og
þangað voru seldar liðlega 12
þúsund lestir af óverkuðum salt-
fiski i fyrra. Kaupa Portúgalar
þvi nær hglminginn af heildar-
framleiðslu okkar af óverkuöum
saltfiski, þvi samtals var af-
skipaö 25 þúsund tonnum i fyrra
til útflutnings.
Næst stærsti kaupandi að
þessari vöru er Spánn með 4.500
lestir. Heildarútflutningsverð-
mæti óverkaös saltfisks nam tæp-
lega 1,4 milljörðum króna á sl.
ári, en verkaður fiskur var fluttur
út fyrir 380.000 krónur, samtals
6.369 tonn.
Visir spurði TómasÞorvaldsson
form. SIF um hvort kvartanir
hefðu borizt um léleg gæði óverk-
aða fisksins, en sem kunnugt er
voru Nigeriumenn ekki sérlega
kr.öfuharðir um gæði. Tómas,
sagði, að svolitið hefði borið á
kvörtunum, en slikt kæmi fyrir á
hverju ári og engar stórar skaða-
bótakröfur hefðu komið upp.
Taldi hann söluhorfur góðar á
þessu ári og væri verðið að jafn-
aði 15% hærra en i fyrra. -SG
Skylt að auglýsa
með 4 vikna fyrirvara
„Það eru skýr lagafyrirmæli,
að lausar stöður skuli auglýsa i
Lögbirtingablaðinu með 4 vikna
fyrirvara. Hins vegar er útilokað,
að hægt sé að auglýsa öll störf i
Lögbirtingi þegar ekki er um fast-
ráðningu að ræða” sagði
Höskuldur Jónsson deildarstjóri
launadeildar i fjármálaráðuneyt-
inu i samtali viö Yisi i gærmorg-
un.
Opinberar stofnanir eru stöðugt
að auglýsa eftir fólki, en algengt
er, að ekki sé tilgreint um hvaða
stofnun sé að ræða, heldur á að
leggja umsókn inn á afgreiðslur
blaðanna merktar hitt og þetta.
T.d. mátti fyrir skömmu lesa eina
slika auglýsingu, þar sem opinber
stofnun auglýsti eftir einkaritara
og hét góðum launum fyrir hæfa
stúlku og jafnfram þagmælsku.
Siðan kom „Tilboð merkt „1426”
sendist afgr. Mbl.”
Hér er ekki nefnt, hvort um
starf eða stöðu sé að ræða og
engar upplýsingar um fyrirtækið.
„Ég tel útilokað að auglýsa
svona stöður án þess að um-
sækjandi hafi hugmynd um hjá
hvaða stofnun hann sækir um
starf” sagði Höskuldur. Jafn-
framt kvaðst hann vita þess
dæmi, að opinber fyrirtæki aug
lýstu eftir fólki og legðu nafn sitt
við, en settu sömu auglýsingu
einnig nafnlausa, hvað svo sem
það ætti nú að þýða.
Þá er það algengt i auglýsing-
um frá þessum dularfullu stofn
unum, að tekið sé fram „laun
samkv. kjarasamningum”
Höskuldur sagði þetta oft gefa
umsækjendum mjög takmarkað-
ar upplýsingar. T.d. gæti skrif-
stofumaður verið frá 7. launa-
flokki og allt upp i 27. 1 haust var
sérstaklega mikið kvartað undan
þvi, að hið opinbera endursendi
ekki umsóknir né skilriki, sem
þeim fylgdu. Stóðu umsækjendur
uppi ráðalausir, þar sem þeir
höfðu ekki hugmynd um, hvaða
stofnun væri nr. „12345” eða hvar
hún væri til húsa. Þessu mun nú
vera búið að kippa i lag að mestu.
-SG-
„Hvers vegna 13
mánaða laun?"
„Hvers vegna sitja stjórnvöld
með hcndur i skauti á meðan
bankakerfiö blæs út? - Hvers
vegna fjölgar bönkum stööugt og
bankaútibúum? - Hvers vegna
risa stórhýsi banka, á meðan
rikisstofnanir kúldrast i leigu-
húsnæði? - Hvers vegna eru
bankaráöin óvirk? - Hvers vegna
þiggja bankastjórar 13 mánaða
laun? - Hvers vegna skagar
starfsmannafjöldi Seðlabankans
upp i starfsmannafjölda allra
ráðuneytanna? - Hvers
vegna....?”
Það eru margar spurningarnar
sem lagðar eru fram i þingsálykt-
unartillögu þeirra Bjarna Guðna-
sonar og Ingu Birnu Jónsdóttur
um endurskoðun á bankakerfinu.
En i greinagerð með tillögunni
svara þau raunar ýmsum
spurninganna og segja svarið
Iiggja i augum uppi: „Banka-
kerfið er dágott sýnishorn um
stjórnleysi nýrikrar þjóðar á
verðbólgutimum. En mestu máli
skiptir þó, að stjórnmála-
flokkarnir hafa kastað eign sinni
á bankakerfið”.
Segja flutningsmenn að
flokkarnir hafi séð hag sinum
borgið með þvi að hluta á milli sin
bankastjórastöðum og hafi þvi
ekki séö neina ástæðu til að hrófla
við skipulaginu. Hins vegar vakni
áhuginn þegar flokkarnir þurfi að
koma fulltrúa sinum i banka-
stjórastöðu, sem þeir telji sig eiga
samkvæmt óskráðum úthlutunar-
reglum. Þá hefjist innanflokks
bræðravig.
Þá segir i greinargerð með til-
lögunni að i stjórnarsáttmálanum
sé talað um að endurskoða allt
bankakerfið. Nú hafi rikisstjórnin
setið að völdum i hálft ár en ekki
gefið sér tima til að hefjast
handa. Tillagan sé þvi brýning til
rikisstjórnarinnar. —SG
Laxárdeilan:
Reyna til þrautar
að ná sœttum
„Stanzlausar sáttatilraunir
hafa farið fram með deiluaðilum
bæði fyrir noröan og einnig hér i
Reykjavik. Hér er orðið um
geysimargbrotið og flókið mál að
ræða og mikið í húfi að það leysist
á farsælan hátt”, sagði Egill
Sigurgeirsson hrl i samtali við
VIsi, en hann er annar tveggja
sáttasemjara I Laxárdeilunni
margumtöluðu.
Hann kvað talsvert hafa miðað
i samkomulagsátt, en þó bæri
vissulega mikið i milli ennþá.
Rætt hefur verið við deiluaðiia
sitt i hvoru lagi.og sagði Egill að
reynt yrði til þrautar aö ná
samkomulagi i deilunni. —SG