Vísir - 08.04.1972, Page 6

Vísir - 08.04.1972, Page 6
6 VÍSIR. Laugardagur 8. april 1972. VISIR Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: ,,/ Ri tstjórna rful 11 rú i: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 15610 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611 15 |lnur> Askriftargjald kr. 225 á mánuði inranlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Allir sjá nú hvert stefnir Efndirnar á loforðum rikisstjórnarinnar um kjarabætur og stöðugt verðlag hafa orðið þær, að þar hefur allt verið svikið, sem heitið var. Og það er ( ekkert kák i þeim svikum. Þar er hvert stórskrefið stigið af öðru. Engum, hvorki stuðningsmönnum rikisstjórnarinnar né öðrum, blandast hugur um það lengur, hve rækilega hún hefur i flestum efnum gert þveröfugt við það sem hún lofaði. Hækkanirnar dynja yfir svo að segja i hverri viku. Reynt er að blekkja almenning eftir mætti og stundum notuð til þess rökfærsla, sem hvert mannsbarn hlýtur að sjá að er fráleit, eins og þegar Timinn hefur þótzt vera að sanna, að hækkanirnar hefðu engin áhrif á kaup- mátt launanna, hann sé nú eins og hann hafi mestur verið áður. Skyldi þessum mönnum detta i hug i alvöru, að nokkur trúi þvi, að hækkunin á landbúnaðarvörum, sem er nú ekkert smáræði, hafi engin áhrif á kaupgetu launþega? Þess er og vandlega gætt, að láta þær hækkanir, sem áhrif hafa á visitöluna, koma til framkvæmda á heppilegustum tima til þess, að visitöluhækkunin sé uppétin og að engu orðin, þegar hún kemur til framkvæmda. Ætli láglaunafólkið sé ekki hætt að trúa loforðinu um 20% hækkunina, sem átti að verða á kaupmætti launa þess á næstu tveimur árum frá þvi að stjórnin kom til valda? Stjórnin reynir með öllum tiltækum ráðum að blekkja landsmenn með ýmiss konar tölum og út- reikningum, þegar hún er að drýgja þessar dáðir, á sama hátt og hún hefur gert i sambandi við breytingarnar á skattalögunum. En hún má reiða sig á, að flestir landsmenn, sem reyna að gera sé einhverja grein fyrir þessum málum, eru löngu hættir að trúa nokkru orði af þvi, sem um þau er sagt i blöðum stjórnarinnar. Samt tekur það suma nokkurn tima að átta sig til fulls á þvi, hvernig með þá er farið. Sumt af þessu litur i fljótu bragði ekki eins illa út og i ljós kemur, þegar farið er að athuga það nánar. Fæstir hafa t.d. liklega áttað sig á þvi strax, hver hin raunverulega hækkun simagjaldanna er. Sýnt hefur verið fram á, að hún nemur hvorki meira né minna er 50—60%. 1 Þetta er bláköld staðreynd, sem stjórnvöldin mega reyna að afsanna, ef þau treysta sér til. En þetta er gert með þeim hætti, að reyna að láta sem minnst á þvi bera, sömu vinnubrögðin eru notuð og við aðrar slikar aðgerðir stjórnarinnar. Reynt er að fela ósómann af fremsta megni. Þegar svo allt um þrýtur, rikisstjórnin stendur ráðþrota, hreinlega orðin mát og getur með engu móti varið afglöp sin og ósvifni, er alltaf þrauta- lending hjá henni, að þetta sé allt, ,,arfur frá fyrr- verandi rikisstjórn”, sem allur landslýður veit þó að skilaði af sé blómlegasta þjóðarbúi, sem nokkur stjórn á íslandi hefur gert. Munurinn er aðeins sá, að hún kunni nokkuð að stjórna, en það getur núverandi stjórn ekki. „Ég nýt þess ekki aö særa fólk”, segir Jack Anderson. „Eg skrifa fyrir mjólkursendlana" Afhjúpanir krossfarans kostuðu þrjú sjálfsmorð Hann grefur upp syndir valdamanna, veifar þeim og sýnir alþjóð og jafnvel heiminum öllum. Stundum þvo sakborningar sig af ékærunum, en oft eru þeir sekir fundnir og úthrópaðir. Að undanförnu hefur varla liðið vika, svo að banda- ríski blaðamaðurinn Jack Nortman Anderson vekti ekki heimsathygli með af- hjúpunum sínum og hrollur færi um valdamenn í ýmsum löndum, seka og saklausa. Jack Anderson hefur valdið mörgum stærstu heimsfréttum siðustu vikna. Fjölmiðlar um heim allan „slógu upp” ásökunum hans á hendur banda- riskum ráðherrum um mútutekt frá stórfyrirtækinu ITT til að falla frá málsókn gegn fyrirtækinu um brot gegn lögum um hringa- myndun. Stórfréttir voru birtar um ásakanir Andersons um sam- særi Bandarikjastjórnar til að hindra valdatöku marxistans Allende i forsetakjöri i Chile. Sendiherra sakaður um ölæði Anderson kom viðar við og sakaði bandariskan sendiherra meðal annars um ölæði á almannafæri. Sendiherra baðst afsökunar á móðgandi framkomu við flugfreyjur, en kvaðst ekki hafa verið jafnfullur og sagt var. Slik dæmi eru mýmörg um feril Andersons. Menn segja, að stór- blaðið New York Times hafi birt fleiri fréttir eftir Anderson en nokkurn af blaðamönnum blaðsins og ætti blaðið að greiða honum fyrir, þótt ekki sé hann starfsmaður þess. Víðlesnustu dálkar heims „Ég skrifa fyrir mjólkur- sendlana i Kansas City,” segir Anderson, samkvæmt timaritinu Time, Greinar hans birtast að visu ekki reglulega i Kansas City, en með þessu á Anderson við það, að hann starfi i þágu alþýðu- manna. Dálkar hans sem hann kallar „Hringekjuna i Washington” birtast i hundruðum blaða um öll Bandarikin og munu lesnir af að minnsta kosti 50 milljónum manna, og þvi sennilega við- lesnustu dálkar i heimi. Eitt þúsund bréf frá lesendum berast vikulega að meðaltali til dálka- höfundar. Einn kom 1 annars stað- Susan Lichtman. ,,Þingmenn svíkja undan skatti" Ef marka má Anderson, þá svikja þingmenn undan i tekju- skatti, sólunda fé hins opinbera og fj'alla um alvörumál dauða- drukknir annað veifið. Starfs- menn Hvita hússins eru lygnir i meira lagi og eru sifellt að burðast við að fela fjársvikabrall sitt við stórfyrirtæki og erlend riki. Valdsmenn i hernum eyða miklum tima sinum til að grafa hver undan öðrum, hylja fjársukk og flytja þingmenn i skemmti- llllllllllll Umsjón: Haukur Helgason ferðir. Stórfyrirtækjum tekst yfirleitt að kaupa sig út úr klandri við lög og rétt. betta eru engar hófsemdarkenningar, en þetta eru skoðanir Jack Anderson, krossfarans gegn spillingu i Bandarikjunum, ógnvalds emb- ættismanna og forstjóra. ,,Stundum eru slys nauösynleg" Anderson viðurkennir að hafa verið ábyrgur fyrir sjálfsmorði að minnsta kosti þriggja manna og hafa afhjúpað af slikri grimmd misferli öldungadeildarþing- mannsins Dodds, að ferill hans var á enda. „Fréttirnar minar eyðilögðu Dodd”, segir hann, „og ég get ekki sagt, að ég hafi haft gaman af þvi.” „Ég nýt þess ekki að særa fólk”, segir krossfarinn i viðtali við Time. „Ég nýt þess alls ekki. En til þess að brunnurinn verði byrgður, þarf stundum að verða slys.” Menn fá þá tilfinningu af „æsifregnum,” sem eru runnar frá Anderson, að hann kunni að birta hvað, sem fyrir verður, án tillits til þeirra sannana, sem hann hafi höndum. Aðrir frétta- menn segja, að skrif hans verði menn að lesa með töluverðum efasemdum, en þó sé það sanni næst, að missagnirhjá honum séu ekki ýkja meiri en gerist i harðri blaðamennsku yfirleitt. bannig er enn ekki úr skorið i þeim tveimur málum, sem mesta athygli hafa vakið, ITT— málinu og Chilemálinu. bingnefnd hefur tekið ITT-málið til meðferðar og leitt vitni i bak og fyrir, Kona sú, sem Anderson byggði afhjúpun sina á, frú Dita Beard, neitaði að hafa ritað það bréf, sem Anderson eignar henni. Siðan fékk hún hjartaáfall! og hefur málið tafizt. t stað hennar er kominn fram annar fyrr- verandi starfsmaður ITT, Susan B. Lichtman, sem segir sömu sögu og Anderson. Starfslið Andersons segir, að þvi fari fjarri, að „allt” sé birt. „Við höfum mikið efni, sem við birtum ekki, svo sem skjöl frá CIA, þar sem heimilda er getið, hernaðaráætlanir, afrit af Salt-viðræðunum,” segir Ander- son”. Ég mundi aldrei stofna öryggi rikisins i hættu, en ég lit öðruvisi en rikisstjórnin á það, hvað sé hættulegt örygginu og hvað ekki.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.