Vísir - 08.04.1972, Síða 7

Vísir - 08.04.1972, Síða 7
7 VÍSIR. I.augardagur 8. april 1972. cTVIenningarmál Ólafur Jónsson skrifar um bókmenntir: Fugl og blóm og fólk HilflR Ólafur Jóh. Sigurðsson: HREIÐRIÐ Varnarskjal Ileimskringla, Revkjavik 1972. 2(>0 bls. Hreiðriö er fyrsta skáldsaga ólafs Jóh. Sigurðssonar, önnur nýja bók hans eftir Gangvirkið, 1955, ef tvær barnasögur eru frátaldar. Hún fjallar um miðaldra rithöfund sem kominn er í kreppu — sýnist þrotinn að kröftum og þagnaður löngu fyrir aldur fram, liðlega hálfsextugur maður. Hvernig stendur á þessu? Um það fjallar sag- an hversu sem tekst að ráða i svör hennar. Reyndar greinir Hreiðrið frá tveimur rithöfundum, frændum og vinum, og segir hinn yngri sögu þess eldri, Lofts Loftssonar, meistara sins sem hann nefnir svo. Loftur er að þvi kominn að ljúka við sina mestu og beztu bók. Hún er kóróna ævistarfs hans, margbrotin galdraskuggsjá, samin með mikilli iþrótt, hug- kvæmni og þekkingu — og misk- unnarlausri rökvisi: ,,Haha, hvernig sá gamli lék persónur sinar, ágæta borgara, konur og karla, hvernig hann fletti innræti þeirra klæðum, ef svo mætti að orði komast, tindi af þvi spjör eftir spjör, dulu eftir dulu, unz það hlaut að stand ber- stripað fyrir sjónum lesandans! Haha, hvernig hann færði sögu- fólkið reit af reit meðan hann lýsti gegnum það, tók af þvi hverja röntgenmyndina af annarri, dró fram i dagsljósið harla óhrjá- legar meinsemdir, kýli þess og þrymla, æxli þess og ofhyldganir: ágirnd, hégómaskap, öfund hatur, útsmogna hræsni, misk- unnarlausa slægð”! Boðflennur af himnum ofan Það er að sjá að Loftur Loftsson sé fjarska vandlátur, nostur- samur höfundur. Að hans viti er það siðferðisleg skylda hvers rit- höfundar að grundvalla starf sitt á raunsæi, hlutlægri rannsókn, en forðast alla tilfinningasemi og rómantiska glýju. Þessi viðhorf hans hafa eftir striðslokin 1945 þokað burt þeirri fölskvalausu samúð og hlýju, þeim bjarta og vonglaða tón sem gerði fvrstu tvær bækur hans svo vinsælar meðal alþýðu — unz komið er að meistaraverki hans, galdra- skuggsjánni. En Loftur birtir ekki bók sina þegar til kemur. Hann hverfur frá henni fullgerðri, þegir og þumb- ast við fortölum lærisveins og út- gefanda sins. Vera má að þetta stafi af kynnum hans af þrasta- hjónum nokkrum sem gera sér hreiður á svölum hans i þann mund sem hann er að ljúka við bókina. Vera má að þrestirnir og ungar þeirra i hreiðrinu hafi á einhvern hátt minnt hann upp á nýtt á lifið sjálft, undur lifsins, að grá sé kenning öll og litils vert um bókvit á við mannvitið. 'I'ilraun hansað hlutast til um hagi þrast- anna, sjá ráð fyrir ungum þeirra úr hreiðrinu fer að visu hörmu- lega út um þúfur. „Jafnvel það mistókst”, andvarpar hann að loknu þrastastandi. Og það er svo glöggt að þessi mistök hafa leitt i ljös einhverjar miklu viðtækari ófarir, skipbrot sjálfs hans i lifi og skáldskap. Svo mikið er vist að þegar frændi tekur upp þráðinn að nýju, nokkrum árum siðar, eru áhuga- mál og viðfangsefni hans allt önnur en heimspeki hans fyrri bóka. Nú hefur hann viðað að sér heimildum um mannlega neyð, eymd og örbirgð kynslóðanna i argvitugum fátækrahverfum stórborga, hið fullkomna viti i Vietnam. Á þetta að verða saga, skáldsaga? ,,Hvað sem þvi liði, þá kvaðst hann vona að grund- völlur bókarinnar þeirrar arna væri eftir atvikum traustur. Ója... Eftir atvikum”. En sú bók er aldrei samin. Þegar hér er komið er Loftur dauðvona maður, holgrafinn af krabbameini. Veturinn sem fer i hönd Vinur, frændi og lærisveinn Lofts, sá sem söguna segir, er rit- höfundur lika, skrifar undir tveimur dulnefnum heldur en einu i hjáverkum sinum. Það er að sjá að dulnefni nr. 1 sé mótað af áhrifum og fyrirmynd frænda þar sem dulnefni nr. 2 reyni til að tolla i öðrum og enn nýrri bók- menntakenningum eða tizku — sem enn siður hæfi honum, En að sögulokum er svo komið fyrir honum lika að hann verður að hafna fullgerðu handriti sinu að nýrri sögu: ,,Sú grunsemd bærði á sér i sein virku heilabúi minu, að frá þeirri ákvörðun að dæma nýtthandritúr leik og þyrma hvorugu dulnefninu Ólafur Jóh. Sigurðsson mætti rekja leyndan þráð til skógarþrastanna hans frænda. Ef til vill mundi ég siðar meir taka mér penna i hönd og skrifa handa smælingjum minum æfintýri af þröstum þessum og viðskiptum meistara mins við þá. Ég gæti kallað hann Loft Loftsson eins og i framanskráðu varnarskjali, en sjálfur ætlaði ég ekki að dyljast, heldur bera það nafn sem ég hafði þegiö af foreldrum minum. Siðar meir... Ójá. Siðar meir. Ég gat ekki staðið lengur snöggklæddur úti á svölunum og velt þessu fyrir mér sakir þess hve náttkulið var biturt. Ein- hvernveginn lagðist það i mig um leið og ég hallaði aftur svalahurð- inni, að veturinn yrði harður”. Um fugla og fólk Einkennilegur eyðilegleiki og opiff dagl.: 6-10 ■ um helgar: 2-10 Þetta hús aö Vogalandi 11, Reykjavik, er aðalvinningur ársins, 0í er hii stærsta serr. veriö heior i Kappdrætti DAS, 160 ferm., hsfi og kjaliari, aö verömsti a.m.k. 5 milljónir króna. — Á hæöinni er anddyri. húr/|i«oltiherher{i. eldhus. boröstofa/setustola m/svölum, húsböndaherhergi. skali. 3 barnaherbergi. saumaherbeigi. baö. svefnherbergi hjóoi o{ „W.C." gesta. — Kjelliri er gról-múrhúlaíiir og málaöur, meó hitalógn og rallógn. — Tyrft lól og hellulögö. 11 ú n t n a » beiskja auðkenna þessa velsögðu sögu. Ekki svo mjög vegna hins beina söguefnis, vandkvæða þeirra frænda og þrastanna — og er þó áreiðanlega æðimikilli al- vöru, raunverulegum vanda fyrir að fara i þeirri frásögn, svo kát- brosleg sem hún öðrum þræði er. Ekki heldur, eða ekki fyrst og fremst, vegna hinnar náttsvörtu heimssýnar sem sagan lýsir i baksýn. atburðanna: heimi i teikni helsprengju, auðnar og tor- timingar! En viðhorf sögunnar og sögumanns við sinni nánustu samtið eru öll svo undarlega nei- kvæð. Burtséð frá þeim frændum og þeirra frúm er allt mannlif sem fyrir augu ber i sögunni furðu litilsiglt og öfugsnúið. Ná- grannar Lofts, eigendur katta sem sifelldlega sitja um þrastar- ungana, eru örbjarga embættis- og gróðalýður, rithöfundar og boRmenntasnakkár þeir sem á góma ber i sögunni ýmist afgervi ..þjóðlegra" kerlingabókmennta ellegar siðblind tizkuskripi. Jafn- vel börn þeirra bregðast þeim jafnharðan og þau vaxa úr grasi: þá hefst þegar af þeim taugastrið og togstreita, ný misklið, nýtt rifrildi, en uppkomin börn frænda reyra ibúð þeirra hjóna hverju veðbandi af öðru. Þeir frændur nema dýrð og undur lifsins i fugli og blómi. En i bókmenntum samtiðarinnar greinir sagan ekki nema bölv og klám og nið. Og þegar sögumaður leiðir æskuna sjónum af svölum sinum i sögulokin birtist hún ,,búin samkvæmt afkáralegustu tizku bitla og hippa, öll drukkin, sum ofurölvi, veifandi flöskum og brjótandi flöskur. Enskuslitur úr dægurlagatextum, óp og org, bölv og ragn tvinnaðist i sifellu bann- orðum og klámi, munnsöfnuöi sem minnti helzt á frásagnir al' tali dólga og pútna i menningar- snauðustu skúmaskotum á Fuerto Rieo". Skáld i hreidri Það væri fráleit hótfyndni að taka Hreiðrið eftir Ólaf Jóh. Sig- urðsson til marks um ,,læginguis lenzkra nútimabókmennta” eins og ..riddarasynir” sögunnar taka ritverk Lofts Loftssonar. Ekki skal heldur neinum getum að þvi leitt hvort höfundurinn sé með þessari sögu að setja ..dómsdag" yfir sinum eigin verkum og sinnar kynslóðar, né þá hversu það takist. Sagan er samin af mikilli iþrótt og málfarslegri list sem ekki sér á blett eða hrukku — þótt hitt megi svo sem vera að hinn nostraði still beri með sér merki offágunar, eins konar of- þroska, a.m.k. við annan lestur. En taka má eftir þvi l.d. hve næmri sjón Reykjavik er numin i þessari sögu eins og fleiri seinni sögum Ólafs Jóhanns — garðar, hús og götur, höfnin, Tjörnin, Esjan... Hitt er Ijóst að sagan leitast við að lýsa tilfinningalegum vand- kvæðum, reynslu sem miklu viðar gætir i bókmenntum sam- tiðarinnar — hvort sem um nokk- ura „lausn" sliks vanda getur orðið að ræða i skáldskap. TOLVUTÆKNI Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikur- borgar óska að ráða nú þegar eða 1. júni, starfsmann til tölvugæzlu og annara starfa sem tengd eru tölvuvinnslu. Umsóknarfrestur er til 21. april. Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu vorri að Háaleitisbraut 9, simi 38660. Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikurborgar. cje ROSIN GLÆSIB/E opin á laugardag og < ' sunnudag. Fermingar- blóm i miklu úrvali. Sendum um allan bæ. GLÆSIBÆ, simi 23523.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.