Vísir - 22.04.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 22.04.1972, Blaðsíða 1
62. árg. Laugardagur 22. april 1972. 91. tbl. NuNNURNAR soffia OG RAQUEL . . . Ýmsum kann að bregða i brún, þegar komið er að NÚ-siðu blaðs- ins i dag. Þar gefur að lita þær kynbombur Soffiu Lorcn og Kaquel Welch i nunnuklæðum. En það á auðvitað sinar eðlilegu ástæður. A NÚ-siðunni bregður líka fyrir fleiru frægu fólki, eins og t.d. Richard Kurton, Roger Moore og listmálaranum Salvador Dali. Sjá bls. 8. Nunnurnar Soffia og Raquel. 14 ára fangi Hann er 14 ára og situr i fangelsi. Og hann sér fram á að eyða táningsárum sínum bak við lás og slá. Hann er byrjaður að skrifa ævisögu sina, læra tyrknesku, og margt fleira hefur hann fyrir stafni - svarar t.d. mörgum aðdáendabréfum á dag. — Sjá bls. 6. Þrymskviða verður ópera Tónskáidin okkar hafa ekki veriö sérlega iðin við gerð ópera, a.m.k. ekki af fullri lengd. Ein slik er að sjá dagsins Ijós. Jón Asgeirsson tónskáld er að finpússa óperu, en efnið sækir hann i Þrymskviðu. Við ræddum við tónskáldið i gær. — Sjá bls. 3. r Islenzkur matur -og tízkan okkar islenzkur matur sló i gegn i Kaupmannahöfn á dögun- um, eins og við höfum áður greint frá. i gær fengum við myúdir frá matarkynning- unniog segjum nánar frá þvi sem þar gerðist,- en auk þess aö kynna mat sýndu fyrir- sætur i Kaupmannahöfn og ein svört á brún og brá frá fjarlægu landi. — Sjá bls. 2. Þau unnu krossgátuverðlaun Viö gripum hana Matthildi Guðmundsdóttur, sundkonu og fegurðardrottningu feginshendi, þegar hún birt- ist á ritstjórninni okkar i gærdag. Og hún dró úr rétt- um krossgátulausnum, sem voru fjöimargar. Eftirtalin nöfn komu upp: Konráð Guð- jónsson, Laugateigi 60, Rvik, Eygló óiafsdóttir, Blesugróf 4, Rvik, og Þórdis Sigtryggsdóttir, Teigagerði 14, Rvik. Visan sem heitir Hækkandi sól, er svona: Þaö, sem áður stóð i stað, staulaðist á fætur, þegar ljósið læddist að lengsta myrkri nætur. Sjá nýja krossgátu á bis. 5. Iðnoðurinn á hálfum dampi Verður að tvöfalda afköstin á nœstu 10 árum, segir Gunnar J. Friðriksson,formaður Félags ísl. iðnrekenda á ársþingi í gœr Til þess að íslenzkur iðn- aður geti náð nauðsynlegri samkeppnisaðstöðu við iðnað hinna Norðurland- anna verður hann að tvö- falda afköst á hvern vinn- andi mann i iðnaði á næstu 10 árum, sagði Gunnar J. Friðriksson, nýendurkjör- inn formaður Félags isl. iðnrekenda á ársþingi félagsins í gær, og vitnaði máli sínu til sönnunar í er- lendan sérfræðing. Hann og Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra, sem var gestur ársþingsins, notuðu mörg orð i ræðum sinum til að undirstrika nauðsyn þess að stórauka aðgerð- ir til að hraða þróun islenzks iðn- aðar. Iðnaöurinn sjálfur og stjórnv. virðast vera þarna sam- mála i veigamiklum málum, eins og að sameina beri Rannsóknar- stofnun iðnaðarins, Rannsóknar- stofnun byggingariönaðarins og Iðnaðarmálastofnun Islands i eina allsherjar þjónustustofnun iðnaðarins. Þá voru þeir Magnús og Gunnar sammála um það að áuka yrði menntun almennt i iðnaði. Iðnaðarráðherra geröi sérstak- lega að umtalsefni skort á nú- timalegum vinnubrögðum i stjórnun og áætlunargerö. Formaður félagsins sagði, að mikilvægasti þátturinn i þróun iðnaðar væri, að hann hefði á að skipa vel þjálfuðu og menntuðu starfsfólki. Sérstaklega þyrfti að auka verklega kennslu og efla verulega Tækniskóla Islands. Hann vakti athygli á þeirri staðreynd, að kostnaður hins opinbera viö menntun iðnnema er 36.000 kr., 68 þús. i Tækniskóla tslands og i búnaðarnámi 300 þús. kr. Stjórn og varastjórn voru end- urkjörin, nema tilfærsla varö á milli aðal- og varastjórnar. 1 stjórn félagsins eiga nú sæti: Gunnar J. Friðriksson formaður og meðstjórnendur Davið Sch Thorsteinsson, Björn Þorláksson, Kristinn Guðjónsson, Haukur Eggertsson, Pétur Péturssón og Björn Guðmundsson. — VJ. ■ '-iþ:' Hitastigið steig enn í gœr — og Sunnlendingar fengu annan hlýjan dag með hitasólskini Flcstir hafa dýrðazt yfir góða vcðrinu i gær, enda var hitinn eins og á góðum sumardegi, 13 stig i Reykjavik ,,og hefur kom izt upp i 20 stig i góöu skjóli”, eins og Jónas Jakobsson veður- fræðingur sagöi. En þótt hlýtt væri hefur april áður verið gjöf- ull á sólina, en mestur hiti i april hér hefur veriö 15 stig. Ef einhverjir hafa getað kvartað, þá hafa það verið þeir, sem hafa veriö „dæmdir” til að sitja innandyra i hitabreiskju og horfa á góöa veðrið út um gluggann. Allavega hefur gott vorveður löngum freistað skóla- nemenda, sem hafa þurft að sitja kófsveittir yfir bókunum. Það voru ekki Reykvikingar einir, sem nutu góðviðrisins. Gott veður var um allt land, og hitinn fór allt upp i 14 stig i Siðu- múla og á Þóroddsstööum, og 13 stiga hiti var t.d. á Kirkjubæjar- klaustri. Alls staðar var úr- komulaust, en gætti súldar á Reykjanesvita. Spáð er góöviðri i dag og hlý- indum, þótt verði ef til vill meira skýjað en i gær á suð- vesturhorninu. En það ætti samt ekki að fæla skiðafólkið frá þvi að bregða sér á skiði - þvi hver veit nema nú fari hver að verða siðastur til þess i fjöllunum við borgarþröskuldinn, ef svona heldur áfram og við njótum góð- viðris það sem eftir er vorsins. - SB - Þrettán stiga hiti, logn og bliða. Hvers vegna ekki aö skreppa út i sólina með kostinn sinn? Og það gerði bókbindarinn á myndinni. Blaöamaðurinn spurði hann, hvernig honum likaði við starf sitt. Sömu spurningu svöruðu 5 aðrir borgarar. SJA VÍSIR SPYR á bls. 2. LAXNESS 70 ÁRA Það er Laxness-helgin mikia. Nóbels- skáldið verður hlaðið heiðri fyrir, eftir og á 70 ára afmælinu, sem er á morgun. Strax i dag heiðra sveitungarnir i Mosfellssveitinni skáldið sitt, en á morgun eru það heimspeki- deildin, Þjóðlcikhúsið, og eftir helgina Landsbókasafnið með sýningu á handritum skáldsins, og er þá aðeins litið eitt tint til. Við vísum á grein eftir Ólaf Jónsson um Iialldór Laxness, fréttir á baksiöu og upplýs- ingar í dagbók. Sykursýki útbreidd hér ó landi Sykursýki var áður ólæknandi sjúkdómur. í dag eru viðhorfin önnur og betri með tilkomu lyf ja og fræðslu um mataræði sjúklinganna. Hér á landi eru fjöldamargir sjúkling- ar, og stór hópur gengur með sjúkdóminn dulinn, þar á meðal mikið af börn- um. Við ræddum við for- mann Samtaka sykur sjúkra. - Sjá bls. 3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.