Vísir - 22.04.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 22.04.1972, Blaðsíða 9
VISIR. Laugardagur 22. apríl 1972. 9 Keppendur leggja af stað i vlöavangshaiup ÍR. Frá vinstri eru Gunnar O. Gunnarsson UNÞ (nr. 7). Agúst Asgeirsson, ÍR, sem sigraði, Sigfús Jónsson (nr. 4), Ragnar Sigur jónsson, UMSK, (nr. 5), Þórarinn Sig- urösson, UMSK, (nr. 51), Nieis Nieisson, KR, (nr. 10), og Borg- þór Magnússon, KR, (nr. 22). Ljósm. BB. Drengjahlaup W Arntanns Hið árlega drengjahlaup Ar- manns verður háð á sunnudag og hefst kl. tvö i Hljómskálagarö- inum. Meöal keppenda eru nokkr- irþeirra, sem mestan svip settu á viðavangshlaup ÍR, eins og Agúst Asgeirsson, IR, Einar Óskarsson og Ragnar Sigurjónsson, Breiða- bliki, Július Hjörleifsson, UMSB, og Jóhann Garðarsson, Ármanni, en keppendur veröa alls 70, sem er metþátttaka. Keppendur og starfsmenn eru beðnir að mæta kl. 1.30 á Melavellinum. Tvö íslandsmet Sigurvegararnir I Islandsmótinu i júdó. Frá vinstri Bjarni Björnsson, Sigurjón Kristjánsson og Jóhannes Haraldsson. Bréf til íþróttasíðunnar: ^ Vantar tögg og rögg á stjórn KKI Eirikur Björgvinsson, sem meðal annars er þjálfari Fram i körfuknattleik, hefur sent iþróttasiðunni eftirfarandi bréf og er þar harðorður i garð stjórn- ar KKÍ og þess afskiptaleysis, sem yngri flokkarnir hljóta i sambandi viö islandsmótiö. Og hefst þá bréfið: Ekki er lengur hægt aö jiegja yfir þeirri vanviröu, sem yngri flokkunum i körfuknattleik og kvennaflokkunum er gerð. islandsmótið, sem á að vera til- hlökkunarefni allra þeirra, sem standa að þvi, er orðið hrein mar- tröð, sem allir vona að ljúki sem fyrst. i öllum yngri flokkunum og öll- um félögum hættir fólk að æfa og starfa og hvers vegna? Astæðurnar eru margar, en eiga allar rót að rekja til þess, að framkv. á mótum yngri flokk- anna er látin vaða á súðum. Ólöglegt húsnæði, sem meðal annars býður upp á það að láta fullorðna i öðrum flokki leika i sal, sem er stórhættulegur. Stanzlaus bið eftir mönnum, sem eiga að dæma leiki og eru auk þess ekki hæfir til starfsins. Fyrirhyggjuleysi og skipulags- leysi, frestun á leikjum og boöun á leiki með engum fyrirvara. Tökum stúlkurnar til dæmis. Gaman væri aö fá svar við þeirri spurningu, hvort þaö veröi fram- tiöarstefnaaö einungis veröi leikn- ir tveir leikir i öðrum flokki kvenna i tslandsmóti og hvernig ætlast KKt til að félögunum hald- ist á fólki með þvi að bjóða þvi upp á annað eins. Ég hika ekki við aö fullyrða að fyrrverandi og núverandi stjórn hafa meö framferði sinu miklu frekar oröið til þess að minnka áhuga hins almenna iðkanda heldur en aö auka. i fyrrverandi stjórn voru þrir menn, sem æfðu og léku meö meistaraflokki, og ástandiö er álika núna. Þaö er ákaflega gaman að æfa, keppa og leika sér, en nánast furðulegt, að stjórnarmenn hafi tima til þess, en ekki að gera skyldu sina sem menn i ábyrgðarstöðum. Timaleysi verður ekki um kennt, heldur miklu fremur skorti á sjálfsaga. Þið æfið og keppið vitandi, að þið eigið óloknum störfum fyrir sambandið, verkefni.sem hlaðast upp þar til allt siglir i strand. Nýlega fór landsliðið út og meö þvi m.a. Hólmsteinn Sigurösson og Björn Jóhannsson, báðir i stjórn KKl. Ég spyr ykkur, til hvers gagns voruð þið? Það hafa engar sögur farið af afrekum ykkar, sem fararstjór- um. Ykkar staöur var hér heima til að skipuleggja. A hausti komanda stendur til að landsliðið fari út. Ég leyfi mér að skipa þetta landslið veröugu fólki vegna vinnu sinnar að körfumálum. Bogi Þorsteinsson. UMFR. Helgi Jóhannsson ÍR. Guörún IR Einar Ólafsson ÍR Bjarni Bachmann UMFS Páll Herði Jón Otti Ólafsson KR. Erlendur Eysteins. Armanni Sigurður Jónsson Fram Guðsteinn Armanni Gunnar Lúðviksson Gróttu Dóra Bjarnad. Fram. Þetta er landslið verðleikanna. Bæði núverandi og fyrrverandi stjórnir eru ekki verðar að vera fararstjórar þessa fólks, af þvi að þið eruð bara plat. Eirikur Björgvinsson. Einhugur um landsliðsœfingar Hafsteinn Guðmundsson, landsliðseinvaldur, lagði fram áætlanir sínar um þjálfun landsliðsins i knatt- spyrnu á fundi, sem stjórn KSI boðaði á miðvikudag, og voru þar mættir þjálf- — Þetta er þriðji veturinn, sem ég hef þjálfað hér á ísiandi, sagöi N. Yamamoto, prófessor i júdó, eftir tsiandsmótiö um siöustu helgi, og ég hafði mikla trú á framgangi nemenda minna i keppni. Þvi miður hafa þær ekki arar og forustumenn 1. og 2. deildarliðanna. Árangurinn af fundinum var, mjög góður og samþykktu fund armenn tillögur Hafsteins með örlitlum breytingum, og verður niðurröðun leikja t.d. i Reykja- vikurmótinu breytt litillega, til allar rætzt, en nokkrir ungir menn hafa þó sýnt mikla framför og ég býst viö miklu af þeim — og þaö var annað ánægjuiegt víð þetta mót, sem ég met mjög mikils, en það er mikil framför dómara. þess að landsliðið geti æft vel fyrir förina til Belgiu 18. mai næstkomandi. 1 tillögum Hafsteins var gert ráð fyrir þvi að leika æfingaleiki alla sunnudaga eins og verið hefur með litlum undantekn- ingum að undanförnu og æfa auk Keppt var i þremur þyngdar- flokkum á Islandsmótinu, og var keppni hin skemmtilegasta. t léttvigt, þar sem keppendur eru 69 kg eða léttari, sigraði Jóhannes Haraldsson. 1 millivigt, 69 til 83 kg, sigraði Bjarni Björnsson, og i þungavigt, þar sem keppendur eru yfir 83 kg, sigraði Sigurjón Kristjánsson. 18 keppendur tóku þátt i mótinu, sem fór hið bezta fram i iþróttahúsi Háskólans, og voru áhorfendur allmargir. þess tvisvar i viku — á þriðju- dögum og fimmtudögum. Æft verður i Kópavogi. Breytingar á Reykjavikurmót- inu, sem gerðar voru til þess aö ekki kæmi til árekstra, voru þær, að ekki veröur leikið á sunnudag. Leikur Fram og Vals, sem vera átti nú á sunnudag, var færður yf- ir á uppstigningardag, 11. mai. Landsliöseinvaldurinn hefur nóg að gera i sambandi við starf sitt. I dag fer hann upp á Akranes og horfir þar á leik Akurnesinga og Keflvikinga i Litlu bikar- keppninni, og á morgun, sunnu dag, flýgur hann með landsliös- mönnunum til Vestmannaeyja, en þar verður þá æfingaleikur við 1. deildarlið IBV. Aðra helgi verö- ur hann svo i Rómaborg, þar sem hann horfir á leik Beigiu og italiu i Evrópukeppni landsliða. Hafsteinn sagði blaöinu i gær, að fast form væri nú komiö á undirbúninginn fyrir Belgiuförina og ekki yrði langt i það, aö is- lenzka landsliöið yrði endanlega valiö i þá för. í langstökki Tvö ný islandsmet i langstökki voru sett á innanfélagsmóti Ar- manns á þriðjudag. Sigrún Sveinsdóttir stökk 5.49 m og Asa Halldórsdóttir 5.22, sem eru Is- lands- og telpnamet. Knattþrautir í Kópavogi Knattspyrnudeiid Breiðabliks boðar til forkeppni i knattþraut- um nk. sunnudag á vellinum viö Vallargerði. Drengir úr 5. flokki eiga að mæta kl. 13.30, en fjóröa flokki kl. 15.00. Júdómenn ó íslandsmóti

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.