Vísir - 22.04.1972, Page 3

Vísir - 22.04.1972, Page 3
VÍSIR. Laugardagur 22. aprfl 1972. i3 FJÖLDI GENGUR MEÐ DULDA SYKURSÝKI — þar af fjöldinn allur af börnum. — Samtök sykursjúkra segja nauðsyn ú sérstakri sjúkradeild STAFURINN KOM í LEITIRNAR í BANKANUM Stafurinn góði, sem tek- inn var frá manni ein- um, sem var að leggja inn fé i Búnaðarbankann i vikunni og sagt var frá hér i blaðinu, kom fram. Starfsmaöur einn I bankanum fann stafinn á öðrum stað og hringdi i blaðið, þegar hann hafði séð frétt um þetta. Stafurinn var gamall forláta- gripur, og var maðurinn þvi feg- inn að fá gripinn aftur, en allt er á huldu um það, hvernig stafurinn fór á flakk, en hallazt er að þvi, að einhver hafi gripið hann, meðan maðurinn leit af honum, og flutt hann til, eða jafnvel laumað hon- um aftur siðar. „Það er mikið um sykur- sýkina hér á landi, við áætlum, að á Reykja- víkursvæðinu séu eitthvað um 2400 manns með sykursýki, þar ef f jöldinn allur af börnum", sagði Helgi Hannesson, fulltrúi hjá Tryggingastofnun ríkisins, en hann er for- maður Samtaka sykur- sjúkra í Reykjavík, sem nýlega tóku til starfa. Helgi kvað þessa tölu þó ekki segja allan sannleikann, þvi áreiðanlega væri stór hópur að auki, kannski annað eins, með dulda sykursýki. Fyrir rúmum 50 árum, þ.e. áður en Frederick Banting og Charles Best fundu upp insúlinið að undangengnum rannsóknum annarra visinda- manna, var sykursýkin ban- vænn sjúkdómur, sem' tók sinn stóra toll. t .jan. 1922 var insú linið fyrst reynt með góðum ár- angri. Næstu 25árin lengdist ævi sykursjúkra um 9 ár að meðal- tali, og árinl946—71iengdist ævi þessa fólks um upp i 27 ár. ,,En það er ekki bara insúlínið eitt, sem hefur gert þetta að verkum”, sagði Helgi, ,,það er mataræðið sem er þýðingar- mest, og með aukinni fræðslu- starfsemi um sjúkdóminn hefur þessi árangur náðst”. Sjúklingar, sem haldnir eru sykursýki læra fljótlega, hvernig má sprauta sig með insúlini. Sumir þurfa að fá sprautu 3 sinnum á sólarhring, en aðrir sjaldnar. Sumir þurfa aðeins að taka pillur eða hylki. „Okkur hefur verið vel tekið”, sagði Helgi, ,,og eftir viöræður á dögunum við heilbrigðismála- ráöherra hefur bjartsýnin aukizt. Hér þurfum við að koma á fót sérdeild fyrir sykursjúka, annaðhvort sjálfstæðri eða i sambandi við sjúkrahús. bá þurfum við að gefa út fræðslurit oggetamiðlaðfræðslu frá upp- lýsingaskrifstofu. Niðurstaðan úr viðræðum við ráðherra var sú, að greinargerð yrði samin um málefni sykursjúkra. Þórir Helgason læknir, varaformaður samtakanna, gerði þessa greinargerð, sem var mjög itarleg”. t samtökum eru nú 276 manns, en auk Helga eru i stjórninni þeir Þórir Helgason læknir, Hjalti Pálsson framkvæmda- stjóri, Magnús L. Sveinsson skrifstofustjóri og Þórir Ólafs- son blikksmiður. A'aðalfundinum flutti Þórir Helgason erindi um sykur- sýkina almennt og ungur háskólanemi, Pétur Þórarins- son, ræddi um sjúkdóminn, sem hann hefur gengið með allt frá 9 ára aidri, og lagði hann áherzlu á, að þrátt fyrir þennan sjúk- dóm, sem fvrir ekki svo mörgum árum var banvænn, væri nú hægur vandi að lifa eðli- legu lifi og heilbrigðu. —JBP. Fyrstu kappreiðar órsins haldnar í dag Þessi ungi knapi er sannarlega traustur I sessi meö annan þaulreyndan sér að baki. Þetta var í fyrradag, fyrsta sumardag, þegar Reykja- vikuræskunni var boðið heim af þeim Fáksmönnum á Víðivöllum. t dag eru svo fyrstu kappreiöar sumarsins hjá félaginu á nýja skeiö- vellinum. Hefjast þær ki. 14. A myndinni sjáum við talið frá vinstri Svein Aka Lúðviksson, Stefán Ingólfsson, Þór S. Ólafsson, Hans Arnason, Giorgio Simone, Gunnar B. Dungal og Ragnar Borg. Skipti ó Olivetti umboðinu Undirritaðir voru á miðvikudag samningar milli fyrirtækisins G. Helgason og Melsted og fyrir- tækisins Skrifstofutækni h.f., þar sem Skrifstofutækni tekur nú við umboði Olivetti-fyrirtækisins. Fara skipti fram núna þann 1. mai. Stofnendur Skrifstofutækni h.f. eru ritfangaverzlunin Penn- inn og fjórir fyrrverandi starfs- menn G. Helgason og Melsted, en það fyrirtæki hafði Olivetti um- boðið frá þvi árið 1939. Hafa starfsmenn Skrifstofutækni allir notiö námsþjálfunar á vegum OIi- vetti-verksmiöjanna erlendis. Aðallega verða fluttar inn frá verksmiðjunum ritvélar og elek- tróniskar reiknivélar, svo og ýmiss konar bókhaldsvélar. Aðsetur fyrirtækisins verður að Laugavegi 178, og er fram- kvæmdastjóri Gunnar B. Dungal, en sölustjóri Sveinn Aki Lúðviks- son. Fyrirtækið Olivetti var stofnað fyrir rúmlega 60 árum i Ivrea, Italiu. Hefur fyrirtækið nú verk- smiðjur i ótal löndum, og starfa alls um 75.000 manns hjá þvi. Asamt þvi að framleiða ýmiss konar skrifstofuvélar framleiðir það sjálft sin eigin skrifstofuhús- gögn og lampa, en ekki er þó fyr- irhugað að flytja þaö inn hér á landi. — EA Meira en sund- sprettur á mann Það er rétt eins og allir þeir sem sundfötum geta haldið séu að keppast við að vinna til gull- merkis i 200 metrunum. Frá Sundlaug Njarðvikur vor- um við t.d. að frétta að 2033 hefðu þegar tekið þennan sundsprett. Og þegar haft er I huga, að Ibúa- tala Njarðvíkur er ekki nema 1546, verður þessi þátttaka í 200 m að teljast allbærileg. ,,Ég hef séð mörg ný andlit hér i lauginni, siðan sundkeppnin hófst,” sagði sundhallarstjórinn i viðtali við Visi i gær. Hann sagði okkur lika, að það væri helzt eldra sundfólki, sem fjölgað heföi I lauginni. „Og svo erum við að gera okkur vonir um að þetta ágæta fólk stundi svo sundið af jafnmiklu kappi, eftir að 200 metrunum sleppir,” bætti hann við að lokum. —ÞJM Þrymskviða — ný íslenzk ópera — önnur óperan íslenzka, sem gerð er í fullri lengd Þrymskviða nefnist ný islenzk ópera, sem Jón Asgeirsson tón- skáld er höfundur að. Þetta er önnur af tveim íslenzkum óperum sem samdar hafa verið I fullri lengd eftir þvi sem viö komumst næst. Flutningur mun taka tvo tima um það bil. Operan er listform, sem á vax- andi vinsældum aðfagna víða um heim, einnig á tslandi. Það sannast bezt á þvi, að ýmis tón- skáld, og þá ekki sist af yngstu kynslóðinni, hafa valið sér verk- efni á þessu sviði eða hafa I hyggju að gera það. Ekki kunnum við að nefna öll þau nöfn, sem hafa komið við sögu óperu- gerðar hér á landi, Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld hefur þó samið barnaóperur, sem hafa verið fluttar, t.d. Apaspil. Jón Asgeirsson sagði i viðtali við Visi um Þrymskviðu að staðiö hefði til, að hún yrði flutt á Listahátið en ekki verið gjör- legt að þessu sinni. „Ég bið þvi með hana til næstu listahátiðar. Ég lauk við óperuna s.l. sumar. Maður hefur gott af þvi að lita á hana aftur.” Jón segist hafa byrjað á þvi að semja Þrymskviðu fyrir um það bil sex til átta árum. „Égsamdi litla hálftima óperu um þetta sama efni, sem var flutt af krökkunum uppi i kennaraskóla. Það var árið 1964 og var fyrsta uppfærsla á islenzkri óperu”. Jón segir um Þrymskviðu, að inn i hana sé ofið hluta af Eddu- kvæðum, Lokasennu, Völuspá. Þetta er tveggja tima verk og á að flytjast af stórum kór, lítilli hljómsveit og átta einsöngvurum, sem syngja m.a. hlutverk Þórs, Þryms, Loka og Freyju. „Það er óhemju endurvakning á þessu listformi i Evrópu”, segir Jón. „óperan stóð ofurlitið i stað eftir Puccini. Nútimatónlist var ekki mikið sungin, bara spiluð, en nú stendur það söngvurum ekki lengur fyrir þrifum að syngja hana, og meira að segja sú ihaldssama Vinarópera hefur tekið nútimaverk til flutnings. Efni óperanna er frá öllum timumog meðferðin breytileg.” —Þaö hlýtur, að vera hægt að sækja mikinn efnivið i óperur aftur i okkar sögur? „óþrjótandi efnivið, en þetta er nóg i bili. Þetta er mikil vinna. Bara þaö aö ná i gegnum formið fannst manni nóg.” Aslaug Sveinsdóttir ekkja Siguröar Þórðarsonar tónskálds segir okkur frá fyrstu islenzku óperunni i fullri lengd. Það var óperan Siguröur Fúbnisbani eftir Sigurð. „Hann var búinn að ganga frá henni að öllu leyti og var að byrja aö setja hana út fyrir hljómsveit. Óperan er i fullri lengd, a.m.k. tveggja tima verk.” —SB—

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.