Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 3

Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 3
VtSIR. Miövikudagur 26. april 1972. 3 Þingvallabœndur í félag — vilja ,,koma lagi ó veiðimólin við Þingvallavatn" Bændur, sem lönd eiga aö Þing- vallavatni og veiðirétt hafa i vatninu, ætla nú að stofna veiðifé- lag um vatnið. „Við ætlum aö koma lagi á þessi veiðimál við vatnið”, sagði Pétur Jóhannsson, bóndi á Mjóa- nesi, ,,og þvi stofnum við þetta fé- lag — slangur af bændum, sem búa þarna i kring”. Sagði Pétur, að nú væri reyndin sú, að hver sem er, er leiö sina leggur um bingvelli, gæti veitt i vatninu, „þannig hefur þetta verið i framkvæmd — það eru m.a. þessi veiðimál, sem við ætlum að kippa i lag”. Viðbúið er, að margir Reykvik- ingar hafi áhuga á aö fá áfram að veiða i Þingvallavatni, og þvi rétt að kynna sér boðskap veiðifé- lagsins, þegar hann verður látinn á þrykk út ganga á næstunni. —GG. Akureyrarofnar settir ó markað „Við leggjum geysimikla áherzlu á gæðin. Sem dæmi get ég nefnt að við þrýstiprófum alla okkar ofna með 12 kilóa þunga sem er það langhæsta hérlendis. Kinnig er hitagjöf ofnanna með ábyrgð frá Cedric i Belgiu, sem er þekktasta stofnun á sinu sviði i Evrópu.” Svovmælti Kjartan Sigurðsson hjá Vélsm. Odda á Akureyri er Visir leitaði upp- lýsinga um nýja framleiðslu hjá fyrirtækinu, GOLF-ofna. Danska fyrirtækið H. Hollesens Fabrikker i Danmörku hefur gefið Odda leyfi til að hefja fram- leiðslu á GOLF-ofnum hérlendis, en Hollesens er stærsti fram- leiðandi stálofna i Evrópu. Hefur undirbúningur staðið yfir i tvö ár, áður en byrjað var á ofnasmiðinni á Akureyri. Segja má að með þessu hafi Oddi yfirtekið markað dönsku verksmiðjunnar hérlendis, þvi ofnar frá þeirri verksmiðju hafa verið fluttir hingað til lands um árabil. Tæknideild Odda hefur þó gert ýmsar breytingar á ofnunum i samvinnu við sérfræðinga frá Hollesens og lækkar útsöluverð þeirra hérlendis. GOLF-ofnarnir eru mörgum kostum búnir. Má þar nefna að hægt er að ráða hitastigi vatnsins sem inná þá kemur og er slikt sérstaklega hentugt á hitaveitu- svæðum þar sem vatnshitinn getur verið misjafn. Þrýstiprófun er strangari en áður hefur þekkst og kaupandi fær i hendur vinnu- seðil þar sem kvittað er fyrir hvert vinnslustig af viðkomandi starfsmanni. Ofnarnir eru framleiddir i mörgum gerðum og stærðum. Afkastagetan er 30.000 ferm á ári ef unnið er á einni vakt og sagðist Kjartan búast við aö þeir yrðu mjög fljótlega aö auka afköstin, þvi markaður væri nægur. —-SG ENN BEÐIÐ SVARS Landsambandi lifeyrissjóða tókst ekki að afgreiða svar til rikisstjórnarinnar viðvíkjandi beiðnium skuldabréfakaup þegar sambandið hélt fund um málið i siöustu viku. Gert hafði verið ráð fyrir að allir sjóðir hefðu fjallað um málið fyrir þennan fund og hægt væri að gefa ríkisstjórninni ákveðið svar. Það kom hins vegar i ljós að ekki höfðu allar sjóðsstjórnir innan sambandsins tekið afstöðu málsins. Sumir fulltrúa sögðust geta hugsað sér að kaupa eitt- hvað af þessum bréfum, en aðrir létu ekkert uppi. Þriðji fundur sambandsins um málið verður haldinn nú i vikunni og er þá vonast eftir endanlegri af- greiðslu málsins. —SG 18 ára og áfengið ERFITT AÐ FRAMFYLGJA NÚGILDANDI LÖGUM „Jú, þaö má segja aö þetta sé viöurkenning á þvi aö ekki er unnt að fram- fyigja núgildandi lögum. En er þá ekki skynsam- legra að breyta lögunum þannig aö hægt veröi að fylgja þeim skilyrðislaust eftir." Á þessa leið mælti Oddur ólafsson alþingis- maöur er Visir ræddi við hann um frumvarpiö um aö leyfa 18 ára unglingum að kaupa vín á veitinga- húsum. Oddur er einn af flutningsmönnum þess og kemur það aö öllum lik- indum til umræðu í efri deild i dag. Taka varð fótinn af Taka varð fótinn af konunni, sem varð fyrir skotum úr hagla- byssu, sem maður hennar skaut á hana með. Atburðurinn varð að- faranótt 21. april. Maöurinn var úrskurðaður i gæzluvarðhalds- vist. — SB — Frumvarpið gerir ráð fyrir aö slakað verði á þeim lögum að fólk innan 20 ára fær ekki að kaupa vin i útsölum Áfengis- verzlunarinnar. „Þessi mál voru mikið rædd á ráðstefnu sem haldin var ekki alls fyrir löngu. Þar voru flestir sammála um að leiðrétta ætti það misræmi sem nú er i gildi að 18 ára unglingum er leyft að sækja vertshúsin en fá ekki leyfi tilað kaupa vin fyrr en við 20 ára aldurinn. Hins vegar var ekki mikill áhugi á að lækka aldurstakmarkið gagnvart ótakmörkuðum áfengiskaupum i verzlunum” sagði Oddur. Hann kvað liklegt að þetta frumvarp yrði afgreitt á þessu þingi en nú væri áfengislöggjöfin i heild i endurskoðun og önnur ný væntanlega lögð fram næsta haust. Með og á móti. Vísir sneri sér til nokkurra for- ystumanna bindindismanna og leitaði álits þeirra á frumvarpinu. „Eg hef alltaf taliö aö slik breyting myndi auka áfengis- neyzluna en játa hins vegar að er- fitt er að framfylgja lögunum eins og þau eru núna” sagði ölafur Þ. Kristjánsson skóla- stjóri. Kjartan ólafsson hjá Stórstúku íslands sagði að þessi breyting væri ekki æskileg en þó væri ekki hægt að búa við þetta ósamræmi á veitingahúsunum. Aðspurður hvort hann hefði talið réttar að hækka aðgangsaldur að vinveitingahúsunum upp i 20 ár sagði Kjartan það þýöingar- laust meðan allur almenningur segði blessun sina yfir áfengis- neyzlu yngri aldursflokka. Auk þess virtist unga fólkið ekki hafa i of mörg hús að venda til skemmtanahalds. Eirikur Sigurðsson fyrrv. skólastjóri kvaðst vera á móti öllum svona rýmkunum sem auðvelduðu unglingum að ná i vin. Hins vegar kvaðst hann ekki tilbúinn að svara þvi hvort réttara heföi verið að hækka að- gangsaldurinn i 20 ár. Þá höfðum við samband við Hinrik Bjarnason framkvæmda- stjóra æskulýösráðs Reykjavik- ur. Hann kvaðst vera sammála þessari breytingu með tilliti til þess fyrirkomulags sem við byggjum við i áfengismálum. Nauðsynlegt hefði verið að sam- ræma aldur gesta við leyfilegar reglur um kaup á vinveitingum. „Égálitaðþað sé munurá hvort 18 ára ungmenni geti keypt sér glas af vini á veitingastaö eða heila flösku i verzlun. Þess vegna tel ég ekki rétt á þessu stigi að láta 18 ára aldur ná til verzlana. En breytingin á aldursmörkunum verður ekki til að auka drykkju- skap aö minum dómi þvi allir sem inn eru komnir geta útvegaö sér vinsvosem alkunna er. Hin^ vegar verður þetta til að gera stemmninguna opnari og eðli- legrij’ sagöi Hinrik að lokum. —SG. Tími til að „gera hreint fyrir sínum dyrum" Framtak ýmissa klúbba Lionsmanna, Kfwanis og Rotaryfelaga svo eitthvað sé nefnt, hafa oft vakið athygli. Ekki hvað minnsta athygli vakti það þegar einn þeirra tók sig til og fór að hreinsa til á þeim herjans öskuhaug sem risinn var rétt við borgarmörkin nálægt Rauðhólum. Við birtum þessa skemmtilegu mynd af tiltektinni til að minna alla góða klúbba og einstaklinga á aö enn er ástæöa til að taka til hendinni. Halldór Laxness Vinlandsnotater og andre middelalderlige randbemærkninger Essays. Kr. 34.50 Verdens lys Roman. Kr. 50.60 Jdaf]/^v ^1/r’ * Laxness líka í útlendu pressunni Nóbelsskaldið okkar er ekki bara I blöðum og fjölmiðlum hér á Iandi þessa dagana. i blööum vfða erlendis hefur skáldið fyllt dálkana að undanförnu. Við rákumst þannig á þessa auglýs'ingu f einu dönsku blaö- anna. Þar eru Vínlandspuktarnir auglýstir til sölu en myndin, sem fylgir þótti okkur einkar skemmtileg og birtum hana því meö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.