Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 5
VÍSIR. Miðvikudagur 26. april 1972. 5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND DREGUR MUSKIE SIG ÚR SLAGNUM? McGovern sigraði i Massachusetts — Humphrey í Pennsylvaníu Þingmennirnir Hubert Humphrey og George McGovern sigruðu i prófkosningunum i Pennsylvaniu og Massa- chusetts-fylkjum i Bandarikjunum i gær. I Massachusetts hafði McGovern i morgun hlotið 46 prósent þeirra atkvæða, sem höfðu verið talin, en Edmund Muskie hafði aðeins 24 prósent. Aðrir frambjóðendur fengu minna fylgi i Massachusetts, en McGovern og Muskie voru þeir einu, sem háðu kosningabaráttu i fylkinu. Hubert Humphrey virtist i morgun hafa fengið átta prósent atkvæða demókrata i Massa- chusetts, en i Pennsylvaniu sigraði hann. Tölvur spáðu Humphrey 35 prósentum atkvæða, þegar talning var komin nokkuð áleiðis. Humphrey sagði, að sigur sinn i Pennsylvaniu væri mjög kærkominn og kæmi einmitt á þeim tima, þegar hann þyrfti að fá vind i seglin. Edmund Muskie mun þó hafa fengið nokkuð svipaða tölu full- trúa á flokksþing demókrata kjörna i Pennsylvaniu og Hump- hrey eða um 50-60 fulltrúa, að þvi er talið var i morgun. Liklegt var talið að McGovern fengi 25 full- trúa og George Wallace nokkra, en slagurinn stendur um kjör fulltrúa á flokksþing demokrata, þar sem frambjóðandi þeirra i forsetakosningunum i haust verður kjörinn. McGovern hefur fengið flesta fulltrúa. I Með sigri sinum i Massa- chusetts mun McGovern hafa tekið forystu I fjölda tulltrúa, sem frambjóðendur hafa fengið kjörna i þeim prófkosningum, sem eru búnar. Margir slógu þvi fram i | morgun, að Edmund Muskie ; kynni nú að draga áig út úr [ kosningabaráttunni. Það var ; McGovern mikill stuðningur i gamla kjördæmi Kennedyanna, Massachusetts, að dóttir Roberts Kennedys heitins stóð við hlið hans á ræðupöllum. Edward Kennedy þingmaður hefur hins vegar ekki lýst yfir stuðningi við neinn af frambjóðendunum. Andstaðan við stefnu rikis- stjórnarinnar i Vietnam er talin hafa hjálpað McGovern i kosningunum. Castro loks af tur til Moskvu Fidel Castro forsætisráðherra á Kúbu fer til Moskvu i júnilok i opinbera heimsókn. Frá þessu er sagt I litilli klausu á forsiðu sovézka blaðsins Pravda. Atta ár eru liðin, síðan Castro var siðast i Moskvu. Samband Moskvu og Kúbumanna hefur verið breytilegt á þeim tima, til dæmis sendi kommúnistaflokkur Kúbu aðeins tvo áheyrnarfulltrúa til fundar æðstu kommúnistaleið- toga i Moskvu. Að undanförnu hefur sambandið batnað. Mattingly geim- gengur Tunglfarinn Thomas Mattingly fór i „geim- göngu” i gærkvöldi 322 þúsund kilómetra úti i geimnum og sótti hann 2000 metra af filmu, sem var i hylki utan á stjórnfarinu. Þetta er bill borgarstjórans I Iloilo, eftir að tilræðismenn höföu skotiö á hann og fellt fjóra lifveröi borgarstjórans og sært þrjá. Borgarstjóri komst naumlega undan, særöur á handlegg og fæti. ason Ungur Vietnami fyftir móöur sinni frá gröf eins barns hennar. Barniö beiö bana, þegar strfös- menn böröust ákaft viö bæinn Quang Tri I Suður-VIetnam. Bandaríkjamenn aftur að samningaborðinu Norður-Víetnamar og þjóðfrelsishreyfingin hafa tekið herstöðvor ó miðhó- lendinu. — Brottflutningur fólks fró Kontum. — Skriðdrekasveitir nálagst Framsókn Norður-Viet- nama stöðvaðist i nótt 18 kílómetra frá bænum Kontum. Her Suður-Viet- nama hefur verið nokkuð auðvelt viðfangsefni fyrir skriðdrekasókn norðan- manna á þeim slóðum, en nú reyna Suður-vietnamar að endurskipuleggja liðsitt við þorpið Vo Dinh. Harðir bardagar geisuöu norðan höfuðborgarinnar Saigon, aðeins 35 kilómetra frá borginni. Bandarikjamenn og Suður- Viétnamar sögðust i gærkvöldi tilbúnir að hefja aftur friðarvið- ræðurnar i Paris. Var sagt, að sendinefndirnar mundu koma aftur að samningaborði á morgun. Bandarikjamenn segjast setja það skilyrði, að sókn Norður-Vietnama yrði fyrsti þáttur á dagskránni. Upp úr samningaviðræðunum slitnaði 24. marz. Aðalfulltrúi Bandarikjamanna sagði þá, að hann mundi ekki koma aftur til fundanna, fyrr en N-Vietnamar og þjóðfreslsishreyfingin væri reiðubúin til raunhæfra við- ræðna. Norður-Vietnamar hafa látið i ljós óskir um, að viðræðurnar hefjist aftur. Ronald Ziegler blaðafulltrúi Nixons, sagði, að Bandarikjastjórn vildi komast að raun um hið bráðasta, hvort kommúnistum væri alvara með óskir um frið. Bandarikjamenn hefðu ekki áhuga á tilgangs- lausum áróðri á „samninga- fundum”. Loftárásir áfram. Hann gaf i skyn, að loftárásum á Norður-Vietnam yrði haldið áfram, þótt viðræður byrjuðu. Hann var spurður, hvort þessi afstaða öll væri afleiðing af leyniferð Henry Kissingers ráðunautar Nixons til Moskvu um siðustu helgi, sem skýrt var fráigær. Vildi Ziegler ekkert um það segja. Tilkynning Bandarikjamanna og Suður-Vietnama um, að þeir kæmu aftur til samninga, er birt sólarhringi eftir að NorðurViet- namar unnu sina mesta sigra á vigvöllunum i Suður-Vietnam með sókn á miðhálendinu og töku bæja þar. Evrópumenn og bandariskir borgarar i bænum Kontum á miðhálendi Suöur-Vietnam hafa veriðfluttir brott frá bænum,og Suður-Vietnamar búast til að mæta Norður-Vietnömum norðan bæjarins. Skriðdrekar Norður- Vietnama brutust gegnum fremstu varnarlinu sunnan- manna og sóttu fram eftir þjóð- vegi 14 á hæla flóttafólks. Sunnanmenn voru að endur- skipuleggja lið sitt við herstöðina Bravo, 19 kilómetra norðan Kontum. Um fjögur þúsund fót- gönguliðar norðanmanna sóttu fram þar, studdir skriðdrekum og stórskotaliöi. Norður-VIetnamar og skæru- liðar þjóðfrelsishreyfingarinnar hafa til þessa tekið niu stöðvar á miöhálendinu og haldið sókn sinni áfram fram hjá fimm öðrum þrátt fyrir sifelldar loft- árásir risaflugvéla af gerðinni B- 52, sem hafa varpað hundruðum tonna af sprengjum á þá. Borgarstjórar gjarnan myrtir á Filippseyjum Borgarstjórar á Filipseyjum hafa áreiðanlega eitt háskalegasta starf heims. Fjórir þeirra hafa verið myrtir siðan um jól. Borgarstjórarnir voru myrtir með sprengjum. Tveir aðrir sluppu naumlega undan tilræðis- mönnum, og einn fyrrverandi borgarstjóri, kona, var skotin til bana. Filippseyingar segja, aö aðeins eití starf sé háskalegra en starf borgarstjóra, en það er aö vera lifvörður borgarstjóra. TIu lifverðir biðu bana i framangreindum hermdar- verkum. Fleiri hafa verið drepnir i öðrum tilræðum. Borgarstjórinn i höfuðborginni Manila hefur gervifót I stað fótsins, sem hann missti, þegar óþekktur tilræðismaður kastaði sprengju i mannfjöldann á stjórn- málafundi. Margir felagar borgarstjóra I frjálslynda flokknum særðust.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.