Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 7

Vísir - 26.04.1972, Blaðsíða 7
VÍSIR. Miðvikudagur 26. april 1972. cTMenningarmál EFTIR AFMÆLIÐ ALLIR FJOLMIÐLAR í landinu voru undirlagðir af sjötugsaf mæl i Halldórs Laxness um síðustu helgi. Dagblöðin öll skrifuðu leiðara um skáldið, auk þess sem þau birtu marg- háttaðar greinar um skáldið og verk þess, og bæði útvarp og sjónvarp fluttu myndarlegar dag- skrár í tilefni afmælisins. Engin leið var að fylgjast með öllu þvi, sem um Laxness var tal- að og skrifað á þessum heiðurs- degi. En margt af þvi var hvað öðru likt. Halldór Laxness er ekki lengur sú umdeilda persóna sem hann var fyrr á árum, heldur óumdeilanlegt lárviöarskáld is- lenzku þjóðarinnar, sem hún veit sig standa i meiri þakkarskuld við en flestamenn aðra. Halldór Laxness hefur veitt tslendingum nýja sýn: fyrir atbeina hans hlýt- ur þjóðin að lita sjálfa sig, land sitt og sögu, öðrum augum en hún hefði gert ella. Þetta virðist núna almennt viðurkennt. Og það er jafnvel orðið hálfgert feimnismál sums staðar, að þetta skuli ekki alltaf hafa verið viðurkennt. Þess sáust yfirleitt litil merki i afmælisskrif- um dagblaðanna að áratugum saman var harðar deilt um Hall- dór Laxness en nokkurn annan rithöfund islenzkan. Þjóðviljinn einn gerði nokkra tilraun til að rifja þá sögu upp — i aukablaði sem hann gaf út á kostnað verka- lýðshreyfingarinnar. En þó er þessi samskiptasaga skálds og þjóðar ekki ómerkur eða litilvæg- ur þáttur i höfundarferli Laxness. DEILURNAR UM LAXNESS hér á árunum verður að sjálf- sögðu að meta i ljósi sinnar sam- tiðar, ekki af sjónarhóli dagsins i dag. Og litnar þeim augum verða þær jafneðlilegar i sinu samhengi eins og samhljóma og einlæg þökk afmælisdagsins er i sam- hengi nútimans. Það er ekkert einkennilegt við það að jafnvel Atómstöðin skuli núna talin góð bók i Morgunblaðinu: Það er að- eins me'rki þess að timinn hefur liðið og að ný kynslóð hefur komið i stað þeirrar fyrri, kynslóð sem ekki er tilfinningalega bundin liðna timanum á sama hátt og feður hennar voru .samtið sinni. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinm | Eftir | | Kristján Bersa ( | Ölafsson | iimmiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiimiHiiiiiiiiiiiiiiimimiiI Með þessu er ég að sjálfsögðu ekki að afsaka allá þá heiftúðugu andspyrnu sem höfundurinn og verk hans mættu iðulega hér áður fyrr; ég er aðeins að gera tilraun til að skilja hana. En hún verður ekki endilega afsakanleg þótt hún sé skýranleg. Mikið af henni átti sér auðvitað orsök i illafsakan- legri þröngsýni,,þar á meðal sú staðhæfing sem var furðu algeng og gætti lika og ekki sizt meðal sumra ráðamanna, að verk Lax- ness væru nið um islenzku þjóð- ina: þar væri dregið fram það versta og ljótasta i fari hennar: slik skrif væri i hæsta lagi hægt að þola hér innanlands, en það jaðraði við landráð að þýða þau á erlend tungumál. Nútimamenn undrast yfir þvi að sjónarmiðum sem þessum skuli eitt sinn hafa verið haldið ' fram af islenzkum ráðamönnum. Okkur er það ljóst að verk Hall- dórs Laxness hafa verið einhver ágætasta landkynning tslendinga á tuttugustu öld, hafa orðið islenzkri menningu meiri álits- auki en flest eða allt annað. Hins- vegar láta þessar gömlu rök- semdir býsna kunnuglega i eyr- um. Nákvæmlega þessu sama halda ráðamenn Sovétrikjanna einattfram um verk ágætustu rit- höfunda Rússlands. Og þeir hafa slikt vald, að þeir geta bannað útgáfu á verkum höfundanna heima fyrir og dregið þá fyrir dóm, ef þau fást gefin út erlendis. Slikt vald hafa islenzkir ráða- menn aldrei haft, ekki einu sinni Jónas frá Hriflu meðan hann var sem voldugastur i opinberum menningarmálum. Trúlega er það þessum skorti á algjöru valdi að þakka að verk Halldórs Lax- ness héldu á þessum árum áfram að koma út heima og erlendis: viljann til að stöðva þau virðist hins vegar ekki hafa skort hjá sumum. En þetta heyrir allt til liðnum tima. Nú geta allir glaðzt sameiginlega yfir þvi að eiga jafnfrábæran rithöfund og Laxness, og þjóðin öll tók á sunnudaginn af heilum hug þátt i að heiðra hann á sjötugsafmæi- iriu. Slik samstaða hefði einhvern tima þótt saga til næsta bæjar, en hún er hins vegar fjarri þvi að vera tákn um að Laxness sjálfur sé hættur að skipta máli fyrir samtiðina. Þvert á móti hefur hann á allra siðustu árum aukið drjúgum sitt mikla framlag til islenzkrar bókmenningar og hjá þvi getur naumast farið að hann éigi enn eftir að bæta við það framlag. Ég fyrir mitt leyti er þegar farinn að hlakka til að hlýða á hann flytja fyrirlestra i Háskólanum, eins og hann bauðst til að gera við doktorsathöfnina á sunnudaginn. Hefjið Ungt fólk og fólk á öllum aldri: LÍKAMSRÆKT eða trimmæfingar. Það er alveg sama, hvort þú ert feitur eða magur, gamall eða ungur, karl eða kona. Lyftingaæfingar eru beztu æfingarnar, sem þekkjast i dag, og þær gefa skjótastan og beztan árangur. Við höfum engar hópæfingar, hver ein- stakur fær eigin æfingatöflu og kemur, þegar honum hentar. Við bjóðum lika þrekæfingar, sem eru undirstaða alls kyns iþrótta. Opið fyrir konur: Mánud., miðvikud. og föstud. kl. 10.30 — 20.30. Opið fyrir karlmenn: Þriðjud. og fimmtud. kl. 12 —14 og 17 — 20.30. og laugard. kl. 10 — 6 2 ^ HEILSURÆKTARSTOFA EDDU TRIMMÆFINGAR MEGRUN VÖÐVAÆFINGAR STYRKTARÆFIN GAR SAUNABAÐ Komið ! reynslutima yður að kostnaðarlausu. Skipholti 21 við Nóatún. HÚSGAGNAFRAMLEIÐENDUR Við höfum flutt verkstæði og afgreiðslu okkar úr Súðarvogi 7 í SKEIFUNA 11 (suðausturendi) Póll Jóh. Þorleifsson h.f. Símar: 25416-17-18 Halldór Laxness á sviði Þjóðleikhússins aö lokinni frumsýningunni á Sjáifstæðu fólki. ( 16. leikvika — leikir 22. aprll 1972.) Orslitaröðin :1X2 — 11X — ÍXX — 212 1. vinningur: 11 réttir — kr. 65.500.00 nr. 2169 2850 8505 41166 76537 85037 2. vinningur: 10 réttir — kr. 2.200.00 nr. 842 nr. 16516 nr. 31594 + inr. 49169 nr. 73690 - 2516 - 18222 - 34273 - 59082 - 75533 - 6705 - 18435 - 35910 + i “ 59139 - 75912 - 7872 - 19076 - 36823 - 60258 + - 76501 8068 - 19588 + - 38704 - 60343 + - 77346 + - 9213 - 24052 - 39121 - 63758 - 77626 - 10312 + - 24754 - 40555 - 64037+ - 77874 - 10823 - 27353 - 41124 - 64363 - 81716 + - 11943 - 27742 - 42098 - 66001 - 82076 + 12089 - 28099 - 42554 - 66122 - 82106 + - 12576 - 28319 - 43773 - 68122- - 84704 - 12921 - 29642 - 44564 • 68463 - 87009 - 13612 - 30118 46372 71372 - 87554 + ■ 13622 14277 + - 30952 - 46809 - 72662 - 87768 + nafnlaus Kærufrestur er til 15. mal. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tek""" til greina. Vinningar fyrir 16. leikviku verða póstlagðSÍ eftir 16. mai. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvlsa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til getrauna fyrir greiðsludag vinninga. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVIK

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.