Vísir


Vísir - 08.05.1972, Qupperneq 5

Vísir - 08.05.1972, Qupperneq 5
Flestir Danir vilja í EBE 48 af hverjum 100 Dönum, vilja að Danmörk gangi i Efnahags- bandalag Evrópu samkvæmt skoðanakönnun, sem blaðið Berlingske Tidende birti í gær. 28% eru andvigir, og 24% óá- kveðnir. Eiturgufa yfir bœ á Jótlandi McGovern efstur George Wallace fór fram úr Hubert Humphrey með sigri i Norður-Kaliforniu i fjöida full- trúa, sem hafa verið kosnir á flokksþing demókrata, en Humphrey komst aftur fram úr vegna endurtalningar i Hio, sem gaf honum fleiri fulltrúa en áður. McGovern hefur fengið flesta fulltrúa kjörna, um 265, Humphrey og Wallace munu hafa 210-220. Muskie um 128. 16 manns í Grenaa á Jót- landi voru fluttir í sjúkra- hús til rannsóknar, eftir að þeir höfðu andað að sé eitr- uðu gasi. Mörg þúsund fisk- ar í fiskeldiskerjum dráp- ust af eitrinu. Eiturgufan kom frá geymi i köfnunarefnisverksmiðju. Leki kom i geyminn, og gufan barst yfir bæinn. Aðeins fátt manna hlýddi fyrirmælum lögreglu og hólt sig innan dyra, og þvi varð að flytja sextán i sjúkrahús. Fólkinu verður haldið þar um skeið, þar sem einkenni alvar- legrar eitrunar koma oft ekki i ljóst fyrr en eftir 44 klukkustund- ir. WASHINGTON Nixon œtlar að grípa til nýrra ráða í Víetnam — Rogers kallaður heim í miðjum klíðum — Hart sótt að Phnom Penh Stræti Phnom Penh höfuðborgar Kambódíu bergmáiuðu fallbyssu- drunur í nótt og snemma i morgun, er kommúnistar og st jórna rhermenn börðust skammt sunnan borgarinnar. Kommúnistar skutu á marga staði innan .1,6 kilómetra radius umhverfis borgina. Þrýstingur sóknar Norður- Vietnama og þjóðfrelsis- hreyfingarinnar fór i nótt vaxandi norðan og norðaustan bæjarins Kontum. Herstöð S-Vietnama i Ben Het varð fyrir mikilli fall- byssuskothrið. Sama sagan varð i bænum An Loc norðan Saigon. Fangauppreisn. Fangar gerðu uppreisn i fanga- búðum i Suður-Vietnam. Herlögregla skaut á fangana, og féllu 13, en 56 særðust. Fangabúðirnar i Phu Quoc eru þær stærstu i S-Vietnam. Norður- Vietnamar segja, að þarna séu 30 þúsund fangar við verstu kjör. N-Vietnamar gerðu i gær áhlaup á þremur stöðum i S-Viet- nam, en þeim tókst ekki að vinna neina meiriháttar sigra, en þennan dag voru liðin 18 ar frá þvi að Frakkar biðu ósigur fyrir þjóð- frelsishreyfingu Vietnam i bænum Dien Bien Phu. Bandarikjamenn segjast hafa skotið niður þrjár orrustuþotur N- Vietnama af sovézkri gerð, en N- Vietnamar hafi skotið niður eina bandariska sprengjuflugvél. Nixon Bandarikjaforseti ræðir i dag við helztu ráðunauta sina um versnandi horfur i Vietnam. Margt bendir til þess, að hann hafi i hyggju að herða aðgerðir gegn Norður-Vietnömum, sprengjuárásir á N-Vétnam og lagningu tundurdufla i hafnir þar. Búizber við hörðum loftárásum á bæina Hanoi og Haiphong. Til Haiphon berast vopn frá Sovét- rikjunum, og er hætt við versn- andi samskiptum stórveldanna, ef sovézk skip yrðu fyrir SDrengjum þar. Einnig er talið koma til greina, að Nixon taki til umræðu tillögur um að bandariskir sjóliðar gangi á land sunnarlega i Norður-Viet- nam og þeir . ráðist þar á birgða- og herstöðvar og flugvelli. Hið alvarlega ástand kom bezt i ljós i ákvörðun Nixons i gær að kalla heim William Rogers utan- rikisraðherra i miðjum kliðum Evrópuferðar hans. Rogers sneri heim i gærkveldi og átti töluvert eftir af för sinni. Hann ræddi við Walter Scheel utanrikisráðherra V-Þýzkalands i gærkvöldi og Willy Brandt kanslara i morgun, og eftir heimsóknina til Bonn átti hann eftir að fara til Parisar Italiu og Spánar. Kissinger ráðunautur Nixons hefur frestað för sinni til Japan vegna hins alvarlega ástands. 46 slasast í spreng- ingu í dœlu Apollo 16 Sprenging varð i dælu, sem var notuð til að taka eldsneyti úr Appollo 16, og 46 manns slösuðust. Litlar skemmdir urðu á geimfar- inu. Slysið varð á North Island flotastöðinni i Kaliforniu. Verst slasaðist starfsmaður sem dælan féll ofan á. Flestir hinna önduðu að sér eitruðu gasi eftir spreng- inguna, sem var svo öflug, að gat kom á þak flugskýlisins, þar sem verkið var unnið. Hver fclur sig þarna bak við? — Jú, það er Olof Palme forsætis- ráðherra Svía. Sumir segja, að þetta verði „rnynd ársins” i Sví- þjóð, en hún var tekin 1. mai. Gömlu hjónin vita ekki, liver situr einn og æfir sig i ræðunni, sem hann flutti seinna á fundi. -J|K- Litil stúlka stendur I miðjum brennandi rústum markaðarins i Norður-Vietnainar sækja að Hué. Markaðurinn i Hué brann til að eldurinn hefði slysni. bænum Hué, og drengur horfir á. grunna i siðustu viku, og var sagt, NEYÐARKALl orðið vegna r HOTUÐU FLUGFEL- AGINU EN NÁÐUST í TÆKA TÍÐ Bandaríska lögreglan FBI handtók um helgina tvo menn, sem höföu í síma hótaö að eyðileggja þotur f lug félagsins National Airlines og stöðvar þess í Miami, nema þeim yrði greidd fjárhæð, sem mun hafa numið um 20 milljónum króna. Mennirnir vóru handteknir daginn eftir að flugvél Western Airlines var rænt og flogið til Kúbu, og annar flugvélarræn- ingi stökk i fallhlif úr flugvél Eastern Airlines yfir Mexikó eftir að honum hafði verið greidd fjárhæð, sem nam nærri 30 milliónum króna. FBI vildi i nótt ekki gera nán- ari grein fyrir handtökunum. VtSIR. Mánudagur 8. mai 1972. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND Umsjón: Haukur Helgason /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.