Vísir - 08.05.1972, Blaðsíða 10

Vísir - 08.05.1972, Blaðsíða 10
10 VtSIR. Mánudagur 8. mal 1972. VÍSIR. Mánudagur 8. mal 1972. 11 NYTT NAFN Á BIKARINN y — Leeds sigraði Arsenal 1-0 i ensku bikarkeppninni og vann bikarinn i fyrsta sinn Jón Unndórsson, hinn snjalli glímumaður úr KR, sigraði í 62. islandsglímunni, sem háð var á sunnudag í íþróttahúsi Vogaskóla og er 21. maðurinn, sem hlýtur Grettisbeltið, hinn fræga grip, sem veittur er sig- urvegara islandsglímunnar. Jón Unndórsson glímdi mjög vel að þessu sinni og hafði tals- verða yfirburði — hlaut tveim- ur vinningum meira en næsti maður — og lagði alla keppi- nauta sina nema Inga Ingva- son, hinn unga glímumann úr Þingeyjarsýslu. Þetta er fyrsti stórsigur Jóns Unndórssonar á vettvangi glímunnar, en verð- Jón Unndórsson hlaut Grettis beltið í 62. Íslandsglímunni ur áreiðanlega ekki sá síðasti. Islandsgliman var vel glimd aö þessu sinni og spenna var talsverð, þrátt fyrir yfirburði Jóns i lokin. Hann hlaut harðasta keppni um tslands- meistaratitilinn frá þeim Sveini Guð- mundssyni, Ármanni, Ómari Ólfars- syni, KR, og Hjálmi Sigúrðssyni, Vlk- verja, en tókst að leggja þá alla — en að visu hafði Sveinn meiðzt talsvert á hné, þegar hann mætti Jóni og gat þvi ' ekki beitt sér eins og áður vegna meiðslanna. En það dregur þó ekki úr afreki Jóns og hann lagði þá Hjálm og Ómar á mjög sannfærandi hátt. Að visu var sem Rjálmur bæri of mikla viröingu fyrir Jóni sem mótherja — reyndi varla bragð i innbyrðisglimu þeirra og var það óþarfi eftir þvi, sem á undan var gengiö. Hjálmur er nefni- lega mjög skemmtilegur og harö- skeyttur glimumaður — glimir allra manna bezt og hlaut feguröarverö- launin i glimunni fyrir frábæra glimu við ómar, sem hann lagöi á afar skemmtilegan hátt. Áhorfendur voru margir á glimunni og skemmtu sér vel — enda vel glimt og litið um bol. Gisli Halldórsson for- seti tþróttasambands tslands, setti þessa 62. tslandsglimu, en glimustjóri var Þorsteinn Einarsson, iþróttafull- trUi rikisins. Keppendur voru tiu i glimunni og röð þeirra og úrslit þessi. 1. Jón Unndórsson, KR, 8 1/2 2. Sveinn Guðmundsson, A, 6 1/2 3. ómar úlfarsson, Vik, _ 6 4. Hjálmar Sigurðsson, Vik. 6. 5. Sigurður Jónsson, Vik 5' 6. Ingi Ingvasson, HSÞ, 4 7. Guðm. Freyr Halldórsson, A, 3 8. Rögnvaldur Ólafsson, KR, 3 9. Þorvaldur Þorsteinsson, A, 2 10. Kristján Ingvason, HSÞ, 1 1 keppni um þriðju verðlaunin milli Ómars og Hjálms var aukaglima og sigraöi Hjálmur. glæsilega og Lorimer átti skot framhjá úr góðu færi. Þegar 27 min, voru af leik var John Radford hjá Arsenal kippt útaf og Ray Kennedy kom i hans staö. Það breytti engu — sóknarmönn- um Arsenal tókst ekki að finna smugu i geysisterkri vörn Leeds, þar sem Jackie Charlton, sem er 37 ára i dag, gerði sig varla sekan um skekkju. Alan Ball, sem varö 27 ára á laugar- daginn, var bókaður i hálfleikn- um og á siöustu min. leiksins lék Mike Jones upp, komst frlr aö markinu, en lenti þá saman viö markvöröinn. Jones féll við og meiddist illa á handlegg, en knötturinn rann framhjá mark- inu. Eftir leikinn fóru leikmenn Leeds upp i heiðursstúkuna, þar sem Elisabet drottning, afhenti verðlaun og meöan á þvi stóð, að leikmenn fengju verðlauna peninga sina, lá Mike Jones á börum. En hann komst á fætur, með reifaðan handlegg og byrj- aði aö ganga upp tröppurnar til drottningar. Þaö var eins og hann vissi ekki hvar hann var, en Normann Hunter hljóp þá til og studdi hann upp. Engum var fagnaö eins innilega af hundrað þUsund áhorfendum en Jones, þá loksins hann fékk verðlaun sin. Mjög misjafnar skoðanir voru á ágæti leiksins. Einn fréttamanna BBC, sem horföi á hann i sjón- varpi, sagði leikinn hinn bezta, sem leikinn hefði verið i úrslitum I fjölda mörg ár. Bjarni Felixson, sem horfði á leikinn á Wembley, kom fram i þætti hjá þessum sama manni, og var ekkert og hrifinn. Einkum var hann óánægður með leik Arsenal. Brian Saunders, fréttastjóri BBC, sagði leikinn ekki einn af þeim stóru — en spennandi hefði hann verið — og einkennzt of mikið af brotum. En hvað um það.bikarinn er Leeds i fyrsta skipti,og er það sennilega mörgum fagnaðarefni, þvi liðið hefur svo oft verið nærri þvi að vinna stórsigra undanfarin ár, en svo misst af öllu á siðustu stundu —■ nema hvað liðið er með einn sigur i 1. deild. Kannski bæt- ist þar annar viö i kvöld, en aðeins tvö liö hafa unnið deild og bikar sama árið á Englandi á þessari öld. Arsenal I fyrra og Tottenham 1961. Sveinn Guðmundsson leggur Kristján Yngíason, Ijósm. BB. Loksins tókst Leeds það! Liðið sigraði Arsenal í skemmtilegum — en mjög grófum leik — á Wembley- leikvanginum i Lundúnum á laugardag og eina mark leiksins skoraði Alan Clarke, hinn bráðsnjalli innherji Leeds á niundu minútu síðari hálfleiks — skallaði knöttinn neðst í markhornið eftir fyrirgjöf félaga sins Mike Jones, sem leikið hafði upp allan hægri kantinn. Þar meö var fyrsti sigur Leeds í bikar- keppninni staðreynd, verð- skuldaður sigur betra liðs- ins í leiknum, og í kvöld hafa leikmenn Leeds tæki- Revie hinn unga markvörð David Harway, sem leikiö hefur i sið- ustu fimm leikjum liðsins mjög vel, en gekk framhjá Gary Sprake. Strax varð harkan mikil og á fyrstu minútu var Bob McNab, bakvörður Arsenal, bókaður fyrir gróf brot og voru leikmenn Arsenal njun grófari, fengu dæmdar á sig 20 aukaspyrnur fyrir brot á móti 10 hjá Leeds. Þaö tók leikmenn liðanna nokk- urn tima að komast yfir tauga- spennuna i þessum leik, sem haföi svo mikið aö segja fyrir bæði liðin — Arsenal að verja bik- arinn, Leeds að reyna aö vinna hann i fyrsta skipti. Leikmenn Leeds náðu sér fyrr á strik, en Arsenal var þó nær þvi aö skora i fyrri hálfleiknum. A 16.min, fékk Arsenal auka- spyrnu, sem Alan Ball tók. Hann gaf strax á Frank McLintock, sem spyrnti fast. á markið af 25 hálfleiknum, Norman Hunter og Billy, fyrirliði liösins. Og strax i byrjun siöari hálf- leiks dró dómarinn Smith svörtu bókina enn fram og bókaöi Charlie George — Arsenal náði fyrsta hættulega upphlaupi hálf- leiksins, en Bob McNab spyrnti knettinum i hliöarnetið á sjöundu minutu. Svo kom sigurmarkiö. Bremner var upphafsmaður upphlaupsins — gaf siðan knöttinn út á kant til Jones. Hann brunaði upp allan kantinn, komst framhjá Bob Mc- Nab og lék upp að endamörkum. Þá gaf hann fyrir mjög vel til Alans Clarke, sem skallaöi knöttinn neðst i markhorniö, ai- gjörlega óverjandi. Stórkostlegt mark, sem veröskuldaði að verða sigurmark leiksins, sögðu þulir BBC. Eftir markið sótti Leeds mjög — eins og leikmenn liðsins ætluðu að greiða Arsenal rothögg. Knött- urinn dansaði um i vitateig Bertic Mce, framkvæmdastjóri Arscnal, með bikarana I deild og bikar, sem lið hans vann i fyrra. Vinn- ur Leeds sama afrek nú? færi til aö sigra einnig í deildarkeppninni — þurfa að hljóta eitt stig í leik sín- um gegn Wolverhampton á útivelli. Hundrað ár eru frá þvi fyrsti • úrslitaleikur bikarsins var háður og var mikið um dýrðir á Wembl- ey. Bæði liðin höfðu sina beztu menn, nema hvaö Bob Wilson var ekki i marki Arsenal, og Terry Cooper hjá Leeds fótbrotinn. I markið hjá Leeds valdi Don metra færi, en Harway varði mjög glæsilega, og á 32.min. fékk Arsenal hornspyrnu. Alan Ball fékk knöttinn og spyrnti viðstöðu- laust á mark — en á siöustu stundu tókst Poul Madeley að bjarga á marklinu. Þar skail hurð nærri hælum hjá Leeds. En Leeds sótti meira — Alan Clarke átti skalla i þverslá, Jones komst i gott færi, en spyrnti yfir og Barnett markvöröur varöi vel skot frá Lorimer og Giles. Tveir leikmenn Leeds voru bókaðir i Arsenal á köflum, og stórhætta skapaðist af og til. En ekki fór knötturinn i markið oftar, og svo um miðjan hálfleikinn munaði sáralitlu að Arsenal jafnaði. Snöggt upphlaup og Charlie George komst i skotfæri — hörku- skot hans lenti i þverslá og hrökk Ut aftur. Eftir þetta urðu leikmenn Leeds varkárari — fóru að leika mjög i hornum og tefja eins og þeim er einum lagið. Þó komu tækifærin — Eddie Gray átti mjög gott skot, sem Barnett varði Celtic Alan Gordon skoraði þá ágætt mark eftir góða sóknarlotu Hibernian gegn Celtic og vind- inum. En 11 min. siðar náði Celticaftur forustu, þegar Dixie Dean skoraði.og i hálfleik var staðan 2-1. Vonir leikmanna Edinborgar- liösins voru þvi bjartar i hálfleik — vindurinn var nú þeirra, en þaö fór á aöra leið, þær gættu sin ekki i ákafanum að jafna. Þegar 30mfnvoru af siðari hálf- leiknum náði Celtic snöggu upp- hlaupi eftir mikla sóknarlotu Hibernian. Dixie Dean lék mjög vel á bakvörðinn, siðan mark- vörðinn, sem hann dró frá markinu, þá á bakvörðinn aftur og renndi knettinum i markið. Litlu siðar hljóp hann alla vörn- ina af sér og skoraði þriðja mark sitt i leiknum — en tvö sið- ustu mörk Celtic i leiknum skor- aði Lou Macari. Celtic, sem sigrað hefur i deildarkeppninni sjö siðustu árin, hefur nú enn einu sinni sigrað tvöfalt, bæði i deild og bikar sama árið. Liðið tekur þátt i Evrópukeppni meistara- liða næsta keppnistimabil og leikur Hibernian þvi,þrátt fyrir tapið, i Evrópukeppni bikarhafa. Stórsigur Glasgow Þeir beztu i glimunni. Frá vinstri Sveinn Guðmundsson, Jón Unndórsson, tslandsmeistarinn, Ómar Clfarsson, sem missti af 3. verölaunum vegna vitis, og Hjálmur Sigurðsson með feguröarverðlaunin. Glasgow á laugardag; lokatölur urðu 6-1 og ungi framherjinn Dixie Dean, sem misnotaði hina af- drifaríku vítaspyrnu í Evrópukeppninni gegn Inter, Milanó, á dög- unum, var nú hetja liðs sins og skoraði þrjú mörk. Það var mjög hvasst i Glasgow, þegar leikurinn var háöur, en áhorfendur voru samt 106 þúsund á þessum 87. úrslita- leik bikarsins. Lokatölurnar gefa til kynna mikla yfirburði Celtic, en svo var þó alls ekki — liðið skoraði fjögur mörk I siöari hálfleiknum, einmitt þegar Hibernian lék undan vindinum og sótti miklu meira — liðið varð að sækja til að reyna að vinna muninn, og varö það til þess, að vörnin opnaðist oft illa i snöggum sóknartlotum hinna eldfljótu framherja Celtic. Fyrsta markið var skorað eftiraðeins tvær minútur og var fyrirliöi Celtic, Billy McNeil, þar aö verki. Hann er miðvörð- ur og fór upp, þegar Celtic fékk aukaspyrnu og tókst að skalla knöttinn i mark. Þrátt fyrir mótlætið tókst Hibernian aö jafna á 11. min. Glasgow Celtic var skozkur bikarmeistari í tuttugasta og annað sinn, þegar liðið vann stórsigur gegn Edinborgarliðinu Hibernian i úrslitaleik skozka bikarsins á Hampdenleikvanginum í ;menn Celtic fagna sigrinum. Skemmtilegar leik- fléttur fœrðu liði Fram góðan sigur! Þróttur var heldur auð- veld bráð fyrir Fram í Rey kja vikurmótinu á laugardag á Melavellinum. Fram—liðið sýndi afar skemmtilega leikkafla og skoraði sex mörk, en fékk að visu á sig tvö ódýr mörk, sem létt hefði verið átt að komast hjá. En leikur liðsins i heild var sannfærandi, og bezti leikur sem lið hefur sýnt hingað til i Reykjavikur- mótinu. Aö visu er Þróttur ekki haröur mótherji, en leikfléttur framlinu Framliðsins heföu þó reynzt betri liðum erfiöar. Mikla athygli vakti hinn ungi Utherji Fram, Eggert Steingrimsson, og er eins og Guömundur Jónsson, þjálfari Fram, sagði eftir leikinn „leik- maður, sem á eftir að ná mjög langt”. Annar maður, sem horföi á leikinn, Valtýr Guömundsson, áöur mjög kunnur leikmaður með Fram, nú sýslu- maöur á Eskifiröi, lét einnig i ljós mikla ánægju meö Eggert, sem hann sagöi einn efnilegasta nýliða, sem hann hefði lengi séð. Og það er greinilegt, aö Fram- liðiö kemur litið i sumar til aö sakna þeirra leikmanna, sem Iéku meö liðinu i fyrr, en hafa nú flutzt út á land — og þó að visu er úr færri leikmönnum að velja og þvi minni barátta um sætin, en frétzt hefur að Fram eigi von i kunnun leikmann utan af landi i sinar raöir innan skamms. En nóg um það. Leikurinn var fjörugur og mörkin féllu nokkuð þétt. Kristinn Jör. nýbakaöur Islandsmeistari meö IR i körfu- knattleik, er ekki siður laginn við að spyrna knettinum I mark, en kasta honum i körfuna, og hann kom Fram á sigurbraut með þvi að skora tvö fyrstu mörkin i leiknum. 1 hálfleik var staöan 3—1 fyrir Fram og þriöja markið skoraði hinn snjalli landsliðs- maður Fram i handknattleik, Sigurbergur Sigsteinsson, með skalla eftir hornspyrnu. I siöari hálfleik skoruöu Eggert Stein- grimsson, Asgeir Eliasson, og Gunnar Guömundsson fyrir Fram. Akurnesingar eru sigurstranglegir í Litla bikarnum Akranes hefur tekið góða forustu í Litlu bikarkeppn- inni eftir sigur gegn Breiðabliki uppi á Akranesi á laugardag — hefur hlotið þremur stigum meira en næsta lið KefIvíkingar. Akranes sigraði 2-1 í mikl- um baráttuleik, sem ekki var að sama skapi vel leik- inn, og leikmenn Kópa- vogsliðsins áttu meira í leiknum án þess að skapa sér verulega góð tækifærí. Veður var prýðilegt, þegar leik- urinn fór fram, og áhorfendur voru allmargir. Athygli þeirra beindist einkum að Matthiasi Hallgrimssyni, sem lék nú sinn fyrsta leik á heimavelli eftir dvöl- ina á Englandi, en hann æfði sem kunnugt er meö Bournemouth frá þvi um áramót og er nýkominn heim. Vonbrigði urðu nokkur með hann, þvi Matthias lagði sig ekki mjög fram — gaf yfirleitt fljótt frá sér knöttinn og reyndi litið einleik, sem hann er þekktur fyrir og Skagamenn dá mjög. Þó knattspyrnan væri ekki allt- af upp á það bezta i leiknum bauð hann upp á töluverða spennu og greinilegt er, að leikmenn beggja liöa eru i góðri æfingu. Fyrsta markiö kom á 28. min. og var Eyleifur Hafsteinsson þar aö verki. Hann fékk fallega send- ingu utan af kanti frá Matthiasi, brauzt i gegn og skoraði gott mark. Bezti kafli Akurnesinga var lokaminútur fyrri hálfleiksins — en það var einmitt þá, sem Breiðablik fékk sitt bezta tæki- færi. Guömundur Þórðarson komst frir innfyrir, en Einar Guð- finnsson varði skot hans. Akur- nesingar fengu þá góð tækifæri til aö skora, en tókst ekki vegna góðrar markvörzlu Clafs Hákon- arsonar. Þegar 22 min. voru af siðari hálfleik tókst Breiðabliki aö jafna. Þór Hreiöarss. brauzt þá i gegn, en Björn Lárusson, sem lék nú i stööu hægri bakvaröar, brá Þór, þegar hann var aö komast I skot- stöðu við markteiginn. Haraldur Erlendsson tók vitaspyrnuna og skoraði örugglega. Aðeins sex minútum siöar náðu Akurnesing- ar aftur forustunni. Spyrnt var þá langt fram völlinn fyrir eina sóknarlotu Breiðabliks. Vörn þeirra hafði hætt sér of framar- lega og Eyleifur notfærði sér þaö, lék fallega á Einar Þórhallsson og komst frir aö markinu. Þá var ekki að sökum að spyrja. Knött- urinn lá i netinu. Þetta reyndist sigurmark leiks- ins. Eyleifur átti skinandi leik að þessu sinni og sama er að segja um Teit Þóröarson, sem ekki hef- ur leikið betur i annan tima en nú i vor. Aðalvandamál Akurnesinga virðist staöa hægri bakvarðar, sem Björn skipaði nú til bráða- birgða. Liðið er greinilega i góðri æfingu og hefur lika æft vel undir stjórn Rikharðs Jónssonar, sem tekinn er við þvi á ný. Hjá Breiöa- bliki stóöu þeir Einar Þórhallsson og Haraldur Erlendsson sig bezt, auk markvarðarins, Ólafs, sem átti ágætan leik og hefur sérlega góö útspörk. 1 leik varaliöanna sigraöi Akra- nes 5-0 og er þaö fyrsti tapleikur Breiöabliks i keppninni. I Hafnar- firöi gerði IBH (FH aö þessu sinni) og Keflvikingar jafntefli, án þess mark væri skorað. Staðan i meistaraflokki er nú sú,_ aö Akranes hefur 8 stig, Keflavik 5, Breiðablik 4 og Hafnarfjöröur 3. Villa setti stigamet Nokkrir leikir voru háðir i ensku knattspyrnunni á föstu- dagskvöld og var þar merkileg- ast, að Aston Villa sigraði Chest- erfield á heimavelli 1-0 og setti þar með nýtt stigamet i 3. deild — hlaut 70 stig úr hinum 46 leikjum. Onnur úrslit urðu þessi: 1. deild Stoke—WBA 1-1 3. deild Oldham—Rothei;ham 5-1 Torquay—Bolton 2-2

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.