Vísir - 03.07.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 03.07.1972, Blaðsíða 2
2 VÍSIR Mánudagur 3. júli 1972 Milt veður, engin um- ferð, fáir á ferli og klukkan rúmlega fimm að morgni sunnudagsins 2. júli. í kafeteriunni á Loftleiðahótelinu eru nokkrir leigubilstjórar að fá sér morgunhress- ingu og það liggur vel á þeim, þeir gera að gamni sinu og hlæja hátt. r Islenzkur morgunn og mófuglar Það fjölgar i salnum, túristar með stirur i augum komnir á stjá. Þýzk hjón á miðjum aldri hafa tyllt sér við næsta borð við mig. Þau ganga að mat sinum með ná- kvæmni og eiginmaðurinn segir, að þau fái gott veður yfir hafið. Ég veit ekki, hvort þau eru á leið austur eða vestur. ös við afgreiðsluborðið og bið- röð út að dyrum. Allir að flýta sér. Aætlunarbill rennur i hlað. Brottfarartimi suður á Völl klukkan sex. Leigubilar koma hver af öörum inn á tröðina Farþegar utan úr bæ að flýta sér. Svartklæddar flugfreyjur dálitix sybbnar i morgunsárið komandi i einkabilum og leigubilum. Ein- kennisklæddir flugliðar stiga fast til jarðar og sveifla sér inn um iiringdyrnar. Klukkan nákvæmlega sex renn- ur áætlunarbillinn úr hlaði og engir i hótelanddyrinu nema ör- fáir árrisulir furöufuglar, týpisk- ir túristar, sem vilja af engu missa. Ég rölti i kringum hótel- og skrifstofubygginguna. A litlu tjörninni fyrir norðan skrifstofu- bygginguna syndir einmana and- arsteggur, sennilega ekkill. Itig- montinn tjaldur spássérar á gangstéttinni og rekur upp óp, þegar hann sér mig, segir pik, pikk, pikk, og forðar sér. t fjarska heyrist i lóu og út á flugbraut eru stelkar i ieik. Friður og ró, is- lenzkur morgunn og mófuglar. Ég rúlla i hægðum minum niður i bæinn til að horfa á mannlifið, ef þá það er að finna þar. Hver dagur fjögur hundruð þúsund krónur Klukkan er að verða hálf-átta og aftur á kafeteriunni á Loftleiða hótelinu. Bjarnleifur ljósmyndari einn viðborð, og ég fæ mér tylling hjá honum. Hann segist hafa ver- ið i kampavinsveizlunni i gær- kvöldi, hann er daufur i dálkinn. Tveir menn ganga i salinn, annar vopnaður kvikm yndatökuvél, hinn með roknafint útvarpstæki. Þeir eru þreytulegir og mæddir. t flugturninum eru vaktaskipti og Valdimar yfirflugumferðarstjóri stikar stórum skrefum i áttina að dyrunum. Andrúmsloftið er að breytast. Allt i einu vippar sér inn i salinn lágvaxinn, snaggaralegur náungi með rauðleitt hrokkið hér i beltis- lausum beltisfrakka, flakandi frá sér. Þetta er fölur maður, aug- sýnilega svefnlitill. — Haldið þið að hann komi? spyr hann formálalaust. Hann heldur áfram, snýr sér að mér og segir: — Ég heiti Chester F'ox og ég er með allt mitt að veði. Ellefu menn i vinnu hjá mér, þrir sjón- varpshópar i gangi, og ég er bú- inn að gleyma þvi hvenær ég svaf siðast. Hafið þið frétt nokkuð? Eru allar flugvélarnar frá New York lentar á Keflavikurflug- velli? Djöfuls villidýr er þessi Fischer. — Hann sezt ekki, patar með höndunum, þegar hann tal- ar. Fyrsti áætlunarbillinn sunnan af Velli er kominn, og ég næ tali af einum flugáhafnarmanni og spyr um Fischer. — Hann var eitthvað að sniglast á eða i kringum Kennedyflugvöll- inn i gærkvöldi. Ég veit ekki, hvort hann er i siðustu flugvél- inni, hún lendir eftir tíu minútur. Mr. Fox er á augabragði kom: inn upp að hliðinni á mér spyrj- andi: Hvað sagði hann? Veit hann eitthvað um Fischer? — Ég segi honum að létta. Við sitjum i and- dyri hótelsins Mr. Fox og ég þ.e.a.s. ég sit, en hann á ferð og í ELDLÍNUNNI Við fljótum eða sökkvum saman, segir Mr. Chester Fox Spusski liefur heidur betur orðið fórnarlamb Ijósmyndaranna undan- farna daga hér i Reykjavík, þar sem Fischer hefur vantað til að mynda. Spasski virðist verða orðinn þreyttur á öllu umstanginu. flugi, taugarnar i uppnámi og allt i kerfi, einsog unglingarnir segja: — Hver dagur kostar mig fjögur hundruð þúsund islenzkar krónur. Ég er á hvinandi kúpunni, ef hann kemur ekki. Ffnn maöur Mr. Þórarinsson, stálheiðarlegur og vandaður. lslendingar eru gott fólk Allir taka mér hér opnum örmum. Hvað er klukkan? Hvað get ég gert ef hann kemur ekki með þessari siðustu flugvél? Flott i Þjóðleikhúsinu i gærkvttldi — I have no message for you Mr. Fox æðir um anddyrið eins og ljón i búri, gefur sig á tal við tvo nýkomna ftali, kemur að vörmu spori aftur til min og segir: — Þetta eru Fiatmenn i sumar- frii. Ég á Fiat 125 heima, skotbill. Nú er siðasta vélin lent og við hljótum að fá einhverjar fréttir. — Hann er rokinn á brott. Abc útvarpsmenn eru komnir á vettvang og slá hring um Mr. Fox. Orðrómur hefur borizt um að Fischer hafi farið frá Kanada i gærkvöldi beint til London og þaðan til Kaupmannahafnar og biði þar átekta. Sigurður Magnússon gengur inn anddyrið virðulegur og ábúð- armikill. Ég næ tali af honum, spyr frétta: — Ég hafði lal af einum starfs- manni Loftleiða á Kennedyflug- velli klukkan tiu minútur yfir tvö i nótt og sá hafði náö i skottið á Fischer og spurt, hvort hann ætl- aði með siðustu vél, sem væri um það bil að leggja af stað. Fischer svaraði að bragði: ,,I have no message for you". Mr. Fox enn og þegar hann heyrir, að vandræðabarnið er enn i New York og veit að fréttin er á rökum reist þá eins og róast hann segjandi: — Djöfuls tikarsonur- inn — Andrúmsloftið rafmagnað Klukkan tifar og útvarpsfrétt segir, að Fischer hafi beðið um tveggja daga frest. Dr. Euwe við afgreiðsluborðið i hótelanddyr- inu. Ég spyr hann hvort honum hafi borizt beiðni um frest. Hann hristir höfuðið og svarar: — Ekki ég og ég veit ekki til að islenzka skáksambandinu hafi heldur bor- izt slik beiðni. — Alls staðar blaðamenn og ljós- myndarar og margar tungur talaðar. Sama spurningin svifur um loftið: KKMUR IIANN? Klukkan ellefu fjörutiu og fimm blaðafulltrúi segiir, að þetta eitt hvað verði i fundarsalnum taudi- toriinu). A slaginu ellefu fjör-tiu og fimm hópast allur iréttamanna- skarinn að aðalanddyri hótelsins. Kvikmyndavélatif, flass. Spassky og aðstoðarmenn hans eru mætt- ir. Spassky er alvarlegur en af- slappaður, þögull en enginn asi á honum, gefur þeim, sem vilja næði til að mynda sig i krók og kring. Allur hópurinn inn i fundarsalinn ogSpassky stillir sér upp við senuna og enn klikk i myndavélum, flass og suð i kvik- myndavélum. Andartaksviðdvöl, Spassky og aðstoöarmenn hörfa af vigvellinum. Skáksambandsmenn komnir og þeir á fundi með Dr. Euwe, dóm- urum einvigisins, Spassky og hans mönnum, Mr. Davis lög- fræðingi Fischers og forystu- mönnum bandariska skáksam- bandsins. Andrúmsloftið rafmagnað og menn skipa sér i smáhópa.tala hátt, sumir reiðir aðrir reyna að slá öllu upp i grin, en undirtónn- inn þungur og stutt i að uppúr sjóði. Dr. Euwe kemur i dyrnar: Þetta er auli og hann haugalýgur — Lokaúrskuröur klukkan tvö. — Stutt og hnitmiðað. Hópur utan um Cramer frá bandariska skák- sambandinu, og hann reynir að afsaka Fischer og segir hann hafa sent skeyti um veikindi og það eða þau hafi ekki komið til skila. Einhver segir: ,,Þetta er auli og hann haugalýgur. Einhverjir hlaupa i simann, sem hefur verið rauöglóandi allan morguninn. Ég heim, raka mig, borða og aftur kominn á vigvöllinn rétt fyrir tvö. Beðið i fundarsalnum og minúturnar sniglast áfram. Fjór- ar kvikmyndatökuvélar i rétt- stöðu. Fjöldi hátalara á ræðupúlt- inu. Skrautleg blóm i rauðum vösum á borðinu uppi á senunni. Menn tala saman i hálfum hljóð- um. Spenna. Klukkan verður hálf þrjú og eitthvað meira. Sterk ljós og þyt- ur i lofti. Dr. Euwe gengur i sal- ur fiéttamaður þegar skýrt var frá að Spasski heföi fengið tennis- völl til afnota og Fischer yrði gert kleift að leika keiluspil. Það var nokkuð þungt hljóðið i erlendum fréttamönnum á fundi með Skáksambandinu á laugar- daginn. Þeim þótti töluverð pen- ingalykt af mótinu og áttu bágt með að sætta sig við takmarkanir á fréttaflutningi þaðan. En Guð- mundi Þórarinssyni tókst að róa þá og kusu þeir fulltrúa úr sinum hópi til frekari viðræöna við Skáksambandið. inn.Mér verður aðeins hugsað til þess, þegar hann var hér siðast fyrir einum tuttugu og fimm ár- um og mér finnst hann fjanda- kornið ekkert hafa elzt. — Ladies and gentlemen, — og hann situr við borðið, stendur upp, flytur sig að ræðustólnum og talar i alla hátalarana, sem flest- ir eru merktir ABC. — Tveir valkostir eru fyrir hendi, annar sá að dæma Mr. Fischer úr leik nú strax hinn að fresta fyrstu umferð einvigisins til þriðjudags og gefa áskorand- anum frest til að koma til lands- ins til hádegis sama dag. Enn hef ég ekki tekið ákvörðun um, hvor kosturinn verður ofan á og ég verð að biðja ykkur herrar minir og frúr að sýna mér biðlund i tuttugu minútur eða mesta lagi hálf tima en þá verður lika loka- úrskurðurinn felldur. — Og Dr. Euwe heldur áfram tölu sinni og vekur athygli á þvi tjóni sem Skáksamband tslands biður ef ekkert verður úr einviginu? Að yrði trygging fyrir verðlaunun- um, svo hann gæti gengið að þeim visum eftir einvigið. Astæðan fyrir þessari kröfu mun vera sú, að Fischer hefur enn ekki fengið greidd verðlaun sem hann vann til i Argentinu. 1 dag verður opnaður sérstakur skákklúbbur i Glæsibæ fyrir blaðamenn og verður hann opinn frá kl. 10 á morgnana til 11.30 á kvöldin. Blaðamannafundurinn með Skáksambandinu fór friðsamlega lokum býður hann fréttamönnum að bera fram spurningar. Spurningar fljúga um loftið eins og rakettur og alls ekki komið að tómum kofanum. Sá gamli fyrr- verandi heimsmeistari verst eins og leikinn skylmingarmaður og hopar hvergi. Klukkan að halla i fjögur þegar fundinum lýkur. Freysteins þóttur Grettisfangs Dr. Euwe hefur varla yfirgefið salinn þegar blaðafulltrúi Loft- leiða hoppar á senuna og býður viðstöddum að horfa á fslenzka kvikmynd meðan beðið er frétta. Smart auglýsingamaður Siggi Magg. Snotur auglýsingamynd af ferðamannalandinu Island á hvita tjaldinu. Nokkrir frétta- manna hafa yfirgefið salinn, aðr- ir sitja kyrrir og njóta myndar- innar. Spennan hefur lækkað, flestir eru daufir i dálkinn eins og allt sé tapað. Allt i einu flýgur frétt um sal- inn. Freysteinn Grettis-fang flýg- ur til New York klukkan fimm til að sansa áskorandann og fá hann með sér hingað upp. Það verður aldeilis Grettistak ef vel tekst. Sýningunni lýkur, klukkan að verða fimm og ekkert bólar á for- seta heimssambandsins. Það er eins og menn biði frekar af skyldurækni en áhuga. Loks um fimm, eða um sama leyti og áhorfendur biða i ofvæni fyrir utan Laugardalshöllina þé stikar doktorinn i salinn og það gustar af honum. Aftur: Ladies and gentlemen: Ég valdi seinni kostinn, áskorandinn fær frest til hádegis á þriðjudag.” Eins og sprengja hafi fallið, nokkrir þjóta upp á harðahlaupum i sima. Spurningar og svör. Það er á doktornum að heyra að það sem hafi ráðið úrslitum hafi fyrst og fremst verið samúð með fslenzka Skáksambandinu, eða að gera allt til að firra það tjóni: — Það hefur þegar eytt 75 þúsundum dollurum i undirbúning fyrir utan verð- launin segir hann. Spassky hvorki neitaði né samþykkti” svarar hann, þegar hann var spurður um álit heimsmeistarans. Ég hitti Mr. Fox á tröðinni fyrir framan hótelið þegar ég var á heimleið og kastaði á hann kveðju og sagði hann: — Við erum á sama báti, skáksambandið og ég, og við fljótum eða sökkvum saman.” og hann brosti breitt þegar hann veifaði mér. Það siðasta, sem doktorinn segir er: — Ég hef litla von og er mjög svartsýnn á að áskorandinn komi — jj öðru en skák. Einn hóf langar við- ræður við saklausan blaðamann Visis um ýmsar leikfléttur i skák. Tókst honum að máta Visismann hið snarasta. Eftir að Guðmundur Þórarinsson hafði lokið við að svara spurningum fréttamanna hóf Hannes Jónsson blaðafulltrúi að skýra frá kynningarráðstefnu um landhelgismálið. En skák og fiskveiðilögsaga eru tveir ólikir hlutir og spruttu menn á fætur og hröðuðu sér áleiðis út undir orð- um Hannesar. — SG Um 100 erlendir fréttamenn voru mættir á Hótel Loftleiðum skömmu fyrir hádegi f gær, þegar keppend- ur áttu aðdraga lit. Myndin skýrir vel þröngina á Loftleiðum undanfarið. Skókklúbbur opnaður í Glœsibœ í dag ,,Og hver hefur keypt einkarétt á myndum þaðan? spurði erlend- Á fundinum kom fram að Fischer hafði krafizt þess að sett fram, en greinilega höfðu erlend fréttamennirnir ekki áhuga

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.