Vísir - 03.07.1972, Page 9

Vísir - 03.07.1972, Page 9
VÍSIR Mánudagur 3. júli 1972 9 f INIMl I SÍÐAN 1 Akandi leik- skóli Þeir deyja ekki ráðalausir Bretarnir nú frekar en fyrri daginn. Umferðin þeirra á strætunum er jafn hættuleg þar sem i öðrum stórborgum, og oft getur verið erfitt að halda börnunum frá breiðstrætunum. Bifreiðar, strætisvagnar og önnur farartæki eru oft spennandi i augum barnanna. og þeir gerðu sér litið fyrir i Paddington, inn- réttuðu tveggja hæða strætisvagn fyrir yngstu börnin, og komu þar á fót nokkurs konar leikskóla. Þarhafaþau öruggansamastað og með þessu er þeim haldið frá aðal umferðargötunum. Strætisvagninn var málaður með skemmtilegum litum og skreyttur með ýmiss konar myndum og stöfum. Innan i vagninum hefur verið komið fyrir alls kyns leiktækjum, svo sem dúkkum, leikföngum, rennibraut og sandkössum. Einnig hefur verið komið fyrir baðherbergi og til þess að engin hætta sé á því að börnin detti niður stigann sem er á milli hæða, hefur verið komið fyrir öryggishliði við uppganginn. Auðvitað rúmar vagninn þó ekki mjög mörg börn, ekki nema 18 að tölu, en hann ekur á milli staða, og gefur sem flestum kost á að njóta þægindanna. 4 barn- fóstrur eru sifellt ,,um borð” til þess að gæta þeirra. Það væri kannski ekki úr vegi, að íslendingar fetuðu i fótspor þeirra i Bretlandi. Hægt væri að taka gamlan vagn sem ef til vill liggur ónotaður einhvers staðar, innrétta hann og gefa yngstu börnunum kost á að leika sér þar. Strætisvagnarnir mega svo sem alveg við þvi að verða bættir örlitið. Hvaða móðir kannast svo sem ekki við þá erfiðleika að koma barnakerru eða vagni inn i strætisvagninn? Og það er ekki einu sinni hægt að ferðast með barnavagn á þann hátt. Yfirleitt virðist ekki gert ráð fyrir börnum i vagnana, og þau eru oft látin standa upp úr sætunum fyrir fullorðnum, jafn vel þótt þau séu örþreytt og fegin að hafa náð i sæti. En það þykir ef til vill ekki hæfa að þau sitji i vagninum. -EA. Singer saumavélin sem gerir saumaskapinn aö leik ^einfaldar stillingar (sem enginn þarf að hræðast), ^ eina saumavélin á markaðinum með sjálfvirka spólun, glært spóluhús, sem sýnir hvað eftir er af tvinna á spólunni, ^ sjálfvirkur hnappagatasaumur, 2 gerðir, hallandi nál, teygjusaumur fyrir nýtízku teygjuefni, m.a. „overlock" og afturstingur og fjöldi annarra hluta gera Singer sauma- vélina að beztu hjálp sem þér getið fengið við saumana. Þér getið valið um 6 gerðir frá kr. 9.872,00 til kr. 25.043,00. SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR: Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91, Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SÍS, Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA ohmdmiiu ioL.CN4.rvna ð8MvinnurEL«u« $ Véladeild ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900 Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar Þetta er hún

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.