Vísir


Vísir - 03.07.1972, Qupperneq 10

Vísir - 03.07.1972, Qupperneq 10
10 VtSIR Mánudagur 3. júll 1972 „VIÐ ERUM EIN ÆTTKVÍSL" Heimsmeistaraeinvígið sett ón Fischers l>arna eru tveir heimsmeisíarar annar núverandi og hinn fyrrverandi, og fer vel á með þeim Spasskf og l)r. Kuwc forseta KIDE „Gens una sumus” (Við erum ein ættkvisl) kjörorð FIDE trónaði upp á sviði Þjóðleik- hússins þegar heimsmeistara- einvigis milíi Boris Spasski og Bobby Fischer var sett. Guð- mundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambands tslands, sté fyrstur i pontu og flutti stutt á varp. Drap hann einkum á hinn erfiða undirbúning þessa ein- vigis, sem hann og félagar hans i Skáksambandinu hefðu þurft við að glima. Hann sagðist vona, að keppendurnir myndu njóta sin vel i skákum sinum hér á landi og óskaði þeim velfarn- aðar. Þá gaf Guðmundur menntamálaráðherra Magnúsi T. ólafssyni orðið og ávarpaði hann samkomuna i stuttri ræðu. Hann lauk miklu lofsoröi á skákina almennt og and- stæöingana Spasski og Fischer. Endaöi Magnús Torfi mál sitt á, að undirstrika einkunnarorö FIDE, Gens una sumus, og að þau væru vel valin og táknræn fyrir skáklistina. Þá tóku til máls Geir Hallgrimsson borgarstjóri, og siðan hver af öðrum, Sergei Astavin sendi- herra Sovétrikjanna Theodore Trembley sendifulltrúi Banda- rikjanna og loks Dr. Max Euwe forseti FIDE. Að lokinni virðulegri setn- ingarathöfninni var gestum og blaðamönnum boðið upp á freyðandi kampavin i Leikhús- kjallaranum og rann það ljúf- lega niður i flesta. Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar: „GEÐVONZKURUGL" Eða óheiðarlegir verzlunarhœttir Siðastliðinn fimmtudag birtist frétt i Visi um „styrjöld ferða- skrifstofukónganna „Mér fyndist keisaranafnbót sæma forstjóra Sunnu betur, þvi að hann ber sig alveg eins að og keisarinn i nýju fötunum sinum: „Og keisarinn færðist i aukana og gekk enn sperrtari en áður.” Auglýsingar hans á flugferðum, sem synjað hefur verið leyfis fyr- ir, og gistingu, sem ekki er fyrir hendi, hafa lengi átt sér stað, án þess að nokkur virtist hafa neitt við það að athuga. 1 dag hafa samgöngumálaráðuneytinu, ferðamálaráði og neytendasam- tökunum verið send bréf nokk- urra fyrirtækja á Spáni, sem Sunna auglýsir gistingu hjá fyrir farþega sina. Bréfin staðfesta, svo að ekki verður um villzt, að Sunna á þar enga gisting i sumar, og eitt þeirra lýsir meira að segja yfir þvi, að það hafi ekki haft hug- mynd um, að Ferðaskrifstofan Sunna væri til! Eitt fyrirtækjanna upplýsir að visu siðar, að hinn 12. þ.m. hafi komið frá Ferðaskrif- stofunni Melia i Madrid beiðni um 1. ibúð — eina ibúð — handa ts- lendingum til hálfsmánaðar- dvalar, en þess var ekki getið, að Sunna ætti þar hlut að máli, þótt svo reyndist vera við nánari athugun. Pöntun þessi var gerð með þriggja daga fyrirvara, og svo vildi til, að hægt var að sinna henni. Sunnuforstjóranum er frjálst að kalla athugasemdir við verzl- unarhætti sina „geðvonzkurugl” eða af háttprýði sinni að velja þeim hvaða nöfn, sem honum sýnist, en raunar liggur beint við að athuga það nánar á öðrum vettvangi. Þess má einnig geta, að Flug- félagi íslands hafa borizt jákvæð svör viö umsóknum um lend- ingarleyfi á Spáni með farþega Útsýnar i sumar. Rvk., 1. júli 1972 Ingólfur Guðbrandsson. Örœfaferðir með Guðmundi Jónassyni 10 daga sumarleyfisferðir: 15. — 24. júli: Reykjavik, Landmanna- laugar, Veiðivötn, Nýidalur, Sprengisand- ur, Bárðardalur, Mývatn, Herðubreiðar- lindir, Askja, Hallormsstaðaskógur, Breiðdalur, Hornafjörður, Skaftafell. Flogið til Reykjavikur frá Fagurhólsmýri 24. júli. 24. júli — 2. ágúst: Flogið frá Reykjavik til Fagurhólsmýrar. Þaðan: Skaftafell, Hornafjörður, Breiðdalur, Hallorms- staðaskógur, Herðubreiðarlindir, Askja, Mývatn, Bárðardalur, Sprengisandur, Nýidalur, Veiðivötn, Landmannalaugar, Reykjavik. Verð 13.500,-. Innifalið fæði, tjöld og flug- far. Leitið upplýsinga um hinar fjölbreytilegu sumarleyfisferðir okkar. Guðmundur Jónasson h.f. LÆKJARTEIGI 4, Reykjavik, Simar 35215, 31388. Timbur er líka eitt af því sem þér fáið hjá Byko Móta- og sperruviður í hentugustu þykktum, breiddum og lengdum. Einnig smíðaviður. Þilplötur hvers konar úr upphituðu geymsluhúsi. Góð aðstaða til skjótrar og öruggrar afgreiðslu. BYGGINGAVÚRUVERZLUN KÚPAVOGS SÍMI 410 00

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.