Vísir - 03.07.1972, Page 15

Vísir - 03.07.1972, Page 15
VtSIR Mánudagur 3. júli 1972 15 „Jú, þeir eru duglegir við að ofsœkja fuglana, drengirnir" r L Einstœð kona verður fyrir aðkasti vegna vinóttu við fugla J Sigrlöur mcð einn vina sinna Brúttó gjaldeyristekjur Kísiliðjunnar voru 200 milljomr a sl. ari „Brúttóhagnaður af rekstri Kisiliðjunnar nam 18 milljónum króna á síðasta ári en þar sem ákveðið hafði verið af afskrifa 30 milljónir vantar liðlega 12 milljónir uppi fullar afskriftir.” Þetta sagði Vcsteinn Guð- mundsson framkvæmdastjóri Kisiliöjunnar i samtali við Visi. Aðalfundur verksmiðjunnar var haldinn á föstudag og flutti Magnús Jónsson skýrslu stjórn- ar og framkvæmdastjóra. Framleiðslan á árinu nam 19.400 tonnum og flutt voru á er- lendan markað 17.500 tonn. Far- mannaverkfallið i desember kom i veg fyrir að hægt væri að ^ ^ ^ ^ . flytja alla framleiðsluna út á árinu. Brúttógjaldeyristekjur námu 200 milljónum miðað við verð i erlendum höfnum. Tekjur af sölu voru 131 milljón en reksturskostnaður nam 113 milljónum. I febrúar i fyrra lauk stækkun verksmiðjunnar og á hún nú að geta framleitt 22.000 tonn árlega bað sem af er árinu eða þann 1. júni var búið að framleiöa 11.000 tonn og ætti þvi verksmiðjan að geta náð fullum afköstum á þessu ári. Taldi Vésteinn að reksturinn væri nú kominn i nokkuðöruggthorf. -SG „Jú, þeir hafa verið ósköp dug- legir, drengirnir hérna i hverfinu við að ofsækja fugla sem ég kasta brauðmola til. Illt innræti brýzt út á margan hátt. Þessa dúfu fann ég i morgun og var búiö að reyra saman fæturna á henni með grönnu snæri.” Hún' Sigriður Steffensen á Grettisgötu 55 var fremur mæðu- leg á svipinn þegar hún sýndi okkur dúfu með samanreyrða fætur, þegar við litum við hjá henni i gær. Sigriður er kona nokkuð við aldur og býr ein uppi á lofti i húsinu. Hún hefur mikið dálæti á fuglum og þeir sömuleiðis á henni. Hinsvegar hefur þessi vinátta hennar viö fugla fariö mjög i taugarnar á pörupiltum i nágrenninu. Hafa þeir oftar en einu sinni sætt færis að ofsækja dúfur og skógarþresti sem hafast við i garði Sigriðar og væng- eða fótbrotið þá. En þeir hafa ekki látið sér nægja að ráðast á málleysingj- ana. Sigriður sýndi okkur stofu- gluggann þar sem tvær rúöur voru mölbrotnar eftir grjótkast. „Þetta er nú búið að koma svo oft fyrir að ég hef ekki lengur efni á að kaupa stöðugt nýtt gler. Ég ætla að prófa plast núna og vita hvort það dugir” sagði Sigriöur. Einu sinni kom kókflaska fljúg- andi inn um glugga og straukst við höfuð hennar. — Héfurðu ekki prófaö að leita til lögreglunnar? „Jú ég hef gert það. Þeir segj- ast geta gert eitthvaö i málinu ef ég get gefiö upp nöfn piltanna, annars ekki.” Þeir hljóta að vera undarlega innréttaðir sem hafa af þvi ánægju að ofsækja einstæða konu sem komin er á efri ár og þau dýr sem henni þykir vænst um. Það er einnig næsta undarlegt að lög- gæzlan skuli ekki getað verndað einstaklinginn betur en þetta, þegar hann getur ekki boriö hönd fyrir höfuð sér sjálfur. En Sigrfð- ur tekur þessu með stakri ró og talar frekar af vorkunnsemi um þessa pörupilta en hitt. -SG Kveðjudansleikur í SIGTÚNI fyrir dönsku knattspyrnumennina i kvöld frá kl. 21.30 tii 2. Nefndin. 'wnwPMaam SONY- A jndraheimur 1f i jöma og töha jpGudíónsson hf, ^^^Skúlagötu 26 ks' LANDSLEIKURINN ÍSLAND - DANMðRK fer fram á Laugardalsvellinum i kvöld og hefst kl. 20.00 Dómari: A. Mackenzie frá Skotlandi Linuveröir: Guömundur Haraldsson & Hannes Þ. Sigurösson Verð aðgöngumiða: Kl. 19.15 Ár mann .... I.A. Sala aðgöngumiða stendur yfir úr sölutjaldi viö Ctvegsbankann og I Laugardal frá kl. 16.00. Sæti kr. 250.00 Kvennaknattspyrna: Stæði 150.00 Börn fá ekki aðgang að stúku, nema gegn stúku- Barnamiðar 100.00 VALLARGESTIR ALLI R SAMTAKA NÚ. miða. Látum „ÁFRAM iSLAND" endurhljóma frá fylkingu þúsundanna, sem hvatningu fyrir islenzkum sigri. Knattspyrnusamband islands.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.