Vísir - 03.07.1972, Page 16

Vísir - 03.07.1972, Page 16
16 ViSIR Mánudagur 3. júli 1972 Bjóðum aðeins það bezta Copperton sólkrem Amdre sólkrem Wella sólkrem Perry Robert sólolia Noxzema sólkrem Adrid svitaspray 8x4 svitaspray Demants naglaþjalir Clerasil shampoo Opilca háreyðandi krem - auk þess bjóðum við viðskiptavinum vorum sérfræðilega aðstoð við val á snyrtivörum. SNYRTIVÖRUBtlÐIN Laugavegi 76, simi 12275. Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæmi Reykjavikur i júli 1972: Mánudaginn 3. júli R-11401 til R-11550 Þriðjudaginn 4., lt-11551 R-11700 Miöviku daginn 5. R-11701 R-11850 Fimmtudaginn fi. R-II85I R-12000 Föstudaginn 7. R-12001 R-12150 Mánudaginn 10. R-12151 R-12300 Þriöjudaginn II. R-12301 R-12450 Miðvikudaginn 12. R-12451 II-12600 Fiinmtudaginn 13. R-I2K0I R-12750 Föstudaginn 14. R-12751 R-12900 Mánudaginn 17. R-12901 R-13050 Þriöjudaginn 18. R-13051 R-13200 Miðvikudaginn 19. R-13201 R-13350 Fimmtudaginn 20. R-13351 R-13500 Föstudaginn 21. R-13501 R-13650 Mánudaginn 24. R-13651 R-13800 Þriðjudaginn 25. R-13801 R-13950 Miðvikudaginn 2(i. R-13951 R-14100 Fimmtudaginn 27. R-14101 R-14250 Föstudaginn 28. R-14251 R-14400 Mánudaginn 31. R-14401 R-14550 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til kl. 16.30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá- tryggingargjald ökumanna fyrir árið 1972 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sin- um, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda rikisút- varpsins fyrir árið 1972. Ennfremur ber að framvisa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að Ijós bifreiöarinnar hafi veriö stillt. Athygli skal vakin á þvi, aö skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekur úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 29. mai 1972. Sigurjón Sigurðsson. Úlfur scm gæludýr. — Sennilega sára sjaldgæft, en norska stúlkan Britta Rot- hausen, sem er 2(> ára dýra- fræðinemi keypti fyrir a 11- liingu úlfinn „Samson”, sem þá var aöeins hvolpur i dýra- garði i Zlirich. Samtimis keypti hún sér hvolp af sheffir- kyni og þá tvo ól hún upp sam- an. Káðir eru nú úlfurinn og sheffirinn orðnir stórir og stæðilegir, enda ekki óalgengt, að fólk viki úr vegi fyrir Britt þegar hún spássérar um meö hundana til að viöra þá. Hver man eftir Momie? Hver man eftir Mamie Van Doren, kvikmyndastjörnu, sem uppgötvuð var af Howard Huges, og varð kyntákn, skipað á bekk með þeim Marilyn Monroe og Jane Mansfield? Mamie þessi, sem nú er orðin 38 ára gömul virðist ekki hafa tapað miklu af kynþokka sinum frá þvi hún var hvað hæst skrifuð, enda hefur hún átt greiða leið upp á stjörnuhimin á nýjan leik. Mamie hefur sem sé snúið sér aftur aö söng- og leiklistinni eftir að hafa mallað i pottum nokkur undan- farin ár. Og hún hefur svo sann- arlega fengið gott „come-back”, næturklúbbar, sem og útvarps- og sjónvarpsstöðvar i Bandarikj- unum keppast níi um að fá hana til að láta ljós sitt skina. Nú vill blondinan einnig leggja England að fótum sér og er nú verið að undirbúa sigurför hennar þangað. Mamie, sem átt hefur i ástar- samböndum við karla eins og t.d. Clark Gable, Rock Hudson, Errol Flynn og Tony Curtis og fleiri slika, segist núna hafa hvað mestan áhuga á Tom Jones, söngvaranum og kvennagullinu. — Þegar hann var eitt sinn i Bandarikjunum færði ég honum gullkeðju.Hanngengur með hana öllum stundum. Mér finnst Tom vera dásamlegur persónuleiki — og rödd hans...úll la la!

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.