Vísir - 10.07.1972, Qupperneq 13
Visir. Mánudagur. 10. júli 1972
13
Umsjón G.P.
Þ.J.M.
HRÆGAMMAR, SEM GLÁPA Á SLYSSTAÐ
Hversvegna er það, að
fólk umhverfist, þegar
stórslys hefur orðið, og
verður allt í einu eins og
hrægammar, sem hlakka
yfir bráð sinni?
Þessi fyrirspum var borin
fram í neðri málstofu
brezka þingsins í síðasta
mánuði nokkrum dögum
eftir flugslysið hjá
Heathrow-flugvelli, þar
sem 117 fórust, þegar
Trident-þota féll til jarðar.
Þingmaöurinn, Roy Mason,
sem er úr hópi stjórnarandstöð-
unnar hefur látið einna mest aö
sér kveöa i flugmálum, sagöi:
„Þaö verður eitthvaö að taka til
bragös gegn þessum forvitnu
vegfarendum, sem hópast aö
slysstööum til þess aö glápa á
blóð fljóta. Þeir hafa sér eins og
hrægammar. — Þetta framferöi
veldur öryggisvöröum og sjúkra-
liðum erfiöleikum og gæti hæg-
lega oröið til þess aö fleiri létu lif-
iö, sem hugsanlega heföu bjarg-
azt ef komizt hefðu nægilega fljótt
á sjúkrahús.
Ráðuneytið ætti aö sjá til þess,
aö lögreglunni væri veitt heimild
til þess að gripa til ráða, sem
hrifa, til þess að giröa af svæöi,
þar sem slikt slys hefur oröiö og
stugga óviökomandi burtu,”
sagöi þingmaðurinn.
Michael Heseltine, ráöherra,
svaraöi fyrirspurninni: „Þaö er
alveg óskiljanlegt, hve margt
fólk, og þá sérilagi ungt fólk, sótt-
ist eftir þvi aö horfa á brakiö á
slysstaönum.
En i þessu tilviki kom þaö ekki
svo mjög aö sök, þvi aö enginn
komst lifs af úr slysinu, þannig
gat fólkiö ekki hindraö neina
flutninga, sem bráölá á.
Hinsvegar er vissulega hægt aö
gera sér i hugarlund aöstæður,
þar sem þessi gifurlegi troön-
ingur og öll umferðin, sem fylgdi
þessu fólki, heföi haft hræöilegar
afleiöingar i för meö sér”.
Þetta vandamál er okkur Is-
lendingum engan veginn fjarlægt.
Lögregluþjónar, sjúkraflutnings-
menn og slökkviliðsmenn hafa átt
viö forvitna áhorfendur aö striöa
hér á götum Reykjavikur og viöar
um landið. Aö visu hefur átroön-
ingur hinna forvitnu sjaldan
hindraö sjúkraflutninga á hinum
slösuöu, en aö hinu eru mikil
brögö, aö vegfarendurnir stofni
sjálfum sér i háska meö forvitn-
inni.
Skemmst er aö minnast þess,
þegar eldfimt þotueldsneyti flaut
úr bilaöri leiöslu niöur á bryggjur
og út i Keflavikurhöfn. Allur
kaupstaöurinn var i stórkostlegri
eldhættu, þvi að minnsti neisti
heföi hleypt öllu i blossandi bál. —
Keflvikingar hópuöust allir niöur
að höfninni til þess aö horfa á
öryggisráöstafanirnar, en meira
en helmingur lögregluliösins gat
ekki tekiö þátt i störfum þar,
vegna þess aö hann var bundinn
viö aö bægja áhorfendum frá.
Þekktur brezkur sálfræöingur
var spuröur álits á þessari
hegöun fólksins viö Heathrow-
flugvöllinn.
„Ahorfendum fannst þeir ekki
mega missa af þeirri sjón, sem
óliklegt var, aö bæri nokkurn
tima fyrir augu þeirra aftur”, út-
skýrði sálfræöingurinn.
„Hvenær, sem sllkur harmleik-
ur á sér staö, gjörólikur þvi, sem
fólk hefur nokkurn tima reynt
sjálft, þá þyrpast allir á staðinn
til aö skoöa.
Ennfremur er þaö staöreynd,
aö allir njóta þess aö sjá annaö
fólk, sem á einhvern hátt er verr
statt en þaö sjálft. 1911 voru
Lundúnabúar vanir aö hópast aö
geöveikrahælinu hjá járn-
brautarstöðinni i Liverpoolstræti
til þess aö viröa fyrir sér á sunnu-
dögum þá geðveiku.
Þaö er eitthvaö i mannlegu eðli,
sem kemur fólki sifellt til þess aö
gera samanburð á sinum högum
og annarra. Þvi finnst á vissan
hátt uppörfandi, aö sjá aöra bág-
staddari en sig sjálft. — Margir
finna nefnilega huggun i þvi, aö
þrátt fyrir allt er ekki svo illa
komiö fyrir þvi sjálfu eins og t.d.
sumum öörum, sem þaö veit
um.”
Margur er knár, þótt hann sé smár, —segir máltækiö. Og þessi kjúkl-
ingur er harðari af sér en ætla mætti af stæröinni.
Hann var sá eini, sem lifði það af, þegar flutningabíll með heilan
kjúklingafarm — fleiri þúsundir kjúklinga — vait á hraöbraut hjá Cull-
man I Alabamafylki i USA.
Allir kjúklingarnir létu þar lifið nema þessi eini.
Gilbert O’Sullivan sáum við I
sjónvarpsþætti (Tom Jones)
nýverið. Sullivan á nú lag á
vinsæidalistunum bæði vest-
an hafs og austan.
VINSÆLDAUSTAR
Þessa vikuna hafa þrjú lög tekið undir sig heljar mikið stökk upp eftir
ameriska listanum.
Eitt þeirra hefur alls ekki komiö á blaö áður á 20 sæta lista Billboard
magazine, þvi hefur skotið upp.. úr engu uppi fimmta sæti.
Hin tvö eru „alone again naturally” sem hefur tekið heljarstökk frá
20. i áttunda sæti og er fiutt af Gilbert O’Sullivan og hitt er lag með
Robertu Flack og Donny Hathaway, „Where is love”, en þvi gekk ekki
eins vel i langstökkinu, komst frá 19.1 tiunda sæti.
A brezka listanum eru einnig nokkrar breytingar „Rock and roll part
2” meö Gary Glitters lyftust úr þriöja sæti og felldu þar meö „Vincent”
hans Don McLeans niður i fimmta sæti. 1 ööru sæti er „Take me back
home” rigfast flutt af Cockney hljómsveitinni SLADE. Gilbert
O’Sullivan, sá sérkennilegi irski, er einnig á uppleiö á brezka listanum
með lagiö sitt „Ooh-Wakka-Doo-Wakka-Day” sem hefur flutt sig um
tvö sæti.
AMERIKA
1 (1) LEAN ON ME Bill Withers
2 (4) TOO LATE TO TURN BACK NOW
Conelius brothers and sister Rose
3 (2) OUTER SPACE
4 (3) SONGSUNGBLUE
5 (-) BRANDY YOU’R A FINE GIRL
6 (7) ROCKETMAN
7 (8) DADDY, DON’T YOU WALKFAST
8 (20) ALONE AGAIN NATURALLY
Billy Prcston
Neil Diamond
Looking Giass
Elton John
Wayne Newton
Gilbert Ó’Suliivan
9 (10) IF LUING YOU IS WRONG I DONT WONT TO BE RIGHT
Luther Ingram
10 (19) WHERE IS THE LOVE Roberta Falck and Donny Hathway
ENGLAND
1 (3) ROCK ANDROLLPART2
2 (2) TAKEMEBACKHOME
3 (8) PUPPYLOVE
4 (4) LITTLE LOVE
5 (1) VINCENT
6 (5) ROCKIN ROBIN
7 (16) CIRCLES
8 (9) CALIFORNIA MAN
9 (7) MARY HAD A LITTLE LAMB
10 (12) OOH-WAKKA-DOO-WAKKA-DAY
Gary Glitter
Siade
Denny Osmond
Sweet
Don McLean
Michael Jackson
New Seekers
Move
Wings
GilbertO’Sullivan