Vísir - 17.07.1972, Side 3
Visir. Mánudagur. 17. júli. 1972
3
Strikalinan á myndinni af miöbænum eins og hann er nú sýnir hvernig hraðbrautin mun koma árið 1982 samkvæmt aöalskipulagi. Það fer ekki hjá því að miðbæjarbragurinr, mun
breytast. Undirbúningurinn er hafinn, „Amtmannshúsið” hefur verið rifið og byjrað að semja um breikkun Túngötunnar.
BORGARINNAR
HRADBRAUT UM HJARTA
— farið að semja við kaþólska um sneið úr Landakotstúninu
Kaþólskir og borgin
hafa byrjað viðræður
um Túngötuna. t aðal-
skipulaginu er gert ráð
fyrir breikkun Tún-
götunnar þar sem hún er
liður i stórri samgöngu-
æð. Sú breikkun verður
varla framkvæmd nema
spilda verði tekin af
Landakotstúni. Rætt er
um fimm metra
breikkun.
Einnig er á annan hátt hafinn
undirbúningur að gerö þessarar
samgönguæðar, sem samkvæmt
aðalskipulagi mun liggja frá
Ægissiðu, um Hofsvallagötu,
Túngötu, Kirkjustræti, Amt-
mansstig, Skólavörðustig og
Grettisgötu.
,,Amtmannshúsið”-svo kallaða
fyrir enda Amtmannsstigs hefur
þegar verið rifið. bað er liður i að
opna Amtmannsstiginn i áttina að
Skólavörðustig. Einnig mun vera
höfð i huga væntanleg makaskipti
iðnaðarmanna og borgarinnar á
lóðarspildum þar sem iðnaðar-
menn myndu láta i té hluta af lóð
iðnaðarmannahússins nýja, en fá
i staðinn hluta af lóðinni þar sem
Amtmannshúsið stóð.
Þá er væntanleg breikkun
Kirkjustrætis i sumar þannig að
gangstéttin sem nú er, verði færð
inn i gamla kirkjugarðinn á horni
Aðalstrætis.
Umhverfisverndarmenn hafa
haft ýmislegt að athuga við
röskun lóða og húsa þegar um
gatnagerðarmál er að ræða.
Þegar hefur borið á þvi að
ýmsum Vesturbæingum muni
verða sárt að missa hluta af
Landakotstúninu, bent hefur
verið á niðurrif Amtmanns-
hússins sem meiri missi en missi
Bernhöftstorfunnar, ef hún
verður rifin og þá er eftir að meta
menningarverðmæti gamla
Bergshússins sem stendur á horni
Skólavörðustigs og Bergstaðar-
strætis og er i vegi fyrir sam-
gönguæðinni.
Stóri steinninn i vegi gatna-
gerðarmanna og skipulagsins er
þó hegningarhúsið gamla við
Skólavörðustig, sem umhverfis-
verndarmenn hafa vakað yfir. 1
aðalskipulaginu er gert ráð fyrir
að „Steininum” verði jafnvel
snúið við þannig, að hann verði
samsiða götunni.
Og þá er komið að Grettisgötu
en þar á húsalengjan öðru megin
götunnar að vikja,
Vafamál mun þó vera að i
stærstu framkvæmdir við þessa
samgönguæð verði ráðizt i bráð.
önnur verkefni munu sennilega
þykja meira aðkallandi. Einnig
er fjármálahlið málsins þar sem
Grettisgötuliðurinn einn mun
vera fjárfrekur i meira lagi. ,,Þá
verður hætt að tala i tugum
milljóna heldur i hundruðum eða
þúsundum milljóna” eins og einn
af heimildarmönnum þessarar
fréttar komst að orði. -SB-
„PRÓF í LEIKLISTARSKÓLUM TILGANGSLAUST
— niðurstaða þings norrœnna leiklistarnema — fjallað um óstand i leiklistarmenntun ó íslandi
##
Samtök norrænna leiklistar-
nema héldu nýlega sitt fyrsta
sameiginlega þing i Danmörku og
sóttu nokkrir íslenzkir fulltrúar
þingið. Var þar fjallað um ýmis
mál, er lúta að leiklistarmenntun
á Norðurlöndunum, en island er
nú eina landið sem hefur engan
reglulegan leiklistarskóla.
Leiklistarskólamál á Islandi
voru með til umræðu og munu
samtökin væntanlega beita sér til
þess að hafa áhrif á islenzk
stjórnvöld ,, i þá átt að bæta úr
ástandinu ef það mætti verða til
þess að vekja islenzku ráð-
herrana af „Þyrnirósarsvefni”,
eins og segir i fréttatilkynningu.
Voru allir þátttakendur þingsins
sammála um þetta, ekki hvað sizt
með tilliti til þess að á íslandi er
leikhússókn (sætanýting) mun
meiri en á hinum Norðurlöndun-
um. Þá segir að halda mætti að
þeir Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra og Ólafur Jóhannesson,
fjarmálaráðherra hefðu gleymt
þessu máli, við það að setjast i
ráðherrastóla, en þeir voru meðal
þeirra framsóknarþingmanna,
sem lögðu fram frumvarp um
málið 1968.
Einkunnarorð þingsins voru
þessi:
Við krefjumst leikskóla, sem
veitir okkur innsýn i raunveru-
leikann á þann hátt að við getum
seinna notfært okkur það i starfi
okkar og gert okkur grein fyrir
afleiðingunum af þvi. Svo segir
ennfremur m.a:f öllum leiklistar-
skólum skal rikja lýðræði, allir
sem starfa við skólann hafi
ákvörðunarrétt, allsherjarfundur
er æðsta stjórn skólans.i skólaráði
séu jafnmargir fulltrúar kennara
og nemenda, allsherjarfundur
getur vikið ráðinu frá ef þurfa
þykir. Sé rektor útnefndur af
aðilum utan skólans, hefur alls-
herjarfundur neitunarvald. Þá
segir og: Með hliðsjón af ein-
kunnarorðum, er augljóst, að
félagsleg fræðsla
(samfundsorientering) verður að
vera fléttuð inn i kennsluna, auk
þess að vera sérstakt fag. Leik-
listarskólar ættu að leggja
áherzlu á aö vekja skilning
nemenda á, að leikhús byggist á
hópvinnu en ekki einstaklings
framtaki. Einnig ættu leiklistar-
skólar að fylgja þeirri reglu að
taka ekki inn nemendur beint úr
öðrum skólum, heldur krefjast
þess, að þeir hafi fengið raunhæf
kynni af atvinnulífinu.
Þá segir og: „Próf i leiklistar-
skólum eru tilgangslaus.”
bar sem nú er enginn reglu-
legur leiklistarskóli lengur starf-
ræktur hér, verður um næstu
mánaðamót haldinn almennur
fundur hér i Reykjavik þar sem
um þessi mál verður fjallað og
reynt verður að stofna deild sem
myndi virka sem íslandsdeild
norrænu leiklis ta rnem a -
deildarinnar þar til Islendingar
eignast rikisleiklistarskóla. Þ.S.
BELVEk
nTTTfl
nJJi i)iiX) b sziu
JSJJJ ÍJJ £J> Ú
ÍXJRI
Mallorkaferðir Sunnu - Beint með DC 8
stórþotu, eða ferðir með Lundúnadvöl. Vegna
mikilla viðskipta og góðra sambanda gegnum
árin á Mallorca getur aðeins Sunna boðið
þangað „íslenzkar" ferðir með frjálsu vali um
eftirsóttustu hótelin og íbúðirnar, sem allir
er til þekkja, vilja fá.
Eigin skrifstofa Sunnu í Palma með íslenzku
starfsfólki tryggir farþegum öryggi og góða
þjónustu - Þér veljið um vinsælu hótélin
í Palma -eða baðstrandabæjunum Arenal,
Palma Nova, Magaluf, eða Santa Ponsa.
Sunna hefir nú einkarétt á Islandi fyrir hin
víðfrægu Mallorqueenes hótel, svo sem
Barbados-Antillas, Coral Playa, De Mar,
Bellver, Playa de Palma Luxor o. fl. - Trianon
íbúðirnar í Magaluf og góðar íbúðir í Santa
Ponsa og höfuðborginni Palma. Öll hótel og
íbúðir með baði, svölum og einkasundlaugum,
auk baðstrandanna, sem öllum standa opnar
ókeypis eins og sólin og góða veðrið.
Aðeins Sunna getur veitt yður allt þetta og
frjálst val um eftirsóttustu hótelin og ibúðirnar
' og íslenzka ferð - og meira að segja á lægra
verði en annars staðar því við notum stærri
flugvélar og höfum fleiri farþega.
Mallorka, Perla Miðjarðarhafsins - „Paradís
á jörð” sagði tónskáldiðChopinfyrir 150 árum.
- Land hins eilífa sumars, draumastaður .
þeirra sem leita skemmtunar og hvíldar. -
Vinsælasta sólskinsparadís Evrópu. - Mikil
náttúrufegurð - ótakmörkuð sól, - Borgir,
ávaxtadalir, fjöll, - Blómaskrúð og hvítar
baðstrendur.
Stutt að fara til stórborga Spánar, Frakklands
og Italíu, og til Afríku. Eigin skrifstofa Sunnu
í Palma með íslenzku starfsfólki veitir öryggi
og ómetanlega þjónustu, skipuleggur ótal
skemmti- og skoðunarferðir með íslenzkum
fararstjórum. A Mallorka veitir Sunna íslenzka
þjónustu. Þar er ekkert veður en skemmtana-
lífið, sjórinn og sólskinið'eins og fólk vill
hafa það. Athugið að panta tímanlega, því þó
Sunna hafi stórar þotur á leigu og pláss
fyrir um 500 manns á hótelum og íbúðum
þá komast oft ekki allir sem vilja. Við gefum
sjálfum okkur ekki einkunn en þúsundir
farþega sem ferðast með Sunnu ár eftir ár
eru okkar beztu meðmæli.
Q.
lERBASKRirSTOFAN SIINNA BANKASTREH 7 SINNAR1640012070