Vísir - 17.07.1972, Side 13
13
Visir. Mánudagur. 17. júli. 1972
/ "1
Umsjón G.P.
Pcggy Lee.
Þannig hœtti
Peggy Lee
að reykja
Söngkonan Peggy Lee, scgir, að
hún hafi hrundið af sér 35 ára
vanafjötrum sigarettu-reykinga
með þvi að totta plast-sigarettu.
,,Hún var með mentól-bragði”,
segir hún. ,,Og ég nota hana
reyndar ennþá.”
„Plast-rettan bindur hendur
minar, svo að segja. Á meðan
teygi ég mig ekki ósjálfrátt eftir
sigarettu, eins og ég stóð sjálfa
mig að i sifellu, hér áður. — Og
þetta, að geta sogað eitthvað, þótt
aðeins leikfangavindlingur sé,
það dregur úr tóbakslönguninni
hjá mér.”
í blaðaviðtali nýlega sagði hún
við fréttamann:
,,Ég hætti bara upp úr þurru að
reykja. Snögghætti. Það er erfið-
ast, en bezta leiðin samt.”
Peggy, sem er 52ja ára orðin,
sagðist hafa hætt að reykja þegar
læknar buðu henni tvo kosti að
velja. Deyja eða lifa — reykja eða
hætta að reykja. 1961 fékk hún
lungnabólgu i bæði lungu, og hana
mjög heiftarlega. 1 nokkra daga
lá hún milli heims og helju. Siðast
i nóvember krækti hún sér aftur i
lungnabólgu.
„Þeir voru ómyrkir i máli, þeg-
ar þeir sögðu mér, að ég yrði að
hætta. Það var um iif eða dauða
að tefla, og ég lét mér skiljast”,
sagði Peggy.
,,Ég notaði plast-rettuna til
þess að hjálpa mér að komast yfir
tveggja pakka reykingar á dag.
Nú liður mér vel, og tóbaks-
nautnin hrjáir mig ekkert orðið.
Ég beit það strax i mig, að ég
skyldi ekki láta reykingarannarra'
neitt á mig fá. Sizt af öllu hef ég
verið með prédikanir yfir öðrum.
— Það hefur i og með gert mér
auðveldara fyrir með að hætta.”
Robert Wagner og Natalie Wodd
í annarri brúðkaupsferð sinni
Gróa á Leiti hefur fundið sér
góðan cfnivið i sögur yfir kaffi-
borðum vestur i Hollywood und-
anfarnar vikur vegna uppátækis
þeirra Roberts Wagner og
Natalie Wood, sem eru farin að
draga sig saman á nýjan leik.
Útsendarar kellingarinnar hafa
krækt sér i ljósmyndir af þessum
hjónaleysum, sem eitt sinn voru
hjón, þar sem' þau eru i hörku
kelerii suður i Frakklandi.
„Vinir þeirra segja, að þau
njóti núna seinni brúðkaupsdaga
sinna. Að minnsta kosti bera þau
sig eins og hjón”, segir blaðið,
Oggi — Gróa á Leiti þeirra suður
á ttaliu.
Mario Pisoni, útsendari Oggi,
sem tók þessar myndir hérna
segir: „Þau eru eins og fólk i
brúðkaupsferð, sleppa varla
hendinni hvort af öðru, sikyssandi
hvort annað.”
Og hann lætur það fylgja sög-
unni, að þau hafi dvalið frá 3. mai
til 16. mai á þeim vinsæla brúð
kaupsdagasælustað, Hótel Gullnu
dúfunni, i Saint Paul de Vence
skammt frá Nice.
Það er nú meira fjaðrafokið yf-
ir þvi, þótt blessað fólkið sé að
bæta sér það upp, sem það fór á
mis við 1962, þegar þau skildu eft-
ir fjögurra og hálfs árs hjóna-
band.
Sambanr; íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik sími 38900