Vísir


Vísir - 20.07.1972, Qupperneq 2

Vísir - 20.07.1972, Qupperneq 2
2 Visir. Fimmtudagur. 20. júli 1972 Hvaða liði spáið þér sigri i 1. deild i fótboltanum? Kagnar .lónatansson. nemandi:. Ég held aö Kramarar vinni. Þeir eru beztir núna. I•'riftrik Itrckkan. framkvæmda- stjóri: .Ja ég veit ekki hvaö skal segja. Ég held nú alltaf með IBV, þeir eiga svo trausta og góða áhoríendur i Kyjum. .Jú ég held aö þeir vinni órugglega. Nicls .lónsson, háskólastúdent: Hef ekki hugmynd um þaö. Kylgist nelnilega ekkert meö fótbolta. Stcfán l’ctursson,: Ég er bara ekkert inni i þessum fótbolta. Þori ekki aft segja neitt um þaö. Magna Birnir, bankamær: Guö minn góður ég hef ekki nokkyrn áhuga á fótbolta núna. Ætli Kram vinni ekki samt, þeir eru efstir Annars má ég ekki vera að fylgjast neitt með fótboltanum ég er öll inni i skákinni þessa stundina. Sigurþór Sigurösson, sölumaður: Ja, það er ekki gott að segja. Ég hef nú trú á að Valur vinni þetta mót, en það er nú kannski bara af þvi að ég er gamall Valsmaður. Jú ég held ég veðji samt á þá. Þeir eru með skemmtilegasta liðið i deildinni. Á nú að trekkja unglingana n upp í þetta líka? ii Litið inn á tjaldsamkomu Fíladelfíu Sigriftur Ingólfsdóttir og nafna hennar Kristjánsdóttir iétu frelsast á samkomunni — „Aldrei hefur okkur liftið svona furftulega.” „Þcgar ég var aft hengja upp auglýsingar fyrir þessa samkomu liérna i kvöld, og hcngdi meðal annars upp auglýsingu i einn húftargluggann hér i bæ, kom aft mér kona, scm spurfti livaft ég væri aft gera. Ég sagfti henni aft ég væri aft hengja upp auglýsingu fyrir tjaldsamkomu Kiladelfiu i Laugardalnum i kvöld. „Guft minn góftur, á nú aft fara aft trckkja unglingana upp i þetta lika?” varft hcnni aft orfti. Svo sagðist einum af ræðu- mönnum frá, sem fram kom á þessari sömu samkomu siðastlið- ið föstudagskvöld. Kannski engin lurða þótt þessi orö konunnar yllu hlátri áheyrenda, þvi trúnni hefur llannes Jónsson — „Lét frelsast fyrir ácggjan vinar mins.” sjaldan verið likt við nokkurn af þeim hlutum sem unglingunum er ráðlagt aö halda sig frá, ja, nema þá sumum hafi ofboðið Jesúbylt ingin svokallaða. 15 ungmenni sungu hátt og hressilega: Great is the Lord, þegar Visismenn litu inn á sam- komuna. Þau voru vel dúðuð, jafnvel með trefla, og sömuleiðis áheyr- endur, þvi hálfkalt var i tjaldinu, þrátt fyrir kyndingu. — Tjaldið er slórt, og i öðrum endanum, gegnt innganginum, hefur verið komið fyrirsenu og ræðupúlti, en á gras gólfinu eru bekkir og stólar, sem rúma um 250 mgnns, en að þessu sinni hafa tyllt sér á bekkina um það bil 50 manns. „Óvanalega fátt”, sögðu forráðamenn. Tveir eldri menn standa við innganginn og afhenda gestum litla bæklinga um Krist og trúna, og i litlu gler- borði hefur verið komið fyrir ýmsun bókum og grammófónplötum, sem eru til sölu, allt hið vandaðasta. — Töluvert af unglingum eru á staðnum, sumir meðlimir i söfnuðinum, sumir komnir til þess að forvitnast, og svo nokkrir sem aðeins hafa komið til þess að fiflast og gera grin. „Þetta er geðveikt”, segir einn og flissar. En eins og gefur að skilja, liða beir sem að samkomunni standa ekkert grin, og þau eru fljótt vör uð við, „þvi þá sem grin gera að trúnni og Kristi mun eitthvað hræðilegt henda”. Það er aðeins ungt fólk sem stendur i ræðupúltinu þetta kvöldið og skýrir áheyrendum frá reynslu sinni i trúnni á Krist, og þarna hefur jafnréttið að ein- hverju leyti náð fram að ganga, þvi að stúlkurnar fá að taka til máls jafnt sem karlmennirnir og láta sitt ekki eftir liggja. „Áður en ég lét frelsast, smakkaðiég áfengi”, segir einn af ræðumönnum. „Nú er ég fullur upp á hvern einasta dag, — fullur af Jesúm Kristi.” „Áður en ég lét frelsast”, segir annar, „reyndi ég að kaupa mér gleði i áfengi, pillum og tóbaki, en nú finn ég alla gleðina i Kristi.” Og þannig halda þeir áfram. Hver af öðrum lýsa þeir þeirri gleði og ánægju sem fylgir trúnni. Þeir fá ekki skilið hvers vegna sumir láta bók bókanna, Bibli- una, liggja uppi i skáp, og hvers vegna fólk trúir þvi ekki að hún sé sannleikurinn. „Hvers vegna vill fólk ekki trúa þvi að hann er það eina sem bjargar öllum?” Á milli þessa eru sungnir sálm- ar, með undirleik rafmagnsgitars og bióorgels, og það er tekið undir af ákafa. Jafnvel þeir unglingar sem áður hlógu aðsöng hinna, eru nú farnir að raula með, enda eru sumir sálmanna sungnir i þjóð- lagastil, með dálitlu fjöri. Það er Englendingur sem slitur þessari samkomu. Það er ekki laust við að hann sé ofstækisfullur i trúarboðskap sinum, og þegar hann hefur endurtekið setning- una: Yður ber að endurfæðast, og hvers vegna ekki að frelsast i kvöld”, hvað eftir annað, fer manni ekki að verða um sel. En þetta ber tilætlaðan árangur, þrjár stúlkur ganga upp til hans aö þessu sinni og láta frelsast. Þegar við spjöllum við tvær þeirra stuttlega á eftir, þær Sig- riði Ingólfsdóttur og nöfnu hennar Kristjánsdóttur, segjast þær að- eins hafa komið inn á þessa sam- komu til þess að hlæja að hinum og skemmta sér svolitið. „En þetta hafði svo furðuleg áhrif á okkur”, segja þær. Og hún Kristjánsdóttir segir: „Þegar hann spurði svonahversvegna við létum ekki frelsast i kvöld, fannst mér ég finna titring i fótunum, og mér fannst ég verða að gera þetta, ég hefði ekki trúað þvi að þetta væri hægt.” Jú, þær sögðust nú hafa trúað eitthvað áður, en ekki svona sterkt. En þær voru ekki vissar um að ganga i Eiladelfiusöfnuð- inn þrátt fyrir allt. Ungur piltur, Hannes Jónsson, sagði okkur að hann hefði látið frelsast sunnudeginum áður, og það hefði aðallega verið fyrir áeggjan vinar hans, sem hann gerði það. „En ég hugsa að ég stundi þessar samkomur á meðan þær eru hérna”, sagði hann. Eormaðurinn, Einar Gislason, tjáði okkur að þetta væri ein fá- mennasta samkoman sem haldin hefur verið, og yfirleitt væri allt troðfullt. „Hér koma fyrrverandi fangar, afbrotamenn og áfengis- sjúklingar” sagði hann, ,,og — fólk segir skilið við kommúnism- ann þegar það gengur i Kila- delfiu! ” —EA Lif og fjör var i söngfólkinu, og sálmar voru sungnir i þjóftlagastil (Myndir Ástþór) LESENDUR M HAFA ORÐIÐ Athugasemd frá innheimtustjóra Axel Ólafsson innheimtustjóri Kikisútvarpsins skrifar: „Vinsamlega birtið fyrir mig leiðréttingar vegna simtals yðar við Jens Þorvaldsson. Um verulegar rangfærslur er að ræða. Skv. lokunarbeiðni er hann alls ekki krafinn um neinar sjónvarpsgreiðslur fyrir árin 1966-1970, var þar um önnur afnotagjöld að ræða. Hvort um einhvern misskilning hefur verið að ræða milli Jens og dóttur hans veit ég ekki. Umrætt sjónvarpstæki, var fyrst skráð á nafn eiginkonu hans á árinu 1967 en umskráð yfir á Jens frá 1. jan. 1970. Afnotagjöld þau sem greidd hafa verið i Stykkishólmi hafa öll komist til skila, enda er Jens alls ekki um þau krafinn. Ég harma það að Jens skuli gefa i skyn vanskil af hálfu Arna Helgasonar, sem haft hefur með höndum mikil viðskipti við inn- heimtudeildina vegna viðskipta Sjónvarpsins og rækt þau störf með miklum ágætum.” „Það er hó" Einarr Skáldaglamm sendir eft- irfarandi: „Gagnrýnendur litu upp og hnapparnir á nýju fötunum glitruðu. Þeir biðu óþolinmóðir opinberunarinnar. „Það er hó” kallaði skáldið og leikurinn hófst en enginn veit hvað skeði. Seinna fréttist að Atli Há (i maxifrakka) hafi fengið 50 stig fyrir lög eftir Magnús Á skrifuð fyrir óbó i bassalykli Hælið er fullsetið, en skáldið, sem kallaði hó, fer oni fjöru til að drekkja sér framundan klóaki menningarinnar. Af daufu ljósflökti silfurlampans glampar á upphafin andlit þeirra útvöldu og þeir hvisla, alsælir, „Það er hó”. Hœttuleg umferðar Ijós ó Vellinum Ökumaftur simar: „Nokkuð hefur verið rætt um umferðarljósin á Keflavikurflug- velli i sambandi við hið hörmu- lega slys sem þar varð á dögun- um. Ég hef oft ekið þarna um til að fara með farþega á völlinn eða sækja þá þangað. En það var ekki fyrr en i siðustu viku, sem ég átt- aði mig á að þarna eru umferðar- ljós sem hanga yfir gatnamótum. Þessu er vafalaust eins farið með marga aðra ökumenn og þessi tegund ljósa hljóta að teljast stór- hættuleg.”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.