Vísir - 20.07.1972, Page 3

Vísir - 20.07.1972, Page 3
3 Visir. Fimmtudagur. 20. júli 1972 „Bíðum bara eftir að rúss- neski flotinn bjargi okkur" — segir Leonard Chesky, einn af 32 útlendingum, sem lentu í ýmsum œvintýrum á ferð um landið „Eftir aö rússneskir visinda- menn höfðu bjargaö okkur á leiöinni austur að Höfn. biðum við bara eftir rússneska flotanum, til þess að bjarga okkur af strandstað i Eyja- firðinum,” sagði Bandaríkja- maðurinn Leonard Chesky, sem lenti i miklum ævintýrum á ferð sinni um ísland fyrir skömmu. Lconard fór ásamt konu sinni Myriam, sem er ínexikönsk i „grand adventure toure” á vegum útsýnar og segir hann svo frá ferðinni. „Við lögðum upp fljúgandi til Fagurhólsmýrar og þaðan var haldið i bil austur Breiða- merkursand til Hafnar i Horna- firði. Á leiðinni bilaði öxull bilsins, og var reynt að gera við hann á staðnum, en gekk ekki. Við vorum samtals 32 talsins, flest Frakkar, en einnig Norður- landabúar, Englendingar og Bandarikjamenn. Eftir að hafa reynt árangurslaust i heila klukkustund að koma bilnum i lag, bar þarna að þrjá rúss- neska eldfjallavisindamenn i bil sinum og gátu þeir gert þannig við bilinn, að hægt var að aka honum löturhægt austur á Hornafjörð. Þangað var svo flogið með stykkið, sem bilaði i bilnum og eftir að þvi hafði verið komið fyrir á sinum stað, var siðan haldið áfram austur fyrir landið. Við töfðumst tölu- vert við bilunina, en komumst þó nokkurn veginn á áætlunar- tima alla leið til Akureyrar, með viðkomu á ýmsum stöðum. Þar komumst við i nýtt ævin- týri, er við fórum 14 saman út á litlum fiskibát og strönduðum austanvert við Eyjafjörðinn. Skipstjórinn, sem var mjög ró- lyndurtslendingurtókþessu með stillingu ,lauk við vindilinn og tók svo að blása i lúður sinn allt hvað af tók. Enginn heyrði til okkar, og tók þá Jón Egilsson, forstjóri Ferðaskrifstofu Akur- eyrar, sem var með i ferðinni sig til og réri i land á litlum gúmmibát. Hann gekk á land og fékk að hringja á sveitabæ þarna i grenndinni. Siðan var sendur bátur ennþá minni en sá sem við vorum á, til þess að bjarga okkur. Þarna var með okkur franskur generáll, mætur maður og mikið hreystimenni og var honum mjög misboðið þegar farið var að skipa helming mannskaparins um borð i bátinn og kallað var „konur og generalar fyrst”. Hann lét nú ekki bjóða sér það, og þegar búið var að selflytja alla til Akureyrar i tveimur ferðum, heimtaði hann að fá að vera eftir i bátnum með skip- stjóranum, „til þess að hjálpa honum við að koma bátnum á flot”. Þess þurfti þó ekki, þvi þegar við vorum öll komin upp úr bátnum léttist hann svo, að hann losnaði úr strandinu. Allir komust heildu og höldnu til Akurevrar. 02 höfðu 2aman af öllu saman. Meðal annars vorum við með ung nýgift hjón i ferðinni, sem voru svo upptekin hvort af öðru, alla ferðinaaðþau tóku aldrei eftir neinu sem gerðist, fyrr en átti að skilja þau að og flytja frúna fyrst til Akureyrar úr strandaða bátnum. Þá upphófst ein ægileg kveðjuathöfn með gráti og til- heyrandi og var eiginmaðurinn alls óhuggandi þennan klukku- tima, sem hann varð að biða i bátnum, áður en hinn báturinn kom aftur og sótti karlmennina. Létu þau ekki sjá sig við kvöld- matarborðið á hótelinu á Akur- eyri um kvöldið, svo mikið varð þeim um aðskilnaðinn.” Þannig segir Leonard Chesky frá ævintýraferðinni um Island, en hann hefur komið hingað til lands nokkrum sinnum áður og kveðst ætla að koma oft i fram- tiðinni. þs. Þau voru að leggja upp með troðfulla pokana i gærmorgun, — I laugardögum eins og margir yfirboðarar þeirra og reyndar póstfreyjur og póstmenn. Nú vilja þau fá að hvila lúin bein á | margar stéttir þjóðfélagsins. VILJA LAUGARDAGSFRÍ EINS OG YFIRBOÐARARNIR Stööugt bætist i hóp þeirra, scm vilja fri á laugardögum, — nú hafa póstmenn og póstfréyj- ur aftur sett fram kröfur um þetta. Alls 10170 borgarar i Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði hafa skrifað undir undirskriftalista, sem afhentur var póst og simamálastjóra, þess efnis að þeir sjái ekkert at- hugavert viö það að sjá ekki póstinn sinn endilega á laugar- dögum. „Það voru um 98% af öllum sem leitað var til, sem ekki sáu neitt i vegi fyrir þvi að fólkið fengi fri á laugardögum við út- burðinn”, sagði Reynir Ár- mannsson formaður Póst- mannafélagsins. Hanna Lárus- dóttir, formaður Póstfreyju- félagsins, sem telur SOfélaga, er starfa að dreifingunni á pósti á höfuðborgarsvæðinu, sagði að eftir sem áður mundi séð um dreifingu á mikilvægum send- ingum, t.d. express-pósti, enda þótt laugardagsfriin kæmu til sögunnar, sem félagarnir von- uðu. Þess skal getið að póst- freyjurnar, sem bera út mikinn hluta póstsins, eru 50, en 28 karlmenn starfa við þessi störf. Þeir sem unnu við undir- skriftasöfnunina kváðu undir- tektir mjög góðar og kváðust vonast eftir sama skilningi hjá forráðamönnum póstsins. M.a. skrifuðu þrir ráðherranna und- ir, Ólafur Jóhannesson, Magnús Kjartansson og Lúðvik Jósefs- son, auk þess fyrrv. forsætis- ráðherra, Jóhann Hafstein, og öll hans fjölskylda. „Þetta er siðasta skrefið i löngu málastappi vegna þessa”, sögðu þau Reynir og Hanna, „við leitum til almennings og vonum að viðsemjendurnir, sem allir hafa fyrir löngu fengið laugardagsfri sjálfir, skilji nú sjónarmið okkar.” Það er þvi ekki útilokað að vixiltilkynningar og rukkanir hætti að berast okkur á laugar- dögum i framtiðinni, og vart munu margir sakna þess. —JBP- Teigs- bóndi ófrýjar — og getur „kœlt#/ höfuðborgarbúa í vetur svo um munar Matthias Einarsson bóndi á Teigi i Mosfellssveit hefur ákveðið að áfrýja máli sínu til Hæstaréttar, en i gær var með dómi synjað um staðfestingu Iög- banns, er sett hafði verið á fram- kvæmdir Hitaveitu Reykjavikur i landi Teigs. Matthias staðfesti áfrýjunina viö blaðiö i gær og sagði að þegar bann hefði látiö setja lögbann á framkvæmdir Ilita veitunnar, hefði leyfi skipulags rikis og bæja ekki vcrið fyrir hendi og að hann hefði taliðsig sekan, ef hann hefði ekki komið i veg fyrir fram- kvæmdirnar. „Ég álit, að niðurfelling máls- kostnaðar sé mikill sigur fyrir mig”, sagði Matthias ennfremur. Lögbannið var sett á 12 maí s.l. er Hitaveitan var að leggja nýja hitaveituleiðslu frá Reykjum til Reykjavikur og lá hún um land Teigs. Blaðið hafði samband við hitaveitustjóra i morgun, Jó- hannes Zó'ega og sagði hann að ekki yrði haldiö áfram við fram- kvæmdirnar að svo stöddu, þar sem ekkert má aðhafast meðan áfrýjunarfrestur er ekki liðinn. „Ef gagnaðilinn áfrýjar fyrir Hæstarétti getur það haft slæmar afleiðingar fyrir næsta vetur. Við þurfum nauðsynlega á meira heitu vatni að halda fyrir veturinn. Verði veturinn kaldur, getur það haft áhrif á bæjarbúa, ef ekki verður hægt að ljúka þessum framkvæmdum” sagði Jóhannes. Beðið eftir trimmkarlinum Sundkappar, sem lokið hafa við aösynda 200 metrana 100 sinnuin, eru farnir að biða eftir viður- kenningunni, trim m karlinum svokallaða. A hverjum degi er spurt eftir honum i sundlaugum bæjarins en þeir i sundlaugunum hafa litlar upplýsingar getað veitt, þeir vita ekki meir, og sum- ir hafa jafnvcl misst vonina um aö fá þennan litla gullkarl i hcndurnar. En þetta stendur allt til bóta, að þvi er Sigurður Magnússon hjá íþróttasambandi Islands tjáði blaðinu. Trimmkarlinn er i fram- leiðslu, en að hluta til er hann framleiddur i Danmörku, að öðru leyti er hann gerður af Magnúsi Baldvinssyni hér á landi. „Hann verður mjög liklega til um mánaðamótin, júli-águst”, sagði Sigurður, „og þvi fólki, sem synt hefur 200 metrana 100 sinn- um, verður gefinn kostur á að eignast hann. Hvernig er þó ekki fullvitað enn sem komið er, hvort hann veröur afhentur i sundlaug unum eða annars staðar, en kostnaður er ekki enn vitaður. Sigurður bætti þvi einnig við, að þeir sem hafa hug á trimmkarli, verða að halda vel saman sinum gulu miðum, sem þeir fá i hvert sinn er þeir synda, þvi að það er þeirra eina sönnunargagn. Þess má svo að lokum geta, að 11. júli varð fyrst lokið við að synda 100 sinnum. í sundlaug Vesturbæjar giska þeir á að um það bil 50 manns hafi lokið við að synda svo oft, og i sundlaug Kópavogs um það bil 10 manns. í Laugardalnum sögðu þeir að ómögulegt væri að segja um það, en talsvert margir hefðu þó áreiðanlega synt 200 metrana 100 sinnum. —EA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.