Vísir - 24.07.1972, Síða 13

Vísir - 24.07.1972, Síða 13
13 Vísir. Mánudagur. 24. júli. 1972 VORUM UPPI FYRIR MÖRGUM ÖLDUM - SEM KARLMENN N Tvær leikkonur, sem is- lendingar kannast mæta vel við, þær Elke Sommer og Faye Dunaway halda þvi fram að þær hafi verið uppi fyrir mörgum hundruðum ára og þá menn, sem liafi fæðzt aftur. ,,Ég var uppi á timum kross- faranna og ég var einnig uppi á fimmtu eða s.jöttu öldinni,” segir Elke Sommer. ,,Ég get séð þetta á þeim andlitum sem ég mála si- fellt, og ég er þess fullviss að allir endurfæðast. Einhvern tima á ævi hvers manns sannfærist hann um það, og finnur að hann hefur lifað áður, fyrir löngu, löngu, i allt öðru landi og umhverfi. Og ég er þess einnig fullviss að ég var ekki kona i fyrra lifi, ég var maður.” Fay Dunaway segist hafa átt mjög athyglisverðar samræður við stjörnuspámann sem gerði henni ýmsa hluti skýr- ari fyrir sjónum sem hún áður hafði átt erfitt með að koma fyrir sig, en voru samt i undir- meðvitundinni. ,,begar ég var þrettan ára gömul skrifaði ég mikið og orti. Ég skrifaði þá dálitið furðulega og einstaka sinnum skrifaði ég mál, sem ég átti bágt með að skilja, einhvers slags forn-ensku. Stundum um nætur finnst mér ég heyra raddir, sem ég kannaðist svo vel við, en ég gat ekki komið þeim fyrir mig. En eftir samræðurnar við stjörnuspámanninn er ég þess fullviss, að ég var uppi á sautjándu öld, ég var karlmaður, bjó i London og skrifaði leikrit.” Fay Dunaway: ,,Ég var uppi á 17. öld og skrifaöi leikrit i London. Ég var karlmaður þá.” MEÐ HJÁLP FAGLÆRÐRA MANNA . . . Michael Chaplin, sonur Charlie Chaplins, móðgað- ist sárlega um daginn. Hann var sagður hafa verið með ólæti á skemmtistað i Wales, og veri* fleygt út þegar hann hóf að syngj. lagið: There’s no Business lik' Showbusiness.” Gestir undu ill ófagri röddu hans, og þvi sá ■ þjónar sér ekki annað fært en a fleygja honum út fyrir. Svona slúðursögur segis Michael eiga bágt með að sæt sig við. ,,Ég mundi ósköp v skilja það að mér yrði fleygt út, * ég hæfi söng á einhverjum st; þvi ég hef mjög leiðinlega sön rödd,” segir hann. En i þet: skiptið var ég alls ekki stadd þarna i Wales, ég hef að unda förnu haldið mig i Seville, og h vil ég fá að vera i friði.” Ringo Starr og Geon Harrisson eru að verða óþekkjanlegir seg almenningur i Englandi. A1 a vega áttaði fólk sig ekki á þvi í ð þeir gengu eftir göngum flug- stöðvarinnar á Heathrow flug- velli i London fyrir stuttu. Báðir með dökk sólgleraugu, með mikið styttra hár en venjulega, og skeggið jafnvel mikið breytt. Susannah York brezka leikkonan hefur lengi þráð að eignast barn. Hún og maður hennar Michael-Wellshafa'i sjö ár gert árangurslausar tilraúnir, en loks eftir allan þennan tima hefur þeim fæðst dóttir og þar með hef- ur stærsta ösk þeirra verið upp- fyllt. Dóttirin er ljóshærð og blá- eyg og hún hefur verið skirð Sasha. Tímarnir breytast og mennimir með, segir í gamla máltækinu. Og það gildir svo sannarlega fyrir allar þessar nafntoguðu konur,sem við sjáum hér á meðfylgjandi myndum. Allar hafa þær breytt svo útliti sinu og háttum, að þær eru næstum óþekkjan- legar. ölíkt glæsilegri — eða hvað? tJtlið Audrey Hepburn hefur breytzt mikið, en þó viröist breytingin á henni litil i saman- burði við hinar. Hún er sú eina sem heldur sama háralitnum, en aldlitsmálningin hefur breytzt. Eldri myndin er tekin 1957. Catherine Deneuve, Ursula Andress og Sophia Loren hafa all- ar skipt um háralit, og ekki er hægt að segja annað en að sú sið- astnefnda sé orðin ólikt kvenlegri og finlegri. En með hjálp snyrti- sérfræðinga og faglærðra maiina : hafa þær allar gert sig að nokkrum al' fegurstu konuin Umsjón EA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.