Vísir - 25.07.1972, Page 16

Vísir - 25.07.1972, Page 16
VISIR Þriðjudagur. 1972 Sex óra dreng- ur beið bana Sex ára drengur úr Hafnarfirði beið bana f gærdag, við bæinn Ilof i Arnarneshreppi, er hann féll of- an af vörubíl fullum af heyi og varð undir vinstra afturhjóli. Hann mun hafa látizt samstundis. Slysið átti sér stað um klukkan liálf fimm siðdegis i gær, er verið var að flytja vélbundna bagga að hlöðu bæjarins. Var mikið hey á palli bílsins,en drengurinn sat þar upp á á$amt föður sinum og fleiri börnum. Þegar ekið var eftir tún- inu að bænum hrundu nokkrir haggar af bilnum og litli drengur- inn með. Kaðir hans kallaði þá til ökumanns,sem heyrði ekki hróp- in og varð einskis var fyrr en um seinan. Drengurinn var ásamt föður sinum geslkomandi á bænum.-KA Sú sjöunda tefld í dag 7. einvigisskákin verður tefld í dag kl. 5 i Ilöllinni. Það hcfur heyrzt að Spasski myndi nú nota sér það að frcsta skákinni i dag en báðir kcppcndur hafa rétl til þess samkv. Amstcrdamsamningun- um að frcsta þrivcgis vegna veik- inda. Kkki er annað vitað en Spasskí sé við fulla heilsu og i inorgun hafði Lothar Schmid yfirdómara ekki borizt ncin beiðni uin frestun frá Spasski en slik lieiðni þarf að hafa borizt boiium i siðasta lagi kl/ 12 á há- dcgi. Það vcrður þvi að rcikna með að einvigið haldi áfram i dag og háðir sigli undir fullum seglum, en staðan er nú 9 1/2: 2 1/2 Fisch- er i hag. __________GF Hélt fyrst að þetta vœri stór ufsi" segir Magnús Guðmundsson,sem fékk lax á einn krókinn í fœrafiskeríi á dögunum —Ég hélt fyrst að þetta væri stór ufsi en svo kom í Ijósað þetta var lax, sem hafði húkkazt á einn krók- inn, þegarég varað draga upp, segir Magnús Guðmundsson sjómaður á Olafsfirði. Það var i fyrri viku, sem Magnús fékk laxinn, þegar hann var ásamt syni sinum Júliusi á færafiskerii. beir feðgar hafa gert út fjögurra tonna trillubát til margra ára. Og laxinn um- ræddi vó 8 1/2 kiló. — Kr mikið um, að lax veiðist i Kyjafirði? — Ég veit ekki um það, ég veit það bara að fyrir tveim árum urðu menn varir við lax á nákvæmlega sama stað — en þeir misstu hann. Þetta er hér á hólum norðvestan af Gjögurtá, þar sem maður er á færunum. — Hvað var gert við laxinn? — Ég setti hann bara i frysti- kistuna i bili, seinna er ætlunin að reykja hann. Ég hef einu sinni smakkað lax,en ég vil heldur steinbit. Jú, þetta er eini laxinn, sem ég hef fengið. Þetta er kannske stór veiði, en maður fær lika stóra þorska, kannske sjö á i einu á alla króka, mér finnst meira til um það. En, ef maður séldi laxinn er það náttúrlega góð veiði á einn krók, maður hefur heyrt, að hann sé seldur á 250-300 krónur kilóið, þegar hann er nýr. Svo ber að geta þess, að Július sonur Magnúsargoggaði laxinn. — Það fannst annar lax við Kolbeinsey fyrir nokkrum árum og var Július á dekkbátnum Ara og goggaði þann lax lika. bað var 12 kilóa lax. — Hvernig hefur veiðin gengið að undanförnu? — Hún hefur gengið sæmilega núna i nokkra daga. Það var tregþen er nú heldur að glæðast. Við fengum tæpt tonn i dag. Það er ágæt veiði. Við söltum þetta sjálfir og vinnum þetta á okkar eigin báti. Við seljum fiskinn alltaf sem biautan saltfisk bæöi á Spáni, ttaliu og Grikklandi. Þetta hefur verið svona 20-25 þúsund króna dagur. -SB- SVEINN OG JON KEPPA UM ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Þeir tala um þetta i pundum, þessi er 8 1/2 kiló," Magnús með einn af örfáutn löxum, sem ólafsfirðingar hafa fengið á færi sin i Kyjafirðinum. ,,Ég vil ekki fullyrða neitt um það hvenær em- bætti þjóðleikhússtjóra verður veitt," sagði Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra í samtali við Vísi í morgun. Keppnin um embættið mun nú standa milli Jóns Þórarinssonar og Sveins Einarssonar. Eftir þvi sem næst verður komizt fékk Jón fleiri atkvæði á einum fundiÞjóðleikhússráðsen á öörum átti Sveinn meira fylgi að fagna. Þaö kemur i hlut mennta- málaráðherra að höggva á þennan Gordonshnút, en ýmsir telja að hann muni velja Svein. Hins vegar hefur Sveinn fengið afnot af húsi Jóns Sigurðssonar i Kaupmannahöfn um þriggja mánaða skeið i vetur, en em- bættið veitist frá 1. september til eins árs. Meðlimir þjóðleikhúss- ráös eru þögulir sem gröfin um endanlega afgreiðslu ráðsins en ekki hafa þeir neitað þvi að þeir Sveinn og Jón hafi báðir fengið meðmæli einstakra nefndar- manna. -SG. Engin olíumengun frá El Grillo - sprengjurnar hcettulausar? Kafarar,sem unnið hafa við E1 Grillo undanfarið,hafa ekki orðið vurir við ncina oliumengun frá skipinu og er talið vafamál að nokkur olia sé i tönkunum. Þá fullyrðir brezki sprengju- fræðingurinn að útilokað sé að hætla geti stafað af þeim sprengj- um sem hugsanlega eru um borð. Komið var upp með eina sprengju, sem var eyðilögð á laugardaginn. Þurfti sjö Vetrartízkusýningarnar í Paris hófust í gœr: Ásaumaðir amor-englar og ör ó leið til hjartans dýnamittúbur til að sprengja hana og segir sprengifræðingur- inn að það þurfi öfluga hleðslu i hvert sinn ef koma eigi af stað sprengingu i þeim skotfærum sem haldið er að séu um borð i skipinu. 1 morgun fóru kafararaf stað til að ganga úr skugga um hvort ein- hver olia er i tönkum E1 Grillo. Ef svo reynist ekki vera mun allt lið- ið,sem starfaö hefur að rannsókn- um undanfariðipakka saman og málið þar með úr sögunni. —SG FISCHER HEIMTAÐI FOXí BURTU myndotökumálin enn í óvissu Háværar deilur eru nú uppi vegna kvikmyndatöku skákein- vigisins. Chester Fox kemur ekki lengur nálægt framkvæmdum þar samkvæmt kröfu Fischers. Samningur hans og Skáksam- bandsins um einkarétt Fox á dreifingu mynda er hins vegar I fullu gildi. ABC fyrirtækið og Gisli Gests- son kvikmyndatökumaður hafa annast allar framkvæmdir við myndatökur undanfarið og mun Fox hafa fallizt á þaö bak við tjöldin. Richard Stein lög- fræðingur Fox undirritaði samn- ing viö ABC um myndatökur fyrir sl. helgii en til þess hafði hann enga heimild frá Fox sem sagði honum upp störfum hið bráðasta. Ágreiningur hefur verið uppi milli Fox og Fischers og féllst Fox á aö koma ekki nálægt myndatökum sjálfur ef þaö mætti verða til þess að Fischer gæfi leyfi til aö hefja myndatökur að nýju. Guðmundur Þórarinsson vildi litið segja um málið þegar Visir hafði samband við hann i morg- un. En hann staðfesti það aö sam.ningur Skáksambandsins og Fox um einkarétt hans á dreif- ingu mynda væri enn i fullu gildi. Paul Marshall, lögfræðingur Fischers kom til landsins i morg- un vegna myndatökumálsins. Hann sagði i samtali við Visi að fundur yrði fyrir hádegi með mönnum ABC, Chester Fox, Guð- mundi G. Þórarinssyni ásamt sér. Hann vildi ekki segja neitt um málið fyrr en að þeim fundi loknum. -SG Tizkusýningarnar hófust i Paris i gær og það var Louis Feraud, scm fyrstur dró vetrartizkuna fram i dagsljósið. Tízkufréttaritarar höfðu spáð glæsilegri vetrartizku, þar sem eiiikininaroröið væri „clegant”. Kn Louis Feraud skaut öllum ref fyrir rass i þessari fyrstu sýningu haustsins. „Drasl”, segja sumir um vctrartizkuna hans, — að minnsta kosti cr hún livorki glæsileg né „elegant” heldur fyndin og skemmtileg, einföld og lilrik. Feraud heldur upp á sterka liti og góða kimnigáfu, og margar flikur hans sýna hvort tveggja. Blágrænt, sterkblátt og grænt ásamt svart/hvit röndóttu er i miklu uppáhaldi. Bein pils, siðir jakkar og götuföt i svörtu og hvitu með svörtum sokkabuxum og prjónuðum húfum tilheyra dagtizkunni. Svartir stuttir og siðir kjólar úr glansandi prjóna- efni eða satini með ásaumuðum figúrum, vöktu langmesta at- hygli. Jafnvel siðu peysurnar voru með ásaumuðum rauðum andlitum. Siðu kjólarnir voru gjarnan með litlum amor englum með tilheyrandi boga og ör á leið til hjartans. Rauðar flauelsrósir, pifur og litsterk belti skreyttu suma siðu kjólana og þeir voru niðþröngir og flestir með beru baki. þs FISCHER VILL TOLLA í TÍZKUNNI Bobby Fischer hefur á undan- förnuin árum vcrið þekktur fyrir annað en smekklegan klæðaburð. Kitthvað hefur þetta breytzt upp á siðkastið, þvi nú leggur liann mikið upp úr þvi að vera vel klæddur og menn eru jafnvel farnir að tala um lianii sem einn bezt klædda mann Bandarikjanna. Hvað veldur þessari hugar- farsbreytingu hans um að ganga vel til fara er ekki gott að segja,en skæðar tungur telja að hann hafi kynnzt stúlku i Argentinu þegar hann var að tefla við Petrosjan á siðasta ári. Hafi það algjörlega breytt við- horfi kempunnar til klæða- burðar. og nú er hann ekki ánægður nema hann klæðist ný- tizku modelfatnaði. Colin Porter klæðskeri er nú að sauma tvenn föt á Fischer^sem hann hefur teiknað Sagði Porter að þetta væri bæði is- Lœtur sníða sér föt hjó Colin Porter lenzk ullarefni og erlend og virtist honum sem áskorandinn hefði hinn ágætasta smekk fyrir að ganga vel til fara. Og fleiri landar Fischers vilja lika tolla i tizkunni Séra Lombardy aðstoðarmaður hans er lika að láta sauma sér föt hjá Colin Porter. svo að það er greinilegt að Fischer og Lombardy er um- hugað um að koma vel fyrir. GF.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.