Vísir - 01.08.1972, Síða 8
Vísir Priðjudagur 1. ágúst 1972
A stóru myndinni sést yfir hina nýju flugbraul «g flugstöftin sjálf er i baksýn. A litlu myndinni i liorninu cr jarðýta að jafna úr hlössum sem vörubilar eru nýbúnir að losa. Fjallið á
iniðri þeirri mynd, þetta sem er flatt að ofan, er Slapafcll, sem minnkar óðum cftir þvi sem flugbrautin lengist.
Heilt fjall í
flugbrautar
lenginguna
Keflavík
i
Framkvœmdir sem kosta yfir
400 milljónir króna
,,l>essi framkvæind kostar i
dag um 120 milljónir króna og ef
cinhvcrjum blöskrar þessi upp-
hæð þá skal það tekið fram til
skýringar, að við tökum nærri
lieilt fjall undir þessa fram-
kvæm d."
Svo sagði Tlior Thors fram-
k v æ m d a s t j ór i A ð a I v e r k t a k a,
þegar Visir heiinsótti Keflavíkur-
l'lutvöll i ga-r. I>að er flugbrautar-
lengingin sem var til umræðu
þegar við ræddum við Tlior, en
þeim framkvæmdum miðar nú
vel áleiðis.
„Framkvæmdir hófust i byrjun
júni og 1. nóvember á næsta ári
eigum við að hafa lokið öllu verk-
inu” sagði Thor Thors. Verkefni
Aðalverktaka er að lengja aðal-
flugbrautina á Keflavikurflug-
velli um 3.800 fet. Ekki var það
sársaukalaust fyrir suma aðila að
ráðast i þessa framkvæmd, þar
sem það er Bandarikjastjórn sem
ber kostnaðinn. Þeir Magnús
Kjartansson og Lúðvik félagi
hans .Jósepsson greiddu atkvæði
gegn þvi i rikisstjórninni að við
skyldum lofa Könum að borga.
Þeir félagar höfðu stór orð um þá
miklu smán sem við kölluðum yf-
ir okkur með þvi að borga þetta
ekki sjálfir. Eftir að þetta var
samþykkt með nokkrum meiri-
hluta i rikisstjórninni hækkuðu
skattar stórlega, en Mangi og
Lúlli glottu i kampinn.
En þetta var nú bara útúrdúr
þvi flugvöllurinn sjálfur er miklu
skemmtilegra viðfangsefni en tvö
nátttröll i rauöstjórninni.
t þessa lengingu á flugbrautinni
fara 1,2 milljónir rúmmetra af
uppfyllingu. Efnið er sótt i fjall
nokkuð sem Stapafeli kallast og
ereigi langt frá vellinum. Raunar
væri réttara að segja að þetta hai'i
verið l'jall þvi það hefur sett stór-
um ol'an undanfarið, eftir að farið
var að nota efni úr þvi i uppfyll-
ingu íyrir flugbrautina. Það er
unnið i 20 tima á hverjum sólar-
hring viö þetta verk og það eru 70-
80 manns sem eingöngu starfa við
framkvæmdina. En þaö er af sú
tið að menn séu púlandi með haka
og skóflur við svona stórfram-
kvæmdir, eins og geröist hér fyrr
á árum þegar Bretar byggðu
Reykjavikurflugvöll. A Keflavik-
urvelli sjást engir menn i þvi að
styðja sig við skóflur, heldur eru
það 20 stórir vörubilar sem keyra
20 tima á sólarhring efni úr
Stapafelli og dengja þvi niður i
berjalyngið, sem bráðum stynur
undir þunga risaþota sem fara að
rúlla um þessa nýju braut næsta
haust.
t
tslenzkir Aðalverktakar hafa
tekið að sér mörg stórverkefni á
undanförnum árum. Samkvæmt
samningi sem gerður var milli
rikisstjórna tslands og Banda-
rikjanna annast þeir allar fram-
kvæmdir fyrir herinn á Kefla-
vikurflugvelli. Thor Thors kvaðst
álita að flugbrautarlengingin
væri stærsta verkefni fyrirtækis-
ins á Vellinum til þessa. Enda
væri það meira en brautar-
lengingin sjálf, einnig væri unnið
við að setja upp ný aðflugsljós og i
sambandi við lenginguna þyrfti
að færa til girðingar, vegi og raf-
linur.
„Þegar búið verður að malbika
þessa viðbótog koma fyrir ljósum
verður Keflavikurflugvöllur fyrst
orðinn alþjóðaflugvöllur sem
óhætt er að treysta á, i nær hvaða
veðri sem er” sagði Thor. Og það
siðasta sem við sáum þegar hald-
ið var á brott, voru hinir stóru
vörubilar sem kepptust við að
flytja fjallið Stapafell i hina nýju
flugbraut, sem eflaust á eftir að
færa okkur drjúgan skilding og þá
ekki siður að spara islenzku flug-
félögunum stóran pening, þegar
þau þurfa ekki lengur að yfir-
fljúga Keflavik vegna veðurs.-SG
Það er af sú tið að memi nieð skóflur styðji sig viö svona hrúgur. Ýtan jafnar úr þeim á svipstundu.
(Ljósmyndir Ástþór)