Vísir - 01.08.1972, Page 10
10
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972
Örn Ó. bœttist í
y
landsliðshópinn
i stað Atla Þórs Héðinssonar
Diðrik ólafsson
Örn óskarsson, nítján
ára húsamálari frá Vest-
mannaeyjum, var í gær
vaiinn i islenzka landslið-
ið, sem heidur til Noregs í
dag til að leika 14. lands-
leikinn í knattspyrnu milli
Noregs og Islands.
Orn kemur i stað Atla Þórs
Héðinssonar, KR, sem meiddist
i ieiknum i Keflavik á laugardag
og getur þvi ekki tekið þátt i
Noregsförinni. örn er eins og
Atli 19 ára og hefur ekki verið i
landsliðshópnum áður. Hann er
i hópi efnilegustu yngri leik-
manna okkar, fljótur, sterkur
og leikinn framherji. örn er
fjölhæfur iþróttamaður og hefur
— auk knattspyrnunnar — náð
athyglisverðum árangri i frjáls-
um iþróttum, einkum spjót-
kasti.
Þá er einn annar nýliði i
landsliðinu, Diðrik Ólafsson,
markvörður úr Vikingi. Diðrik
er tvitugur að aldri og lærður
kokkur. Hann hefur vakið mikla
athygli fyrir góða markvörzlu,
en varð fyrir þeirri óheppni fyrr
i sumar að brákast illa á fingri,
og háði það honum um tima,
enda fór hann af illri nauösyn að
keppa of fljótt aftur.
Flestir leikmenn islenzka
liðsins hafa mikla reynslu að
baki. Eyleifur Hafsteinsson hef-
ur leikið 25 landsleiki Guðni
Kjartansson 24 og hafa þeir
leikið flesta leikina. Þá
Þorbergur Atlason með 12 leiki,
Einar Gunnarsson einnig 12, en
Ásgeir Eliasson 13. Guðgeir
Leifsson heíur leikið átta lands-
leiki, Ólafur Sigurvinsson sjö,
Marteinn Geirsson er einnig
með sama landsleikjafjölda, og
Þröstur Stefánsson hel'ur leikið
fimm landsleiki, Tómas Pálsson
þrjá og þeir Asgeir Sigurvinsson
og Þórir Jónsson hafa leikið
einn landsleik hvor og Teitur
Þórðarson tvo.
Svo eru nýliðarnir tveir eins
og áður er sagt frá, örn Óskars-
son og Diðrik Ólafsson.
Meðalaldur leikmanna er
mjög lágur sennilega sá lægsti
sem um getur hjá islenzku
landsliði. Flestir leikmannanna
eru rétt um eða yfir tvitugt.
Eyleifur er elztur 28 ára, Þröst-
ur 27 ára, Guðni 25 ára og
Þorbergur 24 ára. Ásgeir Sigur-
vinsson er yngstur 17 ára, örn
og Teitur 19 ára Guögeir,
Diðrik, Ólafur. Þórir tvitugir,
Marteinn og Tómas 21 árs og
Ásgeir Eliasson og Einar 22ja
ára.
Landsliðsþjálfarinn
leystur frá störfum
S ko zk i þj á I f a ri n n
Duncan MacDowell, sem
þjálfað hefur ísfenzka
landsliðið að nokkru í
sumar, hefur verið leystur
frá þeim störfum og mun
ekki fara með landsliðinu
til Noregs eins og fyrir-
hugað hafði verið.
MacDowell, sem réðist hingað
til lands sem þjálfari FH, en tók
siðan einnig aö sér æfingar
landsliðsins, hefur verið heldur
áhugalitill hvað landsliðið
snertir siðustu vikurnar, og i
sambandi við undirbúning fyrir
Noregsförina mætti hann aðeins
á einni æfingu af fjórum.
— Það er ekki ástæða til að
vera að eyða peningum KSt á
þennan hátt, sagði Albert Guð-
mundsson, þegar blaðið spuröi
hann um þjálfarann i gær, og
bætti við: — Þegar Skotinn
mætti ekki á sunnudags-
æfinguna ákváðum við að láta
hann hætta afskiptum af lands-
liðinu.
Eggert Jóhannesson, knatt-
spyrnuþjálfari, fer með lands-
liðinu til Noregs i dag, og mun
hafa þau störf með höndum sem
þjálfara ber i slikri ferð.
tslenzka landsliðið á lokaæfingunni i gærkvöldi. Frá vinstri Diðrik ólafsson, Eggcrt Jóhannesson, Teitur Þórðarson Þorbergur Atlason, Einar Gunnarsson,
Guðni Kjartansson, Þröstur Stefánsson, Eyleifur Hafsteinsson, Asgeir Eliasson, Guðgeir I.eifsson, Asgeir Sigurvinsson, Tómas Pálsson, ÖRN Óskarsson,
Marteinn Geirsson. Þórir Jónsson og Ólafur Sigurvinsson. Ljósmynd Bjarnleifur.
Landsleikurinn við Norð
menn leggst vel í mig!
— sagði Albert Guðmundsson, formaður KSÍ, á lokaœfingunni í gœrkvöldi
t>að var samstilltur
hópur, sem mætti á loka-
ælingu landsliðsins á Mela-
velli í gær og þar var tekin
létt æling undir stjórn
Kggerts Jóhannessonar og
Albert Guðmundsson
útskýrði leikaðferð norska
landsliðsins fyrir islenzku
landsliðsmönnunum — leik-
aðferð, sem byggð er
kringum Harald Berg,
atvinnumann, sem leikur
tneð hollenzku knattspyrnu-
liði.
— Hann leggst vel í mig lands-
leikurinn við Norðmenn á fimmtudag i
Stafangri, sagði Albert Guðmundsson,
formaður KSl, þegar við ræddum við
hann um leikinn og undirbúning aö
honum. Og hann bætti við:
— Ég hef séð norska landsliðið i leik
og Norðmenn hafa oft átt sterkari
landslið en að þessu sinni. Ég hef trú á
islenzkum sigri i þessum leik, sem er i
riðlakeppni fyrir heimsmeistara-
keppnina i.Munchen 1974, og við
munum ekki leika neinn varnarleik
gegn Norðmönnum heldur stefna að
þvi að skora sem flest mörk — fleiri en
mótherjarnir.
Ég hef mikla trú á islenzka liðinu og
ef það nær svipuðum leik og gegn
Belgum fyrr i þessari keppni er hægt
að búast við miklu af þvi. Við erum
með leiknari og léttari leikmenn — en
norska liðið er skipað stórum, kraft-
miklum leikmönnum, þar sem þjálfar-
inn Curtis, sem ég þekki vel, byggir i
kringum Harald Berg, og ef leiknin
verður látin sitja i fyrirrúmi á þetta
að geta orðið skemmtilegur leikur.
Islenzka landsliðið heldur áleiðis til
Noregs eftir hádegi i dag og verður
flogið til Osló og komið þangað um sjö-
leytið. í kvöld verður svo flogið til
2E231
Stafangurs þar sem leikurinn fer
fram.
A miövikudag mun landsliðið æfa og
kynna sér aðstæður á velíinum i
Stafangri, en landsleikurinn verður
svo á fimmtudag kl. 6.30. Daginn eftir
verður haldið heim aftur og komið
heim um fimmleytið.
I hópnum er 21 maður — fimmtán
leikmenn og sex menn i fararstjórn.
Aðalfararstjóri er Albert Guðmunds-
son, formaður KSl en aðrir i farar-
stjórn Jón Magnússon, Friðjón
Friðjónsson, Hallur Simonarson,
Hafsteinn Guðmundsson, landsliðsein-
valdur, og Eggert Jóhannesson
þjálfari.
Þetta verður þriðji leikurinn i riðla-
keppni heimsmeistarakeppninnar i
sumar — tvivegis áður hefur verið
leikið við Belgiumenn — en þrir leikir
verða háðir næsta sumar. Þá leikið
tvivegis við Hollendinga, sem eru i
riðli með okkur ásamt Belgum og
Norðmönnum, og svo siðari leikurinn
við Norðmenn, sem verður leikinn hér
i Reykjavik.
14. landsleikurinn við Noreg
Albert Guðmundsson
Landsleikurinn i knattspyrnu við
Noreg á fimmtudaginn er fjórtándi
landsleikurinn milli þjóðanna og hinn
fyrsti, sem liáður cr i- Stafangri.
I.eikurinn hefst kl. 6.30.
Sjö leikjanna hafa verið háðir hér i
Reykjavik, en þetta verður sjöundi
leikurinn i Noregi, en þar hafa tveir
landsleikir verið háðir i Osló, tveir i
Þrándheimi og tveir i Björgvin.
Fyrsti landsleikur Islands og Noregs
var háður i Reykjavik 24. júli 1947 og
sigruðu Norðmenn i skemmtilegum
leik með 4-2 og Albert Guðmundsson
skoraði bæði mörk Islands — fyrstu
islenzku landsliðsmörkin.
Annar leikurinn var i Þrándheimi
1951 og Norðmenn sigruðu með 3-1 og
einnig með sömu markatölu i Björgvin
1953. Fyrsti sigurinn gegn Norð-
mönnum vannst i Reykjavik 1954 og
sigurmarkið skoraði Þórður Þórðar-
son, faðir Teits, sem nú leikur með
landsliðinu. Lokatölur urðu 1-0. 1957
komu Norðmenn hingað með mjög
sterkt lið og sigruðu ísland i afmælis-
móti KSl 3-0, en 1959 sigraði Island
Noreg 1-0 á Laugard.vellinum i riðla
keppni Ólympiuleikanna fyrir Róm
1960. Rikharður Jónsson skoraði sigur-
markið með glæsilegum skalla. Siðari
leikurinn i keppninni var i Osló siðar
um sumarið og unnu Norðmenn þá 2-1.
Árið eftir, 1960, var einnig leikið i Osló
og aftur norskur sigur 4-0.
Niundi landsleikurinn var i Reykja-
vik 1962 og enn sigruðu Norðmenn 3-1
og einnig i landsleik 1968 á sama stað
4-0. 1969 var leikið i Þrándheimi öðru
sinni og Norðmenn sigruðu með litlum
mun 2-1, en i Reykjavik 1970 vannst
þriðji sigurinn gegn Norðmönnum 2-0
með mörkum Hermanns Gunnars-
sonar. Og i fyrra var leikið i Björgvin
öðru sinni og þá sigruðu Norðmenn 3-1
— i fjórða sinn, sem þeir hafa sigrað
með þeirri markatölu.
i þessum þrettán leikjum hafa Norð-
menn skorað 31 mark, Island 12. Norð-
menn eru með tiu sigra — Islendingar
þrjá, og hver verða nú úrslitin á
fimmtudag i fyrsta sinn, sem Noregur
og island mætast i heimsmeistara-
keppni i knattspyrnu?.
11
ALLT í FERÐALAGIÐ
íslenzk og sœnsk
TJÖLD
2ja, 3ja, 4ra og 5 manna
Svefnpokar
Bakpókar
íþróttabúningar
Gúmmíbátar
Allar veiðivörur
P0RTVAL
HLEMMTORGI slmi 14390
PÓSTSENDUM
Stefnt að þátttöku í
Evrópumótinu í golfi
Norska
Nokkrir leikir voru háðir i 1.
deildinni norsku i gærkvöldi og
helztu úrslit urðu þessi:
Brann-Fredrikstad 0-1
Lyn-Skeid 1-3
Sarpsborg-Viking 0-1
Víking 13 11 0 2 30-10 22
Strömsgodset 13 7 4 2 28-11 18
Fredrikstad 13 8 2 3 15-14 18
Rosenb. 13 4 5 4 14-11 13
Sarpsb. 13 5 3 5 16-16 13
Harmarkam. 13 5 3 5 10-10 13
Skeid 13 5 2 6 18-16 12
Mjöndal. 13 5 2 6 19-23 12
Lyn 13 3 5 5 17-16 11
Bran n 13 3 3 7 8-13 9
Hödd 13 2 4 7 10-25 8
Mjölner 13 1 5 7 5-20 7
knattspyrnan
Ársþing Golfsambands
Islands (GSi) var haldið s.l.
mánudag að Hótel
Loftleiðum. Á fundinum
voru mættir fulltrúar frá 9
af 13 golfklúbbum, sem
starfræktir eru hér á landi.
Þetta var 29. ársþing GSt, en
það er elzta starfandi sér-
samband, sem til er hér á landi,
á 30 ára afmæli u.þ. mundir
og verður haldið upp á það með
hófi i Átthagasal Hótel Sögu n.k.
laugardagskvöld- að loknu
islandsmótinu i golfi, sem nú fer
fram á Grafarholtsvelli.
Á þessu þingi kom m.a. fram,
að fyrirhugað er að taka þátt i
Evrópu-meistaramóti landsliða i
golfi, sem fram fer á trlandi
næsta sumar. Einnig að bjóðast
til að halda Noröurlandamótið
hér árið 1974, en frá hinum
Norðurlandaþjóðunum hafa
komið fram ákveðin tilmæli um
það.
Akveðiö var að halda næsta
tslandsmót i golfi i Vestmanna-
eyjum, en næsta ár á Golfklúbbur
Vestmannaeyja 35ára afmæli. Þá
var ákveöið að i framtiöinni verði
keppt i tveim flokkum kvenna á
tslandsmðti.... M.fl. og l.fl.
Reksturshagnaður GSt á árinu
var 16.400 krónur, sem má teljast
gott^.það sem sambandið hefur
litlar sem engar tekjur fyrir utan
styrki frá tSt.... en peningavand-
ræði há allri starfsemi þess, sem
og annarra sérsambanda ISt.
Stjórn GSt var öll endurkjörin,
en hana skipa: Páll Ásgeir
Tryggvason formaður. Aðrir i
stjórn. Ragnar Magnússon,
Konráö Bjarnason, Kristján
Einarsson, Hermann Magnússon.
Páll Asgeir Tryggvason
Sigurvegarar i Ambassadorkeppni Golfklúbbsins Ness á laugardag.
Endurskoðendur: Vilhjálmur
Ólafsson og Ólafur Bjarki
Ragnarsson. Dómstóll GSt.
Tómas Árnason, Óttar Yngvason
og Kristján Einarsson.
Hin árlega Ambassadorkeppni
Golfklúbbsins Ness var háð á
laugardag og sigraði John Ever-
ett, GÞ, á 73 höggum. Annar var
Leifur Arsælsson og þriðji ts-
landsmeistarinn Björgvin Þor-
steinsson, báðir með 75 högg.
Keppendur voru 65 og með forgjöf
sigraði Gisli Arnason á 64 högg-
um nettó.