Vísir - 22.08.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 22.08.1972, Blaðsíða 9
Visir Þriðjudagur 22. ágúst 1972 Vísir Þriðjudagur 22. ágúst 1972 9 Lokasýning danska fimleikaflokksins Danski fimleikaflokkurinn, sem hér hefur dvalið frá 8. ágúst og sýnt á nokkrum stöð- um á landinu, heldur kveðju- sýningu i iþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi i kvöld — en siðan heldur hann i hnattreisu. Sýn- ingin hefst kl. 20.30. Úrvalsflokkar dansks fimleikafólks hafa gert viðreist siðustu áratugina allt frá þvi Flensted-Jensen fór 1939 með drengjaflokk til Vestur-India, Bandarikjanna og Kanada. Nú er 12. flokkur hans á sýningar- l'erð. sem hófst hér i Reykjavik með ad'ingum og dvöl i Álftamýrarskóla. Siðan hefur verið sýnt á nokkrum stöð- um og á fimmtudag verður haldið til New York með Loftleiðum, þar sem danskir fimleikaflokkar hafa oft sýnt við góðan orðstir. Sýningar flokksins þar munu standa allt fram að jólum — sextiu sýningar allt frá Atlantshafsströnd Bandarikj- anna til Kyrrahafs. Hinn 20. desember heldur flokkurinn hins vegar heim til Danmerkur til að halda þar jól með vinum og ættingjum, en eftir nýár verður þráðurinn tekinn upp að nýju og þá haldið til Bangkok, Hong Kong og Kuala Lumpur — siðan Singapore, Ástralia og Indónesia. Og i mai-mán- uði lýkur svo sýningum og ferðalaginu með mörgum sýningum heima fyrir i Danmörku — þá kannski lika aðeins skroppið yfir til Englands. Fimleikaflokkur Flensted-Jensen, sém nú kveður Islendinga að sinni i kvöld. er úrval dansks fimleikafólks viðs vegar að úr Danmörku ogmargir þeirra hafa numið á þekktum, dönsk um fimleikaskólum. Að lokum má geta þess, að á lokahátið Olympiuleik- anna i Mexikó 1968 sýndi flokkurinn og hlaut mjög góðar undirtektir. Magnús dœmir í Lundúnum Magnús Pctursson mun dæma leik Tottenham og Lyn á White Hart Lane i London i septeniber i UEFA-bikarn- um, og Iínuverðir verða Einar Hjart- arson og Guðjón Finnbogason. Ilanncs Sigurðsson átti að dæma ieik i Evrópu- keppninni i Kaupmannahöfn, en kem- ur þvi ekki við vegna anna. Guðmund- ur Haraldsson dæmir leikinn, en linu- verðir verða Eysteinn Guðmundsson og Rafn Hjaltalin. t Corká trlandi dæmir Guðmundur einnig einn leik, en Einar lljartarson annan. Með þeim verður Valur Benediktsson. Fram nólgast meistaratítílinn - eftir jafntefli við íslandsmeistara Keflavíkur ó Laugardalsvelli í gœrkvöldi 1:1 Fram nálgast nú mjög islandsmeistaratitilinn i knattspyrnu, titil, sem félagið vann síðast fyrir tíu árum eða 1962.i gærkvöldi gerðu Fram og Keflavík jafntefli 1—1 i allþokka- legum leik á Laugardals- vellinum og Framliðið er nú komið með 16 stig — þremur meira en næsta lið, Akranes, og hefur þó leikið einum leik minna. Og með því stigi, sem Keflavik hlaut, þokaðist liðið af hættusvæðinu, þó svo eng- inn hafi reiknað með þvi, að Islandsmeistarar Kefla- vikur væru í fallhættu nú. Talsverður sunnan strekingur var á vellinum og það merkilega var, að bæði liðin áttu meira i leiknum, þegar þau léku gegn vindinum. Fram i fyrri hálfleik — Keflavik i þeim siðari. Mörkin létu ekki á sér standa. Á LEIKIR í 3. DEILD Tveir leikir voru nýlega háðir i 3. deild — A-riðlinum, þar sem Viðir hefur sigrað. Stjarnan stökk upp töfluna með fjórum stigum — vann Hrönn 1-0, og Reynir gaf leik sinn gegn liðinu úr Garðahreppi. Þá tapaði Fylkir i Árbæjarhverfi fyrir Njarðvik á Melavellinum 1- 2. Worthington til Leicester Leiccster City keypti i gær hinn kunna miðherja Huddersfield Towu — Frank Worthington. Kaupverðið var ekki gefið upp, en Jimmy Bloomfield, fram- kvæmdastjóri Leicester sagði, að það mundi fara talsvert eftir þeim árangri, sem Frank nær hjá Leiccster. Frank, sem er þekktastur fjögurra knattspyrnu- bræðra i ensku atvinnuliðunum, var injög i sviðsljósinu i sumar, þegar Liverpool „keypti” hann fyrir 130 þúsund sterlingspund, en siðan kom i ljós, að eitthvað ainaði að honum, þegar læknis- skoðun var framkvæmd, og Liverpool rifti kaupunum. Eftir það var hann mjög i fylgd með „Ungfrú England” þeirri, sem George Best hafði á gefið á bát-. . inn. i knattspyrnunni hefur Frank verið marksækinn miðherji — inarkhæstur leikmanna Hudders- field nokkur undanfarin ár. Fœreyingar í heimsókn Dagana 10.—17. ágúst dvaldi hér á landi i boði Vals,' meistara- flokkur karla frá félaginu Neistin i Færeyjum. Hann lék hér fjóra leiki og urðu úrslit þessi: 1. leikur Neistin - K.R. 18:17 2. leikur Neistin - K.A. 22:16 (Fór fram á Akureyri) 3. leikur Neistin - Haukar 13:27 (Fór fram i Hafnarfirði) 4.1eikurNeistin-Valur 13:31 Færeyingarnir héldu siðan heim 17.8. og voru mjög ánægðir meö dvölina. Þeir fóru i skoðunarferð til Þingvalla, Laugarvatns og Hveragerði. Ómar Arason, hinn ungi miðvörður Fram, spyrnir knettinum frá hættulegasta sóknarmanni islandsmeistaranna, Steinar'í Jóhanns syni. Ljósmyndir Bjarnleifur.* 11 minútu gaf Guðni Kjartansson langt fram völlinn til Harðar Ragnarssonar, sem komst inn- fyrir vörn Fram og skoraði fyrsta mark leiksins — aðeins minútu siðar jafnaði Fram. Gisla Torfasyni urðu þá á mistök upp við vitateiginn — hann gaf knöttinn beint til Eggerts Steingrimssonar, hins unga útherja Fram, og Eggert þakkaði gott boð — skoraði með fallegu skoti frá vitateignum. 1—1 og fleiri urðu mörkin ekki i leiknum, þó tækifæri væru nokkur hjá báð- um liðum, en jafntefli var sanngjarnt eftir gangi leiksins. Fram var hættulegra liðið i þess- um hálfleik — Keflvikingar i þeim siðari. Það kom talsvert á óvart, þvi þeir urðu fyrir talsverðum áföllum i þessum leik — misstu tvo góða leikmenn út af vegna meiðsla. Fyrst Astráð Gunnars- son, bakvörð, i fyrri hálfleik og tók Grétar Magnússon stöðu hans og gerði henni góð skil, og svo Karl Hermannsson i byrjun siðari hálfleiks. Magnús Torfason kom þá inn á. Keflvikingar voru miklir klaufar að skora ekki á 14 min. i siðari hálfleik. Steinar Jóhannsson, sókndjarfasti leik- maður Keflavikur, lék þá skemmtilega gegnum Fram- vörnina, og komst i gott færi. En hann var þá truflaður af Ólafi Júliussyni eða truflaði hann — báðir hefðu átt að geta afgreitt knöttinn i markið, en báðir hikuðu, ætluðu hinum að greiða Fram rothöggið — og hið góða tækifæri rann út i sandinn. Þorbergur Atlason var fljótur að skynja hættuna — renndi sér á milli þeirra og hirti knöttinn. Keflvikingar sóttu mjög þennan leikkafla og aðeins siðar reyndi Steinar markskot i vonlausri stöðu, þegar félagar hans stóðu friir fyrir markinu. Þessi tæki- færi Keflavikur voru góð, en illa nýtt, og eftir þau varð leikurinn að mestu þrátefli á miðjunni — hvorugt liðið náði þá nokkrum afgerandi leik. Þó munaði ekki miklu rétt' fyrir lokin, að Fram fengi ódýrt mark. Einn leikmaður Fram spyrnti þá heldur laust að markinu — Guðni lét knöttinn fara framhjá sér og ætlaði Þorsteini markverði hinn auðvelda bolta. En Þorsteinn var alveg óviðbúinn, en til allrar hamingju fyrir hann sleikti knötturinn markstöngina að utanverðu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður var leikurinn allþokkalegur af hálfu beggja liða. Keflvikingar ..rí§tú.i vel af sér slenið eftir stórtapið i Vestmannaeyjum á dögunum, og voru jafnvel öllu nær sigri. Guðni átti hreint skinandi leik i vörninni og var sá klettur sem flestar sókn'artilraunir Fram brotnuðu á. Einar átti einnig þokkalegan leik og vinstri bakvörðurinn kom mjög á óvart með ágætum leik Framlina Keflvikinga var talsvert hættuleg á köflum og þar lék Steinar betur en undanfarnar vikur. Bræðurnir Gisli og Magnús Torfasynir standa oftast vel fyrir sinu, þó svo úthaldið sé ekki i sem beztu lagi — veikindi háðu Gisla i vor. — veidindi háðu G&la i vor. Hjá Fram var vörnin sterk að venju, Marteinn að verða yfir- burðamaður sem miðvörður, og Þorbergur átti góðan dag i markinu. Miðjumennirnir voru kannski ekki eins afgerandi og oft áður i sumar — Asgeir ekki beint i „stuði” þó jafnv'el sem slikur sé hann betri en flestir og i framlin- unni tekur Elmar alltaf góða spretti, þó gæzla sé mikil á hon- um. Og eins og Elmar leikur kemst hann ekki hjá þvi af og til að verða „troðinn” niður. Dómari var Rafn Hjaltalin frá Akureyri og hef ég ekki i annan tima séð hann dæma betur. —hsim. Þrátefli í pólitískri glímu Pólitisk glima, fyrsta keppnisgrein tuttugustu Oly mpiuleikanna, var enn óútkljáð i Munchen i morgun — ennþá þrátefli um það livort fagna eigi þátttakend- um Rhódesiu eða þeim gefið spark brott af leikunum. Reiknað er með, að al- þjóða Olympiunefndin taki ákvörðun i málinu jafnvei I dag, þar sem opnunarhátíð leikanna færist nú stöðugt nær. Leiðtogar Afriku stóöu sameinaöir um þá hótun að lönd þeirra dragi sig i hlé fái Rhódesia að taka þátt i leikunum og aðrir svertingj- ar — þar á meðal nokkrir keppendur Bandarikjanna — hafa tilkynnt, að þeir muni fylgja þeim út úr Olympiu- þorpinu. iþróttamenn Ethiópiu héldu ekki heim i gær — en þeir höfðu pantaö flugmiða um miðjan dag, en breyttu þeim i „opna”, og hinu frá bæra lið Kenýu hefur verið tilkynnt af Jomo Kenyatta, forseta, að halda heim fyrir opnun leikanna á laugardag ef Rhódesia fær að vera með á lcikunum. Þarna voru Keflvikingar klaufar að tryggja sér ekki bæði stigin — Steinar lék inn i teiginn og hann og Ólafur Júliusson stóðu báöir fyrir opna marki Fram. En það varð misskilningur milli þeirra — báðir ætl uðu hinum að skora — og Þorbergur Atlason var þá ekkert að tvinóna við hlutina, renndi sér á milli þeirra og hirti knöttinn. „Be/.ti spretthlaupari heims” Valeri Borsov frá Sovétrikjunum hefur veriö mjög sigursæll I æfinga- mótunum i Munchen að undanförnu og er af flestum talin liklegastur til sigurs I 100 m hlaupinu, þrátt fyrir bandarisku svertingjana. Hann sigraði þá reyndar i landskeppni I Bandarikjunum i fyrrasumar. Sagt er, að Borsov hafi „engar taugar”, rólegri mann I keppni getur ekki og þessi mynd sannar það. Borsov litur þarna ósköp rólegur yfir hlaupabrautina i Munchen meðan aðrir keppendur undirbúa sig vel. En þegar út isprettinn var komið réð enginn neitt við Borsov — hann sigraði á 10.14 sek„ en næstur varð hinn kunni spretthlaupari þeirra Jamaikumanna Lennox Miller á 10.24 sek. Frá hægri eru á mynd- inni Felix Mata, Venesúela, Ray Robinson, Bandarikjunum, Lennox Millcr, Borsov, Gerhard Wucherer, Vestur-Þýzkalandi, sem varð 3ji og Papageorgupoulus, Grikklandi. Setti Evrópumet, en hleypur ekki 800 m í Munchen! - Ricky Bruch kastaði 65,52 m. í Helsinki með yfirburðum á 10.1 sek. Hann leika til að komast i úrslit i 100 m er af mörgum talinn hafa mögu- hlaupinu i Munchen. Valsstúlkur í úrslitum! Finnski stórhlauparinn Pekka Vasala, helrta von Finna í 1500 metrunum á Olympíuleikunum í Munchen, setti glæsilegt Evrópumet i 800 m hlaupi í landskeppni Finna og Svia í Heisinki um helgina — hljóp á 1:44.5 mín., og nú naga Finnar sig í handar- bökin, þvi Vasala á ekki að keppa í 800 metrum í Munchen— aðeins 1500 m. hlaupinu. Vasala var tuttugu metrum á undan keppinautum sinum i hlaupinu i Helsinki og stemning var gifurleg meðal áhorfenda, sem greindu að möguleiki var á heimsmeti. Svo varð þó ekki — Pekka skorti tvö sekúndubrot á það. Mjög góður árangur náðist i mörgum greinum i keppninni, sem Finnar sigruðu með yfir- burðum i — hlutu 236.5 stig gegn 173.5 stigum Svia. Enn einn finnskur stórhlaupari, og þeir eru margir, sem Finnar eiga nú, Kantonen, setti nýtt Norður- landamet i 3000 m hindrunar- hlaupi og náði öðrum bezta heimstimanum i ár eftir hörku- keppni við Sviann Gaerderud. Finninn hljóp á 8:23.0 min. en Svi- inn á 8:32.2 min. og áhorfendur urðu vitni að einhverju mesta hlaupaeinvigi, sem háð hefur ver- ið á Olympiuleikvanginum. Ricky Bruch náði prýðilegum árangri i kringlukasti, þeim bezta, sem hann hefur náð siðan hann keppti hér á tslandi. Hann þeytti kringlunni lengst 65.52 metra og sigraði með yfirburðum og finnski spretthlauparinn Vilen sannaði, að það var engin tilviljun hjá honum á dögunum, þegar hann hljóp á 10.0 sek. og setti Norðurlandamet. Hann spretti nú einnig mjög úr spori — sigraði Dagana 26. júli til 10. ágúst dvöldu 50 ung- menni frá Val i Dan- mörku og Sviþjóð og tóku þátt i tveim alþjóðamótum i hand- knattleik. Fyrra mótið fór fram i Valby, Danmörku og tóku þátt i þvi 522 lið frá mörgum löndum i Evrópu, og lætur nærri að um rúmlega 6000 einstaklingar hafi veriö keppendur I liðunum. Valur lék i þrem flokkum, 16 til 17 ára og 18 til I9ára drengjaflokkum, og loks 18 til 19 ára stúlknaflokki. Og komust öll liðin i undanúrslit. Drengir 16 til 17 ára. Valur : Irsta Sviþjóö 6:6 Valur : Tsc. Oberursel, Þýzk. 9:5 Valur : Avedöre Danmörk 6:4 Valur : G.U.I.F. Sviþjóð 7:8 Piltar 18 til 19 ára. Valur : K.F.U.M. Borás 4:3 Valur : Viborg Danmörk 6:4 Valur : Efk. Nyköping Sviþjóð6:4 Valur : I.K. 25 Sviþjóð 8:6 Valur : Fjellhammer Noregi 5:2 Valur : H. 43Sviþjóð 6:9 Stúlkur 18 til 19 ára. Valur : Norbygda Noregi 3:2 Valur : Tuve I.F. Sviþjóð 2:2 Valur : Acta Danmörku 14:0 Valur : Herlev 2:2 Valur tapaði leiknum á vitakast- keppni 3:6 Siðara mótið, sem Valur tók þátt i var haldið i Partille, sem er ákaflega fallegur bær, 17 km fyrir utan Gautaborg. Það mót var lika sótt af liöum allsstaðar að úr Evrópu, en i þvi tóku þátt um 300 liö með um 3000 þátttakendum. Þar komust tvö lið Vals i undan- úrslit, eða bæði piltaliðin, en stúlknaliðið komst i hrein úrslit. Annars urðu úrslitin þannig: Drengir 16 til 17 ára. Valur : Fredensborg Noregi 15:8 Valur : Nordsten Sviþjóð 9:6 Valur : Bergdorf Þýzkl. 14:4 Valur : Holbæk Danm. 7:6 Valur : Brennan, Sviþj. 9:11 Valur : Mörkhöj Danm. 9:10 Valur : Glostrud Danm. 5:5 Piltar 18 til 19 ára. Valur : Ohligser Þýzkl. 10:7 Valur : Burg-Gretesch Þýzk.H:5 Valur : Swithiod Sviþj. 6:8 Valur : Mosbach Þýzkl. 7:6 Valur : Kroppskultur Sviþj. 16:11 Valur : Sulzbach 8:10 Stúlkur 16 til 17 ára. Valur : JustSviþjóð 10:3 Valur : Heid Noregi 6:1 Valur : Glostrup (2) Danm. 11:2 Valur : Holbæk Danmörk 7:3 Valur : Ostliden Sviþj. 12:3 Valur : KalmarSviþj. 5:2 Valur : Glostrup (1) 5:7 Þetta var úrslitaleikur mótsins Að loknum úrslitaleiknum var kosin bezta handknattleikskona mótsins og var það ein af Vals- stúlkunum Svala Sigtryggsdóttir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.