Vísir - 23.08.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 23.08.1972, Blaðsíða 1
VÍSIR 62. árg. — Miðvikudagur 23. ágúst — 190 tbl. BRJÓSTAHÖLD Á UNDANHALDI Svo virðist sem brjóstahöld séu burði, og það viil einnig um ieið á undanhaldi. Kvenfóikið er farið vera eðliiegt. En karimennirnir að gerast frjáislegra i kiæða- virðast ekki alveg vera á þeim buxunum að konurnar kásti brjóstahöldunum, að minnsta kosti virtist svo ekki vera þegar Visismenn tóku nokkra tali í mið- bænum i gær. En hljóðið var ann- að hjá kvenfólkinu. Þetta er frjálsleg og góð tizka, kvað við hjá þeim, og þær voru ekkert að hika við það að segja frá þvi hvort þær sjálfar notuðu slikan hlut ennþá eða ekki. Sjá NÚ-síðu bls. 4. YFIRLÆKNIR AFLAND SPÍTALANUM TIL KÍNA AÐ LÆRA NÁLAR STUNGU AÐFERÐINA — sjó baksíðu INGIMAR ÓSKARSSON ORÐINN LEIÐUR Á ERINDUM — sjó útvarpsum mœli bls. 13 HÁLFUR ANNAR UM HERBERGIÐ í SOVÉT — sjó bls. 6 PÓLITÍKIN í IÞRÓTTUNUM — sjó leiðara bls. 6 ÞEGAR HAUST NEPJAN NÆÐIR — sjó INN-síðu bls. 7 Grunsemdir fyrlr rúmri viku: U beint gegn Fischer! Truflununum / h / Erlendir fréttamenn senda skuggaleg tiðindi frá Laugardalshöll i gærkvöldi. Nokkrir islendingar höfðu samband við blaða- mann Vísis, meðan þrett- ánda skákin stóð, og sögð- ust hafa séðtil Sovétmanna bak við Laugardalshöll með einhvers konar tæki. Rússarnir voru i lokaðri bifreið bak við húsið, og segjast íslendingarnir hafa séð einn þeirra sitjandi í myrkri í biæjubilunum með tæki milli fótanna. Þeir kölluðu til lögreglu, sem. kvaðst ekkert geta gert i málinu, þar sem bifreiðin var með CD- númeri, númeri erlendra diplómata. Magnús Einarsson lögreglu- varðstjóri, sem Islendingarnir segjast hafa haft samband við, vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið, þegar Visir ræddi við hann i morgun. Blaðamaður Visis fann að visu mann i lokaðri bifreið bak við hús, en frekari athugun málsins leiddi ekki til neins að svo stöddu. En málið hefur vissulega vakn- að i nýrri mynd með ákærum Sovétmannsins Gellers i gær- kvöldi, þar sem hann fjallar um grun um tæki og efni, sem beint kunni að vera gegn Spasski til að trufla hugsun hans. Geller krefst rannsóknar á Laugardalshöll og hlutum i henni. Ákærur Gellers eru merkilega samhljóða grunsemdum tslendinganna um Sovétmenn fyrir rúmri viku. tslendingarnir álitu, að vera kynni, að Sovét- menn beindu gegn Fischer ein- hverri „truflun” með rafmagni, „elektrónik”. Frásögn tslendinganna, sem vilja ekki láta nafna sinna getiö að svo stöddu, fer þvi hér á eftir. Þeir kváðust hafa fylgzt með þeim mönnum, er þeir hafi séð i bilnum og félögum þeirra. Telja þeir vist, að þeir hafi verið Sovét- menn. Einn þeirra var með mikinn sjónauka og settist i fremstu röð og beindi kikinum að keppendum. Þeim þótti meðal annars með ólikindum, að maðurinn notað sjónauka að ráði á fremsta bekk og ýtti það með hinu undir áhuga tslendinganna. Fóru þeir og sett- ust fyrir aftan þennan mann og félaga hans. Þeir segja, aö maðurinn hafi haft uppi i sér hlut, sem liktist helzt eldspýtu, en var kolsvarturog hafi hann rennt hon- um inn og út úr munni sér. En fljótlega kom þriðji maöur aðvif- andi og virtist aðvara hina tvo, sem gengu þá úr salnum. Fleira töldu tslendingarnir sig veröa vara við i þessu sambandi, sem vakti grunsemdir. Hins veg- ar virtist ekkert unnt að aðhafast. En nú ber Sovétmaðurinn Geller fram grunsemdir, sem eru, að hans sögn „fáranlegar” við fyrstu sýn en hann telur þó gera nauðsynlega rannsókn á höllinni, það er að segja leit að slikum tækjum. Málið vekur auðvitað fleiri spurningar en það svarar. Ein spurningin er: Hvaða samband er milli grunsemda Islendinganna fyrir rúmri viku og yfirlýsingar Gellers i gærkvöldi? Chester Fox sagði i morgun, að þetta væri allt einhver brandari, en enn hefur enginn hlegið nema amerisku blaöamennirnir i gær- kvöldi. HH/GP Sagan endurtekur sig — ástandið í landhelgisdeilunni líkt og um þetta leyti árið 1958 Brezk yfirvöld hafa engu svaraö fullyrðingum brezkra togaraeigenda um að herskip verði send á Is- landsmið/ til verndar togurunum gegn islenzku varðskipunum. Nú stefna togarar frá Grimsby og Hull á miðin við ísland, og ætla sér að fiska inna 50 milna mark anna nýju, þar eð Bretar telja sig hafa til þess allan rétt. Breitt er yfir nöfn og númer skipanna, og hafa skipstjórar fyrirmæli frá út- gerðarfélögunum um að hleypa ekki varðskipsmönnum um borð — beita hörðu ef freistað verður uppgöngu. Einnig mun skipstjór- um hafa verið gefin fyrirmæli um að aðstoða hver anna, s.s. sigla á milli landhelgisbrjóts og togara, ef sýnt þykir að varðskip ætli að nálgast hann. I ágúst árið 1958, þegar brezkir togarar stefndu tugum saman á Islandsmið og ætluðu að fiska innan 12 milna markanna, sem þá voru ný, var sama uppi á teningn- um. Hins vegar kom i ^Jjós 1. september, að þótt menn bæði i Bretlandi og á Islandi heföu ekki viljað trúa því að Bretar beittu herskipum gegn tslendingum, þá birtust mörg herskip hér við land og komu þau þráfaidlega i veg fyrir aö varðskip gæti tekið land- helgisbrjót. Eins og fulltiða fólki mun i fersku minni, var framkoma brezku herskipanna hér við land næsta gróf — hins vegar kom fljótt i ljós, að jafnvel þótt Bretar girtúaf togaraflota sinn með her- skipum og toguðu i grið og erg hér á landgrunninu og raunar upp undir kletta, þá var aflinn afar litilfjörlegur. „Þetta gengur ekki”, sagði þá- verandi formaður félags togara- eigenda i Bretlandi,” viö mynd- um núna semja um sex milna lendhelgi ef Islendingar vildu”. Islendingar vildu hinsvegar 12 milur ekki 6, og i 18 mánuði eld-' uðu islenzku varðskipin og brezki flotinn saman grátt silfur undan ströndum landsins. Og nú, fjórtán árum eftir upp- haf Þorskastyrjaldarinnar fyrri, er hún að hefjast, Þorskastyrjöld númer tvö. —GG —Sjá grein bls. 2

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.