Vísir - 23.08.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 23.08.1972, Blaðsíða 2
2 Visir Miðvikudagur 23. ágúst 1972 VÍSIS!iF7It: Er sumariö búiö? Anna Svcinsdúttir, afgreiftslust.: Kom þaf> nokkurn tima? .lún M. Júnsson, afgreiftslum.: Já, þaf) er aldrei aft vita nema aft rætist úr þvi þó af) september sé af) koma. Það eru oft góftir sólar- dagar i byrjun september og hver veit nema af> sumarift haldi eitt- hvafiáfram þó þaf) hal'i verif) ansi lélcgl, hingaf) til. Ingibjiirg l>úrsdúllir, nemi: Ilcfur nokkuf) sumar verifi'f fcg hef minnsta kosti ekki oröif) vör vif) þaf). l>af> kemur varla héöan af. Anna .lúnastlútlir. húsmóöir: Nú veit ég ekki hvaf) skal segja. Nei ég ætla af) vona af) þaf) verf)i eitt hvaf) áfram þó þaf) hafi verif) slæmt. Sú I v e i g (1 u f) m u n d s d ú 11 i r . húsmófiir: Nei, Þaf> verfmr áreiöanlega lengra en þetta. Ég get ekki imyndað mér annað. Guðjún Gústafsson,nemandi: Já, alveg örugglega. Ég býst ekki við þvi að það verði lengra. Þorskastyrjöldin fyrri — Kaustið 1958 dró til mikilla tiðinda ó miðunum við ísland — brezk herskip meinuðu íslenzkum varðskipum að taka landhelgisbrjóta Bretar húta aö virða væntan- lega 50 mflna landhelgi tslend- inga að vettugi. Þeir ætla að senda yfir 200 togara á miöin við ísland og láta þá alla fiska innan hinnar nýju landhelgi. Þeir segj- ast ætla að sporna við, ef islenzk varðskip gera sig likleg til að taka hrczkan togara fyrir landhelgis- hrot. Togaraskipstjúrar i Grimsby og II u II tala digurbarkalega. Éinnig togaracigendur. Þeir hafa larið fram á herskipavernd við Island. 1. september, þegar við færum út landhclgina i 50 milur hefst nýtt þorskastrið. l>að virðist a.m.k. ekki við öðru að búast. 1958, þegar landhelgin var færð út i 12 milur, voru við- brögð Breta mjög á sömu lund og nú. Kringum 20. ágúst það ár, var frá þvi skýrt i islenzkum blööum, að togaramenn i Bretlandi vildu herskipavernd við tsland. Ekki var reiknað með að yfir- völd myndu verða við þeim óskum togaraeigenda. begar svo brezki togaraflotinn birtist á tslands- miðum og innan 12 milna fisk- veiðimarkanna, voru freigátur i för með togurunum. „Sögulegur fundur” Mánudaginn 1. september 1958, var fimmdálka mynd á forsiðu Visis, tekin úr flugvél Landhelg- isgæzlunnar, sem flaug með fréttamann yfir þyrpingu brezkra logara, sem allir toguðu innan 12 milna markanna undir vernd brezku freigátunnar H.M.S. Hussel. „Freiðgátan sigldi ætið i veg fyrir varðskipin” — hljóðaði fyrirsögn Visis, og undir henni stóð m.a.: „Söguleg- ur l'undur islenzkra varðskipa, Óðins og Alberts og brezku frei- gátunnar H.M.S. Russel átti sér stað fjórar sjómilur undan landi l'rá Kópanesi við Arnarfjörö klukkan 8,30 i morgun... Svo lengi sem til sást, var freigátan á milli logaranna og varðskipanna, svo, sem til að hindra afskipti þeirra af landhelgisbrjótunum”. Samningaumleitanir við Breta stóðu fram á siðasta dag. 30. ágústátti Hermann Jónasson, þá- verandi forsætisráðherra siðasta fund með brezka sendiherranum hér á landi, en sá fundur bar eng- an árangur. Og daginn áður, þann 31. ágúst, var haldinn fundur i Washington með fulltrúa Dulles utanrikisráðherra Bandarikj- anna, brezka sendiherranum i Washington og Thor Thors, þá- verandi sendiherra Islands i Washington. Reyndi Bandarikja- maöurinn að bera klæði á vopnin, en án árangurs. Mun siðasta til- laga hans hafa verið samhljóða fyrri tillögumum að landhelgin skyldi fyrst um sinn miðast við sex milur, en Bretar fá vissar undanþágur til veiða innan 12 milna að þessari sex milna land- helgi — a.m.k. um hrið. Vitanlega gat ekkert framhald orðið á slíkum viðræðum, og 2. september segir Visir á forsiöu undir fyrirsögninni: „FAHEYRT OFBELDI”. „Snemma i morgun stöðvaði is- lenzkt varðskip brezkan togara sem var að veiðum fimm sjómil- ur fyrir innan landhelgislinuna og setti sex óvopnaða varðskips- menn um borð i hann. Togara- menn gerðu sig liklega til að varna varðskipsmönnum uppgöngu á skipið og höfðu bar- efli og annað útbúnað i þvi skyni. En er varðskipsmenn létu það ekki á sig fá, sýndu togaramenn ekki frekari mótþróa. Siðan kom brezka herskipið Eastbourne á vettvang og eftir allmikið þóf setti það sjóliða um borð i togarann og tóku þeir is- lenzku varðskipsmennina burt með valdi og fóru með þá yfir i herskipið, en skipherrann á is- lenzka varðskipinu hafði mót- Sá frægi landhelgisbrjútur, Grimsby-togarinn Brandur kemur til Rey kjavikur. mælt aðgerðunum og neitað að taka viö varðskipsmönnunum aftur um borð. Á meðan á þessu stóð hafði brezka togarann rekið aðeins inn fyrir gömlu fjögurra milna landhelgislinuna. Samtimis þessu reyndi annað islenzkt varðskip að setja menn um borð i annan brezkan togara en varðskipsmönnum var þar mætt með járnstöngum, barefl- um, öxum og vatnsslöngum og hurfu þeir frá. Atburðir þessir gerðust út af Norðfjarðarflóa fyrir Austur landi”. ,,íslendingar láta aðeins undan vopnavaldi” 2. september skýrði Visir einnig frá fleiri ofbeldisaðgerðum Breta undan Austfjörðum. Sagði blaðið m.a.: „Nokkrum stundum eftir hirtingu i morgun kom islenzkt varðskip að brezkum togara inn- an landhelgi. Þetta var Northern Foam, sem er i eigu sama félags og Northern Sky, sem tekið var um iniðjan mánuð og sýndi mót- þrúa... Komiö var að togaranum um klukkan niu, og voru skipverjar af varðskipinu sendir um borð i hann, þegar að honum var komið. Reyndist skipið vera þrjár milur innan nýju landhelginnar, eða um niu milur út af Dalatanga. Skipstjórinn á brezka togaran- um kallaði þegar á brezkt her- skip, sem verið hefur undan Aust- fjörðum að undanförnu, og kom þaö á vettvang eins fljótt og við var komið. — Þegar brezka her- skipið kom á vettvang, mun skip- stjóri þess hafa mótmælt þvi að islenzka varðskipið skipti sér af togaranum, þar sem hann væri að löglegum veiðum á hafi úti, en til áherzlu sendi hann sjóliöa um borð i togarann, til þess að vernda skipverja á honum fyrir íslend ingum. Annað islenzkt varðskip mun hafa veriö i grenndinni og mun það einnig hafa komið á vett- vang...Varðskipsmennirnir is- lenzku eru að sjálfsögðu óvopnað- ........ iisi n f '"sla "II fram á ósigur Breta *'las,,orn ath“9ar færeyjalandhelgi «!. Irou miJ, ‘“SuritaoUu n'ður, segir 'ronsk frcttastoía ■>...uj4r. ...... ' 1>.„. .............................. Varðskip tekur hrezkani togara í helgj - brezkum sjotöum tetit »X lalta ir og geta þeir vitanlega ekki rönd við reist, ef Bretar gripa til vopna sinna, en það er eðlileg ósk allra, að til slikra örþrifaráöa veröi ekki gripið....” Ráðizt að brezka sendi- ráðinu Eins og ævinlega þegar land- helgin er annars vegar, stóðu ís- lendingar sem einn maður saman gegn framferði Breta innan 12 milna landhelginnar. Þegar ljóst var, fyrstu daga septembermán- aðar 1958, að Bretar myndu ætla að verja togara sina með kjafti og klóm, þar sem þeir toguðu innan 12 milna linunnar, brauzt út reiði- alda um allt Island. Mótmæli voru send úr öllum landshornum til brezka sendi- ráðsins i Reykjavik, og hundruð reykviskra unglinga, réðust að brezka sendiráðinu við Laufás- veg. Brotnar voru rúður i húsinu og reyksprengja sprengd við þaö. Meiðsli urðu ekki á mönnum, en á heimili sendiherrans, Andrews Gilchrist, voru þegar þessar ósepktir urðu, staddir nokkrir brezkir blaðamenn. Bárust þvi fregnir af þessu upp- hlaupi viða um heim, og voru blöðin i Reykjavik á þvi, að þess- ar óspektir unglinganna hefðu ekki orðið málstað okkar til fram- dráttar. Visir sagði með feitu letri á forsiðu 3. september: „Framferði og ofbeldisverk brezku rikisstjórnarinnar og brezkra togarasjómanna innan landhelgismarka íslands hafa vakið óhemju gremju hjá alþjóð. Hefur hin ósvifna valdbeiting Breta gegn litilli og vonlausri þjóð vakið sársaukafulla og bitra reiði tslendinga gagnvart þjóð, sem við töldum til þessa vini vora og bandalagsþjóð”. 4. september skýrði Visir svo frá þvi, að litlar likur væru á að Bretar myndu til lengdar ætla sér að veiða innan 12 milna landhelg- innar undir vernd herskipa. Þáverandi formaður félags brezkra togaraeigenda sagði i Grimsby þann dag, að alls væru 42 brezkir togarar á þremur veiöisvæðum við tsland og undir herskipavernd. Sagði formaður- inn, Sir Farndale Philips, að afli togaranna væri mjög litill og sagðist hann ekki búast við að togararnir yrðu á þessum svæð- um lengur en þrjá daga. Sagði Sir Farndale að togaraeigendur æsktu varanlegrar lausnar, og stakk upp á sex milna landhelgi við Island, og yrði sú útfærsla að vera endanleg. Þorskastrið númer tvö En þorskastriðinu við tsland lauk ekki á þessu sviptingasama hausti, 1958. tslendingar þurftu aö leggja sig alla fram og beita ekki aðeins þrjózku og þrautseigju i viðureign við brezka togara og herskip. Deilunni lauk ekki fyrr en tveimum árum siðar, þegar loks var gengið að samningaborði við Breta. Og enn rennur brátt upp 1. september og ný lándhelgislfka. Að þessu sinni miðum við hana við 50 milur (og þykir sumum ekki of mikið) og ætlum okkur að standa við þessa útfærslu, fastar en fótunum. Hvort Bretar senda á okkur herskip sin að þessu sinni, er enn ekki vist — hins vegar munu þeir eflaust ætla sér að fiska innan 50 milnanna eins og hingað til. Vinna áfram að útrýmingu þorsk- stofnsins hér við land. Það verður hins vegar forvitni- legt að sjá, hvort þeir vopna tog- arasjómenn sina bareflum og etja þeim gegn varðskipsmönnum is- lenzkum, þegar leitað verður uppgöngu á landhelgisbrjótana. Næstu daga verður frekar skýrt frá viöureign islenzku varöskipa- krilanna við skip hennar hátign- ar i islenzkri landhelgi. — GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.