Vísir - 23.08.1972, Qupperneq 3
Visir Miðvikudagur 23. ágúst 1972
3
„Eitrað peð" og hœp-
in skiptamunsfórn
og Fischer hlýtur að tapa
• ••
i fyrsta sinn á ævinni
teflir Bobby Fischer
júgósla vneska leikinn
kenndan við Júgóslavann
Pirc. Það sýnir kannski að
Fischer hafi verið full
einhæfur i byrjanavali
undanfarin ár. Hins vegar
hefur hann gætt gömul
afbrigði nýju lífi, endur-
bætt þau og gert þau fersk
og nýstárleg, byggir sem
sagt oft á gamalli hefð.
t Pirc-vörninni fær hvítur oft
góöar sóknarstöður en þarf aö
tefla af varfærni og vanmeta
ekki andstæðinginn. Sovét-
mennirnir, einkum Gufeld
Gipslis og Kortsnoi hafa manna
mest rannsakað Pirc-leikinn að
undanförnu og gert mikilvægar
uppgötvanir.
Engu að siður er Fischer
óhræddur að beina skákinni inn
á rússneska farbraut. í 6. leik
afræður hann að flækja skákina
nokkuð og býður upp i heljar-
mikinn dans. Mögulegt var fyrir
Spasski að skáka á b5 með bisk-
up en við það verður skákin
mjög flókin. Spasski lætur ekki
rugla sig en teflir af rólegri
ihugun. Eftir að Fischer kemur
biskup sinum til g4 virðist h3 hjá
hvitum vera eðlilegasta fram-
haldið. Við það yrðu manna-
kaup á f3 og ákjósanleg sóknar-
færi hjá hvitum þó vissara sé að
flýta sér hægt i slikum stöðum.
En Spasski er ákveðinn i að
sækja ekki vinning i hendur
Fischer með sókn og áræðni.
Hann gripur til þess ráðs að
tefla varfærnislega, nokkuð sem
hingað til hefur ekki komið að
neinu haldi á Fischer.
Petrosjan hinn mikli varnar-
skákmaður hefur reynt þetta
gegn hinum sigurglaða áskor-
anda, nú siðast i einviginu milli
þeirra i Buonos Aires. Allt kom
fyrir ekki. Til þess að sigra
Fischer þarf dirfsku og sóknar-
æði, hann verður ekki unninn á
annan hátt. Spasski hyggst nú
festa biskup sinn á drottningar-
væng og stjórna sóknaraðgerð-
um þaðan.
En nú kemur til sögunnar
„eitrað peð” eða hvað? Fisch-
er hyggur minnsta kosti á land-
vinninga og stendur nú til boða
að skipta upp riddaranum á c3
og sterkum biskup sinum á g7
og vinna þannig peð. Kannski er
það kaldhæðni örlaganna að það
er einmitt þetta peð sem varð
honum að falli i 11. skákinni.
Spasski blæs liði sinu til
kóngssóknar, þó i fyrstunni
virðist hann ekki fá nægilega
mikið út úr peösfórninni. Og þó.
Mikilvægur varnarmaður
Fischers biskupinn á g7 er horf-
inn og möguleikar til sigurs eru
hjá Spasski.
Fischer sér fram á erfiða vörn
og til að létta á stöðunni neyðir
hann sjálfan sig til þess að fórna
skiptamun. Liklega gat hann
reynt eitthvaö annað en hræðsl-
an við peðasókn Spasskis hefur
sjálfsagt orðið honum um megn.
Það verða drottningaruppskipti
i kjölfar fórnarinnar og Spasski
stendur uppi með unnið tafl.
En það verður þungur róður
og sigurinn tæknilegt atriði sem
krefst ýtrustu einbeitingar.
Hvitur hefur báða hrókana og 5
peð en svartur hrók, riddara og
6 peð.
Ef Spasski vinnur ekki þessa
skák þá vinnur hann enga skák.
Svo virðist sem hann sé að
sækja i sig veðriö og reynsla
hans i tveim heimsmeistara-
einvigum liðinna ára sé nú að
koma i ljós.
Sigri hann nú kemur aukin
spenna i einvigiðTveilrvinningar
skilja þá á milli. Staðan er 9 1/2
: 6 1/2 og biðskákin verður tefld
i dag og hefst kl. 5. GF
Hejmsmeistaraeinvígið í skák.
17. skákin.
Hvitt : B. Spassky Svart : R. Fischer Pircvörn.
1. e4 d6 21. Khl De5
2. d4 g6 22. Bxf8 Hxf8
3. Rc3 Rf6 23. He3 Hc8
4. f4 Bg7 24. fxg6 hxg6
5. Rf3 c5
6. dxc5 Da5
7. Bd3 Dxc5
8. De2 0-0
25. Df4 Dxf4
26. Hxf4 Rd7
27. Hf2 Re5
28. Kh2 Hcl
Spasski
Fischer
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. Vinningar
1 1 0 1/2 0 O 1/2 0 0 1/2 . 1 1/2 0 1/2 1/2 1/2 6 1/2 (og biðskák)
0 0 1 1/2 1 1 1/2 1 1 1/2 0 1/2 1 1/2 1/2 1/2 9 1/2 (og biðskák)
HVERT FER HANN
MEÐ HROSSIÐ?
Það var glatt á hjaila á 17.
skákinni i gær, að minnsta kosti i
austurálmunni. Þar voru saman-
komnir nokkrir blaðamenn og
fylgdust með skákinni af miklum
áhuga og gerðu sfnar mætu at-
hugasemdir. Einn þeirra var
Jens Enevoldsen skákmeistarinn
og rithöfundurinn frá Danmörku.
Hann er hress og kátur karlinn,
áreiðanlega um sextugt þó sumir
haldi ef til vill að hann sé eldri.
Þarna var ungt smáskáld nýkom-
ið frá Englandi og gaf sig á tal við
Danann. „Tefldir þú ekki við
Capablanca 1912? Þá brosti Jens
gamli og sagði i góðlátlegum
grintón: „Ja, ég er nú fæddur
1912” og þar með var það útrætt.
Grettisfang tók lika þátt i rann-
sókninni i gær og lagði sitthvað til
málanna. Staðan var flókin og
sýndist sitt hverjum. Stóru
Rússarnir Krogius og Geller
sneru bara upp á sig þegar þeir
voru spurðir álits á stöðunni.
Frammi á gangi og uppi i
bakkabúðinni hans Björns okkar
Bjarman var auðvitað krökkt af
A simstöðinni. Þessi ungi mað-
ur með skeggið er hinn þekkti
stórmeistari Kavalek frá Tékkó-
slóvakiu, sem nú er orðinn banda-
riskur þegn.
fólki með misjafnar hugmyndir
um skák. Þegar Fischer lék
riddaranum til h5, sagði einn ná-
ungi sem hafði setið og horft yfir
sig spenntur á ganga mála:
„Hvert fer hann með hrossið?”
Já, það eru margir sem koma á
einvigið og sumir hafa aldrei séð
taflborð fyrr. Hvernig væri ann-
ars að fjölmenna með kornabörn i
Höllina til þess að þau geti, svona
um 2040-50, þá hrum og elliær
sagt frá að þau hafi séð einvigið
milli Fischers og Spasskis 1972?
Hjá minjagripabúðinni er Guð-
jón Stefánsson framkvæmda-
stjóri Skáksambandsins, sá sem
ber hitann og þungann á sinum
herðum. „Nú verður ofsafrétt
Rikisieyndarmál? Guðmundur
G. Þórarinsson og Halldór E. Sig-
urðsson fjármálaráðherra eru
kannski að ræða skattiagningu
Fischers og Spasskis.
fyrir ykkur segir hann við blaða-
menn. Það verða allar simalinur
rauðglóandi á eftir.” Rétt á eftir
kom plaggið frá meistara Geller
sem fékk m.a. hörðustu menn
eins og Cramer ljóstæknifræðing
til þess að vikna.
Fox sjálfur stendur hjá telexn-
um og biður eftir simtali að vest-
an. Hann styttir sér stundir með
þvi aö blaða i myndabók um
„vin” sinn Fischer. (Ef við flett-
um upp i islenzkri orðabók og
finnum orðið fox þá merkir það i
islenzku máli: 1. norn, meinhorn.
2. refur: svik. Þá höfum við það.)
Þegar skákin er að fara i bið
kemur sá frægi þjálfari Sovét-
manna i gegnum árin Isak Boles-
lavski og þegar hann er spurður á
bjagaðri þýzku hvor muni vinna,
þá segir hann: „Ég veit ekki.
Kannski Spasski. Hann á veika
von um sigur.”
GF
„Jæja þá höfðum við það,
skýrslu frá Gelier”, virðist hann
vera að segja Guðjón Stefánsson
framkvæmdastjóri Skáksam-
bandsins og viðmælandi hans er
eftir baksvipnum að dæma, Guð-
mundur Einarsson, verkfræðing-
ur einn af ráðgjöfunum varðandi
einvfgið.
9. Be3 Da5
10.0-0 Bg4
■ll.Ha-dl Rc6
12. Bc4 Rh5
13. Bb3 Bxc3
14. bxc3 Dxc3
15. f5 Rf6
16. h3 Bxf3
29. H3-e2 Rc6
30. Hc2 Hel
31. Hf-e2 Hal
32. Kg3 Kg7
■
1 1 i i®
«1 £
£
£ m
£ s £
X .
33. Hc-d2 Hfl
34. Hf2 Hel
35. Hf-e2 Hfl
36. He3 a6
37. Hc3 Hel
38. Hc4 Hfl
17. Dxf3 Ra5* 39. Hd-c2 Hal
18. Hd3 Dc7 40. Hf2 Hel
19. Bh6 Rxb3 10. stöðumynd
20. cxb3 Dc5+ Biðskák.
Jóhann örn Sigurjónsson