Vísir


Vísir - 23.08.1972, Qupperneq 5

Vísir - 23.08.1972, Qupperneq 5
Visir Miðvikudagur 23. ágúst 1972 5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND UMSJON: HAUKUR HELGASON Sœnskur keðjubréf a- kóngur flúinn með hundruð milljóna Hafði keypt sér hús ú Mallorka og komið sér undan með konu og 400 milljónir króna 39 ára forstjóri í Svíþjóð er grunaður um að hafa smyglað um tuttugu milijónum sænskra króna (nær 400 milljónum ís- lenzkra) úr iandi og flúið til Mallorca með konu og sjö börn. Lögreglan brauzt i gær inn i ibúð forstjórans i Eskiltuna til að taka veð vegna ógreiddra skatta, sem nema um 173 þús- und sænskum krónum. tbúðin var nær tóm. Þar voru aðeins nokkrir stólar og lampar eftir. Bátur fjölskyldunnar er horf- inn, og lögreglan telur að hann hafi verið notaður við undan- komuna. Náinn samstarfsmaður for- stjórans sagði i fyrri viku i við- tali i blaðinu Eskiltuna-Kurier- en, að forstjórahjónin hefðu sið- astliðið hálft annað ár aflað sér tekna með keðjubréfum. Forstjórinn hafði fyrir nokkru sagt, að hann ætlaði til Mall- orca, og lögreglan veit, að hann keypti sér þar hús fyrir 800 þús- und sænskar krónur. Telur hún, að forstjórinn hafi jafnan haft með sér stórar fjárhæðir, þegar hann fór i utanferðir. Hann er sagður hafa verzlað með keðjubréf i Finnlandi. Margar þúsundir Svia og Finna eru sagðar hafa keypt þessi keðjubréf fyrir tæpar 200 is- lenzkar krónur stykkið, að sögn NTB-fréttastofunnar. Forstjórinn kom fram i sjón- varpi i Finnlandi i maí 1970. Þar sagði hann frá keðjubréfunum og lögreglan handtók hann strax eftir sendingu þáttarins. F’rekari ef tilgrennslan reynd- ist ekki heiglum hent. Yfirvöld gáfust loks upp við að komast til botns i málinu. Dómstóll mat tekjur manns- ins af keðjubréfunum á um 30 milljónir islenzkra króna. For- stjórinn hefur þó ekki greitt finnska rikinu þetta fé. Höfuðborgin umkringd Herinn umkringdi í gær Santiago höfuðborg Chile, eftirað Allende forseti lýsti yfir neyðarástandi. 159 manns hafa verið teknir höndum til þessa vegna verkfalls kaupmanna, sem mótmæla verð- bólgunni i landinu. Stjórnin hefur fyrirskipaðkaupmönnum að opna verzlanir sinar. Kristilegi demókrataflokkur- inn, sem er i stjórnarandstöðu, hefur boðað mikinn kröfufund 30. ágúst til að mótmæla skorti á matvælum og verðhækkunum. Bravo yfirhershöfðingi segist munu taka hart á ólöglegum kröfugöngum og borgurum er bannað að ganga með vopn. Frú Pat Nixon var fagnað innilega á flokksþinginu. Tólf eftirlýstir fangar. Sandberg, sem náðist í gærkvöldi, er 3. frá vinstri i miðröðinni. Hinir voru enn lausir i morgun. Morðmet Háttsettur maður í verkalýðsfélagi mótmæl- enda á Norður-irlandi hef- ur verið myrtur. Lik hans fannst í gær i kaþólska Lower Falls hverfinu i Bel- fast. Hetta var dregin yfir höfuðið. Maðurinn hafði verið skotinn Þúsundir Asíumanna í Ú- ganda voru hressari í gær, eftirað Amin forseti skipti um skoðun og tilkynnti, að þeir, sem geti fært sönnur á, aö þeir séu ríkisborgarar i Uganda, þurfi ekki að fara úr landinu. Tuttugu þúsund blöðrur, rauðar, hvítar og bláar, flugu yfir höfðum fulltrúa á flokksþingi repúblikana seint í gærkvöldi, þegar Nixon var valinn fram- bjóðandi flokksins i for- setakosningunum í nóvem- ber. Nixon var ákaft hylltur af full- trúum, ,,eins og frelsari Banda- þegar sprengja sprakk skammt frá landamærum trska lýðveldis- ins. Mannfallið er þá orðið 527 frá byrjun, svo að vitað sé. Brezkur hermaður særðist hættulega, er leyniskytta skaut á hann i kaþólska hverfinu Ander- sontown i Belfast. Dagurinn i gær varð einn hinn mannskæðasti i sögu átakanna. Fleiri voru drepnir dag einn i júli, þegar sprengja sprakk i þorpinu Claudy og niu biðu bana. Amin sagði siðastliðinn laugar- dag, að allir menn af asisku bergi skyldu fara úr úganda, einnig þeir 23 þúsund Asiumenn, sem hafa rikisborgararétt i Úganda. En i gær sneri hann við blaðinu, eftir að Nyerere forseti Tansaniu sakaði hann um kynþáttaofsókn- ir. rikjamanna og heimsbyggðarinn- ar”, segir NTB-fréttastofan i morgun. Nixon fékk öll atkvæðin nema eitt af 1348 atkvæðum fulltrú- anna. Nelson Eockefeller fylkisstjóri bar fram tillöguna um Nixon formlega á þinginu. Atkvæðið eina hlaut Paul McCloskey þingmaður frá Kali- forniu, sem er andvigur stefnu Nixons i Vietnam. Sú fimmti í netinu Fimmti strokufanginn frá Kumla fangelsi náðist í gærkvöldi við Ljungby með aðstoð lögregluhunds. Þetta var 55 ára Svíi, Gösta Ragnar Sandberg, sem afpiánar sex ára fang- elsisdóm fyrir eiturlyfja- sölu. Stórar lögreglusveitir leita nú fimm annarra af strokuföngunum, en þeir réðust i gær á hjón skammt frá Nora. „Rogers bullar" — segir frú Binh Frú Binh samninga- maður þjóðfrelsishrey f- ingarinnar i París segir, að ekkert sé að marka um- mæli Rogers utanríkisráð- herra Bandarikjanna um, að Víetnammálið leysist fyrir áramót. ,,Hann er bara að reyna að fá stuðning almennings i Bandarikj- unum fyrir kosningarnar i haust,” segir hún. margsinnis. Átta manns biðu bana i gær Amin kúvendir enn NIXON •• OLL NEMA EITT

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.