Vísir - 23.08.1972, Qupperneq 7
Visir Miðvikudagur 23. ágúst 1972
7
Þaö væri synd að segja,
aö tizkan veitti fólki ekki
dálitla tilbreytingu, þótt
sú tilbreyting sé misjafn-
lega hentug og æskileg.
Vetrartízkan 1972—73
virðist þó ætla aö vera
meö skynsamara móti,
fjölbreytt og þægileg og
án allra öfga. Og af því að
nú er orðið hráslagalegt
hér á Fróni og haust-
nepjan farin að næða í
gegnum sumarfatnaðinn,
sem reyndar er víðast
hvar óslitinn eftir sólar-
litið sumar, birtum við
hér nokkrar myndir af
vetrarkápum. Kápu-
faldurinn er nú ekki
lengur niðri á hælum og
varla geta reykvískar
unglingsstúlkur sópað
göturnar með kápum
sínum í vetur, eins og þær
hafa stundum gert undan-
farin ár. Rétt fyrir neðan
eða rétt fyrirofan hneð er
algengasta siddin.
Ullarflannel eða jersey
eru algengustu efnin, auk
sterkra bómullarefna i
regnfatnaðinn, sem að
sjálfsögðu er með hlýju
fóðri. Kápurnar eru
flestar stuttar og víðar,
eða beinar með hnýttu
belti. Stuttu kápurnar eru
mikið notaður við sið-
buxur, en buxnadragtir
eru enn mikið i tízku.
Stuttjakkar, gjarnan úr
loðnum efnum eru mjög
vinsælir hjá ungu stúlkun-
um.
Köflótt og klæöileg kápa, sem
tninnir á tizkuna um 1940. Kápan
er i stytzta lagi og ágæt undir sfð-
buxur, eða þykkar sokkabuxur og
stigvél, eins og hér á myndinni.
Litirnir eru rauð- og gulköflott.
Tvær fallegar og hentugar vetrarkápur úr ullarflannel. Stórar húfur og rúllu-
kragapcysur tilheyra vetrarkápunum, auk þykkra svartra sokkabuxna. Sú til
liægri er græn og tölulaus en með hnýttu belti, hin er stutt og við með ,,púff”-
ermum.
ÞEGAR HAUST-
NEPJAN NÆÐIR
Hér eru tvær ágætar heilsárskápur, tilvaldar fyrir islenzka sudd-
ann. Hlýtt fóður og loðkragi og ytra byrðið þolir bæði regn og vind.
Kápurnar eru báðar gráar, sú til hægri úr vattstungnu vinylefni og
hin úr vatnsþéttu gerviskinni.
Stuttjakki á skólastúlkurnar. Efnið er
Orlon kemba og liturinn skærgulur.
Alpahúfa og rúllukragapeysa tilheyra.
Tilvalinn skiðajakki.
Stuttjakkar við siöbuxurnar. Efnið er þykkt
og þétt ullarefni og rúm fyrir góða lopa-
peysu undir. Reyndar vantar okkur hérna á
siðuna regngallana, sem útlendingar klæð-
ast gjarnan hér á götunum, en islendingar
virðast ekki vilja viðurkenna, að séu hent-
ugasta flikin i islenzka suddanum.