Vísir - 04.09.1972, Qupperneq 2
2
VÍSIR. Mánudagur 4. september 1972.
veizluglaumnum
Sönn ánœgjo að krýna
þig eftir drengilegan
leik/' sagði dr. Euwe
og virtist ekki fara illa á með
þeim. Dró Fischer upp úr vasa
sinum ferðatafl, þar sem þeir,
hann og SpasskLfóru lauslega
yfir 21. skákina i einviginu.
Komust þeir að þeirri niður-
stöðu að taflið hefði verið tapað
hjá Spasski.
,,Mér er það sönn
ánægja að krýna þig
Bobby k'ischer eftir
sigur þinn i drengileg-
um leik”.
Þannig mælti dr.
Max Euwe hinn vinsæli
forseti FII)E, alþjóða-
skáksambandsins
þegar hann krýndi
Fischer sem 11. heims-
meistara i skák.
Þegar gestir höfðu etið sig
metta af lambslærum og svina-
kjöti og rennt þvi niður með
„Vikingablóði” i vikingahorn-
um, sté dr. Euwe i pontu og
krýndi hinn nýja heimsmeist-
ara. Lagði hann lárviðarsveig
um axlir hans og óskaði honum
til hamingju með unninn sigur
og keppendum báðum hrósaði
hann fyrir iþróttamannslega
framkomu.
Siðan hófust allsherjar ræðu-
höld sem stóðu yfir i hátt á aðra
klst. Guðmundur G. Þórarins-
son tók við af Euwe og veitti
Fischer og Spasski verðlaun sin.
Þegar Spasski gekk upp á sviðið
hófust mikil fagnaðarlæti og
ætlaði lófaklappinu seint lað
linna. Guðmundur kallaði siðan
upp ýmsa mektarmenn og gaf
þeim gjafir. Aðstoðarmenn
Fischers og Spasskis komu hver
af öðrum og veittu viðtöku árit-
uðum bókum frá Skáksambandi
tslands. Þá fengu þeir Lothar
Schmid og Guðmundur Arn-
laugsson dómarar einvigisins
sinn skerf af gjafaflóðinu. Hall-
dór E. Sigurðsson fjármálaráð-
herra kórónaði svo ræðuhöldin
Ilátt á annaö þúsund manns
voru samankomnir i Höllinni i
„veizlu aldarinnar”. Bobby
Fischer hélt uppteknum hætti
og lét nú biða eftir sér i tæpan
klukkutima. Borðhaldið átti að
hel'jast kl. 7, en rétt fyrir átta
birtist heimsmeiskarinn.
Spasski og Larissa komu á rétt-
um tima og var vel fagnað er
þau gengu i salinn.
Meistararnir sátu sitt hvorum
megin við dr. Euwe við háborðið
,.fcg held að þetta liafi alltaf verið unnið hjá mcr,” sagði Fischer þ<
ustu skák einvigisins (21.) i veizlunni i gær. Urðu þeir kappar ásáttir
Spasski i biöstööunni.
með snjallri ræðu og minntist i ■%
upphafi á, að það færi vel á þvi í ■
að hann stigi i pontu þegar búið
væri að veita öll peningaverð- §Rír 'V
laun! íM:/ÆÍÉK^Á ' /‘í:*-
Þegar Halldór hafði lokið
ræðu sinni hófst dansiball eitt
heljarmikið. Svifu þar um gólfið
skákmenn og konur þeirra og
var mikið um dýrðir. Spasski og
Larissa dönsuðu eina syrpu,en
hurfu siðan úr hófinu. Fischer
sat hins vegar eftir og var mikill
atgangur að borði hans.
Áttu Sæmundur Pálsson og
Friðrik ólafsson fullt i fangi
með að stugga forvitnu fólki frá.
Tveim islenzkum stúlkum tókst
samt að smygla sér að heims-
meistaranum og settust sitt
hvorum megin við hann. Kunni
hann þessu vel og sveif meira að
segja i dansinn með annarri
stúlkunni og virtist fara vel á
með þeim. Þegar menn höfðu
svo drukkið nægju sina á
lengsta bar i Evrópu (40 metra
langur) og dansað sig máttlausa
á þessu makalausa balli aldar-
innar var þvi slitið kl. 1 á mið-
nætti.
Fóru allir heim til sin glaðir i
bragði yfir vel heppnuðum
veizluhöldum. —GF
Til hamingju! Guðmundur G. Þórarinsson afhendir Fischer gjöf
frá Skáksambandinu teikningar Paul Gaimard úr islandsför
hans á 19. öld.
Tekinn undir stýri með
„víkingablóð" í œðum
»■ Meö „vikingablóð” i æðum var glasi af vodka, fyrrverandi
einn ökumaður tekinn á bíl sinum heimsmeistara til heiðurs.
■2 af lögreglunni í nótt, þegar hann Hann var ekki sá eini, sem lög-
^ v‘i>' á leiö frá hófinu i Laugardals- reglan grunaði um ölvun við akst-
». Iiöll. Ilann játaði að hafa kneyfað ur þessa helgina—þóttekkikæmi
^ tvö liorn af mjöðnum, en áleit vikingablóðið til. 25 aðrir öku-
»J ..blóðið” svo þunnt. að öllu væri menn voru teknir fyrir meinta
V óhætt — jafnvel þótt hann hefði ölvun við akstur á timabilinu frá
». þynnt það enn meir með einu miðnætti aðfaranótt laugardags
.WAV.VV/.VWAV/.'.W.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.'WW
til kukkan 5 i morgun. Hefur lög- ■,
reglan aldrei fyrr tekiö svo
marga fyrir þetta brot. »1
Það sem af er árinu hefur lög-1*
reglan i Reykjavik tekið 529 öku-
menn innanbæjar grunaða um I*
ölvun við akstur, og 56 ökumenn í
til viðbótar i næsta nágrenni. I*
I* ,,Ég krýni þig eftir drengilegan leik” sagöi dr. Euwe. Fi
■» skoðar verðlaunapening FIDE með lárviðarsveiginn um
w.v.w.v.v.w.v.w.v.w.w.w.v.v.w.w,