Vísir - 04.09.1972, Blaðsíða 6

Vísir - 04.09.1972, Blaðsíða 6
6 Y'ÍSIR. Mánudagur 4. september 1972. SKUGGAHVERFIN Og í Leicester og Birmingham segja þeir sem svo, að trygginga- kerfið sé að bresta og þoli ekki meira. Ekki þoli borgirnar, að fleiri aðkomandi fari á sveit þar. Nær hver Breti vill þvi ekki af Asiumönnunum frá Úganda vita. Hó fengust 51 prósent til að sam- þykja komu þeirra í skoðana- könnuninni, ef enginn annar inn- flutningur fólks yrði leyfður,Y'æru varla verri en aðrir, svo að við slikt mætti una, sögðu menn. Vald frá hinum æðsta Amin Úgandavaldhafi er haldinn versta kvilla manns, telur sig fulltrúa guðs. Aldrei verður maðurinn íllskeyttari en þegar hann telur sig hafa vald úr hendi hins æðsta. Gott er að hafa vald úr hendi forstjórans. Yndi er að vera eftirlæti skólastjórans, en hvað er það hjá valdi frá sjálfum guði. i þvi valdi skemmtir Amin sér við að reka tugi þúsunda úr landi i kynþáttahatri sinu. I þvi umboði nýtur hann þess að gera eignir þessa fólks upptækar og skattleggja þaö að skilnaði og hafna boði um. að fólkið verði sótt i flugvélum. Nei. það skal fara með flugfélagi Úganda og greiða fyrir. Vandinn er mikill þótt rétt sé. er Alec Douglas Home segir. að lif fólks þessa kunni áð vera komið undir þvi að þvi verði holað niður i skuggahverfum brezkra borga. Slikt er hlutskipti þess. IÐA DAUÐINN Sá tiltölulega lámenni l'lokkur, sem telur sig hafa stundarhagsmuni af ofveiðinni við island, heldur last fram sinu máli. Málflutningur þessa hóps hefur að sjálfsögðu einnig náð eyrum og augum almennings. Vafalaust hefur hann slegið einhverja strengi, en ástæða er til að álykta að á þessu stigi hafi sá áróður engan veginn blindað fólkið. Þvert á móti bera skrif brezkra blaða að undanförnu þess skýr merki, að brezka stjórnin hefur ekki ákafan stuðning i afstöðu sinni til útfærslunnar. Jafnvel daginn eftir úrskurð Haagdómstólsins var þungamiöja i skrifum brezku blaðanna, að málið hefði ekki leystst með úrskurðinum og leggja bæri áherzlu á samninga og forðast nýtt þorska- strið. Fjölmörg blöðin bentu á, að Bretar geta ekki gert sér vonir um sigur i þorskastriði. Þetta hefur einnig einkennt blaðaskrif siðustu daga. Þótt brezka stjórnin þegði um tilboð islenzku rikisstjórnarinnar, var annað hljóð i blöðum. Þau töldu tilboðið þegar i stað hið merkasta og lofa góðu um, að komast mætti hjá striði. Fulltrúar stundarhagsmuna togaramanna hafa að visu mátt sin miklu meira hjá brezkum stjórn- völdum en efni hafa staðið til.Þess er samt vænta, að stjórnin láti þá ekki ýta sér i ófæruna. Bretar gætu ekkert uppskorið nema smán af nýju þorskastriði. Almenningsálitið verður að kveða þann dóm. Sir Alee — orðið hættulegra að fá sér kvöldgöngu. Askriitargjald kr. 225 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Annar landhelgisdómur Útgeiandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri Ritstjórnarfulltrúi yAuglýsingastjóri Auglýsingar Afgreiðsla Ritstjórn Reykjaprent hl. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánss'on Jón Birgir Pétursson Valdimar II. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu :S2. Simar 11660 86611 Hverlisgöt'u :S2. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Til þess er oft vitnað, að Bandarikjamenn hafi ekki tapað Vietnamstriðinu á eiginlegumvigvöllurr| heldur heima fyrir. Verði nýtt þorskastrið og reyni brezka stjórnin að kúga Islendinga með aðferðun- um frá gamla þorskastriðinu, munu ráðamenn verða að verja mál sitt fyrir dómstóli almennings. Bretar hafa i mörg horn að lita, og vandamál þeirra eru mörg hver miklu stærri en spurningin um fiskveiðar við ísland. Sjávarútvegur skiptir til- tölulega litlu máli lyrir efnahag Bretlands. Almenningur mun spyrja ráðamenn margs, ef þeir hyggjast sóa fjármunum þjóðarinnar i glæfraspil á íslandsmiðum. Dómstóll almennings verður þyngri á metum fyrir brezku stjórnina en dómstóll i Haag. Þvi er sú' spurning efst á baugi: Hvað veit almenningur i Stóra-Bretlandi um landhelgisdeiluna og hvað finnst honum um málið? Fkki orkar tvimælis, að almenningur á Bretlandi hefur ekki fyllzt neinum eldmóði eða bræði i garð islendinga vegna útfærslunnar. Sennilega hugsar fólk fyrst og fremst til þess, hvort skortur verði á fiski og fiskverð muni hækka sökum þessa máls. Fjölmiðlar hafa gert nokkuð itarlega grein landhelgismálinu, og sjónarmið íslendinga hafa komið glöggt fram viðast hvar. Þannig ætti almenningur á Bretlandi að þekkja staðreyndirnar um ofveiði Breta við ísland. Almenningi ætti að vera ljóst, hversu mikið íslendingar eiga undir fisk- veiðum og i hvilikri hættu afkoma þjóðarinnar er. Almenningur ætti að vita, að íslendingar hafa lagt sig fram i tilraunum til sátta og dyrum samninga hefur ekki verið lokað. Staðreyndir málsins hafa verið raktar nógu rækilega i brezkum fjölmiðlum til þess. Brezkur almenningur er litið hrifinn af að taka við tugum þúsunda Asiumanna frá Oganda, sem hefur verið visað úr landi þar. Þetta fólk er brezkir rikis- borgarar frá gamalli tið, en svertinginn Amin, sem hrifsaði völdin I Uganda i fyrra, vill ekki hafa fólk þetta i landinu. Brezka stjórnin hefur talið óhjákvæmi- legt að taka við fólkinu enda ekki séð, að það geti annað farið. 94 af hundraði Breta vill hins vegar ekki við þvi taka. Þessi úrslit voru tilkynnt rétt eftir að utanrikisráðherrann, sir Alec Douglas Ilome, skirskotaði til þjóðarinnar að taka við fólkinu á „skipulegan og mannúðlegan hátt”. Louis Harris-stofnunin gerði könnun á skoðun almennings, og i ljós kom, að 71 af hundraði var andvigur þvi, að brezkt þjóðfélag yrði biandaðra þeldökkum miinnum en er. Hetta var helzta orsiik þeirrar skoðunar nær allrar þjóðarinnar, að úganda- menn skyldu fara eitthvað annað en til Bretlands. Amin leiðtogi Úganda segist hins vegar látasér á sama standa hvað verði um hina brottreknu Asiumenn. Guð hafi sagt sér, að koma þessum ,.vandra‘ðalýð” úr landi, segir Amin, þótt Asiumennirnir séu mennlaðri en sverlingjar lands- ins og það verði augljöslega vandkvæði fyrir efnahag Úganda, að þeir fari með skyndingu Atvinnuleysi og húsnæöisskortur iiiiiiiniii m Umsjón: Haukur Helgason Birmingham óttast, að Asiu- mennirnir frá Úganda muni setja sig þar niður, einkum af þvi að fyrir eru margir þeldökkir i þessum iðnaðarborgum. ihaldssömum Bretum er ekki um sel. þegar kryddlyktin frá Austurlandamönnunum fyllir vit in i gamalgrónum hverfum borg aranna. Mikill fjöldi hefur komið til Bretlands siðustu ár frá Ind- landi og Pakistan, gömlum ný- lendum Bretlands. Mikill fjöldi hefur komið til „móðurlandsins” frá nýlendunum gömlu i Vestur- Indium. Svartir og indverskir blandast aðkomumönnum úr öllum áttum. Kynþáttaóeirðir verða i vaxandi mæli i Bretlandi, og má vera. að Bretland taki við sæti Bandarikjanna á fréttasiðum i þeim efnum, ef enn kyrrist i Bandarikjunum. Mannlifið er orðið annað i brezku borgunum. Nú berast fréttir um vaxandi glæpaöld. Sagt. að friður sé úti á götum að kvöldlagi. Fólk farið að skelfast eins og borgarbúar i Bandarikjunum, Eitthvað illt liggur i loftinu og margir kenna „útlendingunum” „aðkomu- mönnunum” þeim „ókunnugu” um þetta eins og alltaf. Úgandamálið er eitt aðalrif- rildismál i Bretlandi og er meðal ótal mála, sem skaprauna stjórn Heaths og spilla fylgi hennar með þjóðinni. Menn halda þvi fram, og benda til dæmis á mikið at- vinnuleysi þvi til staðfestingar. að litla eyjan Bretland sé löngu orðin offull af fólki. 50 þúsund Asiumenn bæti gráu ofan á svart. t Bretlandi er húsnæðisekla mikil, skortur skóla og sjúkra- húsa. 55 milljón eyjarskeggjar hafa stritt við meiri háttar efnahags- vandræði, svo yfirgnæfandi, að það er sem dropi i hafið. sem islendingar angra þá. Dýrðlegur or Amin. Einsog holdsveikir Kynþáttavandamál voru lengi vel sérmál i Suður-Afriku og Bandarikjunum. Svo mátti heim- urinn ætla af fréttum, En nú er öldin önnur. og kynþáttavanda- málin setja ógeðfelldan svip á brezkt borgaralif. Borgaryfirvöld i tveimur stór- borgum voru enda ekki sein á sér að biðja Healh-stjórnina blessaða að halda þessum aðkomu- mönnum utan borgarmarka sinna. eins og þeir vamu holds- veikir. Yfirvöld i Leicester og vísm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.