Vísir - 04.09.1972, Side 3
VÍSIR. Mánudagur 4. september 1972.
3
ÞRÍR LÆKNAR RÉÐU EKKI VIÐ
BLÓÐNASIR GULLFOSSFARÞEGA
og varð að senda þyrlu til móts við skipið til að koma
hinum blœðandi farþega á sjúkrahús
Ensk kona, sem var
meöal farþega Gullfoss,
fékk um áttaleytiö i gær-
morgun óstöövandi blóö-
nasir, sem þrír læknar,
sem einnig vorumeðalfar-
þega um borö, kunnu eng-
inráðviö. Eftir árangurs-
lausar tilraunir i þá átt,
var haft samband viö
Slysavarnarfélagiö, sem
aftur sneri sér til varnar-
liðsins. r
Gullfoss var þá staddur 195
sjómílur frá Hjörleifshöföa og
var þyrla send frá varnarliðinu
og eldsneytisvél af Herkúles-
gerð með i förina.
Fundum þyrlunnar og Gull-
foss bar saman 'sem næst 100
sjómilur s-austur af Höfn i
Hornafirði Var konan hifð um
borð og þegar svo þyrlan hafði
teki eldsneyti úr Herkúlesvél-
inni var þegar haldið til Reykja-
vikur, ,þar sem á flugvellinum
beið sjúkrabifreið, sem flutti
konuna á Borgarsjúkrahúsið.
Þá var klukkan að verða hálf
fjögur.
A leiðinni með þyrlunni til
Reykjavikur rénuðu blæðingar
konunnar mjög, enda hafði þess
verið gætt, að taka með i
sjúkraflug þetta sérstök efni til
að stöðva svo illskeyttar blóð-
nasir sem þær er konan hafði.
Gullfoss lagðist i morgun að
höfn um klukkan átta og hefur
þá enska konan að likindum
verið orðin hress og fær um að
taka á móti samferðafólki sinu
úr Gullfoss-förinni. -ÞJM
Lótið til skarar skríða
— Lúðvík sagði í viðtali að brútt yrðu tökin hert ú Bretum
Lúðvik Jósepsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra sagði í viötali
við Visi, að innan skamms myndu
islendingar sýna Bretum klærn-
ar, þeir gætu ekki búizt við þvi að
fá að veiöa i friði innan 50 milna
markanna.
„Ég flaug með landhelgisgæzl-
unni i dag ( laugardag) frá
Reykjanesi og austur með Suður-
landi, Suðausturlandi og Austur-
landi.
Út af Suðurlandi voru engin er-
lend skip að veiðum innan 50
milna markanna. A þvi svæði var
nýja landhelgin algerlega hrein.
Þar voru hins vegar tveir islenzk-
ir togarar að veiðum.
Út af Austurlandinu voru held-
ur engin erlend skip að veiðum.
Brezkir togarar voru hins vegar i
um 30 milna fjarlægð frá landi á
hefðbundnum veiðisvæðum út af
Suðausturlandinu.”
Sagði Lúðvik Jósepsson að
langflestir brezku landhelgis-
brjótanna, hefðu breytt yfir nafn
og númer sitt. Ekkert eftirlitsskip
væri þeim til aöstoðar, ekkert is-
lenzkt varðskip væri þarna (á
laugardaginn) aö angra Bretana.
„En”, sagði ráðherrann, „nú
liður ekki á löngu þar til öðrum
ráðum verður beitt gegn Bretun-
um”. Lét Lúðvik á sér skiljast, að
islenzka landhelgisgæzlan myndi
á næstu dögum láta til skara
skriða gegn Bretum og beita
ýmsum ráðum, sem fréttamönn-
um er ekki tilkynnt neitt um
fyrirfram. —GG
SENTIST 50 METRA Á
LJÓSASTAUR EFTIR
BÍLAÁREKSTUR
Bráðkvaddur
í laugunum
55ára gamall maður varð bráð-
kvaddur i sundlaugum Vestur-
bæjar á laugardag kl. 14 Aðrir
sundlaugargestir (sem voru
margir i laugunum þennan dag)
veittu manninum eftirtekt, þar
sem hann hélt sér i laugarbakk-
ann og drúpti höfði, og gerðu þeir
laugarvörðum viðvart.
Þegar honum hafði verið kippt
upp úr, reyndist hann vera með-
vitundarlaus, og komst hann
aldrei til meðvitundar.
Læknisrannsókn hefur ekki leitt
i ljós, hvað orðið hefur mannin-
um að bana, og ekki var vitað til
þess að hann ætti við neinn krank-
leika að striða.
Nærstatt fólk taldi sig hafa séð
manninn koma upp úr heitavatns
pyttinum skömmu áður, og hafði
veitt þvi eftirtekt, að þá var hann
náfölur. -GP
4 bílar í
einum
árekstri
Fjórir bilar lentu saman i
árekstri á sunnudaginn við BP-
bensinstöðina f Lyngási. Þrir
þeirra stóðu i halarófu við gatna-
mótin og biðu eftir þvi að komast
fyrir annarri umferð, þegar fjórði
billinn kom aövifandi og ók aftan
á þann, sem siðastur stóð i röð-
inni.
Svo harður var áreksturinn, að
bilarnir köstuðust allir áfram,
hver á þann, sem næstur var fyrir
framan hann. Allir skemmdust
eitthvað, en þó mest sá, sem stað-
ið hafði þriðji frá gatnamótunum,
þvi að hann varð óökufær eftir
áreksturinn. 1 honum voru hjón,
sem flytja varð á slysavarðstof-
una, en meiðsli þeirra reyndust
minniháttar. Hemlarnir höfðu
bilaö i bilnum, sem óhappinu olli.
—GP
Hjón slösuöust i hörðum
árekstri, sem varö i Kaupvangs-
stræti á Akureyri i fyrrinótt rétt
eftir miönætti.
Stórri ameriskri bifreið var ek-
ið á töluverðri ferð — eftir þvi,
scm sjónarvottar sögðu — um
Kaupfélagsgiliö, og henni beygt
inn i Kaupvangsstræti. En i
beygjunni mun ökumaðurinn
hafa misst vald. á bilnum og
rakst á litinn fólksbil, sem kom úr
gagnstæðri átt.
Bráðabirgðasamkomulag hefur
náðst i deilunni um lendingarleyfi
islenzkra flugfélaga á Spáni. Hef-
ur Flugfclagið fengiö lendingar-
leyfi þar út september, og á móti
hefur spánska flugfélagið Air
Spain fengið þrjú leyfi hér til við-
bótar þeim sex sem áður var búið
aö veita.
Haukur Claessen flugvallar-
stjóri sagði i samtali við Visi i
Eldur kom upp i fjóshlööunni á
Skeggjastöðum i Hraungerðis-
hreppi i Flóa á iaugardagskvöld,
og eyðilagðist meirihluti hey-
birgðanna, sem bóndinn hafði
heyjað i sumar.
Eldsins varð vart um kl. 20 um
kvöldið og var þá slökkviliðið á
Selfossi kvatt til og auk þess dreif
að fólk úr sveitinni til hjálpar.
Náði eldurinn aldrei að breiðast
út og varð honum haldið svo i
skefjum, að skemmdir urðu litlar
á hlöðunni af hans völdum.
Areksturinn var svo harður, að
báðir bilarnir eru taldir ónýtir
eftir, en ameriski billunn kastað-
ist af hinum bilnum eina 50 metra
eftirgötunni og á ljósastaur, sem
eyðilagðist við áreksturinn.
I stærri bilnum var fernt, sem
slapp allt ómeitt,en ein hjón voru i
minni bilnum og voru þau bæði
lögð inn á sjúkrahúsið á Akureyri.
ökumaðurinn hafði axlarbrotnað
og viðbeinsbrotnað, en kona hans
skorizt á glerbrotum. -GP
morgun að væntanlega hæfust
viðræður milli flugmálastjóra fs-
lands og Spánar um næstu mán-
aðamót. Spánverjar hafa óskað
eftir 24 lendingarleyfum hérlend-
is fyrir Air Spain, en hafa aðeins
fengið niu. Vilja þeir fá meiri
hlut i þeim miklu fólksflutningum
sem eiga sér stað milli tslands og ,
Spánar ár hvert.
Um 60 manns unnu að þvi alla
nóttina að bjarga út heyinu. Var
mokað út úr hlöðunni 600 hestum
af heyi, en þrátt fyrir að ’ann
héngi þurr, á meðan slökkvistarf-
ið stóð yfir, munu 2/3 af heyinu
hafa eyðilagzt. Var búið að moka
heyinu út á sunnudagsmorgun.
Hinsvegar átti bóndinn miklar
fyrningar frá þvi i fyrra og sluppu
þær óskemmdar.
Eldurinn kom upp vegna sjálfs-
ikveikjunar i heyinu.
—GP
Lendingarstríði afstýrt í bili
— SG
Mokuðu úr brennandi
4
hlöðunni 600 hestum «f
heyi á einni nóttu
FATNAÐAR-KAUPSTEFNA 20 FYRIRTÆKJA
A Katnaðar-kaupstefnu þeirri, sem hefst fimmtudaginn 7. september,
verður sýnd hausttizka eða haustfatnaöur um það bil 20 fyrirtækja.
Kaupstefnan stendur i fjóra daga, henni lýkur á sunnudagskvöldið
þann 10. Kaupstefnan er haldin I Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, en
þetta er i fjórða sinn sem hún er haldin þar. Slikar kaupstefnur eru
haldnar bæði vor og haust.
—EA
Ljósmynd Astþór.
Útsalan
hefst á morgun kl. 9
tízkuverzlun ungu konunnar
Kirkjuhvoli s. 12114
Síðir kjólar 995 kr
Stuttir kjólar 850 kr
Blússur 500 kr
Buxur 1.250 kr
Rússkinnsjakkar 3.950 kr
Sloppar 850 kr
Indverskir kirtlar 5.495