Vísir - 04.09.1972, Síða 5

Vísir - 04.09.1972, Síða 5
YÍSIR. Mánudagur 4. septembcr 1972. 5 í MORGUN ÚTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND UMSJON: HAUKUR HELGASON Handtökur vegna Montrealbrunans Fórust 36, af því að þrem var fleygt út? Lögreglan í Montreal Rannsóknarlögreglumenn hefur handtekið mann og leitar tveggja ann- arra i sambandi við eldsvoða í næturkliibbi þar, sem kostaði 36 manns lifið og 54 slösuð- ust. Mennirnir eru á aldrinum 22-24 ára. segja, að eldsvoðinn hafi átt upp- tök sin með þvi að bensini hafi verið hellt á stiga næturklúbbs- ins. bá var sagt, að þremur mönn- um hefði verið „kastað út” úr klúbbnum nokkru áður en kvikn- aði i. Eldsvoðinn var hinn skæðasti i Montreal siðan árið 1927, en þá fórust 77 börn i bruna kvik- myndahúss. Einstefna í fyrstu kosn- ingum „nýju KAMBÓDÍU Kommúnistar skutu sprengjum á tvær stöðv- ar stjórnarhers Kam- bódiu nálægt höfuðborg- inni, en ekki urðu miklar truflanir á þingkosning- unum, sem haldnar voru i gær, samkvæmt frá- s ö g n herstjórnar Kambódiuhers. Þetta voru fyrstu kosningar i landinu, siðan Norodom Sihanouk var steypt. Kosningarnar voru einstefnuakstur. Stjórnarsinnar voru nær einir um hituna. 1 aðeins þremur kjördæmum af 61 voru frambjóðendur „alþýðu- flokks” i framboði gegn fram- bjóðendum stjórnarflokksins „félagslega lýðveldisflokksins”. Reyndar er „alþýðuflokkur” lika tengdur rikisstjórninni. Annars staðar voru frambjóðendur stjórnarflokksins einir. Kjörsókn virðist hafa verið frá 25 upp i 99 prósent á hinum ýmsu kjörstöðum. Svitnar Tanaka forsætisráðherra Japan svitnar ákaft undir ræðu Nixons. Þeir héldu fund i Ilonolulu og sættust á, að Japanir flyttu inn mjög aukið vörumagn frá Bandarikjunum. llingað til hafa Bandarikin haft óhag- stæðan jöfnuð gagnvart Japan. Fangauppreisnir i Bretlandi hafa verið stjórninni vandamál siðustu vikur. Á myndinni eru fangar Essex fangelsisins nálægt London komnir upp á þak. Þeir neituðu aö fara niður og urðu vandræði. Fangar mótmæla slæmum aðbúnaði í fangelsum landsins. Þreyttir ó hermdarverkum: Samsœri kommúnista? Marcos forseti Filipsseyja seg- ist hafa afhjúpað samsæri kommúnista. Hann kveöst hafa látið stjórn Indónesiu fá upp- lýsingar um samsærið og einnig aðrar stjórnir. Hér sé um að ræða viðtækt samsæri, sem nái til margra rikja. Innlendir kommúnistar eigi að fá erlendan stuðning til að hrifsa völdin. Hann minntist þess, að mörg hundruð öflugar byssur voru sett- ar á land i héraðinu Isabela, 170 milum norðaustan Manila höfuðborgar Filippseyja. Þar hafi samsærismenn verið að verki, en árvekni og góðar njósnir stjórnarhersins hafi afhjúpað þá. Her Filippseyja hefur nú verið fyrirskipað að vera viðbúinn hinu versta. Marxos telur kommúnista hafa á prjónum morðtilræði og fleiri hermdarverk, en sprengjur hafa viða sprungið i byggingum að undanförnu. fýrir rétt iýms liiga til að koma fý Hugðusf myrða foringja sinn Draga IRA-menn úr hermdarverkum? — María segir fró Skæruliðar ÍKA- hreyfingarinnar voru i morgun sagðir reiðu- búnir að hætta sprengju- tilræðum gegn almenn- um borgurum og ein- beita sér þvi fremur að átökum við brezka her- inn. Heimildarmenn AP-fréttastof- unnar um þetta segja einnig, að „hreinsanir” eigi sér stað i foringjasveit róttækara arms IRA i Belfast. Seamus Twomey, sem hefur stjórnað sprengingum i Belfast vikur fyrir hógværari manni, Gerry Adams. Þessar fréttir koma í kjölfar „afhjúpana” Mariu Maguire, sem hefur sagt skilið við skæru- .liða. Hún segir, að vaxandi óánægja riki meðal skæruliða. Margir láti sér illa lika hermdar- verkin. Skæruliðar IRA eru nú sagðir ætla að auka tilræði við brezka hermenn. Tuttugu og eitt þúsund manna lið Breta er i Norður- írlandi. Edward Heath forsætisráð- herra Breta og Jack Lynch for- sætisráðherra Irska lýðveldisins munu ræða ofbeldisaðgerðirnar i N- .lrlandi i Múnchen i dag, en þeir eru þar að fylgjast með Oly mpiuleikunum. Maria óttast morðingja Macstiofains. Maria Mcguire, lagleg stúlka, sem átti þátt i misheppnaðri til- raun til vopnasmygls með fíug- vél frá Tékkóslóvakiu til skæru- liða á N-lrlandi, segir, að sumir skæruliðar hafi jafnvel viljað myrða foringja sinn til að stöðva blóðbaöið. Foringinn Macstiofain var hins vegar snjallari keppinautum sin- um og svipti þá völdum i hreyf- ingunni. Macstiofain hefur verið kall- aður „eini raunverulegi hermd- arverkamaðurinn i N-Irlands átökunum”. Maria flýði skæruliða, þegar hún var i Dublin og hún er sögð felast skammt frá London, senni- lega af ótta við útsendara Macstiofains. Feningar frá Bandarikjunum koma ekki. Aðrar fréttir hermdu, að IRA- skæruliðar væru einnig til- neyddir að endurskoða afstöðu sina i hermdarverkum, af þvi að fé bærist ekki lengur i sama mæli frá Bandarikjamönnum, sem hefðu verið vinveittir málstað þeirra. Bandarikjamenn væru orðnir ókyrrir vegna hermdar- verkanna. Að minnsta kosti 545 hafa beið bana i átökunum. Skæruliðar voru einnig sagðir hikandi við sprengjutilræði, eftir að fréttist, að sprengiefni, sem þeir hafa, væri hættulegast fyrir tilræðis- menn. Að minnsta kosti átta þeirra hafa farizt þannig, að sprengjur sprungu i höndum þeirra. Meðal þeirra var 17 ára stúlka. Þetta hefur gerzt siðustu þrjár vikurnar. Siðan Bretar tóku virki IRA i Belfast og Londonderry 31. júli, hefur einnig orðið hættulegra fyr- ir hermdarverkamenn að stunda iðju sina. Kaþólskur almenningur er einnig i vaxandi mæli uppgefinn á hermdarverkum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.