Vísir - 27.09.1972, Page 5

Vísir - 27.09.1972, Page 5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í UMSJÓN: HAUKUR HELGASON Nixon biður gyðinga að hafa biðlund 1 Nixon Bandaríkjafor- seti skoraði í gærkvöldi á leiðtoga gyðinga í Banda- ríkjunum að ,,forðast allt athæfi, sem gæti valdið deilum milli Bandaríkja- manna og Sovétmanna", i sambandi við útflytj endurna frá Sovét ríkjunum til ísrael. Nixon sagfti á fundi gyðinga- leiðtoga i New York, að liann hefði samúð nieð sovézkum gyðingum, sem yrðu að greiða há gjöld fyrir leyfi til að flvtjast úr landi. Ilann baðgyðingana að hafa biðlund og gefa sér tóin til að láta ræða vandamálið við Sovétmen n. Ilann lagði áherzlu á, að „nýjar deilur” mundu ekki verða nein hjálp gyðingum i Sovétrikjunum. Heima í Þrirtrandariskir flugmenn, sem hafa veriö striðsfangar Noröur-VIet- nama, fóru frá Peking i morgun I sovézkri Aeroflotvél áleiöis heim. Kinn þeirra sést hér á myndinni ásamt konu sinni. Hún fékk að fara til Ilanoi til að taka á móti eiginmanni sinum úr prisundinni, Norris A. Charles og kona hans horfa hér út um glugga á Hoa Binh hótelinu i Hanoi. Visir Miðvikudagur 27. september 1972. Japanir af- neita Formósu J a p a n s k a o g kinverska stjórnin eru i grundvallaratriðum sammála um að taka upp stjórnmálasamband milli rikjanna og skipt- ast á sendiherrum, samkvæmt heimildum i Peking. Forsætisráð- herra Japan, Tanaka, er þar i opinberri heim- sókn. Tanaka hefur tjáð Chou En-Lai forsætisráðherra Kina, að Japan muni slita sambandi við Formósu jafnskjótt og stjórnmálasamband hefur verið tekið upp við Kina. Hins vegar er sagt, að Japanir vilji ekki, að á það verði minnzt i sameiginlegri yfirlýsingu, sem verður gefin út eftir fundina i Peking. Japanir segjast munu skýra frá þessari afstöðu með sérstakri yfirlýsingu. Samkomulag er sagt hafa orðið um, að Kina falli frá öllum kröf- um um striðsskaðabætur frá Jap- an og viðræður hefjist um friðar- og vináttusamning milli rikjanna. EINRÆÐIÐ LÆSIR KLÓNUM UM ALLA SUÐAUSTUR-ASÍU Filippsey jar, sem urðu einræðisriki fyrir nokkrum dögum eftir 26 ára lýðræði, fylgja i kjölfar annarra Suðaustur-Asiurikja, sem flest hver eru einræðisríki. Lýðræði hefur ekki fest rætur i þeim jarðvegi, að minnsta kosti lýðræði eins og gerist á Vestur- löndum. Thailand féll i klær einræðisins fyrir ári, þegar „forsætis- ráðherra landsins gerði stofu- byltingu” og tók einræðisvald. Herinn stjórnar Indónesiu, þar sem 100 miíljónir búa. Sama sagan er i Burma, þar sem er eina rikið á þessu svæði. þar sem stjórnin kennir sig við sósialisma, að Norður-Vietnam undanskildu. Einræði hersins i Burma er hins vegar ekki kommúnistiskt. 1 Suður-Vietiiám og Kambódiu hafa verið tilburðir til lýðræðis, en herinn ræður. Löndin eru i viti styrjaldar. Svipuðu máli gegnir i Laos. í Singapore og Malasiu hafa forsætisráðherrar mikil völd. Þessi riki eru þó enn nálægt lýð- ræðisskipulagi, þótt stjórnarand- staða þrifist illa. Marcos forseti Filippseyja hefur fylgt fordæmi Thailendinga og tryggt völd stjórnarinnar með þvi að nema úr gildi borgaraleg réttindi og fela hernum að bæla niðuralla andstöðu. Rök hans eru þau, eins og jafnan i slikum til- vikum, að andstæðingar hans, einkum kommúnistar, ógni sjálfstæði rikisins. Talað er um, að einræði hersins þar eigi að standa i ein tvö ár, en enginn veit... Morðtilrœði í Phnom Penh Bandariskur sendi- ráðsmaður, Thomas hhiders, slapp naumlega frá tilræði i morgun, þegar sprengja eyði- lagði bifreið hans i Phnom Penh höfuðborg bifreið, þegar sendiráðsmaður- inn, sem er verzlunarfulltrúi, ók fram hjá. Lögregluþjónn, sem ók mótorhjóli á eftir bifreið Banda- rikjamannsins, beið bana. Enders komst úr bifreið sinni ásamt bilstjóra hennar og lif- verði, þegar billinn tók að brenna. Þrir vegfarendur slösuðust hættulega. morgun Ilinir, sem nú eru frjálsir, cru Markham L. Gartley og Edward K. Klias. Móðir Gartleys fór einnig til Hanoi. Með konunum var flokkur ,,Vietnamandstæðinga", scm átti hlut að þvi að mennirnir voru látnir lausir. Mótmœlendur taka frumkvœði í hermdarverkum: Sprenging við samkomustað og kveikt í kirkju 23 slösuðust, þegar 100 punda sprengja sprakk i kyrrstæðri bif- reið við klúbbhús i mið- borg Belfast i gær- kvöldi. Flestir slösuð- ust af glerbrotum. Þarna hafði kaþólskt lélag samkomustað. Onnur sprengja olli miklum skemmdum i verzlun i Kinawley. óttazt er, að kaþólsk- irreyni að koma fram hefndum gegn mótmælendum fyrir sprenginguna i gærkvöldi og ikveikju i kirkju heilagrar Bernadettu i fyrrakvöld. öfgamenn' i röðum mótmæl- enda, til dæmis félagsskapurinn UDA, „varnarsamtökin”, eru taldir standa að hermdarverk- um þessum. Brezkur hermaður lézt i gær af sárum, sem hann hlaut fyrir þremur dögum i Londonderry, þegar leyniskytta hæfði hann. Brezkir hermenn drápu skæruliða og særðu annan i skotbardaga i kaþólska hverf- inu Lower Falls i Belfast i nótt. Lögreglan i Belfast fann lik manns.sem hafði verið myrtur. N-VÍETNAMAR FREMJA HRYÐJUVERK Norður-Víetnamar og þjóð- frelsishreyfing Vietnam hafa framið mörg hryðjuverk á þeim svæðum Suöur-Vietnam, er þeir náðu undir sig i sumar. Flóttamenn segja, að 40 borgarar hafi verið lokaðir inni og bygging sprengd i bæ einum i Quang Ngai. „Alþýðuréttarhöld” voru haldin i Binh Dinh og Kontoum- héruðum, og siðan horfðu konur og börn á karlmennina skotna. Yfirmenn i liði Norður-Viet- nama, sem réðist inn i Quang Tri- hérað i marzlok, komust að raun um, að þrir fjórðu hlutar ibúa á þeim svæðum, er þeir tóku fyrst flýðu burt. Þeir lokuðu þvi þjóð- vegi númer 1, sem liggur suður, og drápu mörg hundruð borgara, sem voru þar á flótta ásamt her- mönnum Suður-Vietnam segir AP-fréttastofan. Stjórnvöld i Saigon hafa skýrslur, þar sem segir, að 2558 almennir borgarar hafi verið myrtir af norðanmönnum siðan innrás þeirra hófst i vor. Kambódiu. Sprengjan'sprakk i kyrrstæðri Miklar skemmdir urðu á húsi við götuna. Þannig leit næturklúbburinn á Ilódos út eftir brunann mikla. Enn er unniö að rannsókn máls- ins, sem beinist einkum að þvi, hvers vegna fólkið komst ekki út um neyðarútganga.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.