Vísir


Vísir - 27.09.1972, Qupperneq 13

Vísir - 27.09.1972, Qupperneq 13
Visir Miövikudagur 27. september 1972. 13 | í DAG | í KVDLD | í DAG | I KVÖLD | í DAG Van Johnson (i stólnum) viröir fyrir sér likan af orustuflugvcl i myndinni „Erfiö ákvöröun” Sjónvarp kl. 21,10: Loftárásir á Þjóðverja í miðvikudagsmynd sjónvarpsins Þá er sjónvarpið byrjað aftur á miðvikudagsmyndum sinum sem tiökuöust i fyrra yfir vetrar- timann. t sumar voru hins vegar aðeins biómyndir á laugardögum eins og verður reyndar áfram. „Erfið ákvörðun” er miðviku- dagsmyndin að þcssu sinni og er bandarisk eins og flestar kvik- myndir sjónvarpsins hafa verið i sumar. Þessi mynd er komin yfir Útvarp kl. 15,15: #/ FRUMVARP TIL LAGA UM ALMENNAN SÖNG Á ÞJÓÐVEGUM" „Maður er alltaf að bauka við þetta”, sagði Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld og stórjazzari þegar blm. Visis innti hann eftir nýjum tónsmiðum. i kvöld tekur útvarpið til flutnings eitt frægasta verk Gunnars „Samstæður” sem hann samdi fyrir Listahátiðina 1970. Sjónvarpið flutti verkið einnig og siðan hefur það farið viða um heim og ómað i mörgum löndum. Belgiska, norska, portúgalska, svissneska og tyrkneska útvarpið hafa verið meö það á sinni dag- „Skritið að plötuútgefendur skuli ekki hafa áhuga á að gefa „Sam- stæður” út á plötu”, segir tón- smiðurinn Gunnar Reynir Sveinsson. skrá. „Það er skritið að plötuút- gefendur hérlendis skuli ekki hafa áhuga á að gefa þetta stór- fræga verk út á plötu,” segir Gunnar. „Menn koma til min i hrönnum og spyrja mig hvort þeir geti ekki fengið að heyra Sam- stæðurnar á plötu”. Og það eru engir aukvisar sem þenja hljóðfæri sin i „Sam- stæðunum” hans Gunnars. Valinkunnir jazzarar eins og Gunnar Ormslev, Jón Sig.t Orn Armannsson og Guðmundur Steingrimsson ásamt Jósepi Magnússyni flautuleikara leika verkið i útvarpinu i kvöld eins og þeir hafa reyndar alltaf gert — af einskærri snilld. Samstæður tekur 38 minútur i flutningi og skiptist i 6 kafla. DFrumvarp til laga um al- mennan söng á þjóðvegum. II) Samræmt göpgulag fornt. III) Hámarksverð á nótum IV) Lag án ljóðs V) Nýtt bráðabirgðalag VI) Að ófengnum skáldalaunum (Og ftunnar fékk listamannalaun árið eftir að hann samdi verkið — en siðan ekki sijguna meir!) „Samstæður” tileinka ég Jóni Múla Arnasyni stórsveiflu- meistara útvarpsins — eina manninum sem hefur haldið lifinu i jazzinum i útvarpinu.” segir Gunnar og bætir þvi við, að nú sé hann að vinna að Jazzkantötunni setn var „fryst” á listahátið i vor, vegna veikinda eins flytjandans. En nú stendur sem sé til að Gunnar komi verkinu upp og það ekki á dónalegri stað en i Landa- kotskirkju! GF tvitugt og fjallar um bandariska flugmenn i seinni heimsstyrjöld- inni. Segir hún frá loftárásum þeirra á þýzkar borgir og lýsir lif- inu i herbúðunum á Bretlandi, en þaðan herjuðu þeir á Hitler og fé- laga. Þetta er að sjálfsögðu hin hressilegasta striðsmynd og þó hún sé komin til ára sinna ætti það ekki að saka. Bandariskir kvikmyndagerðarmenn kunnu sitthvað fyrir sér á þessum árum og ekki rýrir það að fræg nöfn prýða myndina. Clark Gable, Walter Pidgeon og Van Johnson fara með aðalhlutverkin og þarf vart að kynna þá — að minnsta kosti ekki fyrir konum. Gable var einn mesti hjarta- knúsari á hvita tjaldinu og kall- aður „Kóngurinn” i Hollywood. Hann var á striðsárunum liðsfor- ingi i ameriska hernum, svo hann ætti að kunna vel við sig i mynd- inni i kvöld þar sem hann skýtur niður nokkur hundruð Þjóðverja. Walter Pidgeon þótti i „den tid” mikill sjarmör og jafnvel eftir að aldurinn fór að færast yfir hann. Þeir eru nú báðir komnir undir græna torfu Pidgeon og Gable. Van Johnson er yngstur þeirra félaga og hefur leikið i ógrynni kvikmynda og tiðast á móti fögr- um konum, eins og t.d. Elisabetu Taylor. Hann er ennþá að leika, þó hann sé orðinn nokkuð sjald- séður gestur i bióhúsunum okkar i seinni tið. GF UTVARP MIÐVIKUDAGUR 27. september 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 „Lifið og ég” Eggcrt Stcfánsson söngvari segir frá.Pétur Pétursson les (7). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 islenzk tónlist: 16.15 Veðurfregnir. J.M. Keynes: Framlag Mars- halls til hagfræðinnar Har- aldur Jóhannsson þýðir og flytur. 16.40 Lög leikin á fiðlu. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Jói norski”: A selveiðum mcð Norðmönnum Minn- ingar Jóhanns Daniels Baldvinssonar vélstjóra á Skagaströnd. Erlingur Daviðsson ritstjóri skráði og flytur (7). 18.00 Fréttir á ensku mi w Nt s «. • Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 28. sept. Hrúturinn21. marz-20.apríl. Það bendir margt til að þetta verði þér að mörgu leyti notadrjúgur dagur. Meðal annars fyrir upplýsingar sem koma að góðu gagni. Nautið, 21.april-21.mai. Þér er ráðlegast að taka daginn snemma, þvi að allt bendir til að flest muni ganga greiðlega fyrir hádegið, en nokkrar tafir verða, er á liður. Tviburarnir, 22.mai-21.júni. Þú munt ekki þurfa að kvarta yfir skorti á viðfangsefnum, hitt er svo annað hvort þér mundi ekki gagnlegra að hafa rýmri tima til að leysa þau. Krabbinn 22.júni-23.júli. Það kallar margt að i dag, og flest i einu að þvi er virðist. Þú þarft að herða skipulagið, ef ekki á allt að lenda i öngþveiti. Ljónið 24.júli-23.ágúst. Það litur helzt út fyrir að þú munir eiga úr vöndu að ráða einhvern tima dagsins, og að það muni takast betur en þú þorðir að vona. Meyjan, 24.ágúst-23.sept. Það litur út fyrir að skuldheimtumenn reynist óbilgjarnir. Það eins þótt ekki sé um háar upphæðir að ræða, svo að nálgast ósanngirni. Vogin24.sept.-23.okt. Þú virðist sæta nokkurri gagnrýni að ósekju, og er ekki óliklegt að þú takir þér það nærri i bili. En það hefur margur orðið að þola. I)rekinn24.okt.-22.nóv. Yfirleitt mjög góður dagur hvaðöll viðskipti snertir, og þó mun betra að selja en kaupa. Tefldu ekki djarft, þótt allt virðist i haginn. Bogmaðurinn, 23.nóv.-21.des. Varaðu þig, það er einhver, sem ekki ráðleggur þér heilt. Annars virðist þetta geta orðið notadrjúgur dagur, einkum framan af. Steingcitin22.des.-20.jan. Þér kann að berast girnilegt tilboð i dag, ef til vill i sambandi við ferðalag, en athugaðu samt gaumgæfilega allar aðstæður áður en þú tekur þvi. Fiskarnir20.febr.-20marz. Það litur út fyrir að þetta verði gagnlegur dagur fram eftir. Þú ættir þvi að taka hann snemma og koma i verk eins miklu og unnt reynist. Vatnsberinn21.jan-19.febr. Fremur rólegur dagur, að minnsta kosti framan af. Óvænt heim- sókn getur sett skemmtilegan svip á kvöldið. f SJÓNVARP tí-íiiiníin«ii.»J?í?J?;?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?.J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?J?4?J?-ír 18.10 Tónleikar. Tiikynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Daglegt mál, Páll Bjarnason menntaskóla- kennari flytur þáttinn. 19.35 Alitamál.Stefán Jónsson stjórnar umræðuþætti. 20.00 Liane Jespers syngur lög eftir Debussy Marcel Druart leikur á píanó (Hljóðr. frá belgiska út- varpinu). 20.20 Sumarvaka a. Þoku- drungað vor, Jóhann Hjaltason fræðimaður segir frá hinztu för Eggerts Ólafssonar. b. úr Tulluljóð- um og fleiri kvæði Sveinn Bergsveinsson prófessor flytur. c. Draumur, Guð- mundur Þorsteinsson frá Lundi segir sögu d. Lög eft- ir islcnzka höfunda, Anna Þórhallsdóttir syngur við pianóundirleik Gísla Magnússonar og Söngfélag I.O.G.T. syngur, Ottó Guðjónsson stj. 21.30 Útvarpssagan: „Dala- lif” eftir Guðrúnu frá Lundi. Valdimar Lárusson leikari les (28). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Endur- minningar Jóngeirs, Jónas Árnason les úr bók sinni „Tekið i blökkina” (6). 22.35 Finnsk nútimatónlist 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Miðvikudagur 27. september 1972 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30. Hjólið. Fræðslumynd frá Time-Life um hjóliö i þjónustu mannsins. Rakin er saga hjólsins frá fyrstu tið og fjallað um þýðingu þess i þjóðfélögum nú- timans. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 21.00 Apokalypse. Stuttur, norskur þáttur um þýzka málarann Albrecht Diirer, ævi hans og listaverk. Durer (1471-1528) var einn af fremstu listamönnum endurreisnartimans og var meðal annars hirðmálari tveggja keisara, Maximili- ans I. og Karls V. (Nordvis- ion - Norska sjónvarpið) 21.10 Erfið ákvörðun. (Command Decision). Bandarisk biómynd frá árinu 1949. Leikstjóri Sam- Wood. Aðalhlutverk Clark Gable, Walter Pidgeon og Van Johnson. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. Myndin greinir frá á'hættu- sömum ferðum bandanskra flugmanna á striðsárunum til loftárása á Þýzkaland frá bækistöðvum i Bretlandi. 23.00 Dagskrárlok.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.