Vísir


Vísir - 16.10.1972, Qupperneq 9

Vísir - 16.10.1972, Qupperneq 9
1 VÍSIR Mánudagur 16. október 1972. cTVIenningannál eftir Ólaf Jónsson Um áróður Hvað er annars áróður? /,Fortölur, það að mæla fyrir e-u," segir orðabókin. i áróðri er vafalaust oftast sagt að einhverju marki satt og rétt frá. En verður' eintóm frásögn staðreynda nokkurn tima að ,,áróðri" i venjulegri merkingu þess orðs? Áróðri fylgir jafnan tilfinningahiti og þungi. En það getur einnig verið áróðurað mæla með rökum fyrir réttu máli. I mæltu máli held ég að orðið „áróður’' hafi a.m.k. öðrum þræði ótviræða niðrandi merk- ingu. neikvæðari en orðabókin gefur til kynna. Þá felur orðið i sér að um sé að ræöa gróflega einföldun, ef ekkibeina rangfærslu staðreynda, villandi rökfærslu til framdráttar einum málstað um- fram annan. Að öðrum kosti vis- uðum við ekki ofstækisfullum ein hliða málflutningi á bug sem „eintómum áróðri”, eins og við oft og einatt gerum i daglegu tali. Svo skefjalaus málflutningur þykir brjóta i bága við velsæmi og rétta breytni, allténd þegar um er að ræða málefni sem ekki eru all- ir sama sinnis um fyrirfram. Þetta efni vaktist upp i haust þegar tvivegis var sýnd i sjón- varpi sænsk kvikmynd um hryðjuverk Bandarikjamanna i striðinu i Vietnam. Séð með eigin augum nefndist myndin, gerð að sögn á vegum alþjóðlegrar stofn- unar sem starfar að rannsóknum á striðsglæpum Bandarikja- manna i Vietnam. En efni mynd- arinnar var einkum að gera grein fyrir ýmsum hervirkjum þeirra sem sér i lagi er beint gegn óbreyttum borgurum, hinum al- ræmdu stálkúlu-sprengjum og öðrum viðlika vopnum sem til þess eru fallin að vekja ógn og skelfingu ibúanna, pynda menn og misþyrma fremur en verða þeim að bana, napalm-, fosfór- og gas-hernaði gegn landsinönnum, ásamt hinum viðtæka eiturhern- aði gegn gróðri i landinu. Ætli það séu ekki flestir sam- mála, að minnsta kosti i orði kveðnu, um að fordæma slikan hernað? Ekki hefur þess heldur orðið vart i umræðum um sjón- varpsmyndina að brigður væru bornar á eínisatriði hennar, að þessum vopnabúnaði væri raun- verulega beitt i Vietnam með þeim hætti sem myndin lýsti. Er þess þó skammt að minnast að þegar svipuð og sömu ákæruefni voru borin upp fyrir hinum svo- nefnda Russell-dómstól i Stókk- hólmi fyrir nokkrum árum voru þau almennt höfð að engu, ellegar visað á bug sem marklausum áróðri, uppspuna og lygi. En svona hefur almenninsálit á strið- inu breytzt á þeim fáu árum sem siðan eru liðin. 1 hinum vandræðalega sam talsþætti sem fylgdi á eftir kvik- myndinni i sjónvarpinu bar brátt á góma að hér væri um að ræða „einhliða áróður”, en þá fullyrð- ingu tók siðan hver upp á eftir öðrum um myndina út i frá. Með þessu virtist vaka fyrir mönnum að i þessa mynd vantaði aldeilis alla greinargerð fyrir viðlika hryðjuverkum andstæðinga Bandarikjamanna i striðinu, skæruliða þjóðfrelsisfylkingar- Þú & MÍML. 10004 VISIR SÍMI 86611 innar og hermanna Norður-Viet- nams, en án slikrar greinargerð- ar væri réttu máli i raun og veru hallað. Sjaldan veldur einn þá tveir deila, segja menn þá: hinir eru barasta ekkert betri! En samt er það ekki véfengt að myndin segi satt og rétt frá svo langt sem hún náði. Nú efast vist enginn um að ófagrar sögur mætti segja af hryðjuverkum, morðum og mis- þyrmingum norðanmanna og skæruliða i striðinu, að einnig þeir heyi styrjöld gegn óbreyttum borgurum og almenningi i Vietnam. En hvaða gildi hefði slikur samanburður hervirkj- anna? Ekki yrðu þau morðverk sem frá var greint i sjónvarps- myndinni hótinu „betri” né rétt- lætanlegri fyrir það, þótt hún væri aukin frásögnum af öðrum ill- virkjum, hins vegar i striðinu. En i ööru lagi virðist óliklegt að slik frásögn, þótt til hefði komið, mundi greina frá viðlika eða sambærilegum hervirkjum. Það óhugnanlegasta við sjónvarps- myndina var hin háþróaða kald- rifjaða vigtækni sem hún lýsti, — og slikri tækni er einfaldlega ekki til að dreifa hins vegar viglinunn- ar þótt menn vildu beita henni. innfæddir menn i landinu verða að vinna sin illvirki með miklu frumstæðara móti. En umrædd kvikmynd i sjón- varpinu var alls ekki i þvi skyni gerð né sýnd að gera grein fyrir striðsrekstrinum i Vietnam á báða bóga. Þvert á móti: þvi var lýst fyrirfram að hún fjallaði ein- vörðungu um glæpsamlegt athæfi Bandarikjamanna i striðinu. Án þess að véfengja sakarefnin, ræða nánar þær staðreyndir sem myndin lýsti er á hinn bóginn hægt að notfæra sér alkunna nei- kvæða merkingu orðsins „áróð- ur” til að visa frásögn hennar frá sér. Strið er viðbjóður, segja menn þá, strið er glæpur, allir eru sekir i striði... En frá þvi sjónar- miði er reyndar furðu skammt til þeirrar skoðunar að „einhliða áróður” eins og myndina frá Vietnam sé i rauninni „óviður- kvæmilegt” að sýna, t.a.m. i is- lenzku sjónvarpi, þótt allt sem hún sýni og segi sé satt og rétt. Það er svo auðvelt að loka aug- um og eyrun fyrir þvi sem menn vilja ekki sjá né heyra. Til hvers er að vera aö tala um þetta? Það er svo ljótt! En verulega eftirtektarverð verður slik skoðun á fréttaflutn- ingi, t.a.m. frá Vietnam, ekki fyrr en i bland við önnur viðhorf og skoðanir, t.a.m. þá að það sé írelsikrafa að sjónvarpsstöðin i Keflavik sé rekin óheft fyrir is lenzkan markað, en leigugjald megi gjarnan taka fyrir banda- riskar herstöðvar á Islandi. Einnig þær skoðanir eru til þótt þeim sé sjaldnar flikað en vert og skylt væri. Nýtt og enn betm Nescafé Nescafé er nú framleitt með alveg nýrri aðferð sem gerir kaffið hreinna og bragðmeira. Ilmur og bragð úrvals kaffibauna er nú geymt ómengað í grófum, hreinum kaffikornum sem leysast upp á stundinni. „Fínt kaffi!‘ segja þeir sem reynt hafa. Náið í glas af nýja, krassandi Neskaffinu strax í dag. kaffi med réttum keim Nescafé Luxus — stórkornótta kaffið i glösunum með gyllta lokinu verður auðvitað til áfram, þvi þeir sem hafa vanizt þvi geta að sjálfsögðu ekki hætt. I.BRYNIOLFSSON & KVMDN Hafnarstræti 9

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.