Vísir - 09.11.1972, Side 1

Vísir - 09.11.1972, Side 1
62. árg. — Fimmtudagur 9. nóvember 1972 — 257 tbl. ANNAÐ EINVÍGI FISCHERS OG SPASSKYS Á N/ESTA ÁRI? - SJÍ BAKSÍDU m mm Jólaösin er strax hafin Já. jólaösin er nú þegar byrjuö i sumum verzlunum borgarinnar. Sjá bls. 2 Fyrirtœki beri gróðann og ríkið tapið? Kinnst minkaræktendum, aö þeim beri gróðinn af rekstrinum, en rikið eigi aö bera tapið? Þannig spyr brcfritari i dag og ráðleggur þeim að taka tapið a sinar lierðar. Sjá bls. 2. Hvað tekur nú við í stefnu Bandaríkjanna? — sjá bls. 6 56% kusu í for- setakosningunum í Bandaríkjunum Þrátt fyrir citthvert mesta atkvæðamagn, sem sögur fara af i nokkrum kosningum — þá var kjörsóknin i for- setakosningunum i Banda- rikjunum i fyrradag sú slæ- legasta siðan 1948. Aðeins kusu 56% eða þvi sem næst. Sjá nánar á bls. 5 „Einar er skuldbundinn til að senda okkar stúlkur út" — sjá baksíðu Enn einn sjúkur til ísafjarðar i nótt baö brezka eftirlitsskipið Rangcr Brisais um leyfi til að taka sjúkan mann um borð í land- vari. Leyfið var þegar veitt og reyndist vera um að ræða skip- verja af togaranum Peter Scott. Fór eftirlitsskipið með hann inn til isafjarðar. Það er ef til vill ekki furða, þótt togarinn hafi ekki haft löngun til að koma sjálfur til hafnar. Peter Scott var fyrsti togarinn, sem fékk að kenna á klippum varð- skips, og hefur litinn áhuga á að eiga viðskipti við íslendinga sið- an. Sjómaðurinn mun hafa fengið botlangakast. Sökum dimmviðris á miðunum hefur ekki reynzt unnt að fljúga þar yfir og kanna fjölda veiði- þjófa undanfarna daga. — SG Krefja ÍSAL um 60-70% hœkkun Kröfur í 100 liðum, segir forstjóri íslenzka úlfélagsins Verkalýðsfélögin, sem hagsmuna eiga að gæta i Straumsvik hjá íslenzka álfélaginu hafa nú lagt kröfur sinar um kjarabætur i um 100 liðum. Að þvi er Ragnar Halldórsson, forstjóri ISAL, sagði i viðtali við Visi, jafngilda þessar kröfur a.m.k. 60-70% kostnaðarhækkun fyrir ISAL, ef að þeim yrði gengið. Halli á rekstri ISAL verður fyrirsjáan lega um 300 milljónir á þessu ári. Verkalýðsfélögin, niu talsins, lögðu fram sameiginlegar kröfur i um 40 liðum. Helztu kröfur þar eru um 33% hækkun grunnkaups, vinnutimastyttingu, aukningu or- lofs og aukningu starfsfólks, sennilega til að létta á þeim, sem fyrir eru. Auk þessara krafna leggja hin einstöku verkalýðsfélög fram sérkröfur, og eru þær samtals um 60 talsins. Ekki eru tök á þvi að gera öllum þessum kröfum skil. Þess má þó geta, að vaktavinnufólk hjá ISAL telur vinnutimann enn vera of langan, en vakavinnufólkinu ber að vera 37.5 klukkust á vinnu- stað. Þennan tima vill það stytta i 35 stundir. — Þá er farið fram á aukningu orlofs, en vaktavinnu- fólk hefur nú 4 vikna sumarorlof og 4 vikna vetrarorlof. — Vetrar- orlofið er þannig til komið, að fyrir styttingu vinnuvikunnar, sem gerð var i fyrra með lögum, hafði vaktavinnufólk 2 vikur i vetrarorlof vegna vinnu á helgi- dögum, en tvær vikur bættust viö vegná vinnutimastyttingarinnar, en erfitt var að láta hana ganga upp i vaktafyrirkomulaginu. Samningar verkalýðsfélaganna renna út 30, nóvember. en starfs- fólk ISAL hefur jafnan ekki átt samleið með öðrum launþegum, sem aðildarfélög ASl hafa samið fyrir. VJ Ollu geysilegu tjóni Múl skipverja ú Núttfara tekið fyrir hér eftir spjöll þeirra í Fuglafirði í Fœreyjum Skipverjarnir af islenzka sildarskipinu Náttfara, sem oilu miklu tjóni i Fuglafirði i Færeyjum i fyrrinótt, hefur verið sleppt þaðan, og er skipiö farið á veiðar. Verður málið tekið fyrir á islandi, en að þvi er fréttaritari okkar i Færeyjum sagði, krefjast þeir, sem urðu fyrir tjóninu, mikilia skaðabóta. Skipverjarnir stálu fimm bilum á staðnum, og eftir að hafa ekið á húshlið á timburibúðarhúsi endaði ferðin með þvi, að bflarnir fóru allir út af, en skipverjana sakaði ekki. Þeir stálu auk þess stórum kranabil, sem mun kosta tvær milljónir og er hann gjör- samlega ónothæfur eftir. Einn af eigendum bilanna fimm, en hann átvoþeirra, telur, aö skipverjar hafi valdið tjóni, sem nemur næstum einni milljón. Það er að segja, aðeins á þessum tveimur bflum hans. Skipverjar þessir voru ráðnir á skipið Náttfara stuttu áður en skipiö hélt frá íslandi til veiða. —EA Margur bilstjórinn tautar sjálfsagt eitthvað ekki faliegt yfir snjókomunni og óskar þess heitast, að snjórinn hyrfi sem skjótast. En þau óska þess árciðanlega ekki börnin, sem loksins geta dregið fram sleða sina úr geymslunni og rennt sér niður brekkurnar. Á sumum götum var jafnvel hægt að fara á skauta i gær, þvi að svo hálar voru þær orönar. Bjarnleifur tók þessa mynd i Ártúnsbrekku i gærdag, en þar var saman kominn hópur barna. Vcðurfræðingar spá engri úrkomu i dag, en sjálf- sagt mun snjór haldast eitt- hvað áfram. —EA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.