Vísir - 18.12.1972, Side 8
8
Visir. Þriðjudagur 19. desember 197:
i
/ .
Latinugránar á ársfundi
sinum
Illgjarnir stærðfræðinemar
kalla hina latinunemandi mála-
menn oft i háði „latfnugrána” af
ótukt sinni. Á ársfundi sinum
núna fyrir stuttu lýstu „gránar”
yfir óánægju sinni með þá útreið
sem latínan, Lingua Latina,
hefur fengið i hinum nýju
menntaskólalögum og hvetur
Magnús (maior, maximus)
menntamálaráðherra,, til að
skoða hug sinn til latinu, þannig
að hún verði aftur hafin i þann
sess, sem henni ber”, eins og þeir
félagar i Saltator, en svo heitir
félagið, segja i fréttatilkynningu
um málið. Að auki gerðu þeir
félagar ályktanir um
landhelgismálið og vilja styðja
við bak Ólafiu og einnig um
mjólkurmálið og var lækkun á
verði drykkjarins fagnað með
lófataki, en fundi slitið með þvi,
að „Nú árið er liðið” var kyrjað
af raust.
Á myndinni eru þeir
hinir hressu Saltators-menn eða
Latinugránar, hvort menn vilja
nú heldur.
JÓLATRÉ
LANDGRÆDSLUSJÓDS
ADAL ÚTSÖLUSTAÐIR: Hverfisgata 20 (neöan við Laugaveg7) og
Fossvogsblettur 1.
Aðrir útsölustaðir:
Vesturgata 6
Bankastræti 2
Blómatorgið v/ Birkimel
Sjóbúðin v/ Grandagarð
Laugavegur 95
Blómabúðin Runni, Hrisateig
Háaleitisbraut 68
Blómaval, Sigtúni
Lauganesvegur 70
Valsgarður v/ Suðurlandsbraut
Blómabúðin Mira, Suðurveri
Skrúðgarðast. Akur/ Suðurlands-
braut
Hagkaup, Skeifunni 15
Blóm og Grænmeti, Langholtsvegi
Við Breiðholtskjör
í KÓPAVOGI:
Blómaskálinn, Kársnesbraut
Við Félagsheimili Kópavogs
VERD Á JÓLATRJÁM:
0,70 - 1,0 m Kr. 220,00
1,01 — 1,25 — 260,00
1,26 - 1,50 — 320,00
1,51 - 1,75 — — 360,00
1,76 ~ 2,00 — — 430,00
2,01 - 2,50 — 550,00
BIIiGDASTÖÐ FOSSVOGSBLETTI 1. — SÍMAR: 40300 og 40313
FUItU- OG GRENIGREINAR SELDAR Á ÖLLUM ÚTSÖLU-
STÖDUM.
ADEINS FYRSTA FLOKKS VARA.
Látið eitthvað af hendi
rakna i jólapottana!
„beir eru ekki háværir eða
ágengir, þeir góðu hermenn”
segir biskup fslands m.a. i
áskorun sinni til þeirra, sem leið
eiga um verzlunargötur Reykja-
vikur þessa dagana og ganga þá
framhjá jólapottum Hjálpræðis-
hersins. „En pottarnir þeirra
minna á, að til eru heimili og ein-
stæðingar, sem bera ekki þunga
pyngju til jólainnkaupa og eiga
ekki rikulegra gjafa að vænta frá
ættingjum og vinum. Það sem
hrýtur i þessa potta, á að ylja
sliku fólki og gleða það á jól-
unum”, segir biskup.
Kúbuvika haldin á næsta
ári
Einhverntima snemma ánæstaári
verður haldin Kúbuvika í Reykja-
vik. bað er Vináttufélag Islands
og Kúbu, sem gengst fyrir þessari
viku. Þá er ráðgerð vinnuferð til
Kúbu næsta sumar. Félag þetta
var stofnað fyrir ári og eru
félagar nú um 70 talsins. Stjðrnin
er þannig skipuð: Orn Ólafsson,
formaður, Rannveig Haralds-
dóttir, gjaldkeri, Einar Gislason,
Ólafur Gislason, Rafn Guð-
mundsson og Úrsúla Sonnenfeld.
Norðmenn heiðra tvo ís-
lendinga.
Fyrir nokkru var Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuney tisstjóri,
heiðraður með kommanderkrossi
hinnar konunglegu norsku St.
Ólafs-orðu. Þá var Óskar
Þórðarson, yfirlæknir, heiðraður
með riddarakrossi af 1. flokki
sömu orðu. Hefur báðum verið
verið afhent heiðursmerkin af
sendiráðsfulltrúa hér i Reykja-
vik.
Þar er þó ekki
jólastressið!
bað fer litið fyrir jólastressinu i
Grimsey þessa dagana. Þar hefur
öll vinna legið niðri og raunar allt
siðan i september s.l. að þvi er
segir i Islendingi-Isafold.
Bátarnir 12 i eynni hafa rétt
getað skotizt út dag og dag vegna
ógæftanna en i fristundum, sem
nóg er af, iðka Grimseyingar
uppbyggingu andans með lestri
góðra bóka, spilamennsku eða út-
varpshlustun. Sumir dytta aö
bátum sinum, en vitaskuld nægir
það verkefni skammt.
,,Og engin regnhlif við
öryggisbeltið!”
„I þrjá stundarfjórðunga hafði ég
verið með lifið i lúkunum um að
vélarkrilið dytti undan flugmanni
og farþegum, — útgerðarmanni
að vestan, pilti úr Hrisey,
töskum, skjððum, fiðurfatnaði og
eldunarmeistara að sunnan —
Og engin regnhlif við öryggis-
beltið!” Þannig segir Guðrún
Jacobsen, rithöfundur m.a. frá
reynslu sinni af þvi að vera
kokkur til sjós, en það reyndi hún
i fyrra og segir frá þvi á sinn
skemmtilega hátt i jólablaði
Vikingsins, sem var að koma út.
Blaðið er fjölbreytt og kápusiðu
prýðir siglingamynd eftir sjálfan
Gaugin.
Ilefur málað i 40 ár, —
opnar nú verzlun með
málningu
Núna fyrir stuttu opnaði Þor-
steinn Gislason, málarameistari
verzlun á Grensásvegi 50, þar
sem hann selur máiningarvörur.
Þorsteinn hefur einnig verzlun
við Framnesveg, en búðir hans
heita Málarameistarinn. Þor-
steinn hefur i 40 ár starfað sem
málarameistari, en hefur nú
ákveðið að helga sig verzlunar-
störfum i grein sinni.
EITT ER ALVEG VÍST
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ SKOÐA ÚRVAL
OKKAR
OG
ÞAÐ SEM FYRST
Sími -22900 Laugaveg 26