Vísir - 28.12.1972, Page 13
Visir. Fimmtudagur 28. desember 1972. _______ 13
| ÍDAB llKV0L.Pl ÍDAB | í KVÖLD | I DAB |
Útvarp kl. 19.25 í kvöld:
UTANRÍKISÞJÓNUSTA
OG ÆRSLALEIKUR
meðal efnis í Glugganum
Meðal efnis i Glugganum i
kvöld er yfirlit yfir það helzta,
sem gerzt hefur i myndlistarlifinu
hér á tslandi á þessu ári. Það er
Gylfi Gislason, sem hefur umsjón
með myndlistarhlið þáttarins.
Guðrún Helgadóttir, sem
fjallar um bækur og bókmenntir,
fær Pétur Eggerz til sin og ræðir
við hann um bók hans, sem kom
út núna fyrir jólin. t bókinni, sem
heitir ,,Létta leiðin ljúfa”, tekur
Pétur utanrikisþjónustu okkar
islendinga nokkuð i gegn, svo að
sumum hefur fundizt nóg um.
Þessi bók er það nærri nútiman-
um, að margir af þeim, sem þar
er getið um, eru enn á lifi og allir,
sem eru af barnsaldri og hafa
fylgzt með islenzkum stjórnmál-
Óhætt er að segja, að yfirlitssýningin á verkum Þorvalds Skúlasonar
liafi veriö einn af merkustu viðburðum i myndlistarlif á islandi á árinu,
sem brátt liður i aldanna skaut.
Gylfi Gislason mun i þættinum Glugginn, sem er á dagskrá i kvöld,
íjalla nokkuð um það helzta, sem gerzt hefur á sviði myndlistar og
vafalaust mun sýning Þorvalds bera þar á góma.
Pétur Eggerz liel'ur slarfaö lengi i
utanrikisþjónustunni, lengst af
sem sendifulltrúi i Bonn. Ilann er
ómyrkur i máli i bók þeirri, scm
kom út eftir hann nú fyrir jólin.
Pétur mun lesa kafla úr bókinni i
Glugganum i kvöld, og einnig
ræðir Guðrún llelgadóttir við
han n.
um, kannast við flest nöfnin, sem
mest koma við sögu. Pétur mun
lesa kafla úr bókinni i þættinum.
,,Fló á skinni” heitir leikritið,
sem brátt verður frumsýnt hjá
Leikfélagi Reykjavikur. Sigrún
Björnsdóttir fór á æfingu á leik-
ritinu nú stuttu fyrir jólin, og
verða i þættinum fluttir nokkrir
kaflar úr leikritinu. Sigrún mun
einnig spjalla nokkuð um leikinn,
en þetta er ærslaleikur eða farsi
eftir franska leikskáldið Georges
Feydeau. ,Fló á skinni” er jóla-
leikrit Leikfélagsins að þessu
sinni, verður það frumsýnt þann
tuttugasta og niunda þessa mán-
aðar. —Ló
Útvarpið kl. 20.05
SJÚKLEG FÉGRÆÐGI
tekin fyrir af Moliére
Valur Gislason fer með aðalhlut-
verkið i jólaleikriti útvarpsins að
þessu sinni. Það er hinn blóðnizki
og eftir þvi ágjarni Harpagon,
sem verður viðfang Vals að þessu
sinni.
í minningu um 200 ára ártið
franska gamanleikaskáldsins
Jean-Baptistc Moliére verður eitt
af leikritum hans flutt sem jóla-
leikrit útvarpsins.
Leikritið fjallar um Harpagon
hinn ágjarna en nizka hans og
ágirnd i peninga stappar næst
brjálæði, hann er jafnvel tilbúinn
að fórna hamingju barna sinna til
að geta svalað fégræðgi sinni.
Leikrit þetta kom Islenzkum
áhorfendum fyrst fyrir sjónir og
hlustir, þegar menntaskólapiltar
léku það árið 1925, en Þorsteinn
Ö. Stephensen gerði þýðinguna
fyrir þá sýningu. Leikritið var
sýnt aftur af menntskælingum og
einnig i útvarpinu. Það er enn
þýðing Þorsteins, sem notuð er i
þetta sinn, nær óbreytt.
Helgi Skúlason leikstýrir að
þessu sinni, og að sögn er túlkun-
in mjög i anda hinnar gömlu
sönnu frönsku kómediu.
Sumir hafa nefnt þetta leikrit
tragediu, og eiga þeir þá við
hversu illa auragirndin fer með
bæði þá, sem henni eru haldnir,
og umgangsfólk þeirra. Meðal
þeirra, sem vildu halda þessari
skoðun fram, var Goethe gamli.
Ekki skulu hlustendur forðast að
hlýða á þetta leikrit af ótta við að
fara skælandi í svefninn, meira
að segja má liklega lofa flestum
þeim, sem eru búnir að ná sér
eftir mataritroðsluna á jólunum,
að þeir geti brosað i kampinn, ef
ekki rekið upp roku.
— Ló
Styrkir til háskólanáms
í Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa islend-
ingum til háskólanáms i Iianmörku námsárið 1973—’74.
Einn styrkjanna er einkum ætlaður kandidat eða stúdent,
sem leggur stund á danska tungu, danskar bókmenntir
eða sögu Danmerkur, og annar er ætlaður kennara til
náms við Kennaraháskóla Danmerkur. Allir styrkirnir
eru miðaðir við 8 mánaða námsdvöl, en til greina kemur
aö skipta þeim, ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er áætluð
um 1,384 danskar krónur á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal koiniö til menntamála-
ráðuneytisins, Ilverfisgötu-6, Reykjavik, fyrir 15. febrúar
1973. Umsókn fylgi staðfest afrit af prófskirteinum ásamt
meðmælum, svo og heilbrigðisvottorð. — Sérstök unt-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
22. desember 1972.
f:
^ *
spa
&
m
m
w
ja
.... . m
s*
n
v
Spáin gildir fyrir föstudaginn 29. desember.
IIrúturinn,21. marz—20. april. Það litur út fyrir
að dagurinn verði fremur viðburðalaus, flest
gangi sinn vanagang stórátakalaust, en heldur
fátt markvert beri til tiðinda.
Nautið, 21. april—21. mai. Sæmilegur dagur á
margan hátt, en eitthvað mun það samt sem
veldur þér nokkrum erfiðleikum, eða að minnsta
kosti heilabrotum.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Þú hefur i mörg
horn að lita, helzt til mörg, en annars mun allt
ganga heldur rólega fyrir sig i dag. Þú færð
skemmtilegt bréf eða heimsókn.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Þú kemst að raun
um það i dag, að þú hefur haft einhvern fyrir
rangri sök. Sem betur fer er óliklegt að þú hafir
haft orð á þvi.
Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Þetta verður mikill
annrikisdagur og að mörgu að hyggja hjá sum-
um, en rólegri hjá öðrum eins og gengur. Frem-
ur notadrjúgur dagur.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Ef til vill ber eitt-
hvað það fyrir þig i dag, sem þú átt erfitt með að
skilja og er ekki óliklegt að það geri þér gramt i
geði, á vissan hátt.
Vogin, 24. sept.—23.okt. Þú heíur betur i ein-
hverju máli, en ekki svo að skilja að þú hafir
efnahagslegan ábata af þvi, ef til vill aukið álit
og áreiðanlega aukið sjálfstraust.
Drekinn, 24. okt.^22. nóv. Fátt markvert sem
ber til tiðinda i dag, en allt mun það fremur
jákvætt og margt koma sér þægilega fyrir þig i
sambandi við fyrirætlanir þinar.
Boginaðurinn, 23. nóv.— 21. des. Sumt að
minnsta kosti mun ganga heldur treglega i dag.
Ekki ér óliklegt, að þú fáir skemmtilega
heimsókn þegar á liður, ef til vill óvænta.
Stcingeitin.22. des,—20. jan. Ekki er útilokað að
þú verðir aö taka afstöðu til breyttra aðstæðna i
dag, og það er sennilega án nokkurs teijandi
undirbúnings.
Vatnsberinn,21. jan.—19. febr. Þú þartt i raun-
inni að margskipta þér i dag, og það kann
sjaldnast góðir lukku að stýra. Reyndu að verða
þér úti um ró og næði er kvöldar.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Það litur út fyrir
að dagurinn verði góður, og jafnvel betri en
iram kemur l'yrr en siðar. Þú átt þina að á bak
við tjöldin þessa dagana.
ÚTVARP •
14.15 B ú n a ða rþá It u r : Úr
h e i in a h ii g u m G i s 1 i
Kristjánsson ritstjóri talar
við Friðrik Jónsson bónda á
Þorvaldsstöðum i Skriðdal.
(endurt.)
14.30 Siðdegissagan: „Siðasta
skip suður” eltir Jiikul
Jakobsson.Höfundur les n)
15.00 Miðdegistónleikar:
G iim ul tónlist. Madrigala-
kvartettinn i Madrid syngur
spænska madrigala.
Anthony Newmann leikur á
sembal Forleik i b-moll eftir
Johann Sebastian Bach og
Sónötu nr. 33. eftir Haydn.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.25 Popphorniö.
17.10 Barnatimi: Olga Guðrún
A r n a d ó 11 i r s l j ó r n a r a.
Ljósiö Frásagnir , kvæði og
tónlist. Lesari með Olgu
Guðrúnu: Ágúst Guð-
mundsson. b. Útvarpssaga
barnanna: „Egill á Bakka”
eltir Jolin Lie.Bjarni Jóns- .
son isl. Gunnar Valdimars-
son les (4).
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðuríregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.25 Glugginn Umsjónar-
menn: Gylfi Gislason,
Guðrún Ilelgadóttir og
Sigrún Björnsdóttir.
20.05 Jólaleikrit útvarpsins:
„llarpagon eða llinn
ágjarni" eftir Jean-Baptistc
M oIié r e . Þý ð a n di :
Þorsteinn ö. Stephensen.
Leikstjóri: Helgi Skúlason
Persónur og leikendur:
Harpagon/Valur Gislason
Cléante, sonur hans/Arnar
Jónssón Elisa, dóttir
hans/Margrét Guðmunds-
dóttir Anselm/Jón Aðils
V a 1 é e r , s o n u r
Anselms/Þorsteinn
Gunnarsson Mariane, dóttir
Anselms/Þórunn
Sigurðardóttir
Frosine/Sigriður Hagalin
Meistari Simon/Karl
Guðmundsson Meistari
Jacques, ekill og bryti/Árni
Tryggvason. Þjónar hjá
Harpagon/Kjartan
Ragnarsson og Jón Hjartar-
s o n L ö g r e g 1 u -
fulltrúi/Valdemar Helgason
22.00 Fréttir-
22.15 Veðurfregnir i sjón-
h e n d i n g : Þe g a r
M o r gu n s t j ö r n u n n i v a r
bjargaö. Sveinn Sæmunds-
son rifjar upp gamalt sam-
tal við Einar Ólafsson stýri-
mann.
22.45 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar
pianóleikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli .
Dagskrálok.