Vísir - 27.01.1973, Síða 1
vísm
63. árg. — Laugardagurinn 27. ianúar 1973 — 23. tbl.
POMPEII NÚTÍMANS?
Sjá myndsjá frá Eyjum á bls. 8-9 og bls. 5
Eyjamenn fýsir á vertíð
Blaðamaður kannar andrúmsloftið í Hafnarbúðum SJÁ BLS. 2
GENGIÐ
OFAR
SNÚRU-
STAURUM
Edda Andrésdóttir frá Eyjum:
Tiltölulega rólegt var á gos-
stöðvunum i gærkveldi, að
minnsta kosti þegar miðað er
við fyrrinótt.
Vindátt var hagstæö fyrir
byggöina. Hún var á vestan, og
beindist reykjarmökkur og
öskufall þvi að sjó. Ekkert ösku-
fall var i bænum i gær frá þvi á
hádegi. Nóg var samt um ösk-
una á götum og húsum i kaup-
staðnum. Dæmi eru meira aö
segja um það, að fólk hafi stigið
á snúrustaura austast i bænum,
þá t.d. við þau hús, sem standa
ofan við Bústaöarbraut nær
Helgafelli.
20 hús hafa nú brunniö af
völdum eldgossins. Eru þau hin
sömu nú komin á kaf i ösku.
Sums staöar hafa brotnaö rúður
i húsum og herbergi fyllzt af
ösku. Við komum t.d. inn i hús,
þar sem við komum inn i bað-
herbergi, sem kunnugur tjáði
okkur að hefði verið eitt það
fallegasta i bænum. Herbergið
haföi fyllzt af ösku.
Þak þess húss var að þvi kom-
iö að gefa eftir undan þunga
öskunnar, sem á þaö haföi safn-
azt. Sperrur voru komnar niður
úr loftklæðningu. Þar voru hús-
eigendur og menn með þeim aö
bjarga þvi sem bjargað varð úr
húsinu. Meðal annars voru þeir
að skrúfa úr eldhúsinnrétting-
unni eldavélarsamstæðuna og
rifa teppi upp frá gólfunum, en
það var þó meira en margur
annar hefur getað hér i Eyjum.
Eitt hlaðið hús sáum við, sem
þoldi ekki þunganmaföskunni og
voru húsveggirnir að kikna
undan þunganum.
Sums staðar gengur maður
eftir götum, sem hækkað hafa
upp i sömu hæð ogsnúrustaurar
náðu. Verst virtist ástandið
vera þar, sem slétt þök eru, sem
ekki hafa þolaö þungann.
„Patentlausnir"
lesenda á gosinu
Sjó bls. 2
„Nú kemur
Steini ekki
framar"
Viðhorf
Vestmannaeyjadrengs
Sjó baksíðu
Hélt árásarmanni
unz lögreglan kom
Sjá baksíðufrétt
Vísnaþátturinn
Bls. 14
Sundurtættir húsbúkarnir I Vestmannaeyjum verða sifellt fleiri. Þegar sprengjuhrinunni linnti voguðu þessir menn sér að skoöa rústirnar,
austast i bænum, með ógnþrunginn bjarma gossins i baksVn. Enn snerist vindur i gærkvöldi og austanáttin sendi ösku og vikurmolana I
nýja árásarferð yfir bæinn. — Ljósm. Sigurgeir Sigurjónsson — imynd
40 HÚS NÚ EYÐILÖGÐ
Gúmmbátar til staðar, ef höfnin lokast — mökkur yfir bœinn og nokkur aska
Edda Andrésdóttir, Eyjum
klukkan eitt I nótt:
Tuttugu hús eru komin á kaf og
önnur tuttugu brunnin, að sögn
Magnúsar H. Magnússonar
bæjarstjóra i Vestmannaeyjum.
Ryk barst yfir bæinn snemma
nætur, þótt lygnt væri að mestu,
og mikil brennisteinsfýla.
Hins vegarerenn fremur lygnt,
en háskinn mikill, ef hvessir
mikið.
Verst virðist ástandið vera, þar
sem voru slétt þök, þvi að i
mörgum tilvikum þoldu þau ekki
þungann. Hallandi þök hafa
staðizt betur, og i gær var byrjað
að sópa af þökum, svo að minni
ástæða á að vera fyrir ibúa aö
óttast um þau hús sem standa,
eins og flest gera enn.
Ibúðarhús ganga algerlega
fyrir. Til dæmis er óheimilt að
flytja nokkuð úr verzlunum. Það
verður ekki gert fyrr en siðar. Þó
var flutt úr Apóteki Vestmanna-
eyja i gærmorgun.
Nú er farið að rætast úr þeim
matvælavanda, sem var hér
fyrst eftir að gos hófst. Lögreglan
hefur nú i fórum sinum lykla að
verzlunum i bænum. Einnig er
farið að flytja matvæli með
Herjólfi, sem kom til dæmis með
mjólk frá landi i gær. Fáir sáust á
ferli i gær. Hús eru auö og tóm, og
aldrei hefur verið jafn eyðilegt og
tómlegt i bænum og i gær, siðan
gosið hófst. Það var harla ein-
manalegt að ganga um göturnar
með drunur fyrir eyrum og
titrandi jörðina undir fótum sér.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
hefur nú skipt sér, og eru nokkrir
i Reykjavlk en aörir i Eyjum.
Fólk heldur áfram við flutn-
inga, hvort sem eru húseigendur
eða aðstoðarmenn, þótt ösku-
fallið dynji á þeim, meðan hús-
munir eru ekki taldir skemmast
við, eða fólk hljóti áverka.
I viðtali, sem Visir átti i gær-
kvöldi við Magnús H. Magnússon
bæjarstjóra spurðum viö
Magnús, hvað yrði tekið til
bragös, ef allt i einu skapaðist
hættuástand, svo að flytja yrði
fólk burt.
Árvakur og Lóðsinn við-
búnir neyð
„Arvakur liggur i höfninni
núna”, sagði Magnús, og einnig
báturinn Lóðsinn og með þeim á
að vera hægt að koma heim þeim
rúmlega 100 mönnum, sem hér
eru. Ef höfnin lokast hins vegar,
þá er annað varðskip úti fyrir
Eiðinu og yrði þá að komast út i
skipið í gúmmbátum. Þeir eru til
ef þarf.
„Ég geri mér vonir um, að
gosið geti breytzt og orðið venju-
legt hraungos. Mér sýnist gosiö
hafa verið minna i dag en áöur
ogvona,að yröi venjulegt hraun-
gos, þá gæti atvinnulifið farið
smátt og smátt I gang. Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur
minnist þó ekki hraungoss, sem
staöið hefur i styttri tima en einn
mánuð.
Það skal tekið fram vegna
fréttar I gær um gufu á iþrótta-
velli, að þar var um að ræða föt-
boltavöll, sem er skammt frá
hraunjaðrinum.
Vestmannaeyingum boðnar 500-1000 stöður
— en fáir hafa enn sótt um vinnu
Sjá baksíðu