Vísir - 27.01.1973, Page 14
14 Vfsir. Laugardagur 27. janúar 1973
US*4- komið nú að kveðast á
^3C3C3«^3C5^3C%3C5«^3^3«C3^3C3C3«C»3Í3^%3^%3««C3C3«Ö»^3«C^3C3^X3Q3€3«€3S3«^3CX3«C3C3»«^3«C3^3»Í3C5Ö«C^
VVVVN
Auðsjáanlega hefur skáldfákurinn verið
vel alinn að undanförnu, ef dæma má eftir
þátttöku ykkar I visnaþættinum. Borizt
hefur mikiil fjöidi visna, botna og bréfa.
Skemmtilegt gæti verið að birta það allt,
en þvf miður er það ekki hægt vegna þess,
að rúm það í blaðinu, sem vísnaþátturinn
hefur yfir að ráða, er takmarkað.
Fjölmargar áskoranir hafa aö undan-
förnu komið fram um það, að visna-
þátturinn verði á hverjum iaugardegi. Og
mun svo verða, a.m.k. nú um sinn.
En þá er komiö að fyrsta fyrriparti
þessa árs, en hann var I visnaþættinum6.
janúar og er á þessa leiö:
Þessi ræfils rikisstjórn
rændi kaupi minu.
Allmargir botnar bárust, og fiesta
þeirra sjáum við i þessum þætti, ásamt
ýmsu öðru.
Blaðinu fletti á blaösiöu nlu,
blasti viö visnaþraut.
Aður en taldi ég uppá tiu
af tungunni þetta hraut:
Aöra hvergi fundu fórn
fylgi að bjarga sinu.
Rauðhaus
Lýðurinn skal færa fórn,
fjandinn heldur sinu.
H.J.Þ.
Stjórninni þú færðir fórn,
en fargar lifi þinu.
Ei lét Mangi á Mel þá fórn
mig færa i starfi sinu.
Muna skalt þá miklu fórn
með atkvæðinu þinu.
G.F. 19
Vill að aðrir færi fórn,
en fiskar eftir sinu.
Ég sendi um leið visu, sem varö til
þegar stjórnin hóf göngu sina:
Létt og fri er leiðin nýja,
landann flýja sorgirnar.
Efst I skýjum Ólafia
er að vigja borgirnar.
K.S.
„Ihaldi” stærri færði fórn.
„Framsókn” ver oss pinu.
Jónina frá Gemlufalli
En veröur brátt að færa fórn,
og flýja úr bæli sfnu.
Fyrrverandi kjósandi
Heimtar, að ég færi fórn,
fórnar engu af sinu.
Þyldu sjálfir þyngri fórn
þings af kaupi sinu.
Létta á sig leggja fórn
af „lúsarkaupi” sinu.
B.S.
Ennþá má ég færa fórn
og fylgja nýrri linu.
Halldór af mér heimtar fórn,
handa liði sinu.
Guðm. Valur Sig.
Svona er að færa fórn,
fjandinn lá á sinu.
Halli stautur
Allir veröa að færa fórn
fyrir lifi sinu.
Magnús á Barði
Góð er talin gervifórn,
sem gerir út um brýnu.
Visu dagsins Visi hjá
visu áttu sprundin.
Visa óx af visi þá
visitölubundin.
S.S.
Það er illt ef örsmá fórn,
umsnýr geði þinu.
Óspart keyrðir ofani svað,
eru stjórnar brestir.
Hjá Visi kappar kunna að
krita liðugt — flestir.
S.S.
En þeir sem enga færðu fórn
fengu að halda sinu.
Þú ert jafnan, Visir, vitur,
veglegt skipar sæti hér.
Um þig næöir úlfaþytur,
en þú stendur allt af þér.
Þ.Ax.
Ég nefndi ei þessa neyðarfórn,
næði hún marki sinu.
Þvi greyi á ekki að gera fórn,
sem gleymir verki sinu.
M.
Hin þó nokkra færði fórn
fyrir striti sinu.
H.LIndal
Hver vill ekki færa fórn
fööurlandi sinu?
H.joð.
Vísan eykur allra þor,
öllum gleði veitir.
Geymir merkra manna spor,
man þvi hvað þú heitir.
Hildur i Dal.
Nú eru Ólafs-ingar slegnir,
ýmsar blikur sjást á lofti.
Siaðar allar sjóða eignir,
sjatnað loft i þeirra kvofti.
G.Þ.
Leiöinlegt hvað landhelgin
á litið brautargengi.
Veigalitil varðskipin
verða hér of lengi.
Bogi Hails
Allir veröa að færa fórn
úr forðabúri sinu.
Margir stærri færa fórn:
fórna lifi sinu.
Gefðu ætið hin góðu ráð,
gæt að þvi hverju sinni.
I akurinn þegar illa er sáð,
uppskeran verður minni.
Gleymdi hún alveg eiði sórn-
um og heiti sinu?
Orðsending til Ólafiu.
Þó að áhöfn vinni vel
verður stjórnarskripið
um borö i þjóöarskútu skel
I skyndi að mæla dýpiö.
Ranki
J.B.
Og hér er gömui visa I nýrri útsetningu.
Enginn grætur íslending,
eignalausan, fláinn.
En þegar allt er komið i kring,
krefur Halldór náinn.
Fyrrverandi kjósandi Halldórs. E.
Illt er að þurfa að færa fórn
fyrir lifi þinu.
Lætur snauða færa fórn
fyrir lifi sinu.
Aumt er gólið enn i kórn-
um á bolsalinu.
Man nú enginn eftir bjórn-
um i þinghúsinu?
Eins og stjórnin óð væri
og aösteðjandi vandi.
Gengið f^lldi i góðæri
sem gekk á sjó og landi.
Mundi Jör.
Það er hart að færa fórn
og fjárhags- þjást af - pinu.
Visir birtir visurnar.
Visir segir fréttirnar.
Visir skemmtir visnaþjóð.
Visir treður eigin slóð.
Fyrir þetta ég þakka vil.
Þess ég ætið hlakka til,
að lesa VIsis vlsnaþátt.
Visir birtir stórt og smátt.
Ólafur að Norðan
Um iandhelgislinuna.
Innfyrir linu ei skal fara,
aðeins ber það með sér skaða.
Lagabrjótar bráðum fara
burt með 50 milna hraða.
Strákur
Til 28 ára húsmóður, frá Stefáni Rafn.
Þannig henni færa fórn
flestir úr pússi slnu.
Jón Sigfinns. Seyðisfirði.
Hún ekki mikla færði fórn,
þótt færi úr sæti sinu.
28ára húsmóðir
Enn mun þjóðin færa fórn
I fyllirii sinu.
L.J.
Atkvæðis ég færi ei fórn
framar slikri pinu.
Flýgur staka fyrst um borg,
svo fram til dala.
Langar mig nú lika að tala
þvi ljóðakvörnin er að mala.
A.R. Akranesi
Allir verða að færa fórn
föðurlandi slnu.
3. A.
Mörgum reyndist frekust fórn
— fáir halda sinu.
Ýmsir hafa krappan kost
kneyfað hjá vorri þjóðu,
en til eru þeir sem funa og frost
finna I hitamóðu.
A.G.Akranesi
Ætli stjórnin færi fórn
úr forðabúri sinu?
I.A. Michelsen
En ég verð þessa aö færa fórn
fyrst ég kaus þá pinu.
Theodór Einarsson
Það var ráð og rifleg fórn,
svo refirnir haldi slnu.
Það fór illa þessi fórn,
þeir fengu I magann pinu.
Sig.Bj.
Viöreisn færöi ég meiri fórn,
fjandinn heldur sinu.
A.Stef.
Þúsundfalda þjóöarfórn
þungri veldur pinu.
G.G.
Allir henni færa fórn,
fjaldinn sleppir ei sinu.
J.
Halldór mikla heimtar fórn
og heldur striki sinu.
Er ég hrekst um lifsins hjarn
þá hugann læt ég sveima.
Það væri bezt að vera barn
I bænum gamla heima.
Arni Júl. Arnason
Einhverntima færa fórn
flestir I lifi sinu.
Ef fyrripartinn vandað vel
visnaþáttur getur,
yrði lika, að ég tel,
endirinn gerður betur.
Scsselja Þórðardóttir
Sjálf hún ætti að færa fórn
og fremur taka af sinu.
Þó glöð ég færi þessa fórn
fyrst „Rlkið” heldur sinu.
Elsku Visir! eg þig bið
ekki meiri pólitik.
Stjórnina látum fá sinn friö,
mér finnst orðið nóg um aurköst slik.
Stöndum bara bein og keik
og berum harm I hljóöi,
þó Óli fari I feluleik
með flesta varasjóði.
Aðalbjörg Zóphoniasd.
Af sérstökum ástæðum er þessi fyrri-
partur birtur aftur nú.
Hjá stjórninni er fátt um fina drætti,
fljótandi gengi ergir Hannibal.
Og þrir botnar.
Þvi er bara að þjóðarhætti
þingið eykur krónu tal.
Andstaðan segir að hún hætti,
önnur betri koma skal.
Steinunn frá Hvoii
Visnaþátturinn þakkar <og fyrirgefur
fúsiega) visuna sem þú sendir, Steinunn,
og óskar þér ails hins bezta i framtiðinni.
En hvað kom til, að voldug viðreisn hætti?
Varð henni ofjarl bóndinn i Selárdal?
Þjóðarbúið blómgast þarf,
bæn og trúarstyrkur.
Að þvl hlúi okkar starf.
Enn ert þú svo virkur.
Stefán Ilallsson, Kefiavik
Ef ég drósar fengi fund,
sem fyrst á ljósri morgunstund,
þá skal hrósa þornagrund
þýðri rós með gull i mund.
Gamankveölingar ortir eftir lestur
greinar Grétu Sigfúsdóttur I Mbl. 11. jan.
s.l. þar sem hún reiðir hirtingarvöndinn
að „óla” Jónssyni, ritdómara Visis.
Sigfúsdóttir siðar dóna og róna,
sem ropa og freta að ritum þeim,
er renna frá Grétu um allan heim.
Fljót var hún aö kveða I kútinn
karganhrútinn.
A honum finnst þvi ekki mark,
eftir þetta siðsta spark.
Stefán Rafn
Sunnudagsvisurnar
Alltaf vlsum unni þjóð.
Ærinn er visumáttur.
Gleður visa guma og fljóð.
Góður er Visisþáttur.
Inn til dala, útvið sæ
aðdáendum safni.
Visnaþáttur Visis æ
vel og lengi dafni.
H.Z. Dalvik
Við skulum svo hafa næsta fyrripart
svona:
Saman tengir lif og lit
listafenginn maður.
Efni i næsta þátt þarf að berast i siðasta
lagi þriðjudaginn 30. janúar.
Utanáskriftin er: Dagblaðið Visir
„Komið nú að kveðast á” Síðumúli 14
Reykjavik.
L.T.H.