Vísir - 27.01.1973, Blaðsíða 15

Vísir - 27.01.1973, Blaðsíða 15
Vlsir. Laugardagur 27. janúar 1973 n □AG | Q KVÖLD | Q □AG | Q KVÖLD | Q □AG | Sjónvarp í kvöld kl. 20.50: Kvöldstund í sjónvarpssal Ágúst Atlason, Helgi Pétursson og ólafur Þórðarson taka á móti gestum i sjónvarpssal i kvöld. Meðal gesta verða: Guðrún A. Simonar, sem syngur eitt lag, Aldila, við undirleik Guðrúnar Kristinsdóttur. Rósa Ingólfsdóttir syngur lag sem nefnist Ræ ég við róður minn, en lagið er eftir hana sjálfa. Magnús Sigmundsson og Jóhann Helgason syngja eitt lag saman, Sweet Cacándro, og leika sjálfir undir. Lagið og textinn er eftir Jóhann Helgason. Þá mun Vilhjálmur H. Gislason syngja eitt lag, Karlmannlegur beið hann Böðvar. undirleik annast Ragnar Þorgrimsson. Enn- fremur ætlar hún Hanna Valdis Guðmundsdóttir að sýngja lagið um hanan Linu langsokk, en textinn er eftir Kristján frá Djúpalæk. — LTH Þetta eru þær Guðrún Á. Símonar, óperusöng- kona, og Guðrún Kristinsdóttir, píanóleik- ari. Hljóðvarp í kvöld kl. 19.40: HIN ÓDAGSETTU BRÉF sinni I kvöld. í dag spjallar Hjörtur Pálsson við Jón úr Vör, skáld, og munu þeir sjálfsagt fjalla meðal annars um nýútkomna ljóðabók Jóns, „Vinar- hús.” Sum ljóðin i þeirri bók eru þýdd, en flest eru frumort. Fyrsta ljóðabók Jóns, „fig ber að dyrum,” kom út skömmu fyrir 1940, en næsta ljóðabók hans, „Stund milli striða,” var útgefin nokkrum árum siðar. Sú þriðja i röðinni var hin margumtalaða bók „Þorpið,” en hún kom út á árinu 1946. Fyrir þá bók er Jón úr Vör einna þekktast- ur sem ljóðskáld. Hér erofurlitið sýnishorn, tekið úr ljóði, sem er i bókinni „Vinar- hús”. Sum ljóð min, sum beztu ljóð min, eru ódagsett bréf, stiluð til min sjálfs, rituð i myrkri og send áður en birtir. Jón mun lesa úr hinni nýju ljóðabók sinni fáein ljóð. LTH Háskólabió: Fyrsta mynd franska snillingsins Truffauts er næsta mánudags- mynd. Yrkisefniö tekiö úr æsku hans. Næstkomandi mánudag sýnir Háskólabió fyrstu myndina, sem Francois Truffaut gerði og varð frægur fyrir, eins og kunnugt er. Þetta er myndin „Ungur flótta- maður.” Myndin fjallar um það skelfilega áfall, sem 12 ára drengur veröur fyrir, þegar hann sér móöur sina i örmum ókunns manns. Drengurinn, Antoine, telur sig grimmilega svikinn af móður sinni, og hann verður ekki mönnum sinnandi, Hann missir allan áhuga á skólagöngu, fer á flakk, stelur og lýgur og blekkir. Loks er hann settur á uppeldis- hæli, en strýkur þaðan — hann hefur gert algera uppreisn gegn öllu og öllum. Eins og þegar segir, er þetta fyrsta langa myndin, sem Truffaut gerði, og fékk hún verð- laun á kvikmyndahátiðinni i Cannes árið 1959. Það tryggði Truffaut heimsfrægð, sem hann hefur aukið á siðan. Þess er vert að geta, að Truffaut tók atvik úr eigin æsku til meðferðar i mynd þessari, og munu menn þá skilja, hver áhrif það hefur haft á hann, en allir eru sammála um, að hann fari nær- færnum listamannshöndum um viðfangsefnið. Fyrstu sýningar myndarinnar verða mánudaginn 29. janúar. Hljóðvarp sunnudag kl. ÓPERAN TANNHAUSER Óperan „Tannhaus- er”, eftir Richard Wagner, verður flutt á sunnudag. Flytjendur eru: Hugh Beresford, Gwyneth Jones, Bernd Weikl, Hans Sotin, Harald Ek, Franz Mazura, Heribert Stein- back, Heinz Feldhoff og Walter Gambert, ásamt hátiðarkór og hljómsveit óperunnar i Bayreuth. Erich Leinsdorf stjórnar, en Arni Kristjánsson, tónlistarstjóri kynnir. LTH Myndin er af Richard Wagner. Hann fæddist árið 1813, þann 22. mai, en dó 13. febrúar 1883, tæp- lega sjötugur aö aldri. Laugardagsmyndin er í kvöld kl. 21.30: Laugardagsmyndin að þessu sinni heitir Lyftudrengurinn. Þetta er frönsk biómynd, jafnt við hæfi barna sem full- orðinna. Hún gerist i stóru hóteli i Monte Carlo og segir frá dreng, sem starfar við lyftu hótels- ins. Hann lendir i hinum margvislegustu ævin- týrum, en sleppur furðu vel' frá þeim öllum. Auglýsing um dlagningu fasteigna- gjalda í Reykjavík 1973 Lokið er álagningu fasteignagjalda 1973. Gjöld þessi eru: Fasteignaskattur, sbr. 3. gr. laga nr. 8/1972, 0,75% af fasteignamati ibúða og ibúðarhúsa ásamt lóðar- réttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihúsa og mann- virkja ábújörðum, sem tengd eru landbúnaði og 1,5% af öllum öðrum fasteignum, sem metnar eru fast- eignamati. Miðað er við fasteignamat 1. janúar 1970 með 20% hækkun. Kærufrestur til borgarráðs vegna ágreinings um gjaldskyldu eða gjaldstofn er 6 vikur frá álagningu fasteignaskatts. Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður fast- eignaskatt, sem efnalitlum elli- og örorkulifeyris- þegum ergert að greiða. Sama gildir um slika lifeyris- þega, sem ekki hafa verulegar tekjur umfram elli- og örorkulifeyri. Umsóknir um lækkun eða niðurfellingu samkv. þessari heimild ber að senda til borgarráðs. Lóöarleiga, sbr. reglugerð nr. 250/1971, 0.5% af fast- eignamatsverði leigulóðar 1. janúar 1970. Vatnsskattur, sbr. reglugerð nr. 249/1971. Minnsta og mesta gjald pr. rúmmeter er sem hér segir: Ibúðarhúsnæði minnst kr..5.75 mestkr. 8.65 Vörugeymslur: minnst kr. 4.30 mestkr. 10.00 Aðrar byggingar minnst kr. 5.75 mestkr. 10.00 Vatnsskattur skal aldrei vera lægri en kr. 900.00 af skattskyldri eign. Aukavatnsskattur er kr. 4.45 pr. rúmmeter vatns. Brunabótaiögjald: Iðgjaldið er reiknað með gildandi brunabótamati. Húseigendur eiga þess kost að kynna sér vátryggingarskilmála Húsatrygginga Reykja- vikur að Skúlatúni 2. It. hæð. Sorptunnuleiga er kr. 325.00 fyrir hverja tunnu. Gjalddagar fasteignaskatta eru 15. janúar og 15. mai en annara gjalda samkv. fasteignagjaldaseðli 15. janúar. Dráttur hefur orðið á álagningu fasteigna- gjaldanna, en gjaldseðlar verða sendir út næstu daga. Gjöldin eru innheimt i Gjadheimtunni i Reykjavik. Reykjavik, 25. janúar 1973. Borgarstjórinn i Reykjavik. Tapað — Fundið Rautt kvenreiðhjól, teg. Philips (vantar á það frambrettið), var tekið frá afgreiðslu Visis i gærdag. Þeir, sem gætu gefið uppl. um hjólið, vinsaml. hafi samband við af- greiðslu blaðsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.