Vísir - 16.03.1973, Síða 5

Vísir - 16.03.1973, Síða 5
Vísir. Föstudagur 16. marz 1973. 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Lögreglan gerði „razzfu hjá leyniþjónustunni sem hafði neitað að láta áströlsku stjórninni í té skýrslur fyrir heimsókn forsœtisráðherra Júgóslavíu ii Hin almenna lögregla Ástralíu réöst í morgun inn í aðalstöðvar leyni- þjónustunnan sem stað- settar eru í Melbourne. Þrjú bilhlöss lögreglu- þjóna ruddust inn í skrif- stofurnar við St. Kilda- veg, þar sem ástralska ör- yggisleyniþjónustan (ASIO) er til húsa. — ASIOer ástralska útgáfan af CIA í Bandarfkjunum I Canberra, þar sem rikis- stjórnin hefur aðsetur sitt, var sagt, að lögreglan væri að leita að skýrslum yfir aðgerðir Kró- ata i Astraliu. bessar sömu heimildir sögðu, að ASIO, sem lýtur stjórn Gough Whitlams, forsætisráðherra, hafi neitað að láta skjölin af hendi við stjórn- ina. Lögreglan fór að fyrirmælum Lionels Murphy, dómsmálaráð- herra, þegar hún réðst inn i leyniþjónustuna til húsleitar- innar, og óljósar fréttir i morg- un hermdu, að dómsmálaráð- herrann hefði sjálfur verið i fylkingarbrjósti lögregluliðsins, þegar innrásin var gerð. Það hafði verið búizt við þvi, að Murphy flytti ræðu i þinginu um hópa Króata, sem sakaðir hafa verið um að hafa staðið að baki sprengjutilræða við júgó- slavneskar byggingar i Astraliu og stuðningsmenn Júgóslaviu þar. —En ræða Murphys átti að flytjast áður en forsætisráð- herra Júgóslaviu, Dzemal Bijedic, kemur i opinbera heim- sókn til Canberra i næstu viku. Þessi fy.rirhugaða tveggja daga heimsókn hefur leitt af sér einhverjar umfangsmestu öryggisráðstafanir, sem nokkru sinni hefur verið gripið til i Astraliu. Starfsmenn júgóslavneska sendiráðsins i Canberra telja, að eitt helzta málið, sem bera mun á góma i viðræðum þeirra Whitlams og Bijedic, verði ein- mitt tilvera króatiskra hermd- arverkahópa i Astraliu, sem skreppi annað veifið yfir til Júgóslaviu til að vinna stjórn Titos allt það ógagn, sem þeir geta. t Canberra er það haft fyrir satt, að Murphy hafi fengið upp- lýsingar um tilvist þessara öfgahópa frá FBI, þegar hann heimsótti Washington fyrr á þessu ári. Murphy hefur sjálfur ekkert viljað segja um málið, ekki einu sinni um innrásina i morgun. Blaðamönnum sagði hann i morgun, að hann hefði „heim- sótt” skrifstofur leyniþjónust- unnar. Skutu á þyrlu í friðargœzlu Horfast í augu ytir byssuna Það hefur hvorki gengið né rek- ið i viðræðuni Bandarikja- stjórnar við hina herskáu Indi- ána i Wounded Knee. úr varð- stöðum sinum hafa lögreglu- menn, sem umkringt hafa þorp- ið, vakandi auga með hernáms- liðinu og svo öfugt. Þeir horfast i augu yfir byssurnar. — Nú liggur þar snjór yfir öllu og kuldinn þjakar setuliðið. Bandarisk þyrla með fulltrúa innanborðs úr sameiginlegu herráði striðsaðilanna i Vietnam sætti skotárás i gær, þegar hún bjóst til lend- ingar nærri Tam Ky við miðbik strandarinnar. Þyrlunni tókst að hækka flugið og sveigja burtu i tæka tið, áður en skytturnar niðri fengu komið á hana skoti. En fresta varð þessari rannsóknarferð, sem farin hafði verið til leitar að hentugum stað til skipta á stríðs- föngum. Mennirnir i þyrlunni töldu ein 50 skot, sem skotið var að þyrl- unni úr léttum skotvopnum. begar þeir komu úr ferðinni, sögðu þeir, að fulltrúar Víet Cong og Norður-Víetnam „hefðu greinilega ekki orðið um sel”, þegar þeir sáu púðurreykinn niðri á milli trjánna”. Þyrlan var vel merkt gul- rauðum röndum, til merkis um að þar væri á ferð farartæki sam- eiginlega herráðsins, sem annast eftirlit með vopnahléinu. Bandarisk og suður-vietnömsk hervöld halda þvi fram, að þetta sé ekki i fyrsta sinn, sem skotið hefur verið á bandariskar þyrlur i friðsamlegum erindisgerðum. Og ein hafi verið skotin niður með þeim afleiðingum, að einn áhafnarinnar féll og fjórir særðust. „Að þessu sinni”, sagði tals- maður bandarisku herstjórnar- innar við fréttamenn, „verður þvi varla visað á bug af hálfu kommúnista”. Hann sagði, að foringjar kommúnista, sem voru um borð i þyrlunni, segi, að atvikið hljóti að stafa af þvi, að ekki hafi náðst samband við skæruliða á þessum slóðum. Teknir fyrír þrœlahald Söfnuðu að sér farandverka- mönnum og höfðu í þrœlabúðum T undurduflahreinsun Bandarikjamenn hafa hafið á nýjan leik hreinsun tundurfudla á siglingaleiðum fyrir ströndum Norður-VIetnam og úti fyrir Haiphong. En hlé var gert á þvi, þegar afhending strfðsfanga hafði drcgizt á langinn. Þessi mynd var tekin úr þyrlu, þegar tundur- skeytabátur forðaði sér, um leið og hann hafði sprengt upp eitt tundurfuflið af mörgum. Tveir menn voru handtekniri Homestead i Florida i gær, sakaðir um að hafa rekið þræla- búðir með 27 farand- verkamönnum. ,,Þeir voru að vinna þarna gegn vilja sínum og voru hafðir i þrælkun”, sagði einn iögreglumannanna, sem vinnur að rannsókn málsins. Mennírnir tveir ‘voru 35 árá gamall landbúnaðarverktaki og 27 ára gamall aðstoðarmaður hans, sem var vörður i búðunum. Lögreglan var að vinn'a að rannsókn á innbroti, sem framið hafði verið i búðunum og var óviðkomandi þessu máli, þegar hópur landbúnaðarverkamanna kom að máli við þá, og sögðust þeir vera þarna i haldi gegn vilja sinum. „Yfirmaðurinn hefur vörð um okkur, svo að við komumst ekki neitt” sagði ungur verkamaður frá Suður-Karolina. „Ef einhver okkar vildi fara, hótaði vörðurinn okkur barsmiðum, svo að við gátum ekki einu sinni farið i kaffihúsið hér rétt hjá”. „Verktakinn hélt reikninga yfir það, sem við unnum okkur inn, og svo það, sem við tókum út i mat og húsnæði og uppihaldi.— Við skulduðum honum alltaf meira en við höfðum unnið inn”. Þegar lögreglan handtók verk- takann, var hann á splunku- nýjum Cadillac, sem hann hafði keypt og greitt út í hönd fyrr i gær — 16.000 dollara á borðið. En hann bar á sér 43.700 dollara i reiðufé, þegar hann var færður á lögreglustöðina. Landbúnaðarverkamennirnir höfðu verið þvingaðir til þess að vinna fyrir 3 dollurum á viku, en voru alltaf i skuld i vikulokin. Þeir höfðu verið tældir til Flórida frá Georgiu og Karólina með loforðum um há laun og miklar tekjur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.